Morgunblaðið - 11.07.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1992
Morgunblaðið/Torfi Jónasson
CPS-mælingarpunktí komið fyrir íKolbeinsey
Á þriðjudag var 18 mælingarpunktum fyrir CPS-staðsetningarkerfí komið fyrir á norðurlandi. Tveir Bret-
ar unnu verkið á vegum Sjómælinga íslands með aðstoð Landhelgisgæslunnar sem lagði til þyrlu sína,
TF-SIF. Mælingarpunkti var meðal annars komið fyrir í Kolbeinsey þar sem myndin er tekin. SIF hefur
ekki áður lenti í eynni. Á sínum tíma var minni þyrla gæslunnar ásamt varðskipinu Oðni notuð til að steypa
þyrlupallinn.
VEÐUR
Heimild: Veðuretofa ísiands
(Byggt ó veðurspá kl. 16.15 í gœr)
IDAGkl. 12.00
\ <3 \
/1 y
VEÐURHORFUR 1 DAG, 11. JULI
YFIRLIT: Á Grænlandssundi er fremur grunnt lægðardrag sem á að
þokast austsuðaustur en um 500 km austsuðaustur af Hvarfi er 997
mb lægð sem einnig þokast austsuðaustur.
SPÁ: Norðaustan gola og síöar kaldi vestanlands en suðaustan gola
eða kaldi um landið austanvert. Skúrir norðvestan- og suðaustanlands
en annars bjart veður. Hiti 7 til 17 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAQ: Hæg norðlæg eða breytileg átt, skúrir við
norð- og austurströndina og einnig í innsveitum sunnanlands síðdegis
en annars víða bjart veður, einkum sunnanlands. Hiti 6 til 17 stig, hlýj-
ast suðvestanlands.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hægviðri og víða léttskýjað en þá hætt við
síðdegisskúrum inn til landsins. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast í innsveitum.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
▼
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað Hálfskýjað
* r * * * *
* / * *
r * r * * *
Slydda Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V % V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig-.
í?
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fært er fjallabilum um
Lakaveg, Kjalveg, Sprengisand um Bárðadal, Fjallabak nyrðra, nyrðri
Gæsavatnaleið, Oskjuleið, Kverkfjallaieið og um Fljótsdalsheiði í Snæ-
fell. Uxahryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Skagafjarðarleið
og Fjailbak syðra opnast í kvöld og eru þær leiðir því opnar umferð
fjallabíla um helgina.
Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 10 skýjaö
Reykjavlk 8 skýjað
Bergen 18 skýjað
Helslnki 22 skýjað
Kaupmannahöfn 28 heiðskírt
Narssarssuaq 16 léttskýjað
Nuuk 8 þoka
Ósló 15 akúr
Stokkhólmur 25 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 28 iéttskýjað
Amsterdam 19 þokumóða
Barcelona 21 þokumóða
Berlín 27 hálfskýjað
Chicago 21 alskýjað
Feneyjar 25 léttskýjað
Frankfurt 23 hálfskýjað
Glasgow 17 skýjað
Hamborg 23 skýjað
London 20 skýjað
Los Angeles 21 þokumóða
Ltixemborg 21 skýjað
Madríd 27 skýjað
Malaga 31 léttskýjað
Mallorca 28 skýjað
Montreal 19 skýjað
NewYork 26 skýjað
Orlartdo 27 heiðskírt
Parls 17 rigning
Madeira 21 skýjað
Róm 24 skýjað
Vín 23 skýjað
Washington 28 mistur
Winnipeg 9 léttskýjað
*
Stjóm Lögmannafélags Islands:
Lögmaður áminntur
fyrir ummæli í blaði
um störf dómara
STJÓRN Lögmannafélags íslands hefur áminnt Sigurð Georgsson
hæstaréttarlögmann fyrir ummæli sem eftir honum voru höfð í Press-
unni þann 28. maí síðastliðinn um Má Pétursson, þáverandi bæjarfóg-
eta í Hafnarfirði og skiptaráðanda í máli sem fjallað var um í blað-
inu, meðal annars á forsíðu þess. Sfjórn Lögmannafélagsins telur að
lögmaðurinn hafi með ummælum sínum ekki sýnt Má fulia tillitssemi
og virðingu og viðhaft ómálefnalega og ófaglega gagnrýni á störf
og starfshætti hans og því gerst brotlegur við siðareglur stéttarinn-
ar. Bæði Már og Sigurður Georgsson hafa skotið úrskurði sljórnarinn-
ar til Hæstaréttar, en sfjórnin er í raun dómstóll á héraðsdómsstigi
um brot félagsmanna í lögmannsstarfi og sæta úrskurðir hennar þar
um kæru beint tii Hæstaréttar.
í grein Pressunnar hafði verið
fjallað um skipti í dánarbúi sem var
til opinberra skipta hjá Má Péturs-
syni í Hafnarfirði. Eins og málavext-
ir eru raktir í úrskurði stjómar Lög-
mannafélagsins segir að í greininni
hafi verið látið liggja að því að Már
hefði í störfum sínum sem skipta-
ráðandi valdið því að dóttir og einka-
erfingi manns hefði glatað rétti sín-
um til eigna dánarbúsins og að
systursonur mannsins hefði getað
dregið sér eignir búsins vegna að-
gerðarleysis skiptaráðandans þrátt
fyrir óskir lögmanns dótturinnar,
Sigurðar Georgssonar, um opinbera
rannsókn á falsaðri erfðaskrá og
framkomnar efasemdir um að fram-
lögð gögn væru á rökum reist.
í greininni voru höfð ummæli
eftir Sigurði, sem fram kemur í
úrskurði stjómarinnar að hann telji
efnislega rétt eftir höfð þótt hann
hafi ekki haft frumkvæði að umfjöll-
un blaðsins um málið, meðal annars
um að fyrir tilverknað sinn hafi far-
ið fram opinber rannsókn sem leitt
hafi í ljós að vottorð um gildi erfða-
skrárinnar hafi reynst fölsuð.
í úrskurði stjórnarinnar segir að
í raun hafí það ekki verið kæra lög-
mannsins sem leiddi til þess að sýnt
var fram á að rangiega var staðið
að gerð erfðaskrárinnar heldur játn-
ing annars vottanna að erfðaskránni
fyrir sakadómi Hafnarfjarðar.
Niðurstaða stjórnar Lögmannafé-
lagsins var sú að áminna lögmann-
inn. í úrskurðinum segir meðal ann-
ars: „Það er álit stjómar L.M.F.Í.
að lögmenn verði að gæta hófs og
stillingar í orðum, þá er þeir tjá sig
um störf og starfsháttu dóm-
stólaj... ] Skiptir þá ekki máli hvort
sú umræða fer fram í fjölmiðlum
eða á öðrum vettvangi. Þannig verða
þeir að gæta þess að umfjöllun um
dómsmál sé á málefnalegum og fag-
legum gmndvelli og að ekki séu
veittar rangar eða villandi upplýs-
ingar um málsatvik."
Síðar segir að ekki verði hjá kom-
ist að telja að ummæli lögmannsins
hafi að ýmsu leyti verið villandi og
til þess fallin að gefa blaðamannin-
um tækifæri á að draga rangar
ályktanir þar af.
Már Pétursson skaut málinu einn-
ig til stjórnar Dómarafélags íslands.
Meirihluti stjómar þess stendur að
yfirlýsingu þar sem segir að ekkert
í málinu virðist réttlæta þær alvar-
legu ásakanir sem fram koma í
fyrirsögn og meginmáli greinar
Pressunnar.
Már hefur sent siðanefnd Blaða-
mannafélags íslands kæm vegna
málsins á hendur blaðamanni og
ritstjóra blaðsins en umfjöllun siða-
nefndarinnar er ekki lokið.
Hálka á leirbomum
vegnm í Mývatnssveit
Björk, Mývatnssveit.
AÐ undanförnu hefur verið unn-
ið að því að bera ofan í vegi í
Mývatnssveit. í fyrradag var
mikið kvartað undan þessum
framkvæmdum.
Ofaníburðurinn er leirblandinn
jarðvegur úr Námaskarði og þegar
gerði feiknarlega úrkomu og ofaní-
burðurinn blotnaði varð á veginum
mikil hálka og rútur áttu til dæmis
í mestu vandræðum að komast upp
Námaskarð. Auk þess mun að
minnsta kosti einn bíll hafa skrikað
í hálkunni og lent út af vegi.
Hugmyndin hefur verið að bera
þetta leirefni í veginn alia leið niður
yfir Mývatnsheiði og niður í
Reykjadal. Að sögn vegagerðar-
manna þyrfti að blanda í þennan
ofaníburð meira af grófara efni og
verður það vonandi gert. Því má
vænta þess að þessu ástandi linni
með betra efni og þegar vegurinn
fær að þorna og troðast.
Vegurinn yfir Siglu-
fjarðarskarð opinn
Siglufirði.
VEGURINN yfir Siglufjarðar-
skarð hefur nú verið opnaður
fyrir jeppaumferð. Snjór var
ruddur af veginum um miðjan
júní, en hann lokaðist aftur í
Jónsmessuhretinu. Þetta er
þriðja árið í röð sem vegurinn
er opnaður og á síðasta ári var
unnið að viðgerðum og endurbót-
um á honum. Það eru Vegagerð-
in og Siglufjarðarbær sem í sam-
einingu standa að opnun vegar-
ins nú.
Ferðamenn leggja nú í vaxandi
mæli leið sína til Siglufjarðar m.a.
til þess að fara yfir Skarðsveginn
og á það jafnt við um yngri jeppaá-
hugamenn og þá sem eldri eru og
eiga skemmtilegar minningar frá
ferð yfir hann á síldarárunum.
Steinhleðslurnar í veginum hafa
varðveist nokkuð vel og eru að lík-
indum best varðveittu vegahleðsl-
urnar á landinu nú. - M.J.
Gjaldþrot Þjóðlífs:
Lýst 22 millj-
óna kröfum
22,2 milljón króna kröfum var
lýst í þrotabú Þjóðlífs hf, sem
tekið var til gjaldþrotaskipta
þann 15. mars síðastliðinn.
Skiptum hefur þegar verið lokið
þar sem engar eignir fundist í búinu
til greiðslu upp í kröfurnar.