Morgunblaðið - 28.06.1992, Page 12

Morgunblaðið - 28.06.1992, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992 Rætt viö þr jó ís- ERFÐAVISA lenska vísinda- tJ menn um þessar LlV rannsóknir FLYTJA BRJOSTAKI IABBA Morgunblaðið/Bje Islenski rannsóknahópurinn: Aðalgeir Arason lífræðingur, Rósa Björk Barkardóttir sameindalíffræðing- ur og Valgarður Egilsson læknir eftir Elínu Pólmadóttur Bijóstakrabbamein er algeng- ast þeirra krabbameina sem hrjá konur vestrænna landa og tíðni þess hefur farið vax- andi. Á undanförnu hálfu öðru ári hefur með sameiginlegu átaki rannsóknahópa á 13 stöð- um, þar á meðal íslandi, tekist að staðfesta að áberandi erfða- þátt í þessu samhengi er að finna í litningi 17 í þeim fjöl- skyldum sem verja sig ver fyr- ir þessum sjúkdómi. Valgarður Egilsson læknir, Aðalgeir Ara- son líffræðingur og Rósa Björk Barkardóttir, sameindalíf- fræðingur mynda rannsókna- hópinn hér á landi, sem undan- farið ár hefur verið að rann- saka erfðaefni einstaklinga úr ættum með háa tíðni brjósta- krabbameins. Á sameiginleg- um fundi í Leiden í október sl. komu þau með samsvarandi niðurstöðu og aðrir í verkefn- inu. Að ættlægt bijóstakrabba- mein sé fundið í langarmi litn- ings 17, sem gefi vísbendingu um að konum með þann arf sé hættara við að fá sjúkdóm- inn en öðrum sem ekki hafi þennan tiltekna erfðavísi. Og að til eru fjölskyldur þar sem þessi gallaði tvískipti erfðavís- ir finnst. etta er viss árangur sem náðst hefur með samstarfinu. Menn hafa lengi vitað, að sumar fjölskyldur verja sig miður en aðrar fyrir þessum vá- gesti. Það sjá menn líka við ýmsa aðra sjúkdóma, t.d. hjartasjúk- dóma. Með þessu samstarfi náðist sú vitneskja að í sumum fjölskyld- um, þar sem mikið er um bijósta- krabbamein, þar er hættan á sjúk- dómnum tengd litningi nr. 17, af- mörkuðu svæði á lengri armi þess litnings. Hringurinn er að þrengj- ast, svo að innan fárra missera munu menn hafa lesið það gen sem um er að ræða og skiptir máli“, sögðu þau Valgarður, Aðalgeir og Rósa Björk í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins á vinnustað þeirra, Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði við Barónsstíg. En forstöðumaður Rannsóknastof- unnar er Jónas Hallgrímsson lækn- ir. „Aðalaðferð alþjóðlega starfs- hópsins er svokölluð „tengslagrein- ing“, þ.e. að reynt er að rekja nið- ur eftir kynslóðunum hvaða Útningi og síðan litningasvæði qúkdómsá- hættan tengist. Þegar rannsókna- stofur víðsvegar um heim svo leggja saman niðurstöður sínar, þá er hægt að þrengja leitarsvæðið á litningunum til muna. Þannig virðist sem í sumum fjölskyldum - ekki öllum - eigi erfðir einhvern þátt í því að sumir einstaklingar veija sig miður en aðrir. En fleiri þættir koma þar jafnframt við sögu - oft kallaðir umhverfisþættir. Er þá m.a. átt við lífsstíl, mataræði, efnasambönd í umhverfi okkar, jafnvel veirur. Það kemur því að því að menn þekki þessa þætti og geti varast þá, komið vörnum við,“ sagði Valgarður. Fjölmennt ættartré með langar rætur Um rannsóknina hér á landi sögðu þau að með góðri hjálp Erfðafræðistofnunar Háskólans og krabbameinsskrár Krabbameinsfé- lags Islands hafi þeim verið kleift að kortleggja hegðun sjúkdómsins í skyldmennum.„Við höfum haft samband við fólk víðsvegar að af landinu. Yfirleitt er viðhorf fólks mjög jákvætt til slíkrar rannsóknar og okkur vel tekið. Hérlendis eru aðstæður að mörgu leyti mjög góð- ar til að stunda rannsóknir af þessu tagi. Skráning sjúkdóma er mjög nákvæm. Þá hefur breska krabba- meins rannsóknastofnunin Imp- erial Cancer Research Fund í Lond- on kostað um þriggja ára skeið laun eins okkar. Þeim er viss akk- ur í samstarfinu vegna þess hve ítarlega má rekja ættir fólks hér- lendis. Fjármögnun er þó að lang- stærstum hluta frá Ríkisspítulun- um. Það hjálpar okkur mikið, að sýni eru varðveitt á Rannsókna- stofu Háskólans marga áratugi aftur í tímann eða frá því upp úr 1930. Slík sýni, sem liggja þarna geymd í vaxkubbi, nýtast einmitt til rannsókna sem þessara." Valgarður bætir við með kímn- isglampa í augum að þetta sé ámóta og jarðabók Áma Magnúss- onar fyrir sagnfræðinga. En rann- sóknir af þessu tagi eru færar hér vegna þess að ættartré ná lengra aftur, eru ítarlegar unnin og áreið- anlegri en víðast annars staðar. Ættir eru hér stórar þótt ekki hafi margar verið skoðaðar og vantar fáa bita í púsluspilið. Er- lendis hafa menn orðið að sætta sig við að nota margar ættir með fáum einstaklingum í hverri. En nú þegar rétt hefur reynst að áhættuþáttur sem getur erfst tengist afmörkuðu svæði á lang- armi litnings 17, hvað getur það gert fyrir okkur á þessu stigi? Rannsóknarhópurinn tekur skýrt fram að á þessu stigi sé þessi niður- staða hvorki nýtanleg til lækninga né til ráðgjafar. Um það sé alþjóð- legi samstarfshópurinn sammála. En ef krabbamein hefur komið áberandi oft upp meðal skyld- menna þá segi sig sjálft að ættingj- ar hljóti að verða gætnari og fylgj- ast betur með en ella. Það sé hið eina ráð sem hægt er að gefa í bili. Æskilegt væri auðvitað að geta veitt um þetta efni almenna fræðslu. En að því komi að svör fáist við áleitnum spurningum. En auðvitað er afar mikilvægt að skilja hvernig sjúkdómurinn verður til. Máttur erfðatækninnar er veigamikill. Æxli eins og svo- kallað retinoblastoma og vissar tegundir ristilkrabbameins eru dæmi um að menn vita talsvert hvað gerst hefur í erfðaefni fruma til að þær taki á sig illkynja eðli. En þegar spurt er hve mikinn þátt erfðir eigi í tilurð bijósta- krabbameins yfirleitt, verður erfitt um svör. Menn hafa oft nefnt tölur eins og að við 5-15% slíkra meina komi einhver erfður þáttur við sögu. Nákvæmt svar verði ekki gefið, svo misjafnt sem þetta er milli skyldmennahópa. Bijóstakrabbamein er mjög al- gengt og virðist enn vera að auk- ast. Menn hafa engar haldbærar skýringar á því. En spurningar vakna um hvort þær ættir verði æ fleiri, sem ekki ná að veija sig fyrir orsakavaldinum - hver svo sem hann er. Vísast er hann ekki einn heldur margir samverkandi. Það er ástæðan fyrir því að undanf- arin ár hefur áhugi vaknað á að nota til rannsókna erfðaefnið úr konum úr fjölskyldum þar sem mikið er um bijóstakrabbamein. Þetta alþjóðlega samstarfsverk- efni, sem hér er til umræðu, hófst raunverulega með fundi um 40 vísindmanna í London í nóvember 1990. íslendingarnir höfðu þá átt alllengi samvinnu við Bretana. En á þessum fundi skýrði Marie Claire King frá Kalifomíu frá því að hún hefði ákveðnar vísbendingar um að erfður þáttur gæti verið í lang- armi litnings númer 17 - einhvers staðar þar á tilteknu svæði. Menn urðu auðvitað spenntir, en héldu ró sinni, eins og Rósa Björk orðaði það, því oftar en einu sinni hefur það gerst að einn rannsóknahópur telur sig hafa náð að staðsetja slík áhættugen, sem svo aðrir hafa ekki getað staðfest. í ættum þeim sem Marie-Claire King rannsakaði höfðu áberandi margar konur greinst ungar með bijóstakrabba- mein. Niðurstöður hennar voru til- tölulega sannfærandi. Og í stuttu máli var ákveðið að hefja samstarf um tengslagreiningu í ættum, hver rannsóknastofa í sínu heimalandi. 13 hópar tóku þátt í þessu, undir nafninu Breast Cancer Linkage Consortium. Þátttakendur voru frá Bretlandi, Frakklandi, Bandaríkj- unum, Hollandi, Svíþjóð, Noregi og íslandi. Markmiðið var að rann- saka hvort tengsl væri að finna milli bijóstakrabbameins og áður- nefnds svæðis á langarmi litnings 17, með öðrum orðum að prófa tíl fulls vísbendingu Marie-Claire King. í langarmi litnings 17 Og nú, einu og hálfu ári síðar, hefur með þessari samvinnu tekist að staðfesta þessa vísbendingu hvað varðar sumar ættir. Og til viðbótar hefur tekist að þrengja svo leitarsvæðið á litningnum að genið sjálft mun verða lesið innan fárra missera. Þama hjálpuðust menn að, útbýtt var meðal allra þeim genaþreifurum og mögnunar- vísum sem beita þurfti, notaður sími og faxtæki auk bréfaskrifta, og fundað öðru hveiju. Úrvinnslan var flókin tölfræði og stærðfræði og var miðstöð þess verks í London og Leeds. Síðasti fundur var hald- inn í Leiden í Hollandi nú fyrir skemmstu. Ljóst er að áhætta á bijóstakrabbameini er aðeins í sumum fjölskyldum bundin lang- armi litnings 17. Mikið verk er óunnið þegar leita skal að áhættu- genum annars staðar, segja íslend- ingarnir. íslenski hópurinn mun taka þátt í þeim rannsóknum. Aðr- ir hópar munu einbeita sér að því að klára verkið á Iangarmi litnings 17. En niðurstöður af þessari vinnu hafa verið sendar til birtingar í ameríska erfðafræðiritinu The American Journal of Human Gen- etics, bæði vinna hvers hóps um sig og samanlagðar niðurstöður hópanna. Þetta hljómar ekki svo flókið þegar það er sett svona fram. En í huga leikmanns vaknar spurning- in: Hvað er þessi litningur númer 17? Aðalgeir tekur að sér að fræða okkur nánar um litningana. I litp- ingunum liggur erfðaefnið í sam- hangandi keðju og genin eru þar innan um, líkt og perlur á festi. I hverri frumu mannsins eru 23 pör litninga, og annar litningur hvers pars er kominn frá föður og hinn frá móður. Erfðaefnið er því komið að hálfu frá hvoru foreldri, með

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.