Morgunblaðið - 16.08.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992
21
Göngugarpur á sextugsaldri geng-
ur frá Reykjanesi á Langanes:
Anægður með
ferðina þrátt
fyrir harðræði
„ÉG er ánægður með ferðina,
en hún var mikið harðræði
og ef ég hefði gert mér grein
fyrir því hversu erfið ferðin
yrði þá hefði ég kannski ekki
farið í hana,“ sagði Sigurgeir
Jónasar, 56 ára gamall, Is-
lendingur, sem búsettur hefur
verið í Englandi síðustu 15 ár
og gekk nýlega einn frá
Reykjanesvita þvert yfir land-
ið að Langanesvita.
Sigurgeir sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði lagt
af stað frá Reykjanesvita 10.
júlí sl. og lokið göngunni í Þórs-
höfn 2. ágúst eftir að hann hefði
farið fyrst að Langanesvita. Sig-
urgeir hefur ekki mælt nákvæm-
lega þá vegalengd sem hann
gekk en telst til að með öllum
krókum sé hún í kringum
800-900 km.
Aðspurður um aðdragandann
að þessari ferð sagði Sigurgeir
að upphaflega áætluniri hefði
verið að fara til Þórshafnar og
ganga þar í næsta nágrenni
ásamt fleira fólki. En enginn
nema hann hefði getað fengið
nógu langt frí fyrir ferðina. „Þar
sem ég fór einn hef ég hugsað
mér að skrifa bók á ensku um
þessa ferð,“ sagði Sigurgeir.
„Þegar maður er einn í göngu-
ferð er ekkert annað að gera en
ganga og maður verður að
gönguvél," sagði Sigurgeir.
Hann gekk allt upp í sextán
klukkutíma á dag en að meðal-
tali gekk hann 12-13 tíma á
dag, án þess að stoppa að ráði.
Sigurgeir sagði að hann hefði
gengið mest 50-60 km á einum
degi. Hann sagði að hann hefði
mest orðið að bera 35 kíló en
hann hefði gert ráðstafanir með
að skilja matarpakka eftir við
Tungufell við Gullfoss og á
Morgunblaðið/Kristinn
Göngugarpurinn Sigurgeir
Jónasar.
Grímsstöðum áður en hann lagði
af stað. Hann sagði að það hefði
alltaf verið eitthvað að gerast í
ferðinni. Veðrið hefði verið upp
og ofan, frost norðan við Vatna-
jökul og snjókoma við Oskju.
Sigurgeir hefur verið búsettur
í Aylesbury á Bretlandi síðastlið-
in fimmtán ár og er þetta fyrsta
heimsókn hans til íslands síðan
hann flutti þangað. Sigurgeir,
sem á 56 ára afmæli nú í ágúst,
vinnur við heilsurækt í Bret-
landi. Hann sagði að hann hefði
farið í gönguferðir á Englandi,
en enga svona langa. I þeim ferð-
um hefði vegalengdin verið í
kringum 160 km og hann hefði
gengið ásamt fleira fólki.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSNÆÐISBRÉF 1. FLOKKUR 1992
3. Uppboð -18. ágúst 1992
Þriðja uppboðhúsnæðisbréfaferfram þriðjudaginn 18. ágúst
n.k. Frestur til þátttóku rennur út kl. 14:00 þann dag og þá
þurfa bindandi tilboö í bréfin að hafa borist VÍ B. Húsnæðisbréf
eru gefin út í tveimur einingum, 1 m.kr. og 10 m.kr. að
nafnverði. Húsnæðisbréferuverðtryggðmeðlánskjaravísitölu
til 20 ára með 39 jöfnum greiðslum vaxta og afborgana.
Upplýsingarit ásamt tilboðsblöðum liggja frammi hjá VÍB og
nánari upplýsingar um uppboðið veita ráðgjafar VÍB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.
Frábært námskeið fyrir leiðbeinendur i líkamsþjálfun
í Stúdíói Jónínu og Ágústu dagana 22. og 23. ágúst nk.
Allt það nýjasta beint frá U.S.A.
Eins og alltaf bjóðum við upp á vandaða kúrsa sem pakkaðir eru af nýjum æfingum, sporum, rútínum og
nýjum og ferskum hugmyndum.
1. Mjúfct eróblkk - Einfalt og kraftmikið. Engin dansspor. Lærið að byggja upp skemmtilegar og kraftmiklar
rútínur sem allir geta fylgt eftir.
2. Mjúkt eróbikk - Nýjar rútínur fyrir þá, sem vilja meira af skemmtilegum sporum. Rútínur með léttú dansívafi
sem flestir eiga auðvelt með að fylgja.
3. Mjúkt og kart eróbíkk - Stuttar, auðveldar og skemmtilegar rútínur, þar sem þeir er vilja hoppa dálítið, fá að
njóta sín.
4. Æfingar með teygjurenningum - Teygjurenningar eru nú orðnir geysivinsælir í U.S.A. Frábærlega sniðugar
æfingar sem taka hressilega á. Hægt að panta teygjurenningana hjá okkur. |
5. Tröppuþrek - Allt það nýjasta á tröppunum. Nýjar rútínur og sýndar æfingar með teygjurenningum á
tröppunni.
6. Nýjasta nýttl Göngupúl - Þú verður að kynnast þessari frábæru nýjung í þjálfun. Beint frá alþjóðlegu IDEA
ráðstefnunni 1992.
7. Barnaeróbikk - Glænýtt æfingakerfi fyrir börn - fullt af nýjum hugmyndum. Skemmtilegir leikir, þjálfun - engin
samkeppni - sjálfsímynd barnanna byggð upp.
Við vitum að þú vilt bjóða þínum viðskiptavinum upp á það besta í þjálfun. Nýjar hugmyndiróg nýjar æfingar
virka eins og vítamínsprauta sem nauðsynlegt er að fá reglulega til að viðhalda friskleika í kennslu.
Láttu skrá þig strax ísíma 689868.
P.s. Ný tónlist á fiassettum til sölu - miftið úrval.
mtfijfti
Metsölubla d á hverjum degi!
Ú 1 f\ A f AA/ _j TS AL A »hummel ^ ,
20*50% a Sáttur SPORTBUÐIN “ w Ármúla 40, sími 813555 SL