Morgunblaðið - 15.08.1992, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1992
AÐ SINNA SJALFUM SER
„Heilsudvöl“ á Hótel Örk — nýjung í ferðaþjónustu
eftir Örnólf Árnason
Hótel Örk í Hveragerði er að þróa
starfsemi sem að mínum dómi er
áhugaverðasti nýi valkosturinn í
ferðaþjónustu landsins, bæði fyrir
íslenska og útlenda gesti. Fyrirbærið
nefnist „heilsudvöl" og er sambland
af hvíld, heilsurækt, hollustu,
skemmtun og eins konar námskeiði
í því að breyta lífsmáta og lifnaðar-
háttum svo af leiði betri almenn líð-
an, aukin vitund og lífsnautn.
Heilsubærinn Ilveragerði
Þessi tegund af starfsemi er auð-
vitað hvergi betur staðsett en í
Hveragerði, vöggu íslenskra nátt-
úruiækninga. Um margra áratuga
skeið hefur fólk sótt heilsubót í jurta-
fæði, leirböð, nudd og hvers konar
sjúkrameðferð til þessa bæjar sem
spratt upp þarna á öflugasta jarð-
hitasvæði Suðurlands í skjólgóðum
dal milli Kamba og Ingólfsfjalla.
Heilsuhæiin hafa fyrst og fremst
getað annað sjúklingum, einkum í
endurhæfingu, en Hótel Örk kemur
nú til með að bjóða nýja möguleika
fyrir fólk almennt til að hressa upp
á heilsuna og nýta sér lífsins lysti-
semdir.
Ylræktin fræga á grænmeti,
ávöxtum og blómum í glerhúsum,
inn á milli leirfláka, kísilvatnslauga
og goshvera, stuðlar að því að gera
Hveragerði að sannfærandi heilsu-
lind. Það er því snjllræði að taka
hiuta af hinu glæsilega og vel búna
hóteli, Örk, undir heilsudagskrá af
þessu tagi og tengja þannig saman
nútímaþægindi, þagstæðar náttúru-
aðstæður og gamla jafnt sem nýja
þekkingu.
Vakning - heilsa og hollusta
Um þessar mundir er öflug vakn-
ing á íslandi og ýmsum öðrum Vest-
urlöndum að spá uppá nýtt í matar-
æði og aðra hollustuþætti, stunda
líkamsrækt og endurskoða ýmis við-
horf, m.a. til andlegra þátta mann-
legrar tiiveru. Þetta veldur því með-
ai annars að fjölmargir kjósa nú
heldur að nota frítíma sinn til að
byggja upp heilsu sína en að rífa
hana niður, eins og þótti svo miklu
sjálfsagðara uppátæki hér áður fyrr.
Fólk hefur hreinlega áttað sig á því
að það er líka „skemmtilegt“ að
kalla fram líkamlega og andlega
vellíðan með skynsamlegum og upp-
byggjandi hætti.
Önnur áhrif þessarar vakningar
eru þau að upplýsingar um heilsu-
samlegt líferni eru á hveiju strái og
yfirleitt ekki litnar hornauga lengur.
Við liggur að fyrr á árum hafi jurta-
fæði, jóga og ég tala nú ekki um
hugleiðsla verið lögð að jöfnu við
galdrakukl eða þá talin bera vott
um einhvers konar geðveilu. Þetta
er liðin tíð.
Vandvirkni og metnaður
Nú er völ á allmörgu ágætu fólki
hér á íslandi með trausta sérþekk-
ingu á hinum ýmsu sviðum heilsu-
ræktar og hollustu. Ingibjörg
Björnsdóttir, sem annast skipulagn-
ingu og framkyæmd „heilsudvalar-
innar“ á Hótel Örk, hefur afar góða
yfirsýn í þessum efnum. Hún virðist
kappkosta að setja dagskrána saman
með það fyrir augum að ná til sem
flestra þeirra þátta, líkamlegra og
andlegra, sem áhrif hafa á líðan
fólks og heilsu. Ingibjörg hefur þar
greinilega að leiðarljósi þá heildar-
hyggju í mati á heilsu hvers einstaks
manns sem á nú vaxandi fylgi að
fagna á Vesturlöndum.
I vor var gerð tilraun með heilsu-
daga á Hótel Örk. Ég átti þess kost
að fylgjast örlítið með henni, þótt
um skamma hríð væri, og get því
borið um það hversu glæsilega starf-.
semin fór af stað og hve ánægðir
dvalargestir voru með hana. Gestir
þeir, sem ég talaði við, voru á einu
máli um að sériega vel og skynsam-
lega væri staðið að allri skipulagn-
ingu. Það var öllum ljóst að hótel-
stjórnin og Ingibjörg Björnsdóttir
lögðu einstaka alúð við að ýta þess-
ari nýja starfsemi rétt af stað. Vand-
virkni og metnaður þessa fólks vöktu
aðdáun.
Fjölbreytt heilsubót,
skemmtun og fræðsla
Að þessu sinni verður um að ræða
7 vikna dagskrá sem hefst 30. ág-
úst nk. og getur fólk valið um dvöl
frá tveimur dögum allt upp í tvær
vikur. Verðið virðist mér mjög sam-
keppnishæft því að gisting og heilsu-
fæði ásamt allri hinni fjölbreyttu
dagskrá frá morgni til kvölds kostar
samtals ekki meira en sem nemur
gistingu einni saman á tæplega miðl-
ungshótelum í nágrannalöndunum.
Það er meíri munaður en margan
grunar að taka nokkra daga, viku
eða jafnvel tvær vikur í það að sinna
sjálfum sér. Á boðstólum í heilsu-
dvölinni á Hótel Örk er m.a.: heilsu-
fæði, jógaleikfimi, hugrækt, sund,
gufuböð, leirböð, sjúkranudd, slök-
unarnudd, svæðanudd, arómaþerap-
ía. Við sundlaugina á hótelinu eru
tveir heitir pottar, annar með hreinu
bergvatni, hinn með kísilhveravatni,
sem hefur einstaklega góð áhrif á
ýmis húðmein eins og sannast hefur
m.a. í Bláa lóninu. Á kvöldin eru
ýmist fyrirlestrar sérfræðinga úm
hin ýmsu efni eða tónleikar íslenskra
listamanna og aðrar listrænar uppá-
komur.
Sjúkranudd
Án þess að ég vilji gera einum
þætti starfseminnar hærra undir
höfði en öðrum, er ef til vill ástæða
til að geta sérstaklega um sjúkra-
nudd. Wolfgangs Roling sem hefur
gefið einstaklega góða raun. Roling
er gagnmenntaður og afburðagóður
nuddari. Hann starfar við Heilsu-
hæli 'Náttúrulækningafélagsins í
Hveragerði en hefur einnig sinnt
gestum Arkar samkvæmt pöntunum
síðan á heilsudögunum í vor á nudd-
stofu hótelsins sem er á heilsurækt-
ardeildinni í kjallaranum. Það er
auðvitað einstakt að hótelið skuli
m.a. geta aðstoðað þá gesti, sem
þurfa á brýnni sjúkrameðferð að
halda, yið að fá hjálp í hæsta gæða-
flokki. í „heilsudvölinni" er svo auð-
vitað hægt að panta hjá Roling aðr-
ar tegundir nudds.
Skapandi framtak
Jón Ragnarsson, eigandi Hótels
Arkar, er þegar farinn að vinna að
markaðssetningu heilsuþjónustunn-
ar erlendis. íslenskar og erlendar
ferðaskrifstofur eru að byija að selja
„heilsudvöl" á Hótel Örk og kynna
þá um leið Hveragerði, og jafnvel
Island allt, sem heilsulind. Ég er
þeirrar skoðunar að þarna sé um að
ræða feikna áhugaverða nýsköpun
í íslenskri ferðaþjónustu. Ég yrði
ekki undrandi þótt sú starfsemi, sem
Jón gerist þarna brautryðjandi í,
ætti eftir að verða einhver þýðingar-
mesti og ábatasamasti þáttur ís-
lenskrar ferðaþjónustu og kæmi
jafnframt til með að auka hróður
íslands og stuðla að því að byggja
upp þá ímynd heilsu og hreinleika
sem ég tel að okkur sé svo nauðsyn-
leg vegna matvælasölu okkar á er-
lendum mörkuðum.
Örnólfur Árnason
„Jón Ragnarsson, eig-
andi Hótels Arkar, er
þegar farinn að vinna
að markaðssetningu
heilsuþjónustunnar er-
lendis. Islenskar og er-
lendar ferðaskrifstofur
eru að byrja að selja
vheilsudvöl“ á Hótel
Ork og kynna þá um
leið Hveragerði, og
jafnvel Island allt, sem
heilsulind. Ég er þeirr-
ar skoðunar að þarna
sé um að ræða feikna
áhugaverða nýsköpun í
íslenskri ferðaþjón-
ustu.“
Heilsuhótel eiga langa sögu í
Evrópu, einkum kringum fræg
vatnsból í Mið-Evrópu. Þangað sóttu
fyrr á tímum íjáðir erlendir gestir
við mismunandi slæma heilsu og
höfðu sumardvöl við böð og vatns-
þamb t.d í Wiesbaden, Baden-Baden
og Karlsbad (Karlovy Vary). Bestu
heilsuhótelin í dag eru í Þýskalandi,
Frakklandi og á Norður-Ítalíu. Þetta
er gífurlega mikilvæg starfsemi fyr-
ir ferðaþjónustuna því að hún skilar
meiri tekjum per ferðamann en flest
önnur starfsemi, kannski ekki ósvip-
að erlendu laxveiðimönnunum sem
sækja til íslands.
En á méðan útlendingar eru ekki
búnir að panta upp hótelherbergin
langt fram í tímann og jafnvel
sprengja upp verðið, eins og gerðist
í laxveiðinni, þá vil ég eindregið
benda fólki á það að kynna sér hvað
boðið er uppá í „heilsudvöl“ hjá
Hótel Örk og reyna þessa þjónustu
sem ég er sannfærður um að mun
koma mörgum á alveg nýtt spor í
lífinu og leiða til betri heilsu dvalar-
gestanna í framtíðinni og bættrar
hollustu á heimilum þeirra.
Höfundur er rithöfundur.
Utvegsbændafélagið og fiskvinnslustöðvar í Vestmannaeyjum;
Mótmæla harðlega tillög’-
um Byggðastofnunar
SAMEIGINLEGUR fundur útvegsbænda og fiskvinnslufyrirtækja í
Vestmannaeyjum sem haldinn var á miðvikudag samþykkti hörð
mótmæli við þeim hugmyndum Byggðastofnunar til ríkisstjórnarinn-
ar, sem gera ráð fyrir bótagreiðslum til eintakra útgerða vegna
kvótakaupa.
í ályktun fundarins er bent á að
ýsukvóti fiskiskipa frá Vestmanna-
eyjum hafi verið skertur um 30% á
síðasta fiskveiðiári og komið hafi
til loðnubrests á árunum 1989-
1990, án þess að sérstakar bætur
hafi komið til einstakra útgerða.
„Fundurinn vekur athygli á þeirri
staðreynd að samdráttur í þorsk-
veiðiheimildum í Vestmannaeyjum
á næsta fiskveiðiári nemur hátt í
5.000 tonnum. Auknar veiðiheim-
ildir í ýsu, ufsa og karfa vega ekki
upp samdrátt í þorski og gera rekst-
ur útgerðar og vinnslu enn þyngri
en áður. Þar fyrir utan tekst ekki
að nýta veiðiheimildir í ýsu á þessu
fiskveiðiári og töluverðar líkur á
að ýsukvóti næsta fiskveiðiárs muni
ekki nást.
Fundurinn leggur til að aflaheim-
ildum Hagræðingarsjóðs verði út-
hlutað á skip í samræmi við afla-
hlutdeild viðkomandi skips án end-
urgjalds. Með þessu kæmi ríkis-
stjórnin á móts við sjáarútveginn
sem nú er rekinn með 6-8% halla
samkvæmt mati Byggðastofnunar.
Fundinum finnst sérkennilegt að
sjávarútvegsráðherra skuli ekki
vera með í ráðum innan ríkisstjórn-
arinnar þegar ræddar eru lausnir á
vanda sjávarútvegsins," segir í
ályktun fundarins.