Morgunblaðið - 06.06.1992, Side 35

Morgunblaðið - 06.06.1992, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992 35 Gafl gamla íþróttahússins við grunnskólann var málaður og setur svip á bæinn. einstaklinga og fékk sérstaka viðurkenningu. í tengslum við M-hátíð og skóla- lok var einnig haldin vorhátíð í skólanum þar sem vinna nemenda í hand- og myndmennt var til sýn- is ásamt ýmsum skemmtiatriðum sem nemendur buðu upp á. Sýn- ingin var fjölsótt af nemendum og aðstandendum þeirra. Sérstaka athygli vakti frískleg tískusýning stúlkna í efri bekkjum skólans á vinnu sem þær hafa unnið í hand- mennt og var ekki að sjá að þar færu óskólaðar sýningarstúlkur. Myndmenntahópur málaði gafl gamla íþróttasalarins og setur það mikinn svip á skólann og reyndar bæjarfélagið. Margt annað var til gamans gert í skólanum, t.d. var hægt að bregða sér á hestbak, grilla pylsur og fleira. Dagurinn var fjölsóttur af íbúum Grindavík- ur sem notuðu tækifærið til að líta á hvað grunnskólanemendur fást við yfir veturinn. - FÓ- GÆÐAFLISARAGOÐUVERÐI Stórhöfða 17, við GulKnbrú, sími 67 48 44 Frábærir gallar og frábært verð og ekki aðeins þessi galli Komið og skoðið ^loMb úrvalið HÓLAGARÐI 0 BREIÐHOLTI 0 SÍMI 75020 Kannfélaff Anstur-SRaftfellinga BÝÐUR ÍBÚUM HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS SEM OG ÖLLUM LANDSMÖNNUM AÐ NJÓTA SÝNINGAR SÝSLUSAFNS AUSTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU í KOLAPORTINU í DAG KL. 10-16. Á sýningunni verða 124 Ijósmyndir sem Skarphéðinn Gíslason á Vagnsstöðum í Suðursveit tók um og eftir 1940 auk annarra mynda úr Byggðasafni Austur-Skaftafellssýslu og víðar að. Þessi sýning hefur að undanförnu verið á ferð um alla hreppa sýslunnar við góða aðsókn og ánægju sýningargesta. Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga er ánægja af því að stuðla að uppsetningu þessarar skemmtilegu sýningar í Kolaportinu í dag og við vonumst til að sem flestir fái að njóta þessa viðburðar. Opið í dag frá kl.10-16. KOIAPORTIÐ MtfRKa-ÐXrO&r - kemur sífellt á óvart! REKSTRAR- OG VIÐSKIPTANAM Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands, haustiö 1992 — þriggja missera nám með starfi — Frá því að Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands hóf starfsemi árið 1983, hefur stöðugt betur komið í Ijós þörfin fyrir heildstætt nám í rekstri fyrirtækja og stofnana, sem hægt væri að stunda með starfi. Nám á há- skólastigi, þar sem gerðar væru miklar kröfur, bæði til nemenda og kenn- ara. Endurmenntunarstofnun hefur frá áramótum 1990 boðið upp á þriggja missera nám fyrir aðra en viðskipta- og hagfræðinga. Fimm hópar hafa hafið námið og þrír hópar lokið námi. í þessu námi eru tekin fyrir helstu undirstöðuatriði hagfræða og rekstrar og þess freistað að gera þeim betri skil en hægt er á styttri námskeiðum. Forgang hafa þeir, sem lokið hafa háskólanámi, en einnig er tekið inn fólk með stúdentspróf eða sam- bærilega menntun, sem hefur töluverða reynslu í rekstri og stjórnun. Stjórn námsins skipa þrír háskólakennarar, þeir Logi Jónsson, dósent, fulltrúi Endurmenntunarstofnunar HÍ, Stefán Svavarsson, dósent, fulltrúi viðskipta- og hagfræðideildar HÍ og Pétur Maack, prófessor, fulltrúi verk- fræðideildar HÍ. Helstu þættir námsins eru: Rekstrarhagfræði, reikningshald og skattskil, fjármálastjórn, stjórnun og skipulag, starfsmannastjórnun, upplýsingatækni í rekstri og stjórnun, framleiðslustjórnun, markaðs- og sölufræði, réttar- reglur og viðskiptaréttur, þjóðhagfræði og haglýsing og stefnumótun. Kennarar m.a.: Bjarni Ingvarsson, vinnusálfræðingur og starfsmannastjóri. Bjarni Þór Óskarsson, hdl. og adjúnkt viðskiptadeildar Hí. Gísli S. Arason, rekstrarráðgjafi og lektor Hl. Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, stundakennari HÍ. Magnús Pálsson, viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi. Páll Jensson, prófessor, verkfræðideild HÍ. Páll Kr. Pálsson, forstjóri Vífilfells hf. Stefán Svavarsson, dósent, viðskiptadeild HÍ. Næsti hópur hefur nám í byrjun september 1992. Kennslutími er 120 klst. á hverju misseri auk heimavinnu. Þetta samsvar- ar um 18 eininga námi á háskólastigi. Kennd er ein námsgrein í einu og henni lokið með prófi eða verkefni áður en sú næsta hefst. í lok námsins fá þátttakendur prófskírteini er vottar þátttöku og frammistöðu þeirra í náminu. Verð fyrir hvert misseri er kr. 67.000.00. Allar nánari upplýsingar um nám þetta, ásamt umsóknareyðublöðum (sem sendist inn fyrir 10. júní 1992) er hægt að fá hjá: Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands, Tæknigarði, Dunhaga 5,107 Reykjavík, símar 694923,692924 og 694925.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.