Morgunblaðið - 06.06.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992
19
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Nýr sendiherra
Bandaríkjanna
Nýr sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi, Sig A. Rogich, kom til
landsins síðastliðinn miðvikudag
og hefur tekið formlega við sendi-
herraembættinu. Hann afhenti
forseta íslands; frú Vidísi Finn-
bogadóttur, trúnaðarbréf sitt að
Bessastöðum í fyrradag. Sig A.
Rogich er íslenskur að uppruna
og bjó á ísjandi fyrstu fimm ár
ævinnar. Á myndinni sem tekin
var við athöfnina á Bessastöðum
eru Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra, sem viðstaddur
var er bandaríski sendiherrann
afhenti trúnaðarbréfíð, frú Vigdís
Finnbbgadóttir og Sig A. Rogich.
Tillögur um 40% samdrátt þorskafla:
Ekki hægt að bregðast
við með því að ráð-
ast á línuútgerðina
- segir Sturla Böðvarsson, þingmaður Vesturlands
„Fyrirsjáanleg skerðing, jafnvel þó hún yrði ekki 40%, kæmi afar
illa við byggðir við Breiðafjörð, sem og Akranes. Vertíðarbátarnir,
undirstaða útgerðar við Breiðafjörð, gera að langmestu leyti út á
þorskinn. Þá hafa Breiðafjarðarbátar stundað línuveiðar mjög mikið
og sú tvöföldun, sem er á línuveiðar tiltekinn tíma ársins, er sett
vegna þess að línufiskurinn er talinn afbragðs hráefni. Við höfum
litið svo á að þessi ákvörðun væri hluti af kvótakerfinu og því kem-
ur mér mjög á óvart að Kristján Ragnarsson, formaður Landssam-
bands útvegsmanna, skuli lýsa því yfir i sjónvarpsviðtali að ráðast
eigi gegn línuútgerðinni til að bregðast við fyrirsjáanlegum sam-
drætti,“ sagði Sturla Böðvarsson, þingmaður Vesturlands, í samtali
við Morgunblaðið.
Sturla sagði að hann teldi mikil-
vægara að koma í veg fyrir enn
frekari fjölgun togara, eða beina
þessum stóru og öflugu skipum í
Kjararannsóknanefnd:
40% munur á greiddum
launum karla og kvenna
KJARARANNSÓKNARNEFND kynnti í gær niðurstöður rannsókn-
ar á launamun milli kynjanna. Niðurstöður sýna að greitt vikukaup
kvenna er 37-42% lægra en vikukaup karla. Fram kemur að hægt
er að finna nokkrar mælanlegar og tölfræðilegar skýringar á þess-
um mun en þó ekki öllum. Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusam-
bands íslands vonar að þessi könnun verði gagnlegt innlegg í
umræðuna í þjóðfélaginu.
Fjölmiðlum var í gær kynnt sér-
rit, skýrsla, sem Eiríkur Hilmars-
son hjá kjararannsóknarnefnd hef-
ur unnið. Niðurstöður af könnun á
launum karla og kvenna. Könnunin
byggir á gögnum nefndarinar frá
þriðja ársfjórðungi 1990. Gerður
var samanburður á launum karla
og kvenna í starfstéttum verka-
fólks afgreiðslufólks og skrifstofu-
fólks.
Formaður kjararannsóknar-
nefndar, Ásmundur Stefánsson,
benti á að kjararannsóknarnefnd
hefði safnað margvíslegum gögn-
um sem gætu veitt ýmsar fróðleg-
ar upplýsingar. Tölur segðu ekki
allt en Eiríkur Hilmarsson hefði
unnið gott starf sem væri þarflegt
innlegg í umræðuna í þjóðfélaginu
um þessi mál.
Niðurstöður kjararannsóknar-
nefndar sýna m.a. að vikukaup
verkakvenna er 39% lægra en
verkakarla. Meginskýringin á
þessum launamun er sá að verka-
konur vinna þriðjungi styttri
vinnuviku en karlar. Þegar tillit
væri tekið til vinnuframlags og
yfirvinnuálags sýndu niðurstöður
útreikninga að laun verkafólks
væru ekki háð kyni þegar á heild-
ina væri litið. Það væri enginn
munur á greiddu tímakaupi kynj-
anna en hins vegar væri hreint
tímakaup verkakvenna 13% lægra
en hreint tímakaup verkakarla.
Þessi mismunur skýrðist með því
að verkakonur hefðu hærri bónus.
En bónus reyndist 23% af greiddu
tímakaupi verkakvenna en 9% af
tímakaupi verkakvenna. Það vakti
athygli að í fjölmennustu atvinnu-
greininni, fískvinnslunni var ekki
tölfræðilega marktækur munur á
greiddu tímakaupi karla og
kvenna.
Munur á vikukaupi kynjanna
fyrir afgreiðslustörf reyndist svip-
aður og hjá verkafólki; vikukaup
afgreiðslukvenna var 42% lægra
en afgreiðslukarla. En hins vegar
var minni munur á vinnutíma kynj-
anna. Að meðaltali unnu af-
greiðslukonur 20% styttri vinnu-
viku en afgreiðslukarlar, þar af
ynnu afgreiðslukonur 30% færri
yfírvinnustundir. Þegar tillit væri
tekið til þessara þátta væru af-
greiðslukonur með 13% lægra
vikukaup en afgreiðslukarlar.
Greitt tímakaup afgreiðslu-
kvenna væri að meðaltali 24%
lægra en greitt tímkaup af-
greiðslukarla. Tímakaup er mjög
mismunandi eftir tegunum versl-
ana og yfirleitt er tímakaup lægra
í verlunum þar sem konur eru í
miklum meirihluta; lægst er tíma-
kaupið í dagvöruverslunum en þar
eru konur 84% af afgreiðslufólki.
Niðurstöður sýna einnig að tíma-
kaup afgreiðslukarla er nátengt
aldri og eru afgreiðslukarlar á fer-
tugsaldri-með hæsta kaupið. Hins
vegar er samband aldurs og tíma-
kaups lítið hjá afgreiðslukonum.
Niðurstöður kjararannsóknar-
nefndar sýna einnig að tímakaup
afgreiðslufólks er 7% lægra á
landsbyggðinni heldur en á höfuð-
borgarsvæðinu. Karlar á lands-
byggðinni eru með 9% lægra tíma-
kaup en starsbræður þeirra á höf-
uðborgarsvæðinu, en ekki er töl-
fræðilega marktækur munur á
tímakaupi afgreiðslukvenns eftir
búsetu.
Skrifstofukonur eru að meðal-
tali með 37% lægra vikukaup held-
ur en skrifstofukarlar. Vinnuvika
skrifstofukvenna er 18% styttri
heldur eri vinnuvika skrifstofu-
karla og þær vinna færri yfirvinnu-
stundir. Þetta skýrir launamuninn
að hluta en eftir stendur 21% óút-
skýrður launamunur þegar tillit
hefur verið tekið til vinnutíma.
Munur á greiddu tímakaupi
skrifstofukarla og skrifstofu-
kvenna er 25% Skrifstofufólk á
landsbyggðinni er að meðaltali með
15% lægra tímakaup en skrifstofu-
fólk á höfuðborgarsvæðinu. Gagn-
stætt því sem er hjá afgreiðslu-
fólki, er jafnmikill munur á tíma-
kaupi karla og kvenna í skrifstofu-
störfum á landsbyggðinni og á
höfuðborgarsvæðinu.
Skrifstofumaður er mjög víð-
tækt starfsheiti og karlar eru hlut-
fallslega fleiri í stjórnunarstöðum
og stöðum sérfræðinga en konur
ijolmennastar í almennum skrif-
stofustörfum. Búseta og aldur hef-
ur einnig áhrif en niðurstaða Eiríks
Hilmarssonar hjá kjararannsókn-
arnefnd er: „Samanburður á
greiddu tímakaupi kynjanna sýnir
að skrifstofukonur eru með 20%
lægra greitt tímakaup en
skrfstofukarlar. Þá er tekið tillit
til aldurs, búsetu og stjórnunar-
stöðu.“
aðrar veiðar. „Mér fínnst það nán-
ast stríðsyfírlýsing við Breiðfírð-
inga ef Landssamband útvegs-
manna ætlar að beita sér gegn þess-
ari tvöföldun á línuveiðunum,"
sagði hann. „í þessu sama viðtali
við Kristján var einnig minnst á
krókaleyfísbátana. Það er auðvitað
töluvert vandamál hvernig á að taka
á því, en það er ljóst að ef þeir
bátar verða sviptir veiðiheimildum
þá kemur það mjög illa við útgerð-
arstaðina við Breiðafjörð, þar sem
fjöldi smábáta sækir á krókaleyfi.
Hins vegar þarf að fínna leið til að
hemja þá sókn eins og aðra sókn,
en ég tel óviðunandi að svipta þá
leyfum eða færa þá niður á ein-
hveija aflareynslu sem þeir hafa
fýrir þetta tímabil."
Sturla sagði að honum fyndist
nær að fjölga banndögum. „Bátarn-
ir yrðu þá í landi á þeim tímum
þegar ekki er frí hjá öllum sjómönn-
um, þannig að banndagarnir myndu
í raun skapa minni sókn.“
Sturla sagði að fyrirsjáanlegur
samdráttur myndi hafa geigvænleg
áhrif fyrir sjávarbyggðimar, ef ekki
yrði gripið inn í með einhveijum
aðgerðum, sem gætu dregið úr eða
frestað svo stórum skelli. „Ég hef
óskað eftir því við forsvarsmenn
sveitarfélaganna á Vesturlandi,
Akranesi, Stykkishólmi, Grundar-
firði, Ólafsvík og Hellissandi, að
þeir hittist og taki saman gögn um
þorskveiðarnar, til að auðvelda okk-
ur þingmönnum að vinna að þessu
mikilvæga máli. Ég legg einnig
mikla áherslu á að við vinnum með
LÍU að lausn þessara mála.“
Sturla sagði að fyrir þjóðarbúið
væri tæplega hægt að skerða þorsk-
afla um 40%. „Við getum hins veg-
ar ekki tekið neina áhættu. Ef nið-
urstaða okkar fiskifræðinga verður
á sömu nótum þá held ég að það
sé óhjákvæmilegt að taka tillit til
þess. Þá fagna ég því að sjávarút-
vegsráðherra skuli hafa kallað er-
lenda sérfræðinga til ráðgjafar. Við
ættum ekki að taka neinar ákvarð-
anir fyrr en þær niðurstöður liggja
einnig fyrir,“ sagði Sturla Böðvars-
son, þingmaður.
Allt á sama stað.
Opið alla laugardaga frá kl. 10 -16
sunnudaga í júní frá kl. 10 -14
Ötrúlegt úrval
sláttuvéla.
Einkaumboð Briggs og Stratton á íslandi
042R
16.737.-
3,75 HP.
478R
62.250.-
5 HP. með drifi
426R
39.800.-
4 HP.
VFSA .
Raðgr.
G.Á. Pétursson hf.
SLÁTTUVÉLAMARKAÐURINN
Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80