Morgunblaðið - 07.06.1992, Blaðsíða 32
fWtr0«iMíií>i!í>
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
BORGARSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Vegna breytinga og stækkunar á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans getum við boðið eftir-
taldar stöður hjúkrunarfræðinga:
• Stöðu deildarhjúkrunarfræðings/verkefn-
isstjóra I á vöknun. Deildarhjúkrunarfræð-
ingur/verkefnisstjóri I hefur umsjón með
hjúkrun á 10 rúma vöknunareiningu og
heyrir undir hjúkrunarstjóra gjörgæslu-
deildar. Nauðsynlegt er að viðkomandi
hafi þekkingu í bráða-, svæfinga- eða
gjörgæsluhjúkrun.
• Stöður hjúkrunarfræðinga á gjörgæslu-
deild. í boði er mjög áhugaverð einstakl-
ingshæfð aðlögun, sem byggist á tilsögn,
sýnikennslu og umræðum ásamt sjálf-
stæðum verkefnum.
Vinsamlegast leitið upplýsinga hjá Kristínu
Gunnarsdóttur hjúkrunarstjóra, í síma
696331 eða 696332.
Hjúkrunarfræðingar
Vegna aukinnar starfsemi á hjartadeild Borg-
arspítalans óskum við eftir að ráða hjúkrun-
arfræðinga á allar vaktir. Hjartadeildin er 27
rúma deild, þar sem fram fer hjúkrun sjúkl-
inga með bráða hjartasjúkdóma. Boðið er
upp á einstaklingsbundna aðlögun.
Vinsamlega leitið upplýsinga hjá Dagbjörtu
Þyrí Þorvarðardóttur hjúkrunarstjóra, í síma
696567.
Geðdeildir
Borgarspítaia
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á A-2,
Borgarspítala, sem er bráðamóttökudeild
fyrir geðsjúka. Deildin skiptist í tvær eining-
ar, sem hafa náið samband sín á milli.
í boði er m.a.:
★ Vinnuhlutfall samkvæmt samkomulagi.
★ Möguleiki á föstum vöktum.
★ Starf við fjölbreytt verkefni, tengd með-
ferð og fræðslu.
★ Skipulögð aðlögun undir handleiðslu.
★ Aðstaða til líkamsræktar.
★ Barnaheimili.
★ Góður vinnuandi.
Nánari upplýsingar um deildina og stofnun-
ina gefur Guðný Anna Arnþórsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 696-355.
Hjúkrunarfræðingar
- sérkennarar
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi vant-
ar hjúkrunarfræðing og sérkennara til starfa
næsta skólaár.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma
93-12544.
Skólameistari.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Nýtt skóladagheimili:
Foldakot
við Logafold
Starfsfólk óskast í eftirtaldar stöður:
Yfirfóstru, deiidarfóstru, aðstoðarfóik í eldhús
og inni á deild, matráðskonu og í ræstingu.
Aætlað er að opna skóladagheimilið um
miðjan ágúst.
Daglegur opnunartími er kl. 7.30-17.30.
Upplýsingar gefa forstöðumenn, Gyða Þóris-
dóttir og Sigríður Sigurðardóttir, í síma
683077.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Adminislralion ot occupatlonal safety and health
Bildshöföa 16 ■ Pósthólf 12220 ■ 132 Reykjavík
Mengunarmælingar
Óskað er eftir að ráða efnafræðing/efnaverk-
fræðing eða annan með sambærilega
menntun til starfa við mengunarmælingar á
vinnustöðum. Lögð er áhersla á kunnáttu í
hollustuháttum á vinnustöðum (industrial
hygiene). Starfsþjálfun erlendis kemur til
greina.
Upplýsingum um menntun og fyrri störf skal
skila til Vinnueftirlits ríkisins, Reykjavík, fyrir
1. júlí.
Nánari upplýsingar veitir Víðir Kristjánsson
yfirdeildarstjóri í síma 91-672500
'W
Mosfellsbær
Leikskólinn Hlíð, óskar eftir að ráða eftirfar-
andi starfsfólk.
1. Fóstru til að sjá um hreyfiþjálfun barnanna
í sal, einnig kemur til greina að ráða íþrótta-
kennara eða annað uppeldismenntað fólk.
2. Deildarfóstru á deild 3 - 6 ára barna.
3. Starfsmann á deild 2 - 4 ára barna, vinnu-
tími frá 13.00 - 18.00.
Störfin eru laus frá 10. ágúst (eða eftir sam-
komulagi).
Upplýsingar gefur Gunnhildur Sæmunds-
dóttir leikskólastjóri í síma 667375.
Leikskólinn Hlaðhamrar óskar eftir að ráða
eftirfarandi starfsfólk;
1. Fóstrur óskast og/eða annað uppeldis-
menntað fólk.
2. Annað starfsfólk.
Upplýsingar gefur Lovísa Hallgrímsdóttir,
leikskólastjóri í síma 666351.
Félagsmálastjóri.
íþróttakennarar
íþróttakennara vantar að Héraðskólanum að
Núpi. Kennsla í 10. bekk og 2 ára framhalds-
deild, þar með talin íþróttabraut. Mikil vinna
í boði.
Upplýsingar í símum 94-8222, 94-8236 og
94-8241.
Sölu- og skrifstofu-
starf
Vélainnflytjandi óskar eftir að ráða starfs-
kraft í framtíðarstarf til sölu- og skrifstofu-
starfa. Um er að ræða yfirgripsmikið starf
við sölu og kynningu á vélum, tækjum og
tilheyrandi búnaði. Viðkomandi þarf að hafa
reynslu af sölu- og skrifstofustörfum og
áhuga á vélum. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi eigi auðvelt með að vinna skipulega og
sjálfstætt.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast skilað á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „B - 7984“ fyrir 16. júní nk.
Heimilisvöruverslun
Ert þú að leita að krefjandi
framtfðarstarfi?
Sérhæft sölu- og afgreiðslustarf er laust hjá
þekktu fyrirtæki í Reykjavík, sem selur fallega
heimilisvöru, m.a. búsáhöld, ýmsa aðra smá-
vöru og stærri heimilistæki. Vinnutími fylgir
venjulegum opnunartíma verslana.
Við leitum að konu til starfa í búsáhalda-
deildinni. Menntun frá Hótel- og veitinga-
skólanum eða Húsmæðraskóla væri æskileg.
Smekkvísi í vöruframsetningu og góð vöruþekk-
ing nauðsynleg. Sjálfstæði og frumkvæði í vinnu
skilyrði. Æskilegur aldur 35-40 fára.
Einnig leitum við að karlamnni til starfa í
heimilistækjadeild til að selja stærri heimilis-
tæki. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálf-
stætt, hafa frumkvæði og reynslu af sölu-
mennsku. Æskilegur aldur 30-40 ára.
í boði eru tvö góð framtíðarstörf fyrir dug-
mikla einstaklinga hjá traustu fyrirtæki.
Áhugaverð laun eru í boði.
Upplýsingar veitir Katrín S. Ólafsdóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf - Skeif-
unni 19, á eyðublöðum, sem liggja frammi
á skrifstofu okkar fyri 12. júní nk.
Hagvangur h if
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir