Morgunblaðið - 06.06.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JUNI 1992
25
V erslunarmenn í Færeyjum í vinnudeilu:
VR styður Skrifstofu-
og krambúðarfélagið
VERSLUNARMENN í Færeyjum, þ.e.a.s. „S & K-felagið“ (Skrifstofu-
og krambúðarfelagið) hefur leitað eftir stuðningi Verzlunamannafélags
Reykjavíkur. Magnús L. Sveinsson segir að þessi beiðni Færeyinga
sýni stöðuna þegar stéttafélög standi veikum fótum. Versiunamannafé-
Iag Reykjavíkur muni veita allan þann stuðning sem hægt væri.
VR barst hjálparbeiðni frá Færeyj- eyjum, Vinnuveitendasamband og
um 3. þ.m. Félagar í S-K-félaginu;
félagi verslunarfólks í Færeyjum,
hafa samþykkt heimild til stjómar
til að boða verkfall. Stjóm félagsins
hefur nú leitað eftir siðferðislegum
stuðningi og góðum ráðum íslenskra
starfssystkina. Staða verslunarfólk í
Færeyjum virðist lakleg eða „eins
og þekktist hér á landi fyrir mörgum
áratugum," sagði Magnús L. Sveins-
son formaður VR.
S & K-féiagið er ungt félag, var
stofnað 1973. Vinnuveitendur í Fær-
Kaupmannasamtök munu telja sig
hafa nánast sjálfsdæmi kjör starfs-
fólks og vilja ekki viðurkenna félagið
sem samingisaðila, samkvæmt upp-
lýsingum sem félagið sendi VR. Þar
kemur einnig fram að það er einnig
vandamál að vinnuveitendur vilja
hindra eða vinna gegn því að þeirra
starfsmenn séu meðlimir í félaginu.
Séu þess líka mörg dæmi að umsækj-
endum um verslunarstörf sé hafnað
fyrir þá ástæðu að þeir séu félagar í
S & K-félaginu.
Skoðanakönnun DV:
Aðgæslu þörf
í umferðinni
MIKII, umferð hefur oft verið á
þjóðvegum um hvítasunnuhelgina
og mun lögregla um land allt fylgj-
ast sérstaklega með umferðinni.
í frétt, sem Morgunblaðinu hefur
borist frá Umferðarráði er bent á,
að nokkur atriði þurfi ökumenn að
hafa í huga. Miða þurfi ökuhraða við
aðstæður og virða hraðatakmarkan-
ir, allir þurfa að hafa beltin spennt,
bæði böm og fullorðnir og sýna ber
gagnkvæma tillitssemi í umferðinni.
Þá er sérstaklega bent á, að áfengi
og' akstur fara ekki saman og öku-
menn beðnir að hafa í huga að áfengi
getur verið i blóði þeirra langt fram
á næsta dag eftir neyslu.
Vitni vantar
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að árekstri, sem varð
á mótum Hverfisgötu, Hafnar-
strætis og Lækjargötu á miðviku-
dagskvöld, um kl. 23.
A gatnamótunum skullu saman
tvær fólksbifreiðar. Annarri var ekið
austur Hafnarstræti og hinni suður
Lækjargötu-Kalkofnsveg. Ökumenn
greinir á um stöðu umferðarljósanna.
Lögreglan vill gjaman ná tali af
ökumanni bifreiðar, sem stóð á Lækj-
argötu-Kalkofnsvegi og beið eftir
ljósi til aksturs upp Hverfisgötuna,
sem og öðmm þeim, sem kunna að
hafa séð áreksturinn. Þeir em beðhir
að hafa samband við slysarann-
sóknadeild lögreglunnar i Reykjavík.
------♦ ♦ ♦----
D 7
'Vj
j ijjijjuitjj Jj jj
J'Jj’jJJJiiJAl^ JliliDDhJjJJ
JiiJiJjJ JJ JJj’jJiJJjiJ^i^ jJ^JjSjJ^jiíJjiJJ
jiJiJjJ JJ J'JjjJJJjiJ^JÍJA ihtlUOliiiAUS
P
D
P
Colt stolið
Bifreiðinni LD 526, hvítur fjög-
urra dyra Mitsubishi Colt, árgerð
1986, var stolið frá Hlíðarbyggð
21 í Garðabæ sunnudagsmorgun-
inn 31. maí.
Þeir, sem gætu veitt upplýsingar
em beðnir að hafa samband við rann-
sóknarlögregluna í Hafnarfirði.
Sjálfstæðisflokkur-
inn eykur fylgi sitt
Algengt orðið að stóðhestar séu harðleiknir við hryss
umar, segir Bjarkar Snorrason í Tóftum
ÞAÐ ÁTTI sér stað á Tóftum í Stokkseyrarhreppi að stóðhesturinn
Stormur frá Stórhóli banaði einni hryssunni sem hann átti að gagn-
ast. Hryssan var sett í hólf hjá hestinum á sunnudag og virtist
hann taka henni vel.
Bóndinn í Tóftum, Bjarkar
Snorrason, sagðist hafa tekið eftir
því á þriðjudag að hryssan hélt sig
frá hrossahópnum og aðgætti hann
hvort ekki væri allt með felldu.
Var hryssan þá með nokkra áverka
og orðin nokkuð dösuð. Tók hann
því hryssuna inn og gaf henni pen-
isillín en í gærmorgun var hún
dauð þegar komið var að henni.
Bjarkar sagði það vera spum-
ingu hvort hægt væri að tala um
þetta sem óvenjulegan atburð því
algengt væri orðið að stóðhestar
leggðu einstakar hryssur í einelti
og misþyrmdu þeim. Það væri
spuming hvort ekki megi segja það
óvenjulegt ef engar barsmíðar
koma upp. Nefndi Bjarkar í þessu
sambandi ýmsa vel metna stóð-
hesta sem kunnir væru að góðu
geðslagi og vissi hann dæmi þess
að einn þeirra hefði drepið hiyssu.
Sagði hann það vel þekkt að stóð-
hestar dræpu folöld og nefndi að
þegar einn kunnur stóðhestur drap
folald réðst hann að því loknu að
eiganda sínum sem átti fótum fjör
að launa og flúði ofan í skurð.
Bjarkar gat þess að þetta virtist
ekkert hafa með geðslag hestanna
að gera. Sennilega hefði þetta eitt-
hvað með hormónastarfsemina að
gera. Þá hefði hann einnig látið sér
detta í hug að orsökin gæti verið
sú að hestamir væm með sínu rétta
eðli við óeðlilegar aðstæður. Átti
hann þá við girðingamar sem væm
mismunandi víðáttumiklar. Svo
virðist sem stóðhestar skammti sér
ákveðinn fjölda hryssna og þegar
bætist við þann íjölda reyndu þeir
að hrekja umframhryssumar í
burtu. Úti í frjálsri náttúra kæm-
ust hryssumar undan og finndu
annan stóðhest eða samlöguðust
trippastóði. Bjarkar sagði þetta
vera orðið mikið vandamál og tíma-
bært að finna einhveija lausn á
því, það gengi ekki að hryssumar
komi lemstraðar eða jafnvel dauðar
frá hestunum.
Þá urðu óheillatíðindi fyrir
skömmu að stóðhesturinn Hósías
frá Kvíabekk hálsbrotnaði í hest-
húsinu á Bringu í Eyjafjarðarsveit.
Hósías er mjög hátt dæmdur
stóðhestur. Hann var síðast sýndur
á Stóðhestastöð Búnaðarfélags ís-
lands 1991 og hlaut þá i einkunn
8,22; 8,40 fyrir byggingu og 8,04
fyrir hæfileika. Hann var undan
Gusti 923 frá Sauðárkróki og
hryssunni Skerpu 5485 frá Kvía-
bekk sem á ættir sínar að rekja
að stómm hluta til Homafjarðar.
FYLGI Sjálfstæðisflokksins hefur
aukist frá því í apríl ef miðað er
við niðurstöður skoðanakönnunar
DV, sem birtist í gær. Kvennalist-
inn hefur einnig bætt við sig en
Alþýðubandalagið hefur tapað
nokkru fylgi. Breytingar á stöðu
annarra flokka eru óverulegar. í
sömu könnun kom fram, að fylgi
ríkisstjómarinnar hefur aukist lít-
illega frá því í aprfl en er þó enn
aðeins um 40% ef miðað er við
þá sem tóku afstöðu.
í könnun DV nú fær Sjálfstæðis-
flokkur 31,3% fylgi nú. Hann fékk
29,5% í könnun í apríl en 38,6% í
kosningunum í maí 1992. Framsókn-
arflokkur fær 26,8% nú, fékk 26,0%
í apríl en 18,9% í kosningunum. Al-
þýðubandalag fær 20,0% nú, í apríl
Morgunblaðið/Valdimar Knstinsson
Stormur frá Stórhóli á sýningu á stóðhestastöð-
inni, knapi er Rúna Einarsdóttir.
Hósías frá Kvíabekk er með eina hæst metnu
byggingu stóðhesta hér landi, þótti stólpa mynd-
arlegur og vel gerður hestur. Knapi er Rúna
Einarsdóttir.
Stóðhestur banar hryssu
23,1% og 14,4% í kosningunum. Al-
þýðuflokkur fær 11,2%* nú, í apríl
fékk flokkurinn 11,5% en 15,5% í
kosningunum. Kvennalisti fær 10,7%
fylgi nú, fékk 9,7% í apríl en 8,3%
í kosningunum.
í könnun DV var fólk einnig spurt
um afstöðu til ríkisstjómarinnar.
34,7% svarenda lýstu sig fylgjandi
henni, andvígir vora 50,3% en 15%
vora óakveðnir eða neituðu að svara.
Ef aðeins er litið til þeirra sem tóku
afstöðu vora stuðningsmenn ríkis-
stjómarinnar 40,8% en andstæðingar
59,2%.