Morgunblaðið - 16.08.1992, Blaðsíða 23
til starfa á ný og hin létta lund
hennar brást henni ekki. Hún barð-
ist hetjulegri. baráttu, hvað eftir
annað reif hún sig upp úr lífshættu-
legum veikindum. Við samstarfs-
fólk hennar voru bæði undrandi og
ánægð og héldum að hún væri
ósigrandi. En höggin komu bæði
mörg og stór og höfðu undir lokin
svipt hana allri heilsu og orku, ekki
þó svo, að hún gripi ekki í spil ef
tækifæri gafst og alltaf var hún vel
klædd og snyrt. Ég held reyndar,
að vegna þess hvað hún bar veik-
indi sín ávallt vel og kvartaði lítið,
þá hafi fáir gert sér grein fyrir
því, hvað hún hafði þjáðst mikið í
þessu langa veikindastríði. Þegar
ég kom til hennar síðast tók ég
eftir því, að hún brosti aldrei en
viðmótið var hið sama, hlýlegt og
elskulegt.
Ekki má gleyma því að börnin
hennar tvö, Anna og Kristján, gerðu
allt sem þau gátu til að létta henni
lífið. Einnig veit ég að systkini
hennar létu sér mjög annt um hana.
Rósa keppti á mörgum bridsmót-
um við góðan orðstír. Mér finnst
hún hafa haldið vel á spilum lífs
síns og hafi þar unnið stærstu rú-
bertuna.
Ég votta ijölskyldu Rósu og ást-
vinum samúð mína.
Sigríður Jónsdóttir.
Kær frænka mín og vinkona er
látin.
Já, að lokum hafði maðurinn með
ljáinn betur, en oft, ótrúlega oft,
bar Rósa frænka mín sigur úr být-
um í viðureign við hann, því marga
hildi háðu þau. Ef til vill kom það
henni að gagni að kunna þau
kænskubrögð og fimi sem hún bjó
yfir við spilaborðið, en þar var henni
oft sigurinn vís, þótt við harðvítuga
og kæna andstæðinga væri að etja.
Með virðingu og þökk rita ég
þessi orð til að minnast Rósu. Heim-
ili hennar og Kristjáns og barna
þeirra, Kristjáns og Önnu, minna
góðu vina, stóð mér alltaf opið frá
því að ég var smápolli og fram að
þeirri stundu að hún lést. Kristján
Kristjánsson, eiginmaður Rósu, lést
árið 1977.
Það var oft glatt á hjalla á þeim
bæ og þar lærði ég sitt af hveiju,
til dæmis að bera virðingu fyrir ís-
lensku máli, að meta rauðvín og
spagetti og spila brids.
Við Kolfinna minnumst þess þeg-
ar við fluttum til Reykjavíkur eftir
ellefu ára dvöl úti á landi, hve gott
var að eiga þá vísan vin að leita
til, hjá Rósu á Hrísateigi 8, en hjá
henni bjuggum við í nokkra mán-
uði, meðan við biðum okkar eigin
húsnæðis. Það bar hvergi skugga á
vináttu okkar, frekar efldist hún
og dafnaði.
Ég veit að síðustu máriuðirnir
sem Rósa lifði, voru henni erfiðir,
maðurinn með ljáinn fann loks vinn-
ingsleið í erfiðu spili.
Við Kolfinna vottum Kristjáni og
Önnu og íjölskyldum þeirra samúð
okkar.
Blessuð sé minning fræku
minnar.
Þorsteinn Olafsson.
eer tbOöA j»i nuoAUUKViufc áM4KJ>Vltii/itfkilivi uiuah«muuhom_
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNIIMGAR SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992
23
Foreldraminnmg
í þessum línum minnist ég stutt-
lega foreldra minna, en um þessar
mundir eru liðin 100 ár frá fæðingu
föður míns, Ágústar Þorgríms Guð-
mundssonar. Hann fæddist 16. ág-
úst 1892 í Háamúla í Fljótshlíð.
Móðir mín, Guðný Pálína Pálsdótt-
ir, fæddist á Hlíðarenda í Fljótshlíð
2. nóvember 1891. Þau hófu sinn
búskap á Ormsvelli í Hvolhreppi
árið 1922. Eftir að hafa búið þar í
5 ár brugðu þau búi og fluttu til
Vestmannaeyja og bjuggu þar til
dauðadags. Lést móðir mín árið
1959 en faðir minn í byrjun árs
1966. Hann var lengst af sinni
starfsævi sjómaður. Foreldrum
mínum varð 14 barna auðið. Erum
við nú 5 eftir úr þeim stóra systk-
inahópi. Bamabörn Ágústar og
Guðnýjar, foreldra okkar, eru 26
talsins og barnabarnabörnin 54.
Þuríður Agústsdóttir.
t
Eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma,
AUÐUR AGNES SIGURÐARDÓTTIR,
Yrsufelli 15,
lést á heimili sínu 14 ágúst.
Sigurður Johnie Þórðarson,
Sigurður Auðunsson,
Sigurður Vilberg Dagbjartsson, Guðrún Sigrfður Þorgeirsdóttir,
Stígur Lúðvik Dagbjarsson, Lianne Reynolds,
Sigrún Birna Dagbjartsdóttir, Kristján Þór Guðmundsson,
Garðar Bragason,
Baldur Bragason, Jónheiður B. Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Birting a fmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gijdir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
argreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Ástkær konan mín og móðir,
HELGA ALICE JÓHANNSDÓTTIR,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 12. ágúst sl., verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 13.30.
Haraldur Pálsson,
Katrín Mist Haraldsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HARALDUR SAMÚELSSON
loftskeytama&ur,
Mávahlíð 35,
Reykjavík,
lést 4. ágúst.
Útför hans hefur farið fram.
Þökkum innilega samúð og vináttu.
Helgi Haraldsson,
Rósa Haraldsdóttir, Björn Þorláksson,
Guðrún Haraldsdóttir, Vilhjálmur Baldursson,
afa- og langafabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er auðsýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langommu, S|GR[ðAR ÖNNU ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Siglufjarðar fyrir góða
ummönun.
Þórður Sigurðsson,
Hafsteinn I. Sigurðsson,
Jónas Þ. Sigurðsson,
Valgeir T. Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sonja Guðlaugsdóttir,
Sólveig Hinriksdóttir,
Þuriður Jónsdóttir,
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ELÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Bárugötu 21.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 14-G Landspítalanum.
Lfney Pálsdóttir,
Kristjana Pálsdóttir, Hannes Flosason.
Páll Hannesson,
Haukur F. Hannesson,
Elín Hannesdóttir, Halldór Bjarnason,
Ingibjörg Hannesdóttir, Reynir Arngrímsson,
Sóiveig Benediktsdóttir
og barnabarnabörn.
TELEFAXTÆKI OG SÍMI
VERÐ: 49.950.- m/vsk.
SHARP FO-120
- Sjálfvirkur faxdeilir
- Sjálfvirkur arkamatari
- Sendingarhraði 15 sek.
- Sérstök ljósmyndastilling
- Skilar staðfestingarkvittun
- Tengjanlegt við símsvara
- 20 númera minni
SKRIFBÆR"/
Hverfisgötu 103 sími 627250 fax 627252
F