Morgunblaðið - 29.08.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA
Paralympics-leikamir
íslenski hóp-
urinn til Barce-
lona á morgun
TÓLF fatlaðir íþróttamenn
halda á morgun áleiðis til
Barcelona á Spáni ásamt þjálf-
urum og fararstjórum, þar sem
þeir munu taka þátt í Para-
lympics leikunum, sem hefjast
3. september nk. I hópnum eru
sex núverandi heimsmethafar,
auk þess sem flestir keppend-
ur hafa unnið til fjölda verð-
launa á alþjóðlegum stórmót-
um.
Níu keppa í sundi, tveir i frjáls-
um og tveir í borðtennis. Einn
íþróttamaður, Geir Sverrisson,
keppir bæði í sundi og fijálsum.
Eins og áður sagði eru sex heims-
methafar í hópnum, fimm í sundi
og einn í fijálsum íþróttum. Sund-
mennimir eru.Ólafur Eiríksson, sem
á heimsmet í 200 og 800 m skrið-
sundi, Lilja María Snorradóttir i 100
m skriðsundi, Geir Sverrisson í 100
m bringusundi, Kristín R. Hákonar-
dóttir í 100 m bringusundi og Rut
Sverrisdóttir í 200 m baksundi.
Fijálsíþróttamaðurinn Haukur
Gunnarsson á heimsmet í 400 og
100 m hlaupi.
Kostnaðurinn við að senda þenn-
an hóp til Barcelona er mikill, og
að sögn Ólafs Jenssonar, formanns
íþróttasambands fatlaðra, ekki
undir 10 milljónum. Enn vantar 3-4
milljónir upp á til að endar nái sam-
an, og sagðist Ólafur vonast til að
árangur íþróttafólksins, sem yrði
vonandi góður, myndi vekja áhuga
fjársterkra aðila á að styrkja þátt-
töku þeirra. Nú þegar hefðu mörg
fyrirtæki lagt þeim lið, m.a. Visa
og Búnaðarbankinn, sem og Herra-
garðurinn, sem veitti þeim góðan
afslátt á einkennisbúningum, og
Sjóvá-Almennar sem tryggir allan
hópinn.
Á síðustu leikum í Seoul í S-
Kóreu unnu íslensku keppendurnir
tvenn gullverðlaun, tvenn silfur-
verðlaun og sjö bronsverðlaun.
13. september hefjast síðan í
Madrid leikar fyrir þroskahefta
íþróttamenn. Þar munu átta íslend-
ingar keppa, sex í sundi og tveir í
fijálsum íþróttum. Árangur þeirra
hefur ekki verið síðri en þeirra fötl-
uðu á alþjóðlegum stórmótum.
í hópnum eru þrír heimsmethaf-
ar. Gunnar Þ. Gunnarsson og Guð-
rún Ólafsdóttir eiga tvö heimsmet
hvort, og Sigrún H. Hrafnsdóttir,
sem valin var besti íþróttamaður
þroskaheftra í heiminum í fyrra af
INAS, Alþjóðasamtökum þroska-
heftra, er áttfaldur heimsmethafi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hópurinn sem heldur til Barcelona á morgun. Neðsta röð frá vinstri Lilja María
Snorradóttir, Kristín R. Hákonardóttir, Rut Sverrisdóttir, Birkir R. Gunnarsson,
Ólafur Eiríksson, Geir Sverrisson, Halldór Guðbergsson, Elvar Thorarensen, Haukur
Gunnarsson, Kristín Guðmundsdóttir þjálfari, Anna K. Vilhjálmsdóttir fulltrúi út-
breiðslu og íþróttasviðs lF, Svanur Ingvarsson, Sóley Axelsdóttir, Jón H. Jónsson.
í efstu röðinni eru frá vinstri Ólafur Jensson formaður íþróttasambands fatiaðra,
Stefán Jóhannsson þjálfari, Magnús B. Einarsson læknir, Ólafur Magnússon fram-
kvæmdastjóri ÍF, Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Óiympíunefndar ÍF, og Erlingur
Þ. Jóhannsson þjálfari.
■ UDO Lattek hefur ekki gengið
vel með Schalke í þýsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu. Veðbankar í
Austurríki telja að Lattek verði
fyrstur þjálfara í
Frá Jóni deildinni til að ijúka.
Halldóri U LOTHAR Matt-
Garöarssyni haus er kominn heim
i Þýskalandi aftur. Hann skrifaði
undir samning við Bayern
Míinchen, sem greiddi Inter átta
milljónir marka ( um 300 millj. ÍSK).
Matthaus var seldur til Inter á sín-
um tíma fyrir 7,5 milljónir marka.
Hann er þó ekki enn orðinn leikfær
vegna meiðsla sem hafa hijáð hann.
■ GAUDINO, leikmaður Stutt-
gart, meiddist á æfingu um síðustu
helgi - sleit liðbönd í ökkla. Hann
verður því frá í nokkrar vikur.
■ GIDO Hoffmann, sem hefur
leikið með Keiserslautern síðustu
misseri, hefur verið lánaður til Le-
verkusen fyrir 200 þúsund mörk
(um 7,5 millj. ÍSK) út tímabilið.
U THOMAS Hassler, þýski landsl-
iðsmaðurinn hjá Roma á Italíu, er
meiddur á hné og leikur ekki næsta
mánuðinn. ítalska deildin byijar um
næstu helgi.
■ CRIS Cantona, miðheiji Leeds,
gefur ekki kost á sér í franska
landsliðið, sem mætir Búlgörum í
undankeppni HM 9. september.
LEIÐRÉTTING
Bikarmeistarar Vals í knattspyrnu vilja taka
fram að söngur þeirra, listamenn, lista-
menn..., hafi orðið til hjá þeim sjálfum í
fyrra og eigi hvorki skylt við listahátíð né
fyrrum leikmenn Vals eins og sagt var í
blaðinu, þó Valsmenn hafi á árum áður
sagt að sigur þeirra væri framlag til listahá-
tíðar.
KASTMOT
FL UGLEIÐA
30. ágúst kl. 15.00
Ólympíufarar okkar í kastgreinum mæta stórstjörnum
annarra landa. Hvetjum okkar menn til sigurs og mætum öll
á nýjan og glæsilegan frjálsíþróttavöll Laugardals.
Dagskrá:
Kl. 15.00 kúluvarp
kl. 15.30 kringlukast
kl. 16.00 spjótkast
EIMSKIP
Islenskir keppendur:
Pétur Guðmundsson
Vésteinn Hafsteinsson og Eggert Bogason
Einar Vilhjálmsson og Sigurður Einarsson
Verð: Fullorðnir kr. 500,- börn yngri en 14 ára kr. 250,-.
\je\tingahu$ió
Athugið. Ágiskunarkeppni, fjórir vinningar
Reynið að vinna Ijósakort hjá Toppsól og mat fyrir tvo í Laugaási. Þeir sem ná
besta árangri í hverri grein fyrir sig fá vinning og einnig sá sem kemst næst
samanlögðum árangri sigurvegara þessara þriggja greina.
Allt sem þarf er að koma á völlinn, skila bréfi með þessari ágiskun og láta nafn,
heimilisfang og síma fljóta með.
Dæmi: Kúla 20 metrar, kringla 60 metrar, spjót 80 metrar samanlagt, 160 metrar.
Jón Jónsson,
Jónsbakka 10, sími 007.
Verðlaun verða veitt strax að loknu móti
Sól
FAXAFENI
í i MUtiUiUim * ttati
mmmmKmmmfi