Morgunblaðið - 06.06.1992, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992
Mm
FOLK
■ JOHN Barnes, enski landsliðs-
maðurinn í knattspyrnu, sem sleit
hásin í landsleik gegn Finnum í
vikunni, fór í aðgerð í gær þar sem
gert var að meiðsl-
FráRnh Um hanS.
Hennessy ■ REIKNAÐ er
iEnglandi með að. Barnes
verði frá í 7-8 mán-
uði, en hann segist vonast til að
geta leiki á ný fyrir jól.
■ FARI svo að Bames, sem verð-
ur 29 ára í nóvember, geti ekki leik-
ið á ný getur enska knattspyrnu-
sambandið átt von á reikningi frá
Liverpool, sem Barnes leikur með,
upp á 3-4 milljónir punda, sem er
líklegt söluverð leikmannsins ef fé-
lagið hefði selt hann, vegna þess
að hann meiddist í landsleik. Þetta
er andvirði 315-420 milljóna ÍSK.
■ BARNES fær laun skv. samn-
ingi sínum við Liverpool, sem talin
eru 9.000 pund á viku — 945.000
ÍSK — greidd frá tryggingafélagi
enska knattspyrnusambandsins,
allan þann tíma sem hann verður
frá æfíngum. Þetta eru tæplega 3,8
milljónir ÍSK á mánuði, þannig að
ef hann yrði frá til áramóta þyrfti
tryggingafélagið að punga út and-
virði tæplega 27 milljóna ÍSK.
■ PETER Shilton framkvæmda-
stjóri enska liðsins Plymouth Ar-
gyle hefur borgað metfé, 250 þús-
und pund, fyrir sóknarleikmanninn
Paul Dalton frá fjórðu deildarliði
Hartlepool.
I MARK Falco, fyrrum leikmað-
ur Tottenham, Glasgow Rangers
og QPR, hefur endanlega lagt
skóna á hilluna. Þessi 31 árs gamli
leikmaður hefur átt við bakmeiðsli
að stríða, en hann lék með Mill-
wall á síðasta keppnistímabili.
■ JUSTIN Fashanu á góða
möguleika á því að verða fyrsti
þeldökki framkvæmdastjórinn í
enska fótboltanum. Hann hefur
verið ráðinn aðstoðarframkvæmda-
stjóri fjórður deildar liðsins Torqu-
ay United.
■ GLASGOW Rangers hefur
borgað Hearts 1,3 millj. pund fyrir
Dave McPherson. Hann kom til
Hearts frá Rangers 1987, þegar
þáverandi framkvæmdastjóri Ran-
gers, Graeme Souness, rak hann
frá félaginu. Hearts borgaði þá 400
þúsund pund fyrir kappann.
■ JOE Kinnear hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Wimbledon
til næstu þriggja ára. Hann tók við
liðinu í janúar sl. og reif það eftir-
minnilega upp úr lægð sem það
hafði verið í. Árangur hans með
Wimbledon frá því í janúar vakti
það mikla athygli að forsvarsmenn
Tottenham Hotspur höfðu áhuga
á að fá hann til sín, en Wimbledon
varð á undan.
■ TERRY Dolan, framkvæmda-
stjóri Hull, sem leikur í þriðju deild,
hefur þegar kallað lið sitt saman
’til æfinga, en ekki er nema um
mánuður síðan deildakeppninni
lauk.
TENNIS / OPNA FRANSKA MEISTARAMOTIÐ
Peter Korda til hægri þakkar Henri Leconte fyrir leikinn.
Reuter
Courier og Korda
leika til úrslita
„ÉG spilaði besta leik minn á
árinu í dag, en vonandi verða
þeir miklu fleiri svona góðir“,
sagði Tékkinn Petr Korda, eftir
að hafa lagt að velli Frakkann
Henri Leconte í undanúrslitum
Opna franska meistaramótsins
í gær. Korda sigraði með þrem-
ur hrinum gegn engri og mætir
Jim Courierfrá Bandaríkjunum
í úrslitaleiknum, sem verður
leikinn á morgun.
Korda var mjög rólegur allan
leikinn á móti Leconte, og
gerði nánast engin mistök. Leconte,
sem var ákaft studdur af áhorfend-
um, enda á heimavelli, átti ekkert
svar við stórleik Tékkans.
Jim Courier spilaði frábærlega á
móti landa sínum Andrei Agassi og
sigraði nokkuð auðveldlega; 6-3 6-2
og 6-2. „Hann lék það vel að hann
átti virkilega skilið að vinna“, sagði
Agassi eftir leikinn.
Petr Korda hefur aldrei komist
lengra en í þriðju umferð á risa-
móti í tennis. Hann á erfiðan leik
fyrir höndum á morgun á móti Jim
Courier, sem hefur leikið ákaflega
vel á mótinu til þessa.
Steffí Graf og Monica Seles leika
til úrslita í kvennaflokki í dag, og
er búist við spennandi leik.
HANDBOLTI
Þjálfar
Steindór
liðHKN?
STEINDÓR Gunnarsson verður
að öllum líkindum ráðinn næsti
þjálfari HKIM íhandknattleik.
Liðið er sameiginlegt lið Kefla-
víkur og Njarðvíkur og lék sitt
fyrsta tímabil í 2. deild í vetur.
Arangurinn var ágætur, liðið
lenti í þriðja sæti, fjórum stig-
um á eftir liðinu í öðru sæti.
Steindór tæki við af Hannesi
Leifssyni. Ekki hefur form-
lega verið gengið frá ráðningunni,
en viðræður eru í gangi og miklar
líkur á að samningar takist. Stein-
dór þjálfar þá bæði meistaraflokk
karla hjá HKN og meistaraflokk
kvenna hjá ÍBK.
Steindór sagðist stefna að því
að nota þann mannskap sem væri
til staðar. Hann ætti að vísu eftir
að skoða myndbandsupptökur af
liðinu, og myndi í framhaldi af því
meta hvort þar væru einhver göt
sem nauðsynlegt væri að fylla upp í.
Steindór sagði að það væri hugur
í mönnum og stefnan væri strax
sett á fyrstu deild. „Þeir voru ekki
Qarri því í vetur, þannig að það er
ekki óraunhæft að stefna að því,“
sagði Steindór.
Steindór var landsliðsmaður á
sínum tíma. Hann þjálfaði lið Sel-
fýssinga fyrir nokkrum árum og
hefur einnig þjálfað meistaraflokk
kvenna hjá Fram.
MANNVIRKI
Nýr gervigras-
völlur Hauka til-
búinn bráðlega
ÞESSA dagana er verið að
leggja síðustu hönd á gerð
gervigrasvallar á íþrótta- og
útivistarsvæði Knattspyrnufé-
lagsins Hauka á Ásvöllum.
Völlurinn verður tekinn í notk-
un fljótlega, en formlega verð-
ur hann vígður á Jónsmessu.
Gervigrasvöllurinn er 1. áfang-
inn í uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja á Ásvöllum en jafn-
framt er nú verið að ljúka upp-
steypu á 240 fermetra búningshúsi
sem verður fullbúið í sumar.
Nýji gervigrasvöllurinn er heil-
grasvöllur og sá fyrsti sinnar teg-
undar í heiminum þar sem 30 km
löng hitalögn er í sandfyllingu und-
ir grasmottunni og sérstöku
gúmmíundirlagi. Grasmottan kem-
ur frá þýska fyrirtækinu Balsám,
sem m.a. framleiðir og setur upp
öll gerviefni sem notuð verða á
íþróttasvæðum og völlum á Olymp-
íuleikunum í Barcelona í sumar.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á
að vel takist til með völlinn því
hann er nyrsti gervigrasvöllur sinn-
ar tegundar í heiminum og fýrir-
hugað er að nota hann í kynninga-
og auglýsingaskyni fyrir vörur fyr-
irtækisins. Þrír bandarískir sér-
fræðingar frá fyrirtækinu komu
sérstaklega hingað til lands til að
sjá um að leggja grasið ásamt átta
aðstoðarmönnum.
Auk þess sem verið er að Ijúka
lagningu gervigrasmottu stendur til
að tyrfa 17 þús. fermetra grasvöll
og æfíngasvæði á Ásvöllum, en þar
verður aðal keppnisvöllur Hauka í
framtíðinni. Áður hafði verið ákveð-
ið að sá í þetta svæði, en vegna
ástandsins í atvinnumálum ákvað
bæjarstjórnin í Hafnarfirði að út-
hluta fjármagni í þetta verkefni til
þess að skapa atvinnu í sumar. Ef
Morgunblaöiö/KGA
Sérfræðingar frá Bandarikjunum toga í grasmottuna ásamt aðstoðarmönnum
sínum. Framleiðendur mottunnar hafa í hyggju að nota gervigrasvöllinn á
Ásvöllum í auglýsingaskyni fyrir vörur fyrirtækisins.
vel tekst til verður völlurinn tilbúinn
til notkunar strax næsta sumar.
Gervigrasvöllurinn kostar frá
framleiðanda um 36 milljónir og í
sumar verður unnið á Ásvöllum
fyrir um 30 milljónir. Auk framlags-
ins frá bæjarstjóm þarf félagið
sjálft að leggja fram dijúgan skerf.
Munurinn á nýja gervigrasvellin-
um og gervigrasvellinum í Laugar-
dal er sá að sérstakt gúmmíundirlag
er undir mottunni á Ásvöllum, en
mottan í Laugardal er lögð beint
ofan á malbik. Forsvarsmenn
Hauka fullyrða að minni hætta sé
á meiðslum á velli með gúmmíundir-
lagi en gervigrasvelli með malbiks-
undirlagi. Nokkrir knattspyrnu-
menn tóku forskot á sæluna fyrir
stuttu og stálust á völlinn, og er
eftir þeim haft að hann sé með því
besta sem þeir hafi prófað.
GETRAUNASPA MORGUNBLAÐSINS
leikv. 0-^7$$i— 1 x 2 íþróttafréttamenn blaðsins munu tippa í getraunum I hverri viku í sumar, og birtist hér fyrsti getraunaseðill þeirra. Að þessu sinni
Kiruna - Luleá 1
Spárvágen - Spánga 1 2
GIF Sundsvall - IFK Sundsvall 1 X 2
Degerfors - Forward 1 er um að ræða 144
Gefle - Brage 1 2 raða opin seðil, þar
Eskilstuna - Vasalund X 2 sem sjö leikir eru fastir.
Elfsborg - Gunnilse 1 fjórir tvítryggðir og þrír þrítryggðir. Seðill sem þessi kostar 1.440 krónur. Leikirnir að
Hácken - Myresjð 1
Motala - Skövde 1
Tídaholm - Oddevold 1 X 2 þessu sinni eru allir úr
Halmstad - Karlskrona 1 sænsku 1. deildunum.
Kalmar FF - Landskrona 1 2
Mjállby - Leikin 1
ÍÞROTTIR FATLAÐRA
Tuttugu íslenskir kepp-
endur fara á heimsleikana
Iþróttasamband Fatlaðra hefur
þegar ákveðið hvaða keppendur
taka þátt í heimsleikum fatlaðra
sem fram fara í Barcelona 3. - 14.
september og heimsleikum þroska-
heftra sem fram fara í Madrid 13.
- 21. september 1992.
íslensku keppendurnir í Barce-
lona verða 12 og keppa þeir í sundi,
fijálsíþróttum og borðtennis.
í sundi keppa eftirtaldir: Ólafur
Eiríksson (ÍFR), Birkir Gunnarsson
(ÍFR), Halldór Guðbergsson (ÍFR),
Svanur Ingvarsson (Suðra), Geir
Sverrisson (UMFN), Lilja M.
Snorradóttir (SH), Kristín R. Há-
konardóttir (ÍFR), Rut Sverrisdóttir
(ÍFA) og Sóley Axelsdóttir (ÍFR).
Geir Sverrisson (UMFN) og Haukur
Gunanrsson (ÍFR) keppa í fijáls-
íþróttum og Jón H. Jónsson (IFR)
og Elvar Thorarensen (ÍFA) keppa
í borðtennis.
Keppendur á heimsleikum
þroskaheftra í Ma’drid verða átta.
í sundi keppa þau: Bára B. Erl-
ingsdóttir (Ösp), Sigrún Huld
Hrafnsdóttir (Ösp), Guðrún Ólafs-
dóttir (Ösp), Magnfreð I. Jensson
(Osp), Katrín Sigurðardóttir
(Suðra) og Gunnar Þ. Gunnarsson
(Suðra). Stefán Thorarensen (Akri)
og Aðalsteinn Friðjónsson (Eik)
keppa í fijálsiþróttum.