Morgunblaðið - 06.06.1992, Page 31

Morgunblaðið - 06.06.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992 31 Hjónaminnmg: Stefanía Þ. Eiríks- dóttir og Samúel Jónsson frá Þingdal Stefanía: Fædd 28. mars 1920 Dáin 1. júní 1992 Samúel: Fæddur 3. maí 1905 Dáinn 12. febrúar 1992 Skyndilega bar að lát Stefaníu Eiríksdóttur frá Þingdal, en hún lést í Sjúkrahúsi Suðurlands aðfara- nótti 1. þ.m. Stefanía var fædd á Neistastöð- um 28. mars 1920 og var á 73ja aldursári er hún lést. Foreldrar Stefaníu voru Eiríkur Jónsson frá Eystra-Geldingaholti í Gnúpverjahreppi og Guðrún Stef- ánsdóttir í Kampholti. Þau hjón hófu búrekstur í Kampholti vorið 1918 og búnaðist þeim þar vel og áttu þar heima meðan starfskraftar leyfðu. Bæði voru þau hjón vinnu- söm, Eiríkur hafði stundað sjósókn á þilskipum á yngri árum. Guðrún var hin mesta atorkukona og var sama að hveiju hún gekk, bráð- greind og málefnalega fylgin sér hver sem í hlut átti, vinaföst og trygg við þá sem hún batt vináttu við. Einnig farnaðist henni vel að umgangast búfé og gerði hún það meðan heilsa hennar leyfði, enda var bústofn þeirra arðsamur og áttu þau hjón lengst af frægt hesta- kyn. Ekki er úr vegi að minnast á hversu góð þau voru heim að sækja og áttu þau bæði gott með að halda uppi eftirminnilegum samræðum við gesti. Þeim hjónum fæddust tvær dætur og var Stefanía þeirra eldri. Hún ólst upp í föðurgarði og eins og flest önnur sveitabörn á þessum tíma fór hún ung að starfa og hjálpa til við búskap foreldra sinna og kom þá fljótt í ljós, hversu henni var sýnt um að umgangast allt búfé og hve eðlisglögg hún var á kosti og galla búsmalans. Stefanía giftist Samúel Jónssyni frá Brjásnstöðum á Skeiðum árið 1941, en hann lést síðastliðinn vet- ur. Vorið 1943 fóru þau að búa í þingdal, en fram að því höfðu þau haft jarðarafnot í Kampholti við hlið Eiríks og Guðrúnar en hugurinn stóð hærra og þar sem þeim fannst vera of þröngt um sig í sambýlinu fluttu þau að Þingdal þegar sú jörð losnaði, en hún er í nágrenni Kamp- holts. Þeim búnaðist strax vel þar og eignuðust mestan hluta jarðar- innar. Þau hjón áttu tvö börn sem eru Eyrún og Jón, en nú komu erfið- leikar, sem á tímabili hnekkt mjög líf og afkomu þeirra hjóna. Stefan- ía veiktist og varð að fara á sjúkra- hús og dvelja þar á annað ár áður en orsök sjúkleikans greindist svo hægt væri að gera þá aðgerð sem þurfti, til hún fengi heilsu að nýju. Enn erfiðleikarnir gengu yfir og komst Stefanía aftur til verka. Aft- ur syrti að er Samúel veiktist af erfiðum sjúkdómi að vetrarlagi og nú varð Stefanía að fóðra bústofn- inn og hugsa um sjúkling að auki. Allt þetta leysti hún af hendi með stakri prýði. En loks birti upp að nýju og Samúel komst til heilsu þó aldrei yrði hann jafngóður aftur. Og áfram bjuggu þau á Þingdal við síbatnandi hag og ekki brugðust hyggindi húsmóðurinnar, að nýta þá fjármuni sem hún hafði til ráð- stöfunar. Árið 1988 fluttu þau að Selfossi enda bæði þá orðin heilsubiluð. Samúel og Stefanía höfðu alta tíð óbifanlega trú á íslenskum landbún- aði og unnu honum ei til hálfs, enda bæði heilshugar, og efunar- skoðanir voru þeim fjarri. Þegar þau fluttu frá Þingdal sýndu þau hug sinn með því að fá ungum hjónum af nálægum bæ jörð sína og það sem eftir var af bústofni á góðum kjörum, með því gáfu þau öðrum fagurt fordæmi. Að leiðarlokum er okkur efst í huga þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum á heimili Stefaníu og Samúels, en þær voru ófaár og eigum við ljúfar minningar um þau hjón, sem ekki fyrnast. Hjálpsemi og greiðvirkni þeirra var einstök. Vinir og kunningjar þeirra voru margir, ekki bara í nærliggj- andi byggðum heldur langt útfyrir þær. Hlýja og gestrisni var alltaf í fyrirrúmi. Fyrir það er nú þakkað er leiðir skilja. Þú ljúfa tíð er fegurð öllu færir og ijörgar allt sem líf og andi hrærir en dauðanum eru allir dagar kærir. (M.J.) Vottum öllum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Ólafur Árnason, Guðni B. Guðnason. Okkur langar til að minnast í örfáum orðum elskulegrar ömmu okkar, Stefaníu Þóru Eiríksdóttur, sem lést á sjúkrahúsinu á Selfossi aðfaranótt 1. júní sl., og elskulegs afa okkar, Samúels Jónssonar, sem lést 12. febrúar sl. Ekki óraði okkur fyrir því að amma okkar færi svona fljótt á eftir afa. Hún sem var búin að ákveða að gera svo margt í sumar, þ.á m. að fara hringveginn og skoða landið sitt. Er við kveðjum þau verður ekki hjá því komist að upp rifjist minn- ingar frá bernsku okkar hjá þeim í Þingdal. Dvöldum við iðulega þar á sumrin við leik og störf. Ommu og afa þótti afar gaman að fá gesti, enda var mikill gestagangur hjá þeim og oft glatt á hjalla. Afi var mjög trúrækinn maður og leitaðist hann við að ala okkur upp í kristi- legri trú og líferni. Við systkinin minnumst þess þegar við vorum komin upp í rúm á kvöldin, þá kom hann alltaf, gaf okkur mola og minnti okkur á að fara með bænina okkar. Ekki var það verra að vakna á morgnana við kleinuilminn úr eld- húsinu hjá ömmu. Um leið og við þökkum þeim allt það góða sem þau gerðu fyrir okk- ur og biðjum góðan Guð að taka vel á móti þeim, kveðjum við þau með einum af eftirlætis sálmi þeirra. Hvað bindur vom hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þó allir vaka, og hryllir við dauðans dökkum straum, þó dauðinn oss megi ei saka. En ástin er björt sem bamsins trú, hún blikar í ljóssins geimi, og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú, oss finnst þar í eining streymi. M heli tii lífs hún byggir brú og bindur oss öðrum heimi. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þunp greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson). Sigríður, Helga, Þóra og Sigurbjartur. BERJARUNNAR BERJATRÉ Úlfareynir er margstofna tré eða stórvaxinn runni sem blómstrar bleikum blómum í júní og er með stór, rauð ber á haustin. Berin eru vel æt og mjög góð í sultu. Tréð er harðgert en þolir illa sjávarseltu. Biém vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir 236. þáttur Grein sú sem nú verður birt, er eftir Guðmund Vernharðs- son garðyrkjufræðing, starfs- mann í Gróðrastöðinni Mörk. Hollur er heimafenginn baggi Það hefur löngum þótt eftir- sóknarvert að eiga í matarhirslum sínum heimalagaða beijasultu eða hlaup og geta síðan þegar gesti ber að garði borið á borð með vöfl- um og ijóma. Margir minnast þess eflaust að hafa í æsku nælt sér í rifsber eða sólber til að gæða sér á úr einhveijum garðinum jafnvel sem óboðnir gestir. Rifs og sólber eru auðræktanleg og eiga heima í hvers manns garði hvort sem er við einbýlis- eða fjölbýlishús. Einn- ig eru stikilsber auðræktuð. Ég mun í þessum pistli einnig minnast á nýja og gamla tegund sem nýt- ast bæði til skrauts og beijarækt- ar. Plantið beijarunnum í garðinn ykkar og það skilar arði og ánægju um ókomin ár. Garðarifs — Ribes spicatum Rifsrunnar eru sennilega með algengustu og harðgerðustu runn- um í görðum á íslandi. Rifs er hvorki vandmeðfarið né kröfuhart. Ef hámarks uppskera á að nást þarf þó þokkalega sólríkan og skjólgóðan stað. Sumir hafa hins- vegar notað rifs til skjóls og jafn- vel klippt í limgerði og samt feng- ið þokkalega uppskeru, það sýnir kannski best hve harðgerð tegund- in er. Rifsi skal planta með 1—1,5 m millibili og gæta þess vel að planta nægilega djúpt þannig að efstu rætur komi 15—20 sm ofan í jörðu. Best hefur reynst afbrigðið „Rod Hollansk". Sólber — Ribes nigrum Sólber hafa notið síaukinna og verðskuldaðra vinsælda. Það sem helst hefur verið til ama með sól- ber er hversu mikið greinarnar vilja leggjast niður að jörð. í Nor- egi, þar sem sólbeijarækt er al- menn, hafa menn fundið við þessu mjög einfalt ráð. Reknir eru niður fjórir staurar í ferning kringum plöntuna með um 80 sm millibili og látnir standa um 30—40 sm upp úr jörðu. Milli þeirra er síðan negld slá, þannig að greinar runnans leggjast ekki neðar en niður á staurana. Gæta þarf þess að velja sortir sem þroska ber snemma. Best hafa reynst „0jebyn“, „Melal- atii“, „Jenkisaryyii" og „bratop". Hélurifs — Ribes laxiflorum. Ný beijategund. Þessi jarðlæga runnategund getur gengt þrenns- konar hlutverki. Sem þekjuplanta, betjarunni og skrautplanta með sína gullfallegu haustliti. Berin eru dökkblá á litin og héluð með hvít- leitri hélu. Bragð beijanna er ein- hversstaðar á milli blábeija og sólbeija. Þessi tegund getur sem- sagt vel sómt sér í beði með skraut- runnum og fjölærum plöntum. Úlfareynir — Sorbus hostii Lítt þekktur og lítt notaður sem nytjajurt, er úlfareynirinn samt þó nokkuð algeng tegund í görðum. Fullþroskuð eru úlfareyniber eld- rauð, og þeir sem smakkað hafa, vita að þau eru bragðgóð. Bragðið minnir helst á mjölmikil rauð epli. Úlfareyniber eru kjörin í beija- mauk, t.d. soðin saman með eplum. ^ununuKUKunununuKunuisNjóBRÆÐSL* -og þú hefur þitt á þurru! HER ANU AU SöluaSili: VATNSVIRKINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.