Morgunblaðið - 29.08.1992, Síða 1
56 SÍÐUR B/LESBÓK
195. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Beðið eftir matarbita
Sómalskir flóttamenn bíða matargjafar við dreifing-
arstöð Rauða krossins í Belen Huen í Sómalíu.
Myndin var tekin í gær en þá hófu bandarískar flug-
vélar að fljúga með hjálpargögn til borgarinnar þar
sem 300.000 manns á flótta undan styijaldarátökum
og þurrkum hafa leitað skjóls.
Grænlenskur sjávarútvegur
Þorskveiði nær engin
Kaupmannahöfn. Frá N. J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞORSKVEIÐAR Grænlendinga gengu verr en dæmi eru til á veiðiár-
inu sem nú er að ljúka. Alls veiddust nú um 1.800 tonn en Royal Green-
land, framleiðslufyrirtæki landstjórnarinnar, hafði gert ráð fyrir 8.000
tonna afla.
í fyrra var veiðin 13.000 tonn og
1990 var hún 25.000 tonn. Tekjurn-
ar af veiðunum verða nær 500 millj-
ónum ÍSK minni á þessu ári en í
fyrra.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur Evrópubandalagið um
30.000 tonna þorskveiðikvóta á ári
við Grænland en bandalagið gerði
kvótasamning til fimm ára við Græn-
lendinga árið 1989. Óljóst er hvernig
aflabrögð skipa bandalagsins hafa
verið en talið að veiðamar hafi geng-
ið verr en árin á undan.
Fischer staðráð-
inn í að setjast að
tafli í næstu viku
Snjónum
fagnað á
Nýja
Sjálandi
Snjókoma féll víða á Syðri
eyju á Nýja Sjálandi í fyrri-
nótt og var 20 sentimetra
jafnfallinn snjór yfir öllu
þegar íbúar borgarinnar
Christchurch vöknuðu í
gærmorgun. Margir gerðu
sér glaðan dag og fóru í
snjókast en kuldahretið
hefur sínar alvarlegu hliðar
því þúsundir nýfæddra
lamba dóu úr kulda og
samgöngur röskuðust
mjög.
Reuter
„FISCHER ætlar að tefla núna, hann segist hafa unnið heimsmeist-
aratitil á sinum tíma án fjárhagsaðstoðar bandarískra stjórnvalda
og muni ekki sinna hótunum þeirra nú. Hann segir skák og pólitík
tilheyra tveim heimum, lítur á einvígið sem íþróttaleik og hefur
undirbúið sig í tiu til tólf tima daglega að undanförnu. Það er alveg
Ijóst að einvígi Fischers og Spasskís hefst á miðvikudaginn hér í
Sveti Stefan.“ Þetta sagði Janosz Kubat stórmeistari í skák og fram-
kvæmdastjóri einvigisins í viðtali við Morgunblaðið í gær.
Kubat segir fullvíst að af einvíg-
inu verði þrátt fyrir stríð og hörm-
ungar. „Við ætlum að flytja það
af ströndinni austur til Belgrad eft-
ir fimm vinninga. Nú er barist í 600
kílómetra fjarlægð þaðan, en ef í
harðbakkann slær verður teflt til
úrslita í Búdapest."
Schmid telur Iíklegt að þessi fyrri
hluti einvígisins standi að minnsta
kosti þijár vikur. „Þetta verður erf-
itt einvígi," segir hann, „fjórar
skákir á viku og hver þeirra tefld
til þrautar. Eftir Fischer-klukkunni
nýju geta skákir staðið allt að 8
stundir og 17 mínútur, það er heil-
mikið úthald og mun ekki veita af
hvíldinni á mánudögum, þriðjudög-
um og hugsanlega föstudögum.“
Undirbúningi einvígisins er næst-
um lokið, Schmid skoðaði keppnis-
salinn og búnað þar með Fischer
og Spasskí í gærkvöldi. Þeir tefla
á hóteli rétt utan við sumarleyfís-
staðinn Sveti Stefan við Adríahafs-
strönd Svartíjallalands og búa í ein-
býlishúsum örskammt frá. Boris
Spasskí hefur þijá skákmehn sér
til aðstoðar, þá Nikitín, Balashov
og Ivkov, en Fischer undirbýr sig
með þeim Torre og Gligoric.
Kubat segir um 250 blaðamenn
þegar komna til bæjarins og von
sé á fleirum. „Og 200 boðsgestir
koma til að vera við opnunarathöfn
einvígisins á þriðjudagsmorgun,
þetta eru stjórnarerindrekar fjár-
málamenn og vinir okkar frá Búda-
pest, Lundúnum og New York.
Fólk kemur víða að. Athöfnin hefst
klukkan hálf níu en blaðamanna-
fundur þeirra Fischers og Spasskís
verður í hádeginu milli tólf og tvö.
Daginn eftir setjast þeir að tafli.“
Þjóðveijinn Lothar Schmid dæm-.
ir fyrstu skákir einvígisins og segir
Kubat líklegast að Svetozar Glig-
oric taki svo við. Schmid sagði í
samtali við Morgunblaðið i gær að
hann harmaði að ekki yrði reynt
að fá Friðrik Ólafsson til að leysa
sig af hólmi eins og fyrirhugað
var. „Það tengist væntanlega and-
stöðu Fischers við Alþjóða skák-
sambandið, FIDE, þar sem Friðrik
var í forsæti um tíma,“ segir
Schmid og bætir við að Fischer
hafí beðið sig að dæma allt einvígið
en hann geti ekki verið frá vinnu
nema hálfan mánuð.
Varað við bjartsýni að
loknum Lundúnafuiidi
Milosevic segir niðurstöður ráðstefnunnar ákjósanlega uppskrift að friði í Bosníu
Lundúnum, Sarajevo. Reuter.
VESTRÆNIR leiðtogar sögðu í gær að varast bæri of mikla bjartsýni
um skjótfenginn frið í Júgóslavíu þrátt fyrir skuldbindingar deiluaðila
í Bosníu-Herzegovínu á friðarráðstefnunni í Lundúnum um að stöðva
bardaga og semja um pólitíska lausn deilunnar. Bardagasveitirnar í
Sarajevo, höfuðstað Bosníu, tóku lítt tillit til niðurstöðu ráðstefnunnar
sem lauk í fyrrakvöld og börðust heiftarlega í gær.
' Douglas Hurd utanríkisráðherra
Breta sagði niðurstöður Lundúnaráð-
stefnunnar sigur út af fýrir sig en
hún væri að baki og það sem héðan
í frá skipti máli væru athafnir deilu-
aðila en ekki orð þeirra. Klaus Kin-
kel utanríkisráðherra Þýskalands
sagði að í ljósi reynslunnar væri eðli-
legt að menn væru fullir efasemda
þar til eitthvað áþreifanlegt gerðist.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að
ekki væri lengra komist en á Lundún-
aráðstefnunni í því að fínna friðsam-
lega lausn deilna í Bosníu og margir
þeirra sögðust efíns um að önnur ráð
en beiting hervalds dygði. Hans Van
den Broek utanríkisráðherra Hol-
lands sagði er hann fór frá Lundún-
um að yrðu framhaldsfundir deiluað-
ila undir forsjá Evrópubandalagsins
(EB) og Sameinuðu þjóðanna (SÞ),
sem hæfust í Genf í næstu viku,
árangurslausir yrðu ríki heims að
vera reiðubúin að binda enda á bar-
dagana í Bosníu með hervaldi.
I gærkvöldi fagnaði Slobodan Mi-
losevic forseti Serbíu niðurstöðum
Lundúnaráðstefnunnar og sagði þær
„ákjósanlega forskrift“ að friði í
Bosníu. Milosevic mótmælti því í við-
tali við breska sjónvarpsstöð að hann
dreymdi um stofnun Stór-Serbíu og
Serbar væru hemámsþjóð í Bosníu,
en serbneskar sveitir hafa að mestu
lagt hana undir sig. Forsetanum
hefur helst verið kennt um bardag-
ana í þessu fyrrum lýðveldi júgó-
slavneska ríkjasambandsins.
í gær var Owen lávarður, fyrrum
utanríkisráðherra Breta, útnefndur
milligöngumaður EB i friðarumleit-
unum í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu.
Tekur hann við af landa sínum Carr-
ington lávarði.
Sjá „Panic býður forseta Serbíu
birginn" á bls. 18.