Morgunblaðið - 29.08.1992, Side 15

Morgunblaðið - 29.08.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992 15 Árni Johnsen brotist fram á ritvöll- inn og nú í Morgunblaðinu föstu- daginn 21. ágúst sl. og tekur sér þar hvorki meira né minna en eina alls herjar prókúru á sannindunum eins og hann orðar það og sjá má á fyrirsögn greinarinnar (Sannind- in um Steingrím J. og smíði Her- jólfs). Þjóðin veit að sönnu að Árni Johnsen hefur lagt gjörva hönd á margt en þó hefur það e.t.v. komið fleirum en mér á óvart að hann skrifi af slíkri „þekkingu" og „ör- yggi“ um tæknilegar hliðar skipa- smíða. Hlýtur að vakna sú spurning hvort Verkfræðingafélag íslands geti ekki veitt honum einhvers kon- ar aukaaðild að félagsskap sínum eftir þetta afrek. í grein þessari hafa þegar komið fram upplýsingar sem hrekja helstu rangfærslur Arna, svo sem eins og að annarleg sjónarmið hafi ráðið vali á stærð skipsins sem byggt var. Sömuleiðis hef ég sýnt með tilvitnun í gögn svo ekki verður hrakið að verulegur sparnaður fólst i ákvörðun um smíði minna skips en áður hafði staðið til. í sjálfu sér er ekki ástæða til að eyða fleiri orðum í Árna Johnsen. Hann má eiga hina sérhönnuðu útgáfu af sannleikanum fyrir sig, mín vegna sem og hin dapurlegu viðhorf sem í grein hans birtast til íslensks iðn- aðar og íslenskra tæknimanna og hönnuða. Árni heldur því rækilega til haga í grein sinni að ýmsir forystumenn Alþýðubandalagsins bæði í Suður- landskjördæmi og í ríkisstjórn áttu stóran þátt í því að koma þessu máli í höfn og ná fram ákvörðunum um smíði nýs Herjólfs. Þetta er rétt hjá Áma og satt best að segja það eina nýtilega sem í grein hans stendur. Þar ber og réttilega hæst þau sem Árni nafngreinir, Mar- gréti Frímannsdóttur alþingismann Sunnlendinga og Ragnar Óskars- son, einn af forystumönnum Al- þýðubandalagsins í Vestmannaeyj- um, og er ég viss um að dugnað þeirra og ósérhlífni við að koma þessu máli í höfn kunna Vest- mannaeyingar að meta og þakka. Lokaorð Satt best að segja hefur mig undrað hvað mest í umræðum um þessi mál þá léttúð og það ábyrgðarleysi sem gætt hefur í ummælum ýmissa manna sem síst skyldi og ekki síður þó í umijöllun fjölmiðla um jafn viðkvæmt mál og það í raun og veru er að ræða um og öryggi farartækja í farþega- flutningum. Það er mikill ábyrgðar- hluti að taka sér stór orð í munn eins og gert hefur verið í þessu máli og í fljótu bragði verður ekki séð að neitt það hafi komið fram sem gefi tilefni til slíks. Það er ákaflega óheppilegt að vekja með farþegum ástæðulausan ótta um öryggi sitt og yfirleitt er hið gagn- stæða reglan, að þeir sem ábyrgð bera á slíkum farartækjum leggja sig fram um að láta farþegum líða vel og fullvissa þá um að þeir séu í öruggum höndum. Það er því að mínu mati öllum fyrir bestu að sérfræðingar fái að vinna það verk sem þeim hefur nú verið sett fyrir, að kanna hegðun skipsins og bera hana saman við þær líkanprófanir sem áður höfðu verið gerðar. Að menn öðlist reynslu af að breyta skipinu og meiri reynsla komist á hvernig til tekst á allan hátt. Ég er sjálfur sannfærður um og bjartsýnn á að hið nýja og glæsi- lega skip eigi eftir að þjóna sínu hlutverki vel og alls ótímabært er að mínu mati að spá nokkru öðru. Fari nú svo eftir tíu ár, árið 2002, að menn komi saman aftur til að halda uppá að það skip, sem nú hefur nýhafið siglingar, hafi með farsælum hætti þjónað sínu hlut- verki og reynst happafleyta, þá mun ég senda Árna Johnsen kveðju og það jafnvel þó að hann verði þá t.d. stundakennari við gítarskól- ann í Kulusuk. Með Guðs hjálp og góðra manna hlýtur að takast að borga fyrir skeytið. Höfundur er alþingismaður og fyrrverandi samgönguráðherra. Hafsteinn Austmann Hafsteinn Austmann SNJALLRÆÐI! Emil B. Karlsson e.t.v. hafa haldið fyrir þeim vöku en ekki komið til framkvæmda sök- um skilningsleysis annarra eða fjár- skorts. Tvær milljónir í verðlaun fyrir góða hugmynd Til mikils er að vinna fyrir þátt- takendur því auk verðlaunanna má gera ráð fyrir arðsemi af hugmynd- inni eftir að hún er komin á fram- leiðslustig. Fjárhæð verðlaunanna getur hæst numið rúmum tveimur millj. króna fyrir einstaka hugmynd ef lögð eru saman verðlaun í þeim tveimur áföngum sem samkeppnin skiptist í. í fyrri áfanga verða vald- ar allt að átta hugmyndir og þær verðlaunaðar. Verðlaunin felast í allt að 600.000 kr. fjárhagsaðstoð við að kanna hvort hugmyndimar eru hagkvæmar til framleiðslu. Verðlaunahafínn verður þó ávallt að leggja fram 25% kostnaðarins á móti verðlaunaupphæðinni. Fyrsti áfangi má ekki taka lengri tíma en sex mánuði. Þá hefst síðari áfanginn. í honum eru einungis gjaldgengar hugmyndir sem hlutu verðlaun í fýrsta áfanga. Vaidar eru fjórar hugmyndir sem hljóta jákvæðasta niðurstöðu úr hagkvæmisathuguninni í fyrsta áfanga. Verðlaunaupphæðin getur numið allt að 1,5 millj. króna gegn því skilyrði að mótframlag verð- launahafans verði 50% af kostnaðin- um. Síðari áfanginn felst í fullnaðar- þróun og frumgerðasmíð. I því felst að færa markaðshæfa afurð í endan- legt form og þannig leggja grunn að sölu hennar. Hugmyndin með Snjallræði er að létta undir með hugmyndasmiðum sem annars þyrftu að standa sjálfir straum af kostnaði við þróun og hönnun hugmynda sinna. Snjallræði er stökkpallur fyrir nýtt líf í okkar einhæfa atvinnulífi. Ef vel tekst til má gera ráð fýrir annarri keppni þegar þeirri fyrstu lýkur. Höfundur er kynningarstjóri Iðntæknistofnunar. eftir Emil B. Karlsson Nokkrir þjónustuaðilar atvinnu- lífsins hafa tekið höndum saman um að verðlauna snjallar hugmyndir sem koma íslensku atvinnulífi til góða. í þessu tilefni hefur verið efnt til samkeppni um hugmyndir að nýjum markaðshæfum afurðum. Verðlaunin felast í fjárhagslegri styrkveitingu til að vinna úr hug- myndunum og á síðara stigi styrk til að kanna markaðsmöguleika verðlaunavörunnar og þróa hana í endanlegan búning. Nafn verkefnis- ins er Snjallræði!, nafn sem jafn- framt gefur til kynna hvers eðlis það er. Iðntæknistofnun hefur umsjón með verkefninu en að því standa einnig iðnaðarráðuneytið, Iðnlána- sjóður og Iðnþróunarsjóður. Á Iðn- tæknistofnun er unnið markvisst að stuðningi við nýjar hugmyndir sem liggja í láginni innan veggja fyrir- tækja og meðal einstaklinga. Snjall- ræði er eitt þessara verkefna. Það er þó frábrugðið öðrum hliðstæðum verkefnum að því leyti að hugmynd- imar eru lagðar fram í nafni ein- staklinga fremur en fyrirtækja. Hugmyndirnar sem leitað er að eru ekki einskorðaðar við afmörkuð starfssvið eða tæknisvið. Þær geta varðað allt frá einföldustu hlutum til flókins tæknibúnaðar. Markmiðið er að laða fram góðar, ábatasamar hugmyndir og gera þær að vera- leika. Gert er ráð fyrir að flestar „Hugmyndasamkeppn- in Spjailræði verður vonandi til að slíkir hugmyndaríkir starfs- menn og nemendur á æðri stigum skólakerf- isins noti tækifærið til að leggja fram snjallar hugmyndir sem e.t.v. hafa haldið fyrir þeim vöku en ekki komið til framkvæmda sökum skilningsleysis annarra eða fjárskorts.“ hugmyndanna sem berast varði þró- un nýrra afurða, en einnig er pláss fyrir snjallar tæknilegar lausnir sem gætu aukið framleiðni og afköst í iðnaði. Mörg dæmi eru til um að starfsmenn fyrirtækja hafi með reynslu sinni þróað nýjar lausnir og fengið hugmyndir að arðbæram framleiðsluvörum. Hugmyndasam- keppnin Snjallræði verður vonandi til að slíkir hugmyndaríkir starfs- menn og nemendur á æðri stigum skólakerfisins noti tækifærið til að leggja fram snjallar hugmyndir sem sýnir í Nýhöfn HAFTEINN Austmann opnar sýn- ingu í Listasalnum Nýhöfn, Hafn- arstræti 18^ á morgun, laugardag, kl. 16-18. Á sýningunni eru mál- verk og vatnslitamyndir, unnar á sl. þremur árum. Hafstein er fæddur 1934 á Ljóts- stöðum í Vopnafirði. Árið 1951 inn- ritaðist hann í Myndlistaskólann í Reykjavík og á árunum 1952-54 stundaði hann nám við Handíða- og myndlistaskólann. Að því loknu hélt hann til Parísar í framhaldsnám við Academie de la Grande Chaumier og dvaldi þar í tvö ár. Hafsteinn hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýn- ingum hér heima og erlendis. í apríl síðastliðnum hélt hann einkasýningu í Galleri Orpheus í Eskilstuna, Sví- þjóð. Hann hefur um árabil verið kennari við Myndlista- og handíða- skóla íslands, er formaður Félags íslenskra myndlistarmanna og á sæti í safnráði Listasafns íslands. Sýningin í Nýhöfn er sölusýning. Hún er opin frá kl. 12 til 18 virka daga og frá kl. 14 til 18 um helgar. Lokað er á mánudögum. axfeirui Þrigíjjtx .ur/si .tóýi og tveir otóUir. Einnig hornoófadett á mjög góðu. verði. Opicf í dcig, laiujardatj, tiL /cl. 17 fiðemt fxiHeftA (Fréttatilkynniug) ; . ""i ....'; 'I 1 " .......... SiubirlajultbraiU54u/t'axafen - Sími 6S2S66 ..........

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.