Morgunblaðið - 28.06.1992, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1992
Gunnlaugur Finn-
bogason - Minning
Fæddur 8. september 1928
Dáinn 20. júní 1992
Mig langar í stuttu máli að minn-
ast Gulla. Laugardaginn 20. júní
seinnipartinn hringdi Steina frænka
í mig og sagði mér að Gulli væri
farinn frá okkur. Mér brá ofboðs-
lega mikið því daginn áður hafði
Steini látið okkur vita að hann
væri orðinn veikur. Ég bjóst alls
ekki við að þetta myndi fara svona
að Guð myndi taka hann frá okk-
ur. Ég var alltaf á sumrin hjá þeim
Huldu og Gulla. Þau voru mér eins
og mamma og pabbi þegar ég var
lítil. Það var þegar þau bjuggu á
Borgarholtsbrautinni í Kópavogi.
Þannig að ég á mikið af fallegum
og góðum minningum um hann
þaðan. T.d. þegar ég hef verið svona
3-4 ára þá svaf ég á dýnu á gólfinu
við hliðina á rúminu hjá þeim svo
um nóttina snéri ég mér þannig að
ég hálf festist undir rúminu og grét
og grét. Þau tóku mig undan rúm-
inu og eftir þetta kallaði Gulli mig
orgelið í langan tíma. Gulli var í
mörg ár rennismiður hjá Stáliðjunni
og eitt sumarið sem ég var hjá
þeim gaf hann mér stól sem hann
hafði smíðað handa mér. Hann var
mjög hugulsamur og greiðvikinn
maður. Minningin um hann Gulla
mun lifa í hugum okkar allra.
Elsku Hulda mín, Raggi, Biggi
og fjölskylda, um leið og ég kveð
Gulla með þökk fyrir samfylgdina
þá sendi ég ykkur öllum innilegar
samúðarkveðjur.
+
Litli drengurinn okkar,
DAGUR ÁSGEIRSSON,
sem lést aðfararnótt 22. júni,
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
daginn 29. júní kl. 13.30.
Hildur Óladóttir,
Vertu hjá mér, er halla tekur degi,
Herra, myrkrið kemur, dylst mér eigi.
Þegar enga hjáp er hér að fá,
hjálparlausra líknin, vert mér hjá.
(Sálmur.)
Berglind Kristjánsdóttir.
Á morgun, mánudaginn 29. júní,
verður gerð frá Seljakirkju í
Reykjavík útför Gunnlaugs Finn-
bogasonar. Hann var fæddur 8.
september árið 1928 og lést á St.
Jósefsspítalanum í Hafnarfirði 20.
júní sl. aðeins 63 ára að aldri.
Þegar við fréttum andlát Gunn-
laugs Finnbogasonar þá var okkur
brugðið. Gulli, eins og hann var
kallaður af vinum og kunningjum,
hafði verið á sjúkrahúsi en alls ekki
var búist við því að hann ætti svona
stutt eftir. En enginn veit hvenær
kallið kemur og við verðum að láta
nótt sem nemur og hlíta því hvort
sem okkur er það ljúft eða leitt.
En þetta er óvænt og þungt áfall
sérstaklega fyrir nánustu ástvini
hans.
Gulli kvæntist Sigríði E. Krist-
jánsdóttur 26. október árið 1949
og ólu þau upp fósturson, Ragnar
Kristján, sem er fæddur árið 1962.
Sigríður lést 27. maí 1972 og stóð
þá Gulli einn uppi með 10 ára gaml-
an son. En lífið heldur áfram og
það skiptast á skin og skúrir.
Þáttaskil urðu í lífí Gulla þegar
hann kynntist Huldu Pálsdóttur frá
Þingholti í Vestmannaeyjum. Þau
gengu í hjónaband 6. janúar 1973.
Ásgeir Yngvarsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför sonar míns, bróður, mágs og frænda,
ÞÓRIS HÓLMS SIGVALDASONAR,
Stafni.
Steinunn Björnsdóttir,
Guðrún H. Sigvaldadóttir, Haukur Björgvinsson,
Birna M. Sigvaldadóttir, Þorkell Sigurðsson,
Jón B. Sigvaldason, Guðríður M. Stefánsdóttir,
Elsa Þ. Heiðdal,
og systknabörn.
+
Hjartanlegar þakkir fyrir sýnda samúð, hlýhug og vináttu við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
JÓNS PÉTURS JÓNSSONAR
forstjóra.
Megi góður Guð blessa ykkur öll.
Gróa Jóelsdóttir,
Valgerður Jónsdóttir,
Jóel Friðrik Jónsson, Þuríður Steinþórsdóttir,
Jón Magnús Jónsson, Stefanfa Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Alúðarþakkir til allra er sýndu samúð og hlýhug við fráfall
EGGERTS Ó. JÓHANNSSONAR
yfirlæknis.
Helga Aradóttir,
Anna Vigdís Eggertsdóttir, Truls Grenneberg,
Sveinn Eggertsson,
Ari Eggertson, Sigrún Harðardóttir
og barnabörn.
Var það mikið lán fyrir Gulla að
eignast góða konu og sameiginlega
vildu þau mæta því sem framtíðin
bæri í skauti sér. Hulda átti einn
dreng, Birgi Þór, sem er fæddur
1961 og reyndist Gulli honum ákaf-
lega vel og var honum sem besti
faðir á sama hátt og Hulda gekk
Ragnari Kristjáni í móðurstað.
Heimili fjölskyldunnar var lengst
af við Borgarholtsbraut í Kópavogi
en hún flutti í Breiðholtið fyrir um
það bil tveimur árum síðan. Fjöl-
skyldan hefur verið farsæl og hjón-
in samhent í blíðu og stríðu og vildu
þjónin veita drengjunum skjól og
góða leiðsögn út í lífið og hefur
tekist það vel og eru þeir báðir efn-
ismenn.
Eftir því sem við þekkjum til og
þekktum Gulla þá var hann vænn
maður og drengur góður, ljúfur í
viðmóti og var alltaf gott og gaman
að hitta Gulla og Huldu frænku.
Hann hafði áhuga á mönnum og
málefnum og fylgdist vel með því
sem var að gerast við sjávarsíðuna
og spurði gjarnan frétta og hvemig
aflaðist.
Nú þegar Gulli hefur lokað aug-
um í hinsta sinn í þessu lífi þá biðj-
um við honum blessunar og þökkum
samfylgdina. Mestur er missir
Huldu en hún stendur ekki ein. Við
hlið hennar standa drengirnir og
þau munu styðja hvert annað í sorg-
inni og við biðjum góðan Guð að
gefa ykkur styrk á þessum erfiðu
tímum.
Lóa Skarphéðinsdóttir,
Magnús Kristinsson.
ik'íf.Í
%fa
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Minning:
*
Dagur Asgeirsson
Fæddur 4. desember 1989
Dáinn 22. júní 1992
Ég var nýkomin heim úr vel
heppnaðri ferð til Akureyrar, þar
sem ég og synir mínir eyddum góð-
um tíma með vinum okkar þeim
Hildi og Degi. Við mæðurnar fórum
með drengjunum okkar í göngu-
ferðir í lystigarðinn, í sund og á
fleiri staði. Á þessum samveru-
stundum okkar var framtíðin rædd
fram og til baka. Við vorum svo
stoltar og hamingjusamar yfír heil-
brigðu drengjunum okkar sem guð
hafði gefíð okkur. Á þessum fallegu
og sólríku dögum var ekkert fjar-
lægara en dauðinn og það að við
ættum aldrei eftir að hittast aftur,
öll fimm saman. Hvern gat líka
grunað það að aðeins nokkrum dög-
um síðar væri Dagur allur. hvers
veg^na fékk hann ekki að njóta lífs-
ins lengur, eins og við hin, og gera
okkur lífið léttara með fallega
bjarta brosinu sínu.
Þegar svo hörmuleg tíðindi ber-
ast að lítill drengur í blóma lífsins
er tekinn frá foreldrum sínum sem
gáfu honum líf og elskuðu hann svo
mikið, fínn ég fyrir hversu ber-
skjölduð við erum gagnvart almætt-
inu. Hver er tilgangurinn spyr ég
og fæ ekkert svar. Eg verð að trúa
því að góður guð hafi ætlað Degi
litla eitthvað mikilvægara hlutverk
á æðri stað þar sem hann mun
halda áfram að lifa og fylgjast með
okkur.
Við fengum ekki að hafa Dag
lengi hjá okkur í þessu jarðlífi en
á þessu hálfa þriðja ári sem hann
lifði veitti hann foreldrum sínum
og öðrum sem nutu nærveru hans,
ómælda gleði og ánægju. Dagur
með sinn óræða lit á kollinum sínum
var stór og hraustlegur drengur,
glaðlyndur og alltaf með sólskins-
bros á vör, þannig mun ég minnast
hans og hafa hann í huga mér um
alla framtíð.
Elsku Hildur og Ásgeir, ég bið
góðan guð að styrkja ykkur í þess-
ari miklu sorg. Dagur gaf ykkur
góð ár og dásamlegan tíma sem
verður aldrei frá ykkur tekinn.
Samúðarkveðjur sendum ég og fjöl-
skylda mín öllum ættingjum óg vin-
um sem eiga um sárt að binda.
. Sigrún.
Kveðjuorð.
Páll Gunnarsson
Það var einn morgun ekki fyrir
svo löngu síðan að við fengum þær
fréttir að heiman^ að Páll Gunnars-
son væri dáinn. Á slíkum stundum
verður manni hugsað hvað maður
sé eiginlega að gera hér svo langt
í burtu frá ættingjum og vinum.
Og betri og traustari vin en Palla
var ekki hægt að hugsa sér.
Alltaf var hann jafn hlýr og in-
dæll í viðmóti og stóð við hliðina á
okkur eins og klettur hvað sem á
gekk. Alltaf tilbúinn að rétta öðrum
hjálparhönd í orði og á borði.
Oft var setið langt fram á nætur
heima hjá Palla og Jóku og spjallað
um heima og geima, og aldrei voru
glettnin og bjartsýnin langt undan
þar á bæ.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft-
ur hug þinn og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.“
(úr Spámanninum)
Þessi miklu orð hafa oft komið
upp í huga okkar undanfarið, og
svo sannarlega eigum við margar
góðar minningar um Palla. Minning
um góðan dreng mun ætíð lifa í
hugum okkar.
Elsku Jóhanna, Marta, ættingjar
og vinir. Sendum ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur og megi
allar góðar vættir styrkja ykkur í
ykkar stóru sorg.
Rabbi og Dísa
Landskrona.
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug við andlát og útför frœnku
okkar,
HALLDÓRUJÓNSDÓTTUR
frá Skeggjastöðum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir
kærleiksríka umönnun er hún naut þar.
Megi góður Guð vera með ykkur öllum.
Vandamenn.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið.