Morgunblaðið - 29.08.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992
19
82 farast í
flugslysi í
Rússlandi
Rússnesk flugvél af gerðinni
Tupolev Tu-134 rakst á bygg-
ingu og hrapaði er hún kom til
lendingar á flugvelli í bænum
ívanovo í fyrrakvöld. Allir um
borð í vélinni, sjö manna áhöfn
og 75 farþegar, fórust og þetta
er mannskæðasta slys sem
flugvél í eigu rússneska flugfé-
lagsins Aeroflot lendir í frá
1984. Vélin hrapaði um þremur
kílómetrum frá flugbrautinni
eftir að hafa rekist á tveggja
hæða íbúðarbyggingu. Mikil
þoka og rigning var þegar slys-
ið varð.
Efnahagsbati
næsta vor
Samkvæmt skýrslu breska
vinnuveitendasambandsins
CBI, sem gefin var út í gær,
verður ekki efnahagsbati í
Bretlandi fyrr en næsta vor.
Sambandið telur að verg þjóð-
arframleiðsla Breta minnki um
einn af hundraði í ár og aukist
aðeins um 0,7% á næsta ári.
Kosið í Kúveit
5. október
Stjórn Kúveits hefur ákveðið
að fyrstu þingkosningar lands-
ins í sjö ár fari fram 5. októ-
ber. Þingið var leyst upp 1986
og samkvæmt stjórnarskránni
gegnir það ráðgjafarhlutverki
en hefur ekki löggjafarvald.
Mikill lög-
regluvið-
búnaður í
Rostock
Allt var með kyrrum kjörum
í þýsku borginni Rostock í
fyrrakvöld eftir daglegar óeirð-
ir ungra hægriöfgamanna frá
því á laugardag. 3.000 lög-
reglumenn voru sendir til borg-
arinnar vegna mótmæla
vinstrimanna gegn kynþátta-
hatri sem fyrirhuguð eru í dag.
Óttast er að til átaka komi
milli vinstri- og hægrimanna.
Rabin vígreif-
ur í garð Iraka
Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra Israels, sagði í gær að
ef írakar gerðu eldflaugaárásir
á ísrael myndu ísraelar ekki
halda aftur af sér eins og þeir
gerðu í stríðinu fyrir botni
Persaflóa. Bandarískar herþot-
ur héldu uppi stöðugu eftirliti
yfir suðurhluta íraks í gær en
urðu ekki varar við neinar
íraskar flugvélar á því svæði
sem þeim er bannað að fljúga
á. Rabin kvaðst ekki telja mikla
hættu á að Saddam Hussein
íraksforseti fyrirskipaði eld-
flaugaárásir á Israel en sagði
að ef svo færi myndu ísraelar
ekki skirrast við að svara þeim
með hörðum gagnárásum.
Hann sagði að eina leiðin til
að fýrirbyggja árásir á ísrael
væri að gera arabaríkjunum
ljóst að þeim yrði svarað með
hörðum árásum á borgir þeirra.
Rússneska fréttastofan Itar-
Tass skýrði frá því í gær að
George Bush Bandaríkjaforseti
og Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hefðu rætt möguleikann
á því að Rússar gegndu hlut-
verki sáttasemjara í deilunni
við íraka. Fréttastofan skýrði
þetta ekki nánar og fréttin
fékkst ekki staðfest.
Eldflaugum skotíð á Kabúl
Reuter
Eldur kviknaði í rússneskri herflutningavél á Kabúlflugvelli í Afganistan í gær eftir að eldflaug sprengdi upp
eldsneytistank á flugvellinum. Ekki er vitað hver skaut eldflauginni en alls var um fimmtán flaugum skotið
að vellinum. Um borð í rússnesku vélinni, sem komin var til að flytja rússneska diplómata frá borginni, var
hópur sérsveitarmanna. Þeim tókst öllum að komast út úr vélinni en fjórir þeirra særðust. Harðir bardagar geisa nú
í kringum Kabúl milli sveita stjórnarhersins og sveita Hezb-i-Islami, sem er fylking íslamskra heittrúarmanna.
Þeir hafa haldið uppi linnulausum eldflaugaárásum á borgina en flugvélar stjórnarhersins hafa á móti gert árásir
á stöðvar þeirra.
Viðamestu efnahags-
aðgerðir í sögu Japans
Tókýó. Reuter.
STJORN Japans samþykkti í gær
éfnahagsaðgerðir, sem eru metn-
ar á 10 billjónir jena (4.200 millj-
arða ISK) og eiga að blása lifi í
efnahag íandsins. Hagfræðingar
sögðu að þessar björgunarað-
gerðir, þær viðamestu í sögu
landsins, kæmu of seint til að
koma í veg fyrir frekari efna-
hagssamdrátt í ár. Gengi dollars-
ins lækkaði gagnvart jeninu
vegna aðgerðanna.
Efnahagsaðgerðirnar felast með-
al annars í skattafrádrætti til að
hvetja fyrirtæki til að fjárfesta,
aðstoð við banka vegna vanskila
fyrirtækja og auknum opinberum
framkvæmdum. Hagfræðingar
sögðu að ljóst væri að aðgerðirnar
yrðu til að auka hagvöxtinn en
fyrstu vísbendinganna um bata
væri þó ekki að vænta fyrr en í
fyrsta lagi eftir sex mánuði. Að-
gerðirnar gætu bætt einu prósentu-
stigi við verga þjóðarframleiðslu
Japans. Hagvöxturinn á þessu íjár-
hagsári, sem lýkur 31. mars 1993,
yrði þó aðeins rúm 2% og 2,5% á
því næsta. Efnahagsáætlanastofn-
un Japans hafði hins vegar spáð
3,5% hagvexti á þessu ári.
Hagfræðingarnir sögðu ennfrem-
ur að þar sem aðgerðimar hefðu
ekki merkjanleg áhrif á næstu mán-
uðum væri því sem riæst öruggt að
japanski seðlabankinn myndi lækka
vexti til að blása lífi í efnahaginn.
Aðgerðirnar urðu til þess að
hlutabréf hækkuðu verulega í verði
í kauphöllinni í Tókýó. Nikkei-hluta-
bréfavísitalan hækkaði um 2,37%
og munu viðskiptin aldrei hafa ver-
ið jafn lífleg það sem af er árinu.
Jenið hækkaði einnig gagnvart doll-
arnum og menn voru ekki á einu
máli um hvort hann myndi lækka
frekar.
Frakkland
Fylgi við
Maastricht
minnkar
París. Reuter.
NY skoðanakönnun í
Frakklandi gefur til kynna
að stuðningur við Maast-
richt-samkomulagið, er
kveður á um nánara sam-
starf Evrópubandalagsríkj-
anna í helstu málaflokkum,
fari enn minnkandi. 53%
segjast ætla að greiða at-
kvæði gegn samningnum en
47% með-í þjóðaratkvæða-
greiðslunni sem verður 20.
næsta mánaðar.
Tvær aðrar kannanir fyrr
í vikunni sýndu einnig að
meirihluti þeirra sem tóku
afstöðu væri andvígur samn-
ingnum. Þá höfðu um 60%
þegar myndað sér skoðun á
málinu.
Stuðningurinn við sam-
komulagið hefur minnkað
verulega eftir' að Francois
Mitterrand forseti, er mælir
ákaft með samningnum,
ákvað í júní sl. að farið yrði
að fordæmi Dana og efnt til
þjóðaratkvæðagreiðslu en
Danir höfðu þá fellt sam-
komulagið naumlega. Talið er
að andstæðingunum hafi tek-
ist að slá á strengi ótta við
að Frakkar muni glata sjálfs-
forræði sínu og þjóðarein-
kennum auk þess sem efna-
hagur þeirra muni versna
verði Maastricht-samningur-
inn að veruleika. Aðrir segja
að óvinsældir stjómar sósíal-
ista hafí mikil áhrif á nið-
urstöðuna; margir kjósendur
líti svo á að í kosningunum
sé spurt um álit á stjóm sós-
íalista, og vilji ekkert gera til
að styrkja hana í sessi.
Veiztu að stækkanir frá
okkur eru frá
20 %°suppí
58%
/
Odýrari
3 ÓDÝRASTIR
Ljósmyndastofurnar:
Mynd sími 65-42-07
Barna og Fjölskylduljósm.
sími 677-644
Ljósmyndastofo Kópavoss
sími 4-30-20
íslensk fiönnun úr íslenskri ull
Höimunar*
samkeppni
ÍSTEX hf. efnirtil samkeppni um hönnun á handprjónapeysum úr íslenskum náttúru-
litum (sauðalitum) eingöngu. Megin áhersla er lögðá hönnun úr hespu- og plötulopa,
en einnig er heimilt að nota aðrar bandtegundir, s.s. flos, einband eða tvíband.
Stefnt er að þvf að velja allt að 15 hugmyndir til útgáfu í handprjónablaði.
Fyrir hverja hugmynd, sem valin er, verður ére>tt kr. 25.000. Fyrir útfærða uppskrift
að peysu, verðurgreitt kr. 10.000 aukalega.
Þá verða veitt verðlaun fyrir 3 bestu hugmyndirnar:
1. verðlaun kr. 150.000
2. verðlaun kr. 100.000
3. verfflaun kr. 50.000
Þátttakendur eru beðnir um að skila inn fullprjónuðum peysum
til ÍSTEX í Mosfellsbæ fyrir 25. nóvember 1992.
Nafn og símanúmer skal fylgja í lokuðu umslagi, merktu með dulnefni.
Val og verðlaunaafhending er fyrirhuguð 4. desember 1992.
Peysum, sem ekki eru valdar, verður skilað aftur til eigenda.
Nánari upplýsingar ásamt litaspjöldum,
fást hjá ÍSTEX í Mosfellsbæ kl. 9-16 alla virka daga.
888ISTEX.
ÍSLENSKUR TEXTÍLIÐNAÐUR HF.
PÓSTHÓLF 140 • 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI 91-666300 • MYNDSENDIR 91-667330