Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Arvakur h.f., Reykjavik Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið. Sóknarfæri í sjávarútvegi Neyðin kennir naktri konu að spinna, segir gamalt mál- tæki, og hefur það berlega sann- ast í íslenzkum sjávarútvegi. Þar hafa átt sér stað mikilvægar breyt- ingar, þegar að honum hefur verið þrengt eins og t.d. vegna löndun- arbanns erlendis eða hruns veiði- stofna. Slík áföll hafa neytt menn til að endurskoða ríkjandi venjur við veiðar og vinnslu og leita nýrra sóknarfæra. Slík staða er enn einu sinni komin upp vegna niðurskurð- ar á þorskafla. Um árabil hefur verið um það rætt að íslenzk fiskiskip leituðu á fjarlæg mið eða jafnvel keyptu sér veiðileyfi hjá öðrum þjóðum. Eftir að veiðikvótar fóru að ganga kaup- um og sölum, oft á háu verði, hafa augu manna beinzt meira að þessu. Nú eru tvö íslenzk línuveiði- skip farin á veiðar við Austur- Grænland, þar sem þau hafa keypt veiðileyfi. Þetta eru skipin Lísa María ÓF og Skotta HF. Útgerðar- maður Lísu Maríu, Sigurður Gunn- arsson á Ólafsfirði, segir, að greitt sé fyrir veiðileyfið með ákveðnum hluta aflaverðmætis, en skipið mun stunda þessar veiðar til ára- móta. Aflinn er flakaður og fryst- ur um borð. Það er vel þess virði fyrir útgerðarmenn að kanná, hvort ekki séu möguJeikar á að semja við Grænlendinga um frek- ari veiðileyfakaup, enda skortir þá sjálfa skip og telja því eðlilegt að selja veiðikvóta. Ýmsir aðrir möguleikar á veiði- leyfakaupum, eða jafnvel milli- ríkjasamningum um veiðiheimild- ir, þurfa að skoðast nánar. í því sambandi má benda á þorskveiðar í Barentshafi, þar sem mikil fisk- gengd er nú og vaxandi, enda hafa frændur vorir Færeyingar samið um slíkar veiðar við Rússa. Hvers vegna ekki íslendingar? Þetta er verðugt verkefni fyrir ís- lenzk stjómvöld og útgerðarmenn. Minna má á, að okkur er heimilt að stunda rækjuveiðar á frísvæði við Svalbarða, en enginn hefur sýnt því áhuga ennþá og setja menn aðallega fyrir sig, að rækjan er smá á þessu svæði og óljóst um arðsemi veiðanna. Undanfarna mánuði hefur verið skýrt frá því að erlendir einkaaðil- ar og jafnvel ríkisstjórnir vilji gjaman fá íslendinga til að stunda veiðar í þeirra heimhöfum. Ind- veijar voru á fenð hér fyrr í sumar til að leita samstarfs á þessu sviði og sjávarútvegsráðherra Mexíkó kom hingað fyrir skömmu í sama skyni. Tækifæri eru talin mikil fyrir íslenzkan sjávarútveg í báð- um þessum löndum, ekki sízt Mex- íkó. í skýrslu, sem Bjöm A. Bjarna- son, fiskveiðiráðgjafi, hefur samið fyrir Icecon um samvinnu íslend- inga og Mexíkóbúa í sjávarútvegi, segir, að allt bendi til að arðvæn- legt sé fyrir íslendinga að hefja útgerð í Mexíkó. Þar er útlending- um heimilt að eiga 49% hlut í fiski- skipum og fiskvinnslu- og mark- aðsfyrirtæki mega að fullu vera í eigu útlendra. Nýr fríverzlunar- samningur Mexíkó, Bandaríkj- anna og Kanada veitir tolllausan og frjálsan aðgang að einu stærsta og auðugasta markaðssvæði ver- aidar. Mexíkóbúar eru áfjáðir í að ná samvinnu við íslendinga vegna verk- og tæknikunnáttu við veiðar og reyndar ekki síður í vinnslu. Við Mexíkó eru auðug og vannýtt fiskimið, þótt rannsóknir skorti. Útgerðar- og framkvæmdakostn- aður er miklu lægri en á íslandi, leyfisgjöld og skattar lágir og gjöld fyrir hvers kyns þjónustu, að því er Björn segir í skýrslu sinni. Ólík- legt er að sjávarútveginum gefist arðbærari tækifæri en í Mexíkó til að skapa verkefni fyrir of stór- an fiskveiðiflota og bæta upp minnkandi vinnu sjómanna og annarra í fiskvinnslu. Stjórnvöld og hagsmunasamtök í sjávarút- vegi þurfa því í fullri alvöru að snúa sér að þessu verkefni. Dæmi um breyttan hugsana- gang og áherzlur í íslenzkum sjáv- arútvegi eru kaup Granda hf. á stórum eignarhluta í útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Friosur í Chile. Til athugunar er nú, að ís- lendingar kaupi meirihluta í Rostocker Fischfang, öðru stærsta útgerðarfyrirtæki í Þýzkalandi. Þessi þróun gefur tækifæri til að nýta íslenzka sérþekkingu í út- gerð, selja hvers konar útgerðar- vörur og þjónustu. Við blasir, eftir að við gerumst aðilar að Evrópsku efnahagssvæði, að íslendingar kaupi útgerðar- og vinnslufyrir- tæki í aðildarlöndum þess, og reyndar víðar um heim, og bæti þannig samkeppnisstöðu sína og umsvif í sjávarútvegi og tengdum greinum. Tvennt má nefna til viðbótar um breytingar í íslenzkum sjávar- útvegi, annars vegar stóraukinn áhuga á sókn í stofna utan fisk- veiðilögsögunnar og landanir er- lendra skipa á afla í höfnum hér. Vopnfirðingar hafa keypt þorsk úr Barentshafi af rússneskum frystitogara og líkur eru á að slíkt færist stórlega í vöxt til að skapa atvinnu í frystihúsunum. Ómældir möguleikar munu og skapast með EES-aðild fyrir fiskiðnaðinn til að fullvinna afia á markað 380 millj- óna manna og margir telja, að í fullvinnslunni felist framtíðin. Það má því segja, að þess sjáist glögg merki, að þáttaskil eru að verða í íslenzkum sjávarútvegi, bæði veiðum og vinnslu, enda virð- ast sóknarfærin vera mörg bæði innanlands og utan. Afkoma 13 rækjuvinnslustöðva 1991 100- 75 Hlutfall hráefniskostnaðar af framleiðsluverðmæti 13 rækjuvinnslustöðva er frá 59,6 og upp í 73,1 % 56 Fimm best reknu fyrir- tækin eru með 56% 7 af heildarveltunni og að- mbb eins 7% af heildartapinu 50 25 Hlutfall launakostnaðar af framleiðsluverðmæti ■13 rækjuvinnslustöðva er frá 11,7 og upp í 26,5% 19 Q Þrjú meðalfyrirtæki eru □ I með 19% af veltunni en | 32% af heildartapinu llllllliim. (SU 25 Fimm verst reknu fyrir- tækin eru með 25% af heildarveltunni og 61 % af heildartapinu Framkvæmdastj órn VSI Ohj ákvæniilegt að af- nema aðstöðugjald AFNÁM aðstöðugjaldsins mun að mati framkvæmdastjórnar Vinnu- veitendasambandsins hafa jákvæð áhrif á þjóðarbúið. Með því móti má lækka verðlag um allt að 2%, auka atvinnu og almenn umsvif í þjóðfélaginu. Aðstöðugjaldið veikir stöðu íslenskrar verslunar, fram- leiðslu og þjónustu í stöðugt vax- andi samkeppni og styrkir að sama skapi stöðu erlendra keppinauta. Gjaldið leggst á alla veltu íslenskra fyrirtækja og því er sama varan margsköttuð i framleiðslu og dreif- Afkomuathugun á 13 rækjuvinnslustöðvum Heildartap nam 8% af veltu 1991 Mikill munur er á best reknu og verst reknu stöðvunum AFKOMUATHUGUN sem gerð hefur verið á rekstri 13 rækjuvinnslu- stöðva á síðasta ári sýnir að heildartap þeirra nam tæplega 8% af veltu eða samtals 167 milljónum króna. Þessar stöðvar vinna úr ríflega helm- ingi af rækju sem berst á land hérlendis og athygli vekur að mikill munur er á best reknu og verst reknu stöðvunum. Fimm af þeim bestu eru með 56% af veltu þessa hóps en 7% af heildartapi. Fimm af þeim verstu eru með 25% af veltunni en 61% af heildartapi. Munurinn þarna á milli skýrist að stórum hluta af mismunandi hráefniskostnaði og launa- kostnaði þessara vinnslustöðva. Afkomuathugun þessi var unnin af þremur mönnum frá Rannsókna- stofnun háskólans á Akureyri í sam- vinnu við forráðamenn rækjuvinnslu- stöðvanna 13. Valtýr Hreiðarsson var verkefnisstjóri en nemendurnir Skarphéðinn Jósefsson og Ögmunduí Knútsson unnu ásamt honum. Sjávar- útvegsráðuneytið veitti styrk til þessa verkefnis. Afkomuathugunin var þannig byggð upp að gerð var heildar- skýrsla um allan hópinn en síðan fékk hver vinnslustöð um sig sérskýrslu þar sem fram kemur hvernig hún stendur í samanburði við þær stöðvar sem sýna bestu afkomuna. Þegar rekstrarafkoma ársins hjá þessum vinnslustöðvum er skoðuð kemur í Ijós að tvær af 13 skiluðu hagnaði af reglulegri starfsemi. Heildarafkoma þeirra sýndi hins veg- ar tap upp á 7,81% af framleiðsluverð- mæti ársins sem samsvarar 9,30 krónum á hvert kg hráefnis sem unn- ið var. Alls unnu þessar vinnslustöðv- ar úr 18.000 tonnum af rækju sem er 53,2% af því hráefni sem fór til vinnslu á árinu. Höfundar athugunar- innar telja því að þessar vinnslustöðv- ar séu ágætt þversnið af rækjuiðnað- inum hérlendis. í niðurstöðum athugunarinnar kemur m.a. fram að afkoma þessara vinnslustöðva er frá því að vera 7,2% hagnaður niður í 24,7% tap sem er bil upp á 31,9%. Þessi munur á af- komu felst að miklu leyti í mismuni á hráefniskaupum og launakostnaði. Hlutfall hráefniskostnaðar af fram- leiðsluverðmæti á árinu 1991 var nokkuð misjafnt milli vinnslustöðva eða frá 73,1% í 59,6% sem er 13,5% mismunur. Meðaihráefniskostnaður mældist 65%. Þessi munur liggur að mestu í uppruna og stærðardreifmgu hráefnisins, þ.e. hvort um innfjarðar- eða úthafsrækju var að ræða, ferska eða frysta. Til samanburðar má nefna að hlutfall hráefniskostnaðar í vinnslu á þorski er að jafnaði 50-60%. Launakostnaðurinn reyndist mjög mismunandi eftir vinnslustöðvum eða frá því að vera 26,5% hlutfall af fram- leiðsluverðmæti niður í 11,7%. „Þann- ig er. bilið milli mesta og minnsta launakostnaðar 14,8% sem teljast verður mjög mikið þegar meðallauna- hlutfall er 15,6%,“ segir í athugun- inni. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra segir augljóst að taka þurfi á mörgum þáttum í rekstri fyrirtækj- anna í þessari grein en afkomuathug- un þessi sé nauðsynleg til að hægt sé að haga uppbyggingarstarfinu á sem bestan hátt. „Þetta er nýjung í athugunum af þessu tagi því fyrir- tækjunum er gefinn kostur á að bera sig saman,“ segir Þorsteinn. „Því lögðum við okkur fram um að styðja þetta verkefni og árangurinn af því er góður. Ég tel að þetta geti orðið góður hvati til að skoða fleiri þætti sjávarútvegs með svipuðum hætti.“ Pétur Bjarnason framkvæmda- stjóri Félags rækju-og hörpudisk- framleiðenda segir að ástæða fyrir slæmri heildarafkomu í rækjuvinnslu á síðasta ári megi að stærstum hluta rekja til þess verðfalls sem varð á afurðunum á erlendum mörkuðum. Útlitið nú sé hins vegar bjartara og verð hafi verið nokkuð stöðugt í sum- ar. Hvað afkomuathugunina varðar segir Pétur að vinnslustöðvarnar hafi verið að aðlaga sig hinum breyttu aðstséðum á markaðinum og þessi athugun geri þeim kleyft að átta sig betur á hvað þær þurfa að bæta í rekstri sínum. ingu áður en hún kemst endanlega í hendur neytenda, segir í fréttatil- kynningu VSI um samþykkt fram- kvæmdastjórnarinnar. „íslensk fyrirtæki munu þurfa að mæta aukinni samkeppni ekki hvað síst með tilkomu sameiginlegs mark- aðar Evrópubandalagsins og Evr- ópska efnahagssvæðisins. Þessi þróun er óumflýjanleg og óháð því hvaða form verður á samskiptum Islands við Evrópubandalagið í framtíðinni. Afnám aðstöðugjaldsins er því óhjá- kvæmilegt og forsenda þess að íslensk fyrirtæki geti aukið markaðshlutdeild sína innanlands og þess að sótt verði fram á sviðum útflutnings á vörum og þjónustu. íslensk fyrirtæki geta ekki gengið til leiks í alþjóðlegri sam- keppni í fjötrum úrelts skattkerfis. Framkvæmdastjórn VSÍ er vel ljóst að þessar breytingar kalla að ein- hveiju leyti á nýja tekjustofna fyrir sveitarfélög. Þar verður hins vegar að horfa jöfnum höndum til nýrra tekna og minni útgjalda. Síðustu 5 ár hafa rauntekjur sveitarfélaganna aukist stórkostlega. Þessari þróun þarf að snúa við og má draga veru- lega úr rekstrarkostnaði með saméin- ingu sveitarfélaga ekki síður en með sameiningu fyrirtækja. Nýverið hefur opinber nefnd sett fram hugmyndir um að afnámi að- stöðugjalds verði mætt með hækkun tryggingargjalds á laun um 3,2 pró- sentustig. Augljóst er að afnám þessa skaðlega veltuskatts verður ekki mætt með álagningu hærri skatts á launaþátt veltunnar. Það hefur sömu meginókosti og aðstöðugjaldið, en- grefur auk þess undan atvinnu á tím- um vaxandi atvinnuleysis. Að því marki sem afla þarf sveitarfélögunum nýrra skatttekna verður að hækka tekjuskatta og draga úr millifærslum í núverandi skattkerfi. Áhrif þessarar skattbreytingar á kaupmátt ráðstöf- unartekna verða hins vegar óveruleg vegna verðhjöðnunar og aukinnar at- vinnu, sem leiða mun af afnámi að- stöðugjalds, segir í tilkynningu VSI. Caput-hópurinn á æfingu. Morgunblaðið/Einar Falur Tónlistarhátíð norrænna ungmenna Gérard Grisey í Tónlistarskólan- um og Caput í Langholtskirkju Á sjötta degi Tónlistarhátíðar norrænna ungmenna í dag, fimmtudag, eru tónleikar Caput- hópsins í Langholtskirkju og fyr- irlestur heiðursgests hátíðarinn- ar, Gérards Griseys tónskálds, í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Gérard Grisey kynnir hlustendum tónlist sína í Stekk, húsnæði Tónlist- arskólans í Reykjavík, Laugavegi 178, í dag milli kl. 14 og 16 og er það annar fyrirlestur af þremur sem hann flytur á hátíðinni. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.30. Á efnisskránni eru fimm ný kammerverk. Þau eru Excursions eftir Danann Niels Marthinsen, Le pas - les pentes eftir Atla Ingólfs- son, CIS - TRANS eftir Norðmann- inn Jon Öivind Ness, Tyger! Tyger! eftir Tomas Friberg, en í því verki syngur bassasongvarinn Sören Mulvad Johansen með Caput-hópn- um, og Ice-breaking eftir Danann Jesper Koch. I því verki leika tveir samlandar Kochs á tvær harmón- ikkur og slagverk. Á morgun, föstudag, leikur Sinf- óníuhljómsveit íslands í Langholts- kirkju stærri verk eftir ungu tón- skáldin en hátíðinni Iýkur með há- degistónleikum í Háskólabíói nk. laugardag. Þar verður meðal annars flutt „lifandi“ raftónlist. (Fréttatilkynning) Málverkasýning Stephen Stephen í Gallerí Borg STEPHEN William Lárus Steph- en opnar málverkasýningu í Gall- erí Borg við Austurvöll fimmtu- daginn 10. september kl. 17. Stephen er fæddur í London 1968 og er af íslensku bergi brotinn og íslensku ríkisborgari, sonur Karól- AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR ísland verði alþjóðleg upp- lýsingamiðstöð sjávarútvegs Markaðsathugunarsljóri Útflutningsráðs vill auka áhrif Islands innan FAO ÞORGEIR Pálsson, markaðsathugunarsljóri hjá Útflutningsráði ís- lands, hefur nýlega lokið skýrslugerð um ísland og FAO (Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna) eftir þriggja mánaða dvöl í höfuðstöðvum FAO í Róm á ítaliu. Helstu niðurstöður Þorgeirs eru þær að Island hafi tapað þeim áhrifum sem það hafði innan sjávar- útvegsdeildar stofnunarinnar allt fram til ársins 1989 og hann leggur til að reynt verði að auka þau áhrif á ný með því að vinna að því að fá Islending ráðinn í áhrifastöðu innan FAO, auk þess sem hann legg- ur til að Sameinuðu þjóðunum verði boðið að staðsetja markaðsathug- ana- og upplýsingadeild sjávarútvegsdeildar FAO, Globefish, á Is- landi. Þannig telur Þorgeir að fyrsta skrefið yrði tekið í þá átt að gera ísland að alþjóðlegri upplýsingamiðstöð fyrir sjávarútveg í heim- inum. Á margan hátt má segja að skýrsluhöfundi komi FAO fyrir sjón- ir sem mikið og ómarkvisst bákn. Hann segir m.a.: „Margir hafa bent á, að endurskoða þurfi markmið FAO; að stofnunin ætli sér of margt án þess að hafa sett sér raunhæf markmið. Talið er nauðsynlegt að skipta einstökum deildum upp í minni einingar, dreifa valdi og auka sjálf- stæði yfirmanna og gera þá þannig ábyrga fyrir starfsemi sinna deilda." Þorgeir segir gagnrýni í garð FAO iðulega beinast að þeim hlunnindum sem standi fastráðnum starfsmönn- um stofnunarinnar til boða. Hann nefnir skattfrjálsar tekjur (eins og almennt tíðkast innan SÞ), afar lágt verð á áfengi, frystum matvælum o.fl., ódýrara bensín fyrir starfs- menn, niðurgreiðslur á skólagjöldum, ferðafríðindi og dagpeninga. Hann segir að á næstunni sé gert ráð fyr- ir verulegum skipulagsbreytingum hjá Sameinuðu þjóðunum, og FAO verði þar ekki undanskilið. Lítil fjárframlög íslands til þróunaraðstoðar eru að mati Þorgeirs Pálssonar aðalskýring þess að áhrif íslendinga innan FAO eru nú hverfandi, gagnstætt því sem var fyrir nokkrum árum. Er Þorgeir fjallar um sjávarút- vegsdeild FAO, sem íslendingar ættu eðli málsins samkvæmt að hafa mestan áhuga á að komast til áhrifa í, segir hann m.a.: „Sjávarútvegs- deildin setti einnig á fót markaðsat- hugana- og upplýsingadeild, Globef- ish, sem í dag er rekin í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í Banda- ríkjunum, á Spáni, í Danmörku, Kanada, Evrópubandalaginu, Rúss- landþ á íslandi og nú nýlega í Nor- egi. Útflutningsráð íslands hefur frá 1990 verið hluti af þessu samstarfi, sem nú er farið að skila sér í nám- skeiðahaldi íslenskra fyrirtækja í Austur-Evrópu, skýrslugerð á vegum Útflutningsráðs og greiðum aðgangi að víðtækum markaðsupplýsingum.“ Þorgeir segir að sjávarútvegs- deildin taki mið af fjölmörgum þátt- um, sem í dag einkenni sjávarútveg í heiminum. Þar nefnir hann m.a. þörf þróunarlandanna fyrir aðstoð við uppbyggingu fiskveiða, vinnslu og sölu afurða, sem er væntanlega sá þáttur sem Islendingar gætu orð- ið hvað virkastir í innan FAO. í beinu framhaldi þessa gerir Þor- geir þróunarverkefni FAO að umtals- efni og segir að langtímaþróunar- verkefnum hafi fækkað. „Raunar var það svo að á árunum 1960 til 1988 settu íslendingar mikinn svip á starf- semi sjávarútvegsdeildar FAO. Ber þar kannski hæst hlutverk Hilmars Kristjónssonar, sem á tímabili var yfirmaður sjávarútvegstæknideildar Nú er hins vegar meira um skammtíma fræðslu- og uppbygging- arverkefni innan sjávarútvegs að ræða, þar sem innfæddum er kennd markaðssetning, stjómun, skipulag og uppbygging annarra þátta í sjáv- arútvegi. Hvort íslenskir ráðgjafar teljist ekki lengur koma til álita í verkefni af þessu tagi skal látið ósagt, en hitt er ljóst að íslendingum, og reyndar öðrum Norðurlandabú- um, hefur fækkað ört innan sjávarút- vegsdeildar FAO á síðustu 10-15 árum. í dag eiga íslendingar engan fulltrúa hjá FAO í Róm.“ Þorgeir segir að Islendingar hafi átt stóran þátt í að móta skipa- og véiðarfæradeild FAO. Þegar Hilmar Kristjónsson hafi verið yfir- maður sjávarútvegstæknideildarinn- ar hafi hann fengið marga íslendinga til starfa hjá stofnuninni. Flestir þeirra hafi verið reyndir skipstjóraðr og/eða fiskimenn, sem ýmist hafi unnið sem verkefnisstjórar í verkefn- um víða um heim, eða sem sérfræð- ingar í höfuðstöðvum FAO í Róm. Hann segir að fjöldi fulltrúa sem komist að hjá FAO sem sérfræðingar eða yfirmenn ráðist m.a. af greiðslum viðkomandi lands til FAO og íslend- ingar eigi möguleika á að koma að einum starfsmanni, til þess að full- nýta „kvóta“ sinn hjá stofnuninni. „í ljósi þeirrar sérstöðu sem við íslendingar teljum okkur gjarnan hafa umfram aðrar þjóðir á sviði sjávarútvegs er ekki fráleitt að halda fram þeirri skoðun að hagsmunum okkar innan FAO verði best borgið innan sjávarútvegsdeildarinnar," segir. í skýr,slu Þorgeirs. Og síðar segir: „Við höfðum áður fyrr sterk ítök innan sjávarútvegsdeildarinnar, þar sem þekking og kunnátta íslend- inga nýttist hvað best. Þeir starfs- menn sem unnu hjá FAO búa yfír mikilli reynslu óg þekkingu sem verð- ur að virkja, þótt markmið okkar hljóti að vera fyrst og fremst: að koma íslenskum starfsmanni í áhrifastöðu innan sjávarútvegsdeild- ar FAO. Til þess þarf skilning stjómvalda á nauðsyn og mikilvægi slíks starfs- manns. Það þarf vilja og áhuga stjórnvalda á að veita slíku máli framgang ...“ í niðurlagi skýrslu sinnar segir Þorgeir m.a.: „Hlutdeild okkar í þró- unarverkefnum á vegum FAO er vitaskuld í hlutfalli við framlög okk- ar. Greiðslur okkar til FAO eru þó aðeins hluti af þeim fjánnunum sem íslenska ríkisstjórnin hefur skuld- bundið sig til að greiða. Á árunum 1990-1992 hafa greiðslur okkar til FAO einungis numið 6,0-6,9 milljón- um króna á ári af heildarframlögum ríkisstjómarinnar til þróunaraðstoð- ar. Má ljóst vera, að svo lítil upphæð ... gefur vart tilefni til mikilla áhrifa innan stofnunarinnar. Heildarframlag okkar tii þróun- araðstoðar átti samkvæmt loforði stjórnvalda að vera 0,7% til 1% af þjóðartekjum, eða um tveir milljarðar á ári. Við þessi framlög hefur því miður ekki verið staðið og er hlut- fall framlags okkar til þróunarmála aðeins 0,07% af þjóðartekjum ... Undir lok skýrslu sinnar segir Þorgeir að þótt erfitt sé að spá fyrir um þátt FAO í þróunarverkefnum komandi ára sé auðveldara að sjá fyrir hvert hlutverk íslands verði á þessum vettvangi í framtíðinni, því Islendingar ráði sjálfir miklu um sitt hlutverk. „Viljum við auka greiðslur okkar til FAO og vinna markvisst að því að koma fulltrúum okkar í ábyrgðarstöður, þannig að þekking okkar og reynsla í sjávarútvegsmál- um komist fram í sviðsljósið að nýju?“ spyr skýrsluhöfundur. „Þetta eru ekki faglegar spurningar heldur snúast þær fyrst og fremst um „póli- tískar" ákvarðanir," segir hann. Lokaorð höfundar eru þessi: „Því er lagt til, að í kjölfar aukinnar fjár- framlaga til FAO verði Sameinuðu þjóðunum boðið að staðsetja mark- aðsathugana- og upplýsingadeild sjávarútvegsdeildar FAO, Globefish, á íslandi. Þannig verði tekið fyrsta skrefið í þá átt að gera ísland að alþjóðlegri upplýsingamiðstöð fyrir sjávarútveg í heiminum." ínu Lárusdóttur myndlistarmanns. Hann hefur stundað listnám í Bis- hop’s Stortford College, Ruskin School í Oxford og University of Greenwich í London frá 1978 og til þessa dags. Þetta er fyrsta einkasýning Stephen hér á landi og stendur hún til þriðjudagsins 22. september. Gallerí Borg er opið alla daga vik- unnar kl. 14 til 18. (Fréttatilkynning) Viggó E. Maack lætur af störfum eftir 45 ár hjá Eimskip. Yiggó E. Maack lætur af störfum hjá Eimskip VIGGÓ E. Maack skipaverkfræð- ingur hefur látið af störfum hjá Eimskip eftir 45 ára starfsferil hjá félaginu. Við stöðu hans sem forstöðumanns skiparekstrar- deildar tekur Ásbjörn Skúlason. Viggó réðst til Eimskips strax að loknu námi frá MIT í Bandaríkjunum árið 1947. Hann hefur alla tíð haft yfirumsjón með tæknilegum rekstri skipa félagsins auk þess að hafa umsjón með flestum byggingafram- kvæmdum félagsins í landi. Viggó mun áfram sinna ýmsum sérverkefn- um hjá félaginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.