Morgunblaðið - 06.06.1992, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 6. JUNI 1992
43
HANDBOLTI
KNATTSPYRNA
Júlíus
aftur til
Asnieres
Júlíus Jónasson skrifar undir eins
árs samning við franska hand-
knattleiksfélagið Paris Asnieres í
næstu viku. Hann á eftir eitt ár af
samningnum við spænska liðið
Bidasoa, en samkomuiag hefur
náðst um að félagið greiði landsliðs-
manninum bætur, þar sem það vildi
ekki hafa hann áfram eftir að Júl-
íus tók b-keppnina fram yfir leik á
Spáni.
ÚRSLIT
TENNIS
Opna franska meistaramótið:
Einliðaleikur karla, undanúrslit:
1- Jim Courier (Bandar.) vann 11-Andre
Agassi (Bandar.) 6-3 6-2 6-2
7-Petr Korda (Tékkósi.) vann Henri Lec-
onte (Frakkl.) 6-2 7-6 (7-4) 6-3
Tvfliðaleikur kvenna, Qórðungsúrslit:
4-Conchita Martinez/Arantxa Sanchez Vic-
ario (Spáni) unnu 6-Lori McNeil (Banda-
r.)/Nicole Provis (Ástral.) 6-3 6-4
Tviliðaleikur karla, undanúrsUt:
David Adams (ÁstralJ/Andrei Olhovskiy.
(SSR) unnu Pablo Albano (ArgentJ/Cassio
Motta (BrasiUu) 6-4 6-7 (3-7) 6-3
TvíUðaleikur kvenna, undanúrslit:
2- Gigi Femandez (BandarJ/Natalia
Zvereva (SSR) unnu Steffi Graf/Anke Hu-
ber (Þýskal.) 6-0 6-1
Tvenndarleikur, fjórðungsúrslit:
2-Arantxa Sanchez Vicario (Spáni)/Todd
Woodbridge (Ástral.) unnu 13-Natalia
Zvereva (SSR)/Mark Kratzmann (Ástral.)
6-3 4-6 6-2
Tvenndarleikur, undanúrslit:
Lori McNeil/Bryan Shelton (Bandar.) unnu
6-Manon Bollegraf/Tom Nijssen (Hoíl.) 6-3
6-3
Sanchez Vicario/Woodbridge unnu 4-Nicole
Provis/Mark Woodforde (Ástral.) 6-3 6-3
Um helgina
KNATTSPYRNA
1. DEII.D KARLA
Mánudagur:
AkranesvöUun ÍA - Fram........kl. 14
Kaplakriki: FH - ÍBV..........kl 16
Akureyrarvöllur: Þór - KA.....kl. 20
Víkingur - Valur..............kl. 20
Þriðjudagur:
KR - völlun KR - UBK..........kl. 20
1. DEILD KVENNA
Laugardagur
Stjömuvöllur: Stjaman - Höttur...kl. 16
2. DEILD KARLA
Laugardagur
Garðsvöllun Víðir- BÍ.............kl. 14
Mánudagur
Stjömuvöllur: Stjaman - Fylkir....kl. 20
Grindavíkurvöllun Grindavík - Selfoss kl. 20
Ólafsfjarðarvöllur...Leiftur - Þróttur...kl. 20
ÍR - völlur: ÍR - ÍBK..............kl.20
2. DEILD KVENNA
Laugardagur
Homatjarðarvöllur. Sindri - Valur Rf. .kl. 16
Mánudagur
Eskifjarðarvöllur: Austri - Einheiji.kl. 16
3. DEILD KARLA
Laugardagur
Þorlákshafnarv.: Ægir - Tindarstóll ....kl. 14
Mánudagur
Sigluíjarðarvöllur. KS - Magni.....kl. 20
Hvaleyrarholtsvöllun Haukar - Grótta kl. 20
Borgamesvöllur:
Skallagrimur - Þróttur N...........kl. 20
Dalvíkurvöllur Dalvík - Völsungur....kl. 16
4. DEILD KARLA
Mánudagur *
Djúpavogsvöllur: Neisti D. - Huginn F kl. 14
Homafjarðarvöllur Sindri-ValurRf. .kl. 14
Stöðvarfjarðarvöllur KSH - Huginn....kl. 20
Egilstaðavöllur Höttur - Leiknir F...kl. 14
Eskifjarðarvöllur. Austri - Einheiji.kl. 14
Golf
Opna Búnaðarbankamótið fer fram í dag
hjá Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi.
Opna Lacoste-mótið f golfi fer fram hjá
GR í Grafarholti á mánudag. Leiknar verða
18 holur með forgjöf. Ræst verður út kl.
9:00. Skráning f Golversluninni í Grafar-
holti í s. 682215.
Opið kvennamót; Clarins verður hjá Golf-
klúbbi Grindavíkur á mánudag. Leikið verð-
ur í tveimur forgjafarflokkum; 0-28 högg
í forgjöf og forgjöf 29-36 högg.
Opin kvennakeppni verður haldin í dag
hjá Golfklúbbnum Keili. Keppt verður í
tveimur forgjarfarflokkum. Ræst verður út
frá kl. 9:00.
Opna Slazenger-mótið fer fram hjá GR
í Grafarholti á þriðjudag. Keppt verður í
þremur flokkum unglinga og leiknar átján
holur með forgjöf. Ræst verður út frá kl.
15 og fer skráning fram í golfversluninni
f Grafarholti í s. 682215.
Frjálsar íþróttir
Litla-bikarkeppnin fer fram á Selfossi á
mánudaginn kl. 19. Félögin sem taka þátt
í mótinu em Selfoss, ÍR, KR og FH.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Lárus Orri Sigurdsson til vinstri og Pétur Marteinsson í Búdapest.
í fótspor feðranna
Láras Orri Sigurðsson, sem leikur
með Þór á Akureyri í 1. deild-
inni í knattspymu, og Pétur Mar-
teinsson, sem spilar með Leiftri,
Ólafsfirði, í 2. deild, vora miðverðir
íslenska landsliðsins skipað leik-
mönnum tuttugu og eins árs og
yngri, sem lék gegn Ungveijum í
Vac á miðjunni. Þetta er í fyrsta
sinn, sem þeir leika saman með lið-
inu, en þeir vora saman í einum
leik með U-18 ára liðinu og einu
sinni léku þeir saman í U-16 ára
liðinu. Feður þeirra, Marteinn
Geirsson og Sigurður Lárusson,
léku einn a-landsleik saman, 2:0
sigurleik gegn Tyrkjum í undan-
keppni HM 1981, og má því með
sanni segja að þeir feti í fótspor
feðranna.
Strákamir sögðust ávallt hafa
stefnt að því að komast í landslið
og markmiðið væri að ná sæti í
a-liðinu. „Pabbi lék aðeins 11 lands-
leiki og ég ætla að komast upp
fyrir hann,“ sagði Láras Orri. „Það
verður erfitt að ná pabba,“ sagði
Pétur. „Hann var með 67 leiki, en
ætli ég setji ekki markið á 68 leiki
til að svekkja karlinn."
Ragnheiður
með þrennu
skrifarfrá
Akranesi
Ragnheiður Jónasdóttir var með
þrennu í 4:0 sigri ÍA gegn
Hetti á Akranesi í 1. deild kvenna
■■■■■■ í gærkvöldi. Leikur-
Sigþór inn fór fram við erf-
Einksson iðar aðstæður, sem
höfðu óneitanlega
mikil áhrif. Skaga-
stúlkur vora betri allan tímann, en
stúlkumar í Hetti vörðust vel.
Ragnheiður kom heimastúlkum á
bragðið þegar á 4. mínútu með
góðu skoti. Skagastúlkur sóttu
linnulaust og Ragnheiður bætti
öðra marki við á 21. mínútu með
góðum skalla eftir fyrirgjöf frá
vinstri.
Á 61. mínútu fullkomnaði Ragn-
heiður þrennuna, skoraði af stuttu
færi eftir fyrirgjöf frá Karitas Jóns-
dóttur. Helena Olafsdóttir átti síðan
síðasta orðið fimm mínútum fyrir
leikslok.
Karitas var langbest hjá ÍA.
Ragnheiður var ógnandi og Jónína
Víglundsdóttir átti ágæta spretti.
Blædís Guðjónsdóttir varði sérstak-
lega vel í marki Hattar og átti stór-
leik.
Öruggthjá Val
Valsstúlkur sóttu þijú stig til
Akureyrar í gærkvöldi þegar
þær lögðu lið Þórs að velli 4:0.
Hjördís Símonar-
dóttir skoraði fyrsta
mark Vals snemma
í leiknum. Eftir
markið komust
Anton
Benjaminsson
skrifarfrá
Akureyri
Stórmeistarajafntefli
Frakkar og Hollendingar
skildu jaf nir 1:1 f vináttulands-
leik í knattspyrnu gærkvöldi
sem fram fór í Lens í Frakk-
landi. Leikurinn var sá síðasti
hjá liðunum fyrir Evrópukeppn-
ina sem hefst á miðvikudag.
Jean Pierre Papin sem ekki hefur
leikið í þijár vikur skoraði mark
Frakka með hnitmiðuðu skoti þegar
á 12. mínútu.
Marco Van Basten var maðurinn
á bak við jöfnunarmark Hoilendinga
sem kom sex mínútum síðar. Van
Basten plataði Laurent Blanc, aft-
heimamenn betur inn í leikinn en
Hjördís bætti öðra marki sínu við
fyrir leikhlé.
{ síðari hálfleik sóttu Valsstúlk-
umar meira og strax á upphafsmín-
útunum skoraði Guðrún Sæmunds-
dóttir þriðja mark liðsins með skoti
af löngu færi yfir markvörð Þórs-
ara. Örfáum mínútum síðar bætti
Helga Ósk Hannesdóttir fjórða
markinu við með skalla eftir horn-
spymu og lokatölur því 4:0.
Þórsstúlkur áttu nokkrar ágætar
skyndisóknir en sigur Vals var fylli-
lega sanngjam.
Trausti í
Trausti Ómarsson hefur
gengið frá félagaskiptum
úr íslandsmeistaraliði Víkings í
2. deildarlið Selfoss. Hann verð-
ur löglegur á mánudaginn, þeg-
ar Selfoss fer tii Grindavíkur
asta leikmann Frakka, og gaf þver-
sendingu fyrir á Brian Roy, sem
skoraði úr auðveldu færi.
Leikurinn var sá síðasti hjá liðun-
um fyrir Evrópukeppnina í Svíþjóð
sem hefst á sunnudag. Liðin eru í
sitthvorum riðlinum en gætu lent
saman ef þau komast áfram.
IÞRDmR
FOLK
I ANDY Sinton frá Queens
Park Rangers og Keith Curle frá
Manchester City, bættust í enska
landsliðshópinn í gær, én þeir koma
í stað John Barnes og Gary Ste-
vens, sem báðir meiddust í ieik
gegn Finnum í vikunni.
■ TOMMY Svensson landsliðs-
þjálfari Svía, hefur bannað lands-
liðsmönnunum Kennet Andersson
og Klas Ingesson að leika með
félagi sínu Mechelen í bikarúrslita-
leik í Belgíu á sunnudaginn.
FRJALSAR
SKOTFIMI
Axel fyrsti íslenski alþjóðadómarinn
Axel Sölvason varð í vikunni fyrsti íslenski alþjóðlegi dómarinn í skotfimi. Á myndinni afhendir Þorsteinn
Ásgeirsson, formaður Skotsambands íslands, Axel, til hægri, skírteini þessu til staðfestingar — og blómvönd
ftilefni dagsins. „Hann fékk svokallað B-skírteini, og getur dæmt á öllum mótum nema á Ólympíuleikum og
heimsmeistarakeppni. Og hann kemur til með að dæma erlendis á næsta ári,“ sagði Þorsteinn Ásgeirsson við
Morgunblaðið. „Þetta er mikill áfangi fyrir skotmenn hér á landi, og mikil viðurkenning fyrir okkur,“ sagði
Þorsteinn. Formaðurinn tók fram að Axel fengi hefði þama fengið skírteini upp á það að hann væri alþjóðleg-
ur dómari í haglabyssuskotfími, riffílskotfimi og skammbyssuskotfimi. Greinamar þrjár væru talsvert frábrugðn-
ar hver annarri og ekki algengt að menn næðu því að fá alþjóðleg réttindi til dómgæslu í þeim öllum.
Opiðbréftil
ISI og Ólymp-
íunefndar
Að gefnu tilefni förum við þess á
leit við FRÍ að þið reynið að leið-
rétta þann leiða misskilning hjá ÍSÍ
og Ólympíunefnd að aðeins Meist-
aramót íslands auk ÍR- og KR-móta
sé einu lögiegu mótin fyrir Óiympíu-
leikana hérlendis. Við i Fijálsíþrótta-
deild FH emm ekki síður í stakk
búin að halda lögleg mót en önnur
félög.
Við emm í dag sterkasta fijáls-
íþróttadeildin innan FRÍ hvað af-
reksgetu snertir. Það er tæplega
réttlætanlegt að útiloka okkur frá
því að halda lögieg mót fyrir
Ólympíuleikana sem ÍSI og Ólympíu-
nefnd gerir nú. Þetta er mjög alvar-
legt mál hjá ÍSÍ og Ólympíunefnd
ekki síst þar sem við eigum á að
skipa ekki síður en ÍR og KR sterka
sveit dómara, sem er skilyrði til að
halda lögleg mót.
Við skomm því á háttvirta stjórn
FRÍ að fara þess á leit við ÍSI og
Ólympíunefnd að hún leiðrétti sem
fyrst þennan úrskurð. Við viljum
vinna á jafnréttisgrundvelli sem og
önnur félög innan FRÍ og ÍSÍ. Fá
að njóta sömu mannréttinda hvort
félagið heitir ÍR, KR, HSK, UMSE,
UÍA eða FH. Ég nefni aðeins þessi
nöfn, önnur félög eru jafn rétthá
þótt þau séu ekki nefnd.
Virðingarfyllst,
Haraldur S. Magnússon, for-
maður frjálsíþróttadeildar FH.