Morgunblaðið - 29.08.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 29.08.1992, Síða 4
56GÍ Tá'JOÁ .62 HUOÁCIJIADtJAJ (JIGA.IHKUOÍIOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992 Hagvirki-Klettur yfirtók 700 millj. lán Hagvirkis REIKNA má með að eigið fé Hagvirkis-Kletts hf. lækki um 200 miiljón- ir kr., eða sem svarar ótryggðri skuld Hagvirkis hf., nú Fómarlamb- inu hf., við Hagvirki-Klett, ef til gjaldþrotaskipta á fyrirtækinu kem- ur. Bókfært eigið fé Hagvirkis-KIetts yrði með því neikvætt um 85 milljónir kr. Sala á tækjum og vélum Hagvirkis'til Hagvirkis-Kletts í desember 1990, að upphæð 600-700 milljónir kr., fór fram með yfir- töku iána í íslandsbanka og Iðnlánasjóði. Jóhann Bergþórsson, for- stjóri Hagvirkis, segir að hjá gjaldþroti verði ekki komist. Hagvirki seldi Hagvirki-Klett í inga og sagði Jóhann að fengist það desember 1990, vélar og tæki fyrir 600-700 milljónir kr. og fór greiðslan fram með yfírtöku Hagvirkis-Kletts á lánum í Islandsbanka og Iðnlána- sjóði. Söluverðið var 230 milljónir kr. umfram bókfært verð. Jóhann sagði að skuld Hagvirkis við Hagvirki-Klett upp á rúmar 200 milljónir kr. væri þannig tilkomin að Hagvirki-Klettur hefði lagt fram peninga til Hagvirkis sem notaði þá til að ljúka verkum og greiða með þeim laun og skuldir. „Við erum ekki, eins og venjulega er þegar svona kemur upp á, með íbúðaeig- endur út og suður sem sitja eftir með sárt ennið," sagði Jóhann. Lánið var veitt án nokkurra trygg- VEÐUR ekki endurgreitt úr þrotabúinu lækk- aði eigið fé Hagvirkis-Kletts sem því nemur. Bókfært eigið fé Hagvirkis- Kletts er 115 milljónir, en að mati eigenda fyrirtækisins er það röskar 300 milljónir kr. „Það má ætla að eigið fé Hagvirkis-Kletts verði rétt um 100 milljónir, sem þykir sterk staða miðað við verktakafyrirtæki nú,“ sagði Jóhann. Eins og komið hefur fram telja forsvarsmenn Hagvirkis að eignir þess séu á bilinu 800-1.000 milljónir kr., þar af margar lóðir í Smára- hvammslandi og á Valhúsahæð, auk fasteignarinnar Skútahraun 2. Jó- hann kvaðst ekki geta getið sér til um hvert söluverð þessara eigna væri. „Á sínum tíma voru lóðirnar metnar á um 600 milljónir kr. Eg held að fasteignin sé metin á 200-300 milljónir kr. Eg tel að það sé engin markaður fyrir þessar eignir núna,“ sagði Jóhann, og bætti því við að ljóst væri að -slíkar eignir seldust ekki vegna markaðsaðstæðna. Hag- virki hefði unnið að því í eitt ár að koma þessum eignum í verð, en marktæk viðbrögð hefðu ekki orðið við þvi. Jóhann sagði að lánadrottnar Hagvirkis hefðu verið tiltölulega sáttir við fyrirtækið fram að gjald- þrotabeiðni Blikks og stáls, Hins vegar væri ekkert útlit fyrir annað en að fyrirtækið yrði tekið til gjald- þrotaskipta. Hann sagði að ef gjald- þrotabeiðni lægi ekki fyrir frá lög- manni Blikks og stáls þá hefði að líkindum sýslumaðurinn í Hafnarfirði lagt fram gjaldþrotabeiðni upp úr næstu mánaðamótum vegna annarr- ar söluskattskröfu. Krafan sem hér um ræðir var upphaflega 83 milljón- ir kr., meirihluti þeirrar upphæðar VEÐURHORFUR IDAG, 29. AGUST YFIRLiT: Austur við Noreg er 986 mb lægð sem hreyfist norðaustur. 1.021 mb hæð er yfir Grænlandi. 8PÁ: Norðaustan átt um allt land, víðast stinningskaldi eða allhvasst um vestanvert landið, en kaldi austantil. Rigning eða skúrir um landið norðan- og austanvert, og skýjað en þurrt suðvestanlands. Hiti 3-10 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Áfram norðaustan átt um allt land, og víða nokkur strekkingur. Skúrir um norðan- og austanvert landið, en yfirleitt bjart veður sunnanlands og vestan. Hiti 4-10 stig, hlýjast að deginum syðra. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. o <á Heiöskírt Léttskýjað r r r r r r r r Rigning * r * * r r * r Slydda & Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma ó Skýjað Alskýjað V $ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.4 10° Hitastig V Súld = Þoka 5tig., FÆRÐA VEGUM: <k.. 17.30,-^ Greiðfært er um flesta þjóðvegi landsins, þó er hálka á heiðum á norðan- verðum Vestfjörðum. Fjaliabílum er fært um flestar leiðir á hálendinu, en gera má ráð fyrir snjó um norðanvert hálendið. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 6 rigning Reykjavík 7 skýjað Bergen 10 þrumuveöur Helsinki 17 rigning Kaupmannahöfn 22 skýjað Narssarssuaq 7 skýjað Nuuk 2 þoka Osló 18 hátfskýjað Stokkhólmur 20 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Algarve 22 skúr Amsterdam 20 skýjað Barcelona 28 lóttakýjað Berlín 30 léttskýjað Chicago 12 skýjað Feneyjar 29 þokumóða Frankfurt 29 léttskýjað Glasgow 13 skýjað Hamborg 24 skýjað London 20 skýjað Los Angeles 19 lóttskýjað Lúxemborg 26 hátfskýjað Madríd 30 léttskýjað Malaga 34 skýjað Mallorca 30 lóttskýjað Montreal 16 þokumóða NewVork 25 þokumóða Orlando vantar Parla 25 skýjað Madelra 25 skúr á s. klst. Róm 20 þokumóða Vín 35 léttskýjað Washington 23 þokumóða Wlnnipeg 74 skúr Fasteign Hagvirkis í Skútuhrauni 2 í Hafnarfirði. reyndar viðurlög, að sögn Jóhanns, og síðan hefur hún bætt á sig enn frekari vöxtum og er nú um 90 millj- ónir kr. „Við vorum búnir að greiða 108 milljónir kr., sem í dag svara til 170 milljóna kr., þannig að það er verið að reyna að ná út úr okkur um 260 milljónum kr,“ sagði Jóhann. Hæstiréttur á eftir að fjalla um fyrri söluskattsgreiðslu Hagvirkis og átti Jóhann von á því að málið yrði tekið fyrir á fyrri hluta árs 1994. Falli úrskurður Hæstaréttar Hag- virki í vil fellur seinni krafa ríkis- sjóðs sjálfkrafa niður þar sem for- sendur hennar eru fallnar. „Mark- miðið var að halda fyrirtækinu lif- andi, að við ynnum að uppgjöri við lánardrottna og að þessum mála- rekstri, þ.e.a.s. málarekstri við ríkið út af söluskattsmálinu. Síðan var ætlunin að fara í mál vegna verktöku við flugstöðina og vegna aðflutnings- gjalda, en það verður bústjórinn væntanlega að gera, því hann verður að gæta hagsmuna lánardrottna. Ef bústjóri vinnur málið hlýtur hann líka að fara í skaðabótamál við ríkið, því þetta er náttúrulega alveg einstök meðferð á fyrirtækinu," sagði Jó- hann. Hann líkti því við að sparka í liggj- andi mann að hægt væri að ganga að fyrirtæki og gera það upp áður en Hæstiréttur kvæði upp úrskurð í ágreiningsmálum þess og ríkisins. „Olafur Ragnar Grímsson gat inn- heimt kröfuna þótt málið væri í dóm- stólameðferð. Venjulegt fyrirtæki hefði undir öllum kringumstæðum lagt upp laupana hefði það þurft að greiða 108 milljónir kr. Út af fyrir sig finnst mér virkni réttarkerfisins ólög í sjálfu sér,“ sagði Jóhann. Hann benti á að Hagvirki-Klettur hefði tekið á sig umfram skyldur að ráða starfsmenn Hagvirkis og greiða þeim laun. Að öðrum kosti hefðu allar launagreiðslur lent á ríkinu við gjaldþrot Hagvirkis. Þar var um að ræða rösklega 100 manns, sem hefði getað þýtt 60-70 milljóna kr. launa- kröfur á ríkið. Jóhann kvaðst sjálfur vera í per- sónulegum skuldbindingum vegna Hagvirkis. „Mínar eignir eru veðsett- ar fyrir skuldum fyrirtækisins." Jóhann sagði það rangt sem hefði komið fram í Morgunblaðinu í gær að Hagvirki hefði lagt fram beiðni til héraðsdóms Reykjaness um nafn- breytingu eftir að beiðni Blikks og stáls um gjaldþrotaskipti á fyrirtæk- inu hefði verið lögð fram. Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauði krossinn Landssöfnun fyrir Júgóslavíu og Sómalíu HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar og Rauði kross íslands gang- ast fyrir sameiginlegri fjársöfnun til handa bágstöddum í Sómal- íu og fyrrverandi Júgóslavíu fimmtudaginn 3. september. Söfnunin fer þannig fram að hægt verður að hringja í sima 624400 og tilkynna um framlög þann dag eða greiða með giró- seðlum sem liggja frammi í bönk- um og sparisjóðum. Gott sam- starf hefur náðst við fjölmiðla sem hafa heitið öflugum stuðn- ingi sínum. Rás 2 og Bylgjan munu að meira eða minna leyti helga dagskrá sína þessu málefni allan daginn og verða útsending- ar frá Perlunni þar sem söfnunin fer fram. Söfnunarfé verður várið til hjálpar stríðshrjáðum flótta- mönnum í fyrrverandi Júgóslavíu og hungruðum í Sómalíu. Verk- efnin eru óþijótandi og þarf bæði að ijármagna kaup á matvælum, lyfjum og öðrum hjálpargögnum og flutning þeirra á ákvörðunar- stað í þessum löndum. Ræðst endanlegt verkefnaval af undir- tektum við söfnunina. Flóttamannastofnun Samein- uðu þjóðanná hvatti nýlega aðild- arlönd sín til að leggja fram fjár- muni til stuðnings bágstöddum í Sómalíu og Júgóslavíu. Utanrík- isráðuneytið fór þess á leit við Hjálparstofnun og Rauða kross- inn hvort hægt væri að efna til almennrar fjársöfnunar hérlend- is. Var ákveðið um miðjan síð- asta mánuð að efna til skyndi- söfnunar 3. september og var leitað liðsinnis nokkurra fjölmiðla í þessu skyni. Tóku þeir vel í að veita stuðning sinn. Rás 2 mun útvarpa fréttum og frásögnum af ástandinu í Sómalíu og Júgó- slavíu allan daginn og inn á milli verður flutt tónlist. Hafa fjöl- margir íslenskir tónlistarmenn brugðist vel við beiðni um þátt- töku þennan dag. Langt er síðan Hjálparstofnun og Rauði krossinn efndu til sam- eiginlegrar söfnunar sem þessar- ar og vonast forráðamenn sam- takanna eftir góðum undirtekt- um landsmanna við þessu sam- eiginlega átaki. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.