Morgunblaðið - 11.07.1992, Síða 23
seei Liui.ri huoaujiaouaj uiöAueviuoaoM
SS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1992
23
Morgunblaðið/Sigurður
Aðalsteinsson
Unnið að hleðslu i
göngum.
Teikning af
torfbænum.
Jökuldalur:
Endurbyggður 150
ára gamall torfbær
Vaðbrekku, Jökuldal.
HAFIN er endurbygging gamla torfbæjarins á Sænautaseli í Jökul-
dalsheiði. Bær þessi mun að stofni til byggður 1843 en þar var búið
í hundrað ár að undanskildum sex árum eftir öskufallið 1875. Sæ-
nautasel fór í eyði 1943, en síðustu ábúendur þar voru Guðmundur
Guðmundsson og Halldóra Eiríksdóttir.
Jökuldalshreppur keypti jörðina
1943 og hefur átt hana síðan, en
ekki nytjað að marki nema til haga-
göngu búíjár af Jökuldal og til sil-
ungsveiða úr Sænautavatni, sem
er að mestu leyti innan íanda-
merkja Sænautasels.
Jökuldalshreppur er þessvegna
framkvæmdaaðili verksins og kost-
ar það að mestu.
Það var fyrir forgöngu Auðuns
Einarssonar og bama síðustu ábú-
enda að umræður hófust um upp-
byggingu bæjarins. í vor barst síðan
bréf til hreppsnefndar Jökuldals-
hrepps frá Auðuni Einarssyni er
innihélt eins og segir í fundargerð
Tori Amos á
Hótel Borg’
BANDARÍSKA söngkonan Tori
Amos heldur tónleika á Hótel
Borg dagana 23. og 24. júlí n.k.
Tori Amos hefur að undanfömu
vakið athygli fyrir hljómplötu sína
Little Earthquakes.
hreppsnefndar „teikningar af bæn-
um, efnisáætlun og kostnaðaráætl-
un þumalfingurs". Var bréfið tekið
fyrir á fundi hreppsnefndar 20. júní
sl. og samþykkt þar að fela oddvita
að hefja framkvæmdir. Vom í fram-
haldi í því ráðnir menn til verksins
þeir Auðunn Einarsson og Sveinn
Einarsson frá Hijóti og Páll Bene-
diktsson á Hákonarstöðum. Fram-
kvæmdir hófust síðan í byijun júlí.
Að þeim vinna ásamt áðumefndum
mönnum unglingavinnuflokkur
Jökuldalshrepps sem er skipaður
unglingum 10 ára og eldri. Einnig
koma að verkinu sjálfboðaliðar og
áhugamenn um verkið.
Að sögn oddvita, Amórs Bene-
diktssonar, miðar verkinu vel áfram
en hann hvetur alla þá er áhuga
hafa á verkinu að koma og leggja
því lið. Áætlað er að ljúka uppbygg-
ingu bæjarins, það er að koma hon-
um undir þak og þilja innan eldhús
og baðstofu ásamt skemmu og
skemmulofti, fyrir haustið svo hægt
verði að leigja bæinn út til hrein-
dýraveiðimanna um hreindýraveiði-
tímann í haust.
- Sig. Að.
íslandsvika í Finnlandi:
íslenskir listamenn
landi sínu til sóma
Grindavík.
FJÖLBREYTTRI íslandsviku
sem efnt var til í finnsku heim-
skautsbaugsborginni Rovani-
emi, en hún liggur álíka norðar-
lega og Grímsey, lauk nýverið.
Ferðamálaráð borgarinnar stóð
að íslandskynningunni sem sam-
anstóð af myndlistarsýningum,
kvikmyndasýningum, söng-
skemmtunum og hljómleikum, auk
þess sem Hilmar Jónsson mat-
reiðslumaður sá um kynningu á
íslenskum mat á einu hóteli borg-
arinnar.
Þá var samhliða íslandskynn-
ingunni efnt til vináttudaga Ro-
vaniemi og Grindavíkurbæjar, en
vinbæjartengsl þessara bæja hafa
staðið í þrettán ár.
íslandsvikan hófst formlega
þriðjudaginn 16. júní þegar Ólafur
G. Einarsson menntamálaráðherra
opnaði þijár myndlistasýningar,
málverkasýningu Vilhjálms Bergs-
sonar, grafíksýningu ellefu lista-
manna á vegum Norræna hússins
og ljósmyndasýningu Kristins
Benediktssonar á myndum frá
Grindavík auk farandljósmynda-
sýningar á vegum Norræna húss-
ins með myndum frá íslandi þegar
seinni heimsstyijöldin stóð yfir.
Málverka- og grafíksýningin voru
í Lappia-húsinu, sem er einskonar
Norræna hús staðarins, en ljós-
myndasýningin frá Grindavík var
í ráðhúsinu og stríðsárasýningin í
bókasafninu.
Eftir opnunarathöfnina var há-
tíðardagskrá í hljómleikasal Lapp-
ia-hússins, en þar fluttu ræður
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra, Matti Pelttari borgar-
stjóri Rovaniemi og Halldór Ing-
varsson bæjarfulltrúi í Grindavík.
Að ræðuhöldum loknum spiluðu
félagar úr Harmonikkuunnendum
frá Reykjavík, barnakór Tónlist-
arskólans í Hafnarfirði spilaði og
söng undir stjórn Guðrúnar Ás-
björnsdóttur við undirleik Kristj-
önu Þórdísar Ásgeirsdóttur, Elín
Ósk Óskarsdóttir söng einsöng við
undirleik Ólafs Vignis Albertsson-
ar auk þess sem Elín Ósk stjóm-
aði söng Rangæingakórsins.
Þá fluttu finnsk böm bamaó-
pem eftir Eyjólf Ólafsson tónlist-
arkennara sem hann stjómaði og
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra opnar Islandsvikuna.
Hilmar Jónsson matreiðslumaður ræðir við ánægða matargesti
um íslenska lambakjötið.
Vilhjálmur Bergsson listamað-
ur (til hægri) við eitt málverka
sinna, en margir skoðuðu sýn-
ingarnar á opnunardaginn.
spilaði undir, en Eyjólfur hefur
verið búsettur í Rovaniemi í nokk-
ur ár og kennt bömum tónlist
Næstu daga héldu kóramir
söngskemmtanir og Harmonikku-
unnendur spiluðu víða um borgina,
meðal annars vom heimsóttir skól-
ar, sjúkrahús, elliheimili og versl-
unarkringlur, auk þess sem kirkju-
kór Grindavíkurkirkju söng í Ro-
vaniemikirkju undir stjórn Siguróla
Geirssonar ásamt bamakór Tón-
listarskóla Hafnarfjarðar. Vöktu
Islendingamir mikla athygli og var
gerður góður rómur af flutningi
þeirra.
Vegna vinabæjatengsla Rovani-
emi og Grindavíkurbæjar áttu
bæjarfulltrúar Grindavíkur, sem
voru meðal gesta, fundi með ráða-
mönnum Rovaniemiborgar og
lögðu Finnarnir til að reynt yrði
að auka viðskipti á milli staðanna
og sýndu mikinn áhuga á að kaupa
fisk af Grindvíkingum og munu
þau mál vera í athugun.
Kr.Ben.
i
|
Hella:
Nýr frjálsíþróttavöllur í augsýn
Hellu.
FYRSTA skóflustungan var tek-
in að nýjum frjálsíþróttavelli fyr-
ir skömmu á Hellu. Framtak
þetta er unnið eftir samvinnu-
samningi ungmennafélagsins á
staðnum og Rangárvallahrepps.
Nýju lífi hefur verið blásið í
Ungmennafélagið Heklu og er
mikill áhugi meðal barna og
unglinga á fijálsum íþróttum en
félagið stendur fyrir margs kon-
ar íþróttaæfingum.
Nýi völlurinn er staðsettur aust-
an við grunnskólann og nokkru
norðar en gamli völlurinn sem
reyndar var aðeins möl og tvö mörk.
Nýi völlurinn verður grasi gróinn
með hlaupabrautum, kast- og at-
rennubrautum. Þá verða útbúin
áhorfendastæði austan vallarins við
Heiðvang og skjólgarður norðan
vallarins. íþróttafólk mun geta not-
að búningsaðstöðu sundlaugarinnar
sem haft var í huga þegar valinn
var staður fyrir völlinn auk þess
sem þetta þykir skjólsæll reitur í
þorpinu. Áætlað er að taka völlinn
í notkun að ári.
- AH
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Friðsemd Hafsteinsdóttir, formaður Ungmennafélagsins Heklu tekur
fyrstu skóflustunguna að nýjum frjálsíþróttavelli á Hellu.
£LANTI^A
...þessi með betri htíðamar
- btltínn sem ber af
• 4 dyra stallbakur
• 114 hcstafla vél.
•16 ventla.
• Tölvustýrð fjölinnspýting.
• 5 gíra beinskipting eoa 4 þrepa
tölvustýrð sjálfckipting.
• Rafdrimar rúður og samlæsing á hurðum.
• Hvaríakútur.
HYunoni
...til framtíðar
Vcrðfrá;
1.049.000,-kr.
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00
ÖRKIN 2114-28*21