Morgunblaðið - 06.06.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992
39
I
I
I
I
I
I
i
I
I
3
I
3
MIÐAVERÐ KR. 300
Á 5 OG 7 SÝNINGAR
ALLA DAGA
SPOTS-
WOOD
Óskarsverð-
laumihaf imi
Anthony
Hopkins í sinni
nýjustu mynd
Wallace (Anthony
Hopkins) er ráðinn til þess
að auka framleiðslu og
hagnað í skóverksmiðju í
smábænum Spotswood.
Hans ráð eru: Reka starfs-
fólkið, hætta framleiðslu
og flytja inn skóna. Þar
kemur mannlegi þátturinn
inn í.
Aðalhlutverk:
Anthony Hopkins
og Ben Mendelsohn.
Leikstjóri: Mark Joffe.
Sýnd í A-sal
kl. 5, 7 og 9.
FÓLKIÐ UNDIR
STIGANUM
MITT EIGIÐIDAHO
★ ★★★ L.A. TIMES
★ ★★★ PRESSAN
★ ★★ MBL.
■ AND-LEIKHÚSIÐ
sýnir í síðasta sinn í kvöld,
laugardag, verkið Danni og
djúpsævið bláa, í þýðingu
og leikstjórn Ásgeir Sigur-
valdasonar. Með aðalhlut-
verk fara Helga Braga
Jónasdóttir og Þorsteinn
Guðmundsson. Danni og
djúpsævið bláa er nýlegt
bandarískt verk á mörkum
raunsæis og táknsæis og
hefur fengið mikið lof
gagnrýenda fyrir samstillt-
an leik og kröftuga lýsingu
á veruleika og einkennist
af harðneskju og frum-
stæðri líffsýn, segir í frétta-
tilkynningu frá leikfélaginu.
Sýningar fara fram í
Tunglinu við Lækjargötu
og hefst þessi síðasta sýn-
ing kl. 21.00 stundvíslega.
Þorsteinn Guðmundsson
og Helga Braga Jónasdótt-
ir í hlutverkum sínum.
Fjölskyldu-
dagar í
Laugarnesi
GÓÐ aðsókn hefur verið að
dagskrá í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar á Listahá-
tíð.
Hvítasunnudag og annan í
hvítasunnu verður gestum
veitt leiðsögn um söguslóðir
Laugarness og verður lagt
upp frá Sigurjónssafni kl.
15.00 báða dagana. Þriðju-
daginn 9. júní kemur Jón E.
Guðmundsson í safnið og sýn-
ir íslenska brúðuleikhúsið kl.
15.00. Fjölskyldudagarnir
standa til 16. júní og eru öllum
opnir frá kl. 13 til 18 dag-
lega.
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Keramik og gullsmíði
í Norræna húsinu
OPNUÐ verður sýning í anddyri Norræna hússins laugardaginn 6.
júní kl. 14, á verkum tveggja danskra listamanna. Bente Hansen sýnir
keramik og Jan Lohmann sýnir skartgripi.
Bente Hansen og Jan Lohamn.
Sérverslun með garn
VERSLUNIN Garnhúsið var opnuð í Faxafeni 5 þann 10. maí sl.
Garnhúsið er sérverslun með prjónagarn og fylgihluti, svo sem skart-
gripi, belti og töskur.
Sendiherra Danmerkur, Villads
Villadsen, flytur ávarp og opnar sýn-
inguna.
Bente Hansen er fædd 1943. Hún
stundaði nám við Listiðnaðarskólann
í Kaupmannahöfn á árunum 1960-
1964. Eftir það starfaði hún hjá
Bing & Grondal sem hönnuður í
Stúdentaleik-
húsið æfir Beð-
ið eftir Godot
HJA Stúdentaleikhúsinu standa
nú yfir æfingar á leikritinu Beðið
eftir Godot eftir írska nóbels-
skáldið Samuel Beckett. Verður
verkið frumsýnt á Galdraloftinu,
Hafnarstræti 9, þann 3. júlí nk.
Er þetta í fyrsta sinn sem nýleg
þýðing Árna Ibsen á textanum er
sett á svið. Leikstjóri er Björn Gunn-
laugsson. Uppfærslan á Godot verður
með öðru sniði en menn eiga að venj-
ast, þar sem leikritið er skrifað fyrir
fimm karlleikara, en í leikhópunum
eru að þessu sinni tvær leikkonur.
nokkur ár og einnig vann hún hjá
Konunglegu postulínsverksmiðj-
unni. Bente hefur rekið eigið verk-
stæði frá 1968 og á þessu ári hef-
ur hún sýnt í Diisseldorf og í Mari-
enlyst Slot við Helsingjaeyri. Bente
Hansen hefur hlotið margar viður-
kenningar fyrir keramikmuni sína
og verk hennar eru í eigu margra
safna og sjóða.
Jan Lohman fæddist 1944. Hann
lauk gullsmíðanámi hjá Axel Larssen
1964. Síðan tók við námsdvöl í Sviss
og námsferðir til Suður- og Mið-
Ameríku. Einnig hefur hann ferðast
til og haldið sýningar í Líbanon og
Jórdaníu. Frá 1978 hefur hann rekið
Galerie Metal ásamt Peder Musse
og fleirum. Jan Lohmann hefur
verið prófdómari og kennari við
listiðnaðarskóla í Danmörku. Á
næstunni sýnir Jan Lohmann á
Triennal Europeenne du Bijou í
París. Jan Lohmann hefur unnið
til verðlauna fyrir gullsmíði og
söfn og sjóðir hafa keypt verk
hans. Sýningin í anddyri Norræna
hússins stendur til 28. júní og verð-
ur opin daglega kl. 9-19, nema
sunnudaga kl. 12-19.
Verslunin mun selja garn frá
ensku fyrirtækjunum Patons og
Jaeger sem þekktastir eru fyrir
klassíska hönnun og hágæðavöru.
Á boðstólum eru ýmsar tegundir
sem ekkir áður hafa verið á mark-
aðnum frá þessum fyrirtækjum.
Verslunin er opin alla virka daga
frá kl. 10-18, laugardaga kl.
10-14. Einnig er veitt ráðgjöf um
allt sem heitir að pijóna lítið jafnt
sem stórt svo og efna- og litaval.
Eigandi Garnhússins er Júlíus
Thorarensen og verslunarstjóri er
Ásta Sigvaldadóttir.
{Úr fréttatilkynningu)
*
Islensk mat-
vælakynning
á Hótel
Loftleiðum
HÓTEL Loftleiðir efna í sumar til
kynningar á íslenskri matvæla-
framleiðslu með það fyrir augum
að vekja athygli ferðafólks og íbúa
höfuðborgarsvæðisins á hve langt
islensk fyrirtæki hafa náð á þessu
sviði og vekja jafnframt athygli á
gæðum íslensks hráefnis, segir í
fréttatilkynningu frá Flugleiðuni.
Á hótelinu eru tveir veitingastaðir
sem taka báðir þátt í kynningunni.
í hádeginu er boðið upp á hlaðborð
í Lóninu, sem er nýinnréttaður veit-
ingastaður innaf anddyri hótelsins.
Þar er sérstök áhersla lögð á laxa-
og síldarrétti ásamt öðrum sjávar-'
réttum. Á matseðli Blómasalar, sem
er aðalveitingasalur hótelsins, verður
megináhersla lögð á nýja fiskrétti.
Blómasalurinn er opinn öll kvöld frá
kl. 18.30-22.30.
Veitingastaðir Hótel Loftleiða
hafa um árabil beitt sér fyrir nýjung-
um í matargerð og framreiðslu og
kynning á framleiðslu íslenskra mat-
vælaframleiðenda er þáttur í þessu
starfi.