Morgunblaðið - 29.08.1992, Page 18

Morgunblaðið - 29.08.1992, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992 Kúba „Fídel litli“ verður Kastró tíl skammar RÚSSNESKA dagblaðið Nezavísímaja. Gazeta hefur skýrt frá því að Fídel Kastró Diaz-Balart, sonur Fídels Kastrós Kúbuleiðtoga, sé nú í stofufangelsi og eigi yfir höfði sér réttarhöld og hugsan- Iega dauðadóm vegna fjárdráttar. frá er á Kúbu „Fídel litli“, föðumum. Fídel Kastró yngri kallaður „Fidelito", eða til aðgreiningar Hann er kjameðl- isfræðingur, menntaður í Sov- étríkjunum fyrr- verandi. Málgagn Kúbustjórnar, Granma, greindi frá því 17. júní að „Fídel litla“ hefði verið vikið frá sem yfirmanni kúbver- skrar kjarnorku- Fídel Kastró stofnunar, sem Kúbuleiðtogi Sovétríkin fjár- mögnuðu áður en þau liðu undir lok. Þetta er það eina sem fjölmiðl- ar á Kúbu hafa haft um málið að segja til þessa. Síðan hefur ekkert sést til „Fíd- els litla“, hvorki í heimalandinu né á Spáni þar sem hann mun hafa verið í nánu sambandi við dóttur iðnjöfurs. Fídel Kastró eldri stað- festi frétt Granma -þegar hann heimsótti fæðingarstað föður síns í Galiciu í norðvesturhluta Spánar í síðasta mánuði. Hann sagði að syni sínum hefði verið vikið frá vegna „getuleysis“ en fékkst ekki til að ræða málið frekar við spænska blaðamenn. Nezavísímaja Gazeta skýrði hins vegar frá því á dögunum að „Fídel litli“ væri nú í stofufangelsi og yrði líklega sóttur til saka. Hann hefði dregið sér 5 milljónir dala, 270 milljónir ÍSK, sem áttu að renna til kjamorkustofnunarinnar. Blaðið telur að aðeins tvennt geti skýrt handtöku „Fídels litla“: ann- aðhvort hafí Kúbúleiðtoginn fyllst örvæntinu og talið sig neyddan til að „fórna“ eigin syni vegna pólití- skrar og efnahagslegrar einangr- unar Kúbustjómar, eða að hann hafi ekki vitað af handtökunni, sem hafi þá verið liður í samsæri um að neyða hann til að segja af sér. Hugsanlegt er talið að bróðir Kúbu- leiðtogans, Raul Kastró vamar- málaráðherra, hafí átt aðild að samsærinu. Að sögn breska dagblaðsins The Independent hefur orðrómur verið á kreiki á meðal stjórnarerindreka í Madrid um að forsætisráðherra Galiciu, Manuel Fraga, hafi boðið Kastró þangað til að fá hann til að setjast þar í helgan stein. „Vissulega hefur spænska stjómin sagt að hann sé velkominn hingað og Galicia er land foreldra hans,“ sagði Fraga aðspurður um þetta. Milan Panic á blaðamanna- fundinum eftir að friðarráð- stefnunni í Lundúnum lauk en þar sagðist hann myndu krefjast afsagn- ar Slobodans Milosevics for- seta færi hann ekki eftir sam- þykktum Lund- únaráðstefn- Lundúnaráðstefnan um frið í Júgóslavíu Reuter Panic býður Milosevic forseta Serbíu birginn Lundúnum. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. MILAN Panic, forsætisráðherra hinnar nýju Júgóslavíu, Serbíu og Svartfjallalands, kom fundarmönnum á Lundúnaráðstefnunni um málefni fyrrum lýðvelda sambandsrfldsins rækilega á óvart á fimmtu- dag er hann þaggaði á ódiplómatískan hátt niður í Slobodan Mi- losevic, forseta Serbíu. Milosevic hugðist tjá sig um Kosovo-hérað í Serbíu en Panic tilkynnti honum að hann einn hefði umboð til að tala fyrir hönd Serbíu og Svartfjallalands. JUGOSLANESKIR FLOTTAMENN Milosevic þagnaði en muldraði svo viðstaddir heyrðu að Panic ætti ekki að verða sér til skammar. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, sagðist aldrei hafa orð- ið vitni að öðrum eins orðaskiptum á fjölþjóðlegri ráðstefnu. Panic tók við embætti forsætis- ráðherra hinnar nýju Júgóslavíu í sumar og hefur hingað til verið talinn handgenginn Milosevic en hann er það sýnilega ekki lengur. Hann kom fundarmönnum á óvart í gær þegar hann boðaði stefnu- breytingu stjómvalda í Belgrad undir sinni forystu og sagðist sjálf- ur ætla að leiða baráttuna gegn þeim sem kynnu að brjóta í bága við samþykktir Lundúnaráðstefn- unnar en þeim er ætlað að stuðla að friði í Bosníu-Herzegóvínu. Panic var svo bjartsýnn og stórorður um frið, lýðræði og framtíðarsamvinnu ríkjanna sem áður mynduðu Júgó- slavíu að blaðamenn sem hlýddu á mál hans flissuðu. Hann sagði þjóð- arrembing aðeins eiga heima á knattspymuvöllum og í kokkabók- um og kvað viðskiptafrelsi eina sanna frelsið, án þess væm allir heftir. Sjónvarpskona frá Belgrad hristi höfuðið eftir yfírlýsingar Panics og sagði daga hans í emb- ætti talda. „Hann er alltof mikill lýðræðissinni fyrir afturhaldsöflin í Serbiu," sagði hún. Hörð valdabarátta bíður Panic í Belgrad. Hann hefur mikið fylgi samkvæmt skoðanakönnunum en Milosevic og fylgismenn hans hafa völdin. Forseti Serbíu virtist langt niðri á fimmtudagskvöld og hótaði að segja af sér en fáír búast við að hann gefíst upp og láti í minni pokann fyrir Panic, auðmanninum sem sneri heim til föðurlandsins frá Þýskaland 200.000 Flót Austurríki 50.000 heft Ungverjaland 50.000 allrc Svíþjóð 44.167 fyrir Sviss 17.573 Iýgv ítalia 7.000 y Tyrkland 7.000 / Holland 6.300 / Noregur 2.331 /• Danmörk 1.637 / Samveldið 1.500 r Pólland 1.500 /V Frakkland 1.108 U Bretland 1.100 / * Lúxemborg 1.000 Lf Rnnland 982 /f; Belgía 870 m. Spánn 120 / Tékkóslóvakía 97 . Grikkland 7 Önnur lönd 30.000 sp SAMTALS 424.292 Heimild: UNHCR Kalifomíu. Aðspurður Panic gerði lítið úr tali um valdabaráttu. Hann sagði valdabaráttu aðeins geta átt sér stað milli jafningja og gerði þar með lítið úr Milosevic forseta. Panic sagði almenning langþreyttan á stríði og efnahagsþrengingum og kvaðst sannfærður um að stefna hans og stjóm yrði ofan á hinni nýju Júgóslavíu. Uppeldisstofnun í Austur-Þýskalandi kommúnismans Mannvonska og grimmd í „þrælabúðum fyrir böm“ Torgau. Reuter. LITLAR sögur fóru Iengstum af uppeldisstofnuninni, sem rekin var í Torgau í Austur-Þýskalandi, sem áður var, én með hruni kommúnismans var hulunni svipt af starfseminni. Hún einkennd- ist af grimmd og mannvonsku og um stofnunina er nú talað sem „þrælabúðir fyrir börn“. Það var Margot Honecker, eiginkona Erichs Honeckers, leiðtoga austur-þýskra kommúnista, sem kom stofnuninni á fót, en ólíklegt þykir, að hún verði Iátin svara til saka. Hún býr nú hjá dóttur sinni í Chile. Börnin og unglingarnir, sem nefndar frá 1990 um ástandið á haldið var á stofnuninni, gerðu allt til að vera flutt í burtu, gleyptu málningu, brutu ljósaper- ur uppi í sér og kveiktu í rúmföt- unum en allt kom fyrir ekki. Þeim var þá bara refsað, lokuð inni í dimmum og þröngum kjallara- klefum í nokkra daga eða send út í frostið hálfber og skipað að leika knattspymu tímunum saman. Meðalið var ofbeldi í skýrslu óháðrar rannsóknar- stofnuninni segir, að aðstæður þar hafi í mörgu verið verri en í fang- elsunum þótt unglingamir hafí aldrei verið formlega ákærðir eða dæmdir. „Tilgangurinn var sagð- ur endurhæfing og uppeldi en meðalið var ékki félagsleg og sál- fræðileg hjálp, heldur ofbeldi. Það var reynt að brjóta unglingana niður andlega," segja skýrsluhöf- undar. Wolfgang Geppert, bæjarfull- trúi í Torgau, vonast til, að unnt verði að kalla Margot Honecker fyrir dóm en presturinn og bæjar- fulltrúinn Matthias Grimm er van- trúaður á það. Segir hann ólík- legt, að nokkur skjöl muni fínnast, sem sanni á hana sök. „Hjálpaöu mér, mamma“ Mannvonskan tók á móti ungl- ingunum sama dag og þeir komu í skólann, sem kallaður var. Fyrsta verkið var að setja þá í þriggja daga einangrun og klefa- veggimir era útkrassaðir í neyð- arópum unga fólksins. „Hjálpaðu mér, mamma“ hefur stúlka að nafni Nicole krotað á einn vegginn og annars staðar stendur „Gráttu ekki, mamma". „Skólinn" minnir um margt á sögu eftir Charles Diekens. Ungl- ingamir vora lokaðir inni á ömur- legum verkstæðum þar sem þeir unnu við að smíða lampa eða lukt- ir fyrir kafbátaflota Varsjár- bandalagsins og á kvöldin var þeim vísað inn í yfirfullan svefn- sal. Strangur heragi gilti um allt og sá, sem gerði sig sekan um að kvarta yfír lélegum mat, var neyddur til að éta þrefaldan skammt. Aðeins augnagotur milli stúlkna og drengja vora næg ástæða fyrir margra daga ein- angrun í klefum, sem flæddu þeg- ar mikið var í Saxelfi. Flóttatilraunir og sjálfsmorð „Unglingamir reyndu oft án árangurs að flýja að næturlagi," segir Geppert og hann telur, að einu sinni þegar hliðið stóð opið hafi einn drengurinn fómað lífi sínu til að hjálpa félögum sínum Margot og Erich Honecker. við flóttann. Margir skáru sig og meiddu í þeirri von, að þá yrðu þeir fluttir á sjúkradeildina þar sem flóttaaðstæður væru ef til vill eitthvað betri. Allt var þetta þó vonlaust enda rimlar fyrir öll- um gluggum, dyrnar sérstaklega styrktar og varðmenn með hunda úti fyrir. Vonleysið og örvæntingin ollu því, að margir sviptu sig lífi og einna mest sumarið 1989 þegar fréttist af flótta hundruða og þús- unda Austur-Þjóðverja til vesturs. „Unglingamir vissu hvað um var að vera en sjálfum vora þeim all- ar bjargir bannaðar," segir Gep- pert.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.