Morgunblaðið - 07.06.1992, Page 37
seei mut.? huo
MORGUNBLAÐIB
G1GAJ9VÍU0H0M
SUNNUDAGUK 7. JÚNÍ 1392"
98
37
AUGLYSINGAR
Aðalfundur
Aðalfundur Almenna hlutabréfasjóðsins hf.
verður haldinn 22. júní kl. 16.00 að Hótel
Sögu, sal B.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. 8. gr. samþykktá
félagsins.
2. Önnur mál.
Stjórn Almenna hlutabréfasjóðsins.
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100
Almennir bændafundir
með Halldóri Blöndal
landbúnaðarráðherra
verða haldnir sem hér segir:
Laugaborg, Eyjafjarðasveit,
þriðjudaginn 9. júní kl. 21.00.
Idalir, Aðaldal,
miðvikudaginn 10. júní kl. 21.00.
Brúarás, Jökulsárhlíð,
fimmtudaginn 11. júní kl. 21.00.
Miðgarður, Skagafirði,
laugardaginn 13. júní kl. 13.30.
Hótel Borgarnes, Borgarnesi,
sunnudaginn 14. júní kl. 13.30.
Hótel Selfoss, Selfossi,
sunnudaginn 14. júní kl. 21.00.
Dagskrá fundanna:
Landbúnaðarráðherra flytur ræðu um stöðu
og horfur í landbúnaði.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Fundirnir eru öllum opnir.
Landbúnaöarráðuneytið.
Háteigssöfnuður
Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar verður
haldinn á kirkjuloftinu þriðjudaginn 9. júní
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Teikningar af safnaðarheimili lagðar fram
til afgreiðslu.
3. Önnur mál.
Sóknarnefnd.
Ættarmót
Afkomendur Guðnýjar Aradóttur frá Stapa-
koti í Njarðvík og Eyjólfs Ófeigssonar frá
Nesjum í Grafningi halda ættarmót 21. júní
nk. kl. 14.00 í Félagsheimili Rafmagnsveitu
Ríkisins við Elliðaár.
Vatnslitamyndir!
Sýningu Bjarna Jónssonar á litlum vatnslita-
myndum í Eden, Hveragerði, lýkur 8. júní -
2. í hvítasunnu.
Ferðaskrifstofa
Af persónulegum ástæðum ertil sölu hlutafé
í ferðaskrifstofu í fullum rekstri og með já-
kvæða eiginfjárstöðu.
Þeir sem hafa áhuga leggi inn nöfn og síma-
númerfyrir 11. júní 1992 merkt: „ F-7983“.
„Barnaklúbburinn11
fyrir hressa krakka 4ra-12 ára. Gæsla frá 1
viku upp í 3 mánuði, hálfan eða allan daginn.
Dagskrá: Dans, söngur, leikir, sund, farið á
hestbak o.fl. til fræðslu og skemmtunar.
Leitið upplýsinga.
Dagný Björk, danskennari,
sími 642535.
Norræna
Félagið
Norræna félagið vekur athygli félagsmanna
á að enn eru eftir sæti í ákveðnar ferðir í
leiguflugifélagsinstil Danmerkurog Noregs.
Einnig bendum við félagsmönnum á að kynna
sér ævintýraferð um Jótland sem farin verð-
ur 27. júlí-3. ágúst nk.
Upplýsingar veittar í síma 10165.
Listdansarar
- inntökupróf
Inntökupróf í íslenska dansflokkinn, fyrir
næsta starfsár 1992-1993, verður haldið
föstudaginn 19. júní kl. 12.00 á Engjateigi 1.
Kröfur eru gerðar um færni, bæði í klassísk-
um og nútíma listdansi. Þeir sem hafa áhuga
mæti stundvíslega, og stúlkur með táskó.
íslenski dansflokkurinn.
100 ára afmælishátíð
hjónanna Guðrúnar Sæmundsdóttur og
Guðmundar Þ Guðmundssonar skólastjóra
frá Finnbogastöðum, Árneshreppi, Stranda-
sýslu, verður haldin í Árnesi í Trékyllisvík
helgina 20.-21. júní nk. Ættingjar, vinir og
sveitungar þeirra hjóna eru velkomnir á há-
tíðina.
Ákveðið hefur verið að færa Finnbogastaða-
skóla gjöf af þessu tilefni og vegna þess
hefur verið stofnaður reikningur nr. 2662 á
nafni Finnbogastaðaskóla í útibúi íslands-
banka, nr. 582, kennitala 221240-2789.
Þeim sem vilja heiðra minningu þeirra hjóna
er bent á þennan reikning.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Hulda Þórarinsdóttir, Akureyri, sími
96-24492.
Guðmundur Þorsteinsson, Finnbogastöðum,
sími 95-14011.
Guðmundur H. Guðjónsson, Vestmannaeyj-
um, sími 98-12551.
Utboð
Bláfjallavegur um Sandskeið
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn-
ingu 3,0 km kafla á Bláfjallavegi um Sandskeið.
Helstu magntölur: Fylling og neðra burðarlag
59.000 m3, skering 19.000 m3 og klæðning
17.000 m3.
Verki skal lokið fyrir 12. september 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins, Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 9. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00
þann 22. júní 1992.
Vegamálastjóri.
Utboð
Engjateigur 11 hf. óskar eftir tilboðum í upp-
steypu og utanhússfrágang á húsi, sem rísa
á við Engjateig í Rvk.
Grunnflötur hússins er 500 fm og er húsið
31/2 hæð.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistofu
Þráins Karlssonar og Benedikts Skarphéð-
inssonar, Laugavegi 178, frá 11. júní nk.
gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð í Kiwanis húsinu, Braut-
arholti 26, 3. hæð, mánudaginn 22. júní kl.
17.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er
þess óska.
Útboð
Skútustaðahreppur óskar eftir tilboðum í
verk við byggingu Grunnskólans í Reykjahlíð.
Byggingin er um 1.250 fm.
Helstu verkþættir: Hita-, neysluvatns- og frá-
rennslislagnir, raflagnir, smíði sólstofu, ein-
angrun og múrhúðun, smíði innveggja, inni-
hurðir og innréttingar, klæðningar í loft og
á veggi, gólfefni, málning innanhúss og utan.
Útboðsgögn verða afhent frá og með mið-
vikudeginum 10. júní gegn 10.000,- kr. skila-
tryggingu á skrifstofu Skútustaðahrepps,
Múlavegi 2, Reykjahlíð, hjá Tækniþjón-
ustunni hf., Garðarsbraut 18, Húsavík og hjá
Verkfræðistofu Norðurlands hf., Hofsbót 4,
Akureyri.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 23. júní
1992.
Geislaáætlunarkerfi
Innkaupastofnun ríkisins, f.h. Landspítala,
óskar eftir tilboðum í Geislaáætlunarkerfi
fyrir krabbameinsdeild Landspítala sam-
kvæmt útboðsgögnum er afhent eru á skrif-
stofu vorri í Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboðum skal skila á sama stað og verða
þau opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda
kl. 11.00 f.h. mánudaginn 29. júní 1992.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RIKISIIMS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Heilsugæslustöð á
Grundarfirði
Tilboð óskast í byggingu og fullnaðarfrágang á
húsi og lóð fyrir heilsugæslustöð á Grundarfirði.
Stærð hússins er 413 fm og stærð lóðar er
3.043 fm. Verktími er til 1. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
að Borgartúni 7, Reykjavík til og með fimmtu-
dagsins 25. júní nk. gegn 10.000.kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00
f.h. þriðjudaginn 30. júní 1992.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Utboð
Hafnarstjórn Vestmannaeyja býður út og
óskar eftir tilboðum í dýpkun innsiglingar og
að fjarlægja um 60 metra framan af enda
Hörgeyrargarðs. Dýpkun er áætluð alls um
45.000 m3 og skal dýpka niður í kóta - 7,0
metra. Verkinu skal lokið eigi síðar en 30.
september 1992.
Útboðsgögn verða afhént á Vita- og hafna-
málaskrifstofunni, Vesturvör 2, Kópavogi,
gegn 5.000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn
3. júlí 1992 kl. 11.00.
Hafnarstjórn Vestmannaeyja.
Hillur - innkaupavagnar!
Viljum kaupa hillur m.a. pallettuhillur,
innkaupavagna, beltaborð o.fl. til nota í
ágúst 1992.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
10. júní merkt: „Hillur - 13541“.