Morgunblaðið - 29.08.1992, Page 9

Morgunblaðið - 29.08.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992 9 Handritasýning í Arnagarði HANDRITASYNING hefur að venju verið opin í Árnagarði í sumar og hefur aðsókn verið mjög góð. Þar sem aðsókn fer mjög minnk- andi með haustinu er ætlunin að hafa sýninguna opna almenningi í síðasta sinn þriðjudaginn 1. septem- ber kl. 14 til 16 síðdegis. Þó verða sýningar settar upp fyrir skólanem- endur og ferðamannahópa, eins og undanfarin ár, ef þess er óskað með nægilegum fyrirvara. (Fréttatilkynning) Innilegt þakklceti sendi ég öllum þeim er heiðruðu mig með blómum, gjöfum ogskeytum á 80. ára afmœlinu mínu þann 11. ágúst sl. Guð blessi ykkur öll. Matti Ó. Ásbjörnsson. Fólksf lutningabilar til sölu 58 farþega M. Benz 303, árgeró 1978. 14 farþega M. Benz 409, árgerð 1987. 41 farþega Scania, endurbyggður 1984. Hverskonar skipti á öðrum fólksflutningabílum geta komið til greina. S.B.S. hf., Selfossi, simi 98-22599. Aðalfundur Auðlindar hf. Aðalfundur Auðlindar hf. verður haldinn mánudaginn 7. september 1992 í Kaupþingi (KLringlunni 5) og hefst kl. 16. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Auðlindar hf. HLUTABRÉFASJÓÐURINN AUÐLIND HF. Hættuleg for- sjá I upphafi greiiuir sinn- ar segir Tómas, að mikil- vægt sé að hafa lang- límasjónarmið í huga við mótun stefnu í atvinnu- og efnahagsmálum og draga lærdóm af fortíð- inni. Hann segir síðan: „Nú ber svo við að for- sjá opinberra aðila í at- vinnurekstri er hættu- lega mikil og mjög óvar- legt er að fara lengra í þeim efnum. Þetta gildir bæði um bein afskipti opinberra aðila af at- vinnurekstri og óbein í gegnum lánveitingar og efnahagsaðgerðir. Ríkis- fyrirtæki, framkvæmdir á vegum ríkisins, lána- og styrkveitingar til at- vinnulifs, hlutafjáreign stofnana og síðast en ekki síst bein þátttaka sveitarfélaga í atvinnu- rekstri eru til vitnis um þetta. Víst má teþ'a að til mjög skamms tíma litið geti björgunaraðgerðir opinberra aðila komið í veg fyrir atvinnuleysi og „fjöldagjaldþrot" en oft- ar en ekki er einungis verið að slá vandanum á frest. Afskipti ríkis- ins Afskiptum ríkisins af atvinnulifinu má skipta i femt í fyrsta lagi skal nefna ríkisfyrirtæki, í öðra lagi framkvæmdir á vegum ríkisins, í þriðja lagi fj ármálaumsvif rik- isins eins og útlán, styrki og hlutabréfaeign og í fjórða lagi eru höft, regl- ur eða skattheimta sem takmarka svigrúm og sjálfstæði atvinnufyrir- tækja, eins og t.d. i land- búnaði og skyidum grein- um. Um þennan hátt verður ekki rætt hér. Framkvæmdir á veg- um ríkisins eru ekki ein- ungis uppbygging á arð- sömum mamivirkjum, heldur er einnig um að ræða atvinnusköpun og „úthlutanir". Verkéfnum er úthlutað tíl þess að jafna atvinnu eða dreifa tekjum svo að sem flestir fái sinn skerf af „ríkis- kökunni". Ef litíð er í íjárlög fyrir árið 1992 Opinber afskipti af atvinnulffi Forsjá opinberra aðila f atvinnurekstri er hættulega mikil og óvarlegt að fara lengra í þeim efnum. Skammtímasjón- armið ráða þar ferðinni en hætta er á að fyrir hvert starf og krónu sem bjarg- ast um hríð tapist tvö störf og tvær krón- ur í framtíðinni. Þetta segir Tómas Hans- son, hagfræðingur, í nýlegri grein í Vís- bendingu. — kemur í Ijós að 90 millj- óna króna framlag til hafnarmannvirkja á Austurlandi fer á tólf staði, Ijárhæðinni er með öðrum orðum dreift á nánast alla firðina. Rúm- ar 42 miUjónir króna, sem fara til Snæfellsness, skiptast á flmm staði, eða flestallar Iiafnir þar. Um vegaframkvæmdir má segja sömu sögu. Þótt ekki sé komið bundið slit- lag á allan veginn frá Reykjavík tíl Akureyrar er Vegagerðin með fram- kvæmdir á litlum köflum um allt land. í nýju hefti Vegamála má sjá heildar- yfirlit framkvæmda Vegagerðarinnar árið 1992. Ekki verður annað séð af yfirlitinu, en að mest sé hugsað um að dreifa verkefnum af „réttlæti", þar sem skammtímasjónarmið ráða meira en skipuleg uppbygging. Fram- kvæmdir skapa bæði bein atvinnutækifæri og óbein í gegnum tengdar þjón- ustugreinar. Fljótsdals- virkjun, sem sumir stjómmálamenn vilja fara út í án þess að kaup- endur séu að orkunni, yrði skýrt dæmi um at- vinnuskapandi fram- kvæmdir ríkisins. Þar yrði markmiðið ein- göngu atvinnubótavinna. Umsvif ríkisins á fjár- málamarkaði eru mikil. Rikisbankar, Byggða- stofnun og sjóðir lána atvinnurekstri á vafa- sömum forsendum, veita beina styrki, eiga miklar innleystar eignir og um- talsvert hlutafé. I því skyni að fá mynd af þessu er hér einföld sam- antekt nokkurra stærða sem lesa má úr ársskýrsl- um stofnana. En því mið- ur er ekki allt talið. Þátttaka sveit- arfélaga í grein, sem Þórður Skúlason framkvæmda- stjóri Sambands ís- lenskra sveitarfélaga rit- aði í Morgunblaðið fyrir skömmu, kemur fram að þátttaka sveitarfélaga í atvinnurekstri eykst hröðum skrefum. Vanda- mál í atvinnurekstri eftir 1987 ýttu undir þessa þátttöku, sem ekki er lögskylt verkefni sveitar- félaga. Má segja að þetta sé ákveðinn vítahringur. Með stofnun Atvinnu- tryggingasjóðs og Hluta- fjársjóðs og með öðrum björgunaraðgerðum rík- isins 1988 neyddust mörg sveitarfélög til þess að leggja fjármagn í at- vinnurekstur. Þetta hef- ur síðan haldið áfram og má segja að sprenging hafl orðið á seinni árum. Samkvæmt könnun, sem Samband íslenskra sveit- arfélaga lét gera, tvö- földuðust framlög og ábyrgðir kaupstaða til atvinnulífs frá 1987 tíl 1991. Árið 1987 var heildarupphæðin 480 miiyónir en nálgaðist miljjarð 1991. Samanlagt voru framlög og ábyrgð- ir þrír milljarðar á öllu timabilinu. Langmest er þetta tengt sjávarútvegi, en raunar hafa allar at- vinnugreinar hlotið um- talsverðan styrk. Sveitar- félög á landsbyggðinni utan Suðurlands og Reykjaness era stórtæk- ust en á Vestfjörðum er mest um þetta. Hátt í helmingnr fjárhæðarinn- ai- eru ábyrgðir, en reynslan er sú að þær falla flestar á sveitarfé- lögin fyrr eða seinna. Þessar tölur gilda ein- ungis fyrir kaupstaði en ástandið er svipað hjá minni þéttbýlissveitarfé- lögum. Stórfelldar ábyrgðir og styrkir sveitarfélaga tíl atvinnulífs era öfug- þróun. Þungar byrðar eru lagðar á sveitarfélög, fjármagnskostnaður þeirra eykst og geta þeirra til að- sinna lög- bundnum verkefnum minnkar. Hér ráða ein- göngu skammtímasjón- armið ferðinni. Hættan er sú að fyrir hvert starf og hveija krónu sem bjargast um hríð tapist tvö störf og tvær krónur í framtíðinni. Þetta hefur helför ríkisforsjár sýnt, bæði í Austur-Evrópu og hjá frændum okkar Fær- eyingum." Vantar nýja stefnu í lok greinarinnar seg- ir Tómas m.a., að setja þurfi skýr markmið um byggðastefnu, af hófsemi og tíl langs tiina. Sam- ræma þurfi alla þættí er að henni lúta. Tilviljunar- kenndar björgunarað- gerðir veiki stöðu lands- byggðarinnar eins og sagan sýni. ATHUGH), - OPH) UM HELGINA: Laugardag og sunnudag kl. 10-17. SKIirTIBOKAMARKADUR MALS & MIENNINGAR STENDUR YFIR Tökum notaðar bækur upp í nýjar Kjörið tækifæri fyrir hagsýna. Mál ip|i°9 menning Laugavegi 18. Sírr|T24240. Síðumúla 7 - 9. Sími 688577.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.