Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 45
45 I I I I I I ) ) i i > > > MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 ÍÞROTTIR UNGLINGA / ÍSLANDSMÓTIÐ í KNATTSPYRNU Þrennaní höfn hjá ÍA ÍA tryggði sér íslandsmeist- aratitilinn í 2. flokki með sigri á Fram 3:2 í síðustu umferð A-deildarinnar. Akurnesingar unnu þvítil gullverðlauna á öllum þremur landsmótunum í ár. Liðið varð íslandsmeist- ari innanhúss í vetur, bikar- meistari í síðasta mánuði og íslandsbikarinn utanhúss bættist í safnið sl. fimmtudag. Sigur Skagamanna var örugg- ari en tölurnar gefa til kynna, liðið hafði 2:0 yfír í leikhléi með mörkum Kára Steins Reynis- sonar og Kristins Ellertssonar. Amar Gunnlaugsson bætti síðan þriðja marki ÍA við í upphafí síð- ari hálfleiksins. En Framarar sóttu í sig veðrið í síðari hálfleiknum og skoruðu tvö mörk, það síðara fímm mínutum fyrir leikslok. „Við byrjuðum ekki vel í mótinu og eftir markalaust jafntefli við Breiðablik missti ég endanlega trúnna á að við gætum orðið meist- arar. En þegar Víkingar og Vest- manneyingar fóru að tapa stigum fékk ég trúnna að nýju,“ sagði Sturlaugur Haraldsson, leikmaður ÍA eftir að meistaratitillinn var í höfn. „Minnistæðasti leikur sumars- ins var gegn KR, við vorum undir 0:1 í hálfleik en snerum leiknum okkur í hag og unnum 4:1. Ég held að sterk liðsheild og góður þjálfari séu lykillinn að þessum árangri," sagði Sturlaugur. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Leikmenn ÍA i 2. flokki virða fyrir sér íslandsbikarinn sem þeir fengu afhentan eftir sigurinn á Fram. Á neðri myndinni halda þeir Sturlaugur Haraldsson og Kári Steinn Reynisson á þeim þrem- ur bikurum sem liðið vann á árinu. KNATTSPYRNA / DRENGJALANDSLIÐ Leikur með unglingaliði Werder Bremen í Þýskalandi Björgvin Magnússon hefur búið í Þýskalandi frá fjögurra ára aldri en er kominn í íslenska drengjalandsliðið BJÖRGVIN Magnússon, fimmtán ára knattspyrnumaður eru í stöðu sem að f lestir jaf naldrar hans mundu gefa mikið fyr- ir að vera í. Björgvin fær greitt fyrir að leika knattspyrnu með unglingaliði Werder Bremen í Þýskalandi. Björgvin gerði þriggja ára samning við félagið og er á sínu fyrsta ári en hann hefur búið í Bremenhaven frá fjögurra ára aldri þar sem faðir hans, Magnús Björgvinsson er skipahöndlari. „Mér er bannað að tala um samninginn en get sagt að ég fæ greiðslur fyrir að leika knatt- spyrnu þó að þær séu ekki háar,“ sagði Björgvin sem er í B-ungling- aliði Bremen en í því eru ungling- ar á aldrinum 15-16 ára. Honum hefur vegnað vel það sem af er. Lið hans hefur leikið þrjá leiki og Björgvin er markahæstur enn sem komið er með sjö mörk. Boðaður á æfingu Þjálfarar drengjalandsliðsins, þeir Þórður Lárusson og Kristinn boðuðu Björgvin á landsliðsæfíngu í síðustu viku en þeir fréttu reynd- ar af Björgvini fyrir hreina tilvilj- un. Kristinn var að fylgjast með leik í 1. deildinni þegar hann rakst á Þorfinn Hjaltason, fyrrum mark- vörð sem nú er sjómaður og siglir til Bremenhaven. Þorfínnur hafði hitt Magnús, föður hans og talið barst af drengnum. Það leiddi síð- an til þess að þeir Þórður og Krist- inn fengu menn til að líta á Björg- vin og í framhaldi af því var hann boðaður á æfíngu. „Ég vildi ekki trúa því að ég hefði verið valinn og hélt að pabbi væri að plata mig,“ sagði Björgvin sem kvaðst hafa verið hissa yfír valinu. „Hann er líkamlega sterkur og mjög fljótur sóknarmaður sem ætti að geta styrkt lið okkar,“ sagði Þórður um Björgvin sem þegar hefur tekið fram skotskóna með drengjalandsliðinu. Hann skoraði annað mark liðsins í 2:2 jafntefli í æfingaleik í vikunni gegn 3. flokki UBK sem var styrktur með leikmönnum úr öðr- um liðum. Frammistaða Björgvins fór ekki fram hjá Þjóðveijum sem völdu hann í U-16 ára landsliðshóp sinn en síðan kom í ljós að hann var íslenskur og því ekki boðlegur með þýska liðinu. Þjóðveijar reyndu að fá Björgvin til að skipta um ríkis- fang og gerast þýskur ríkisborg- ari. Hann var alvarlega að hugsa um það en eftir að kallið kom að heiman er velkist hann ekki í vafa lengur. íslenskur verður hann áfram. Björgvin Magnússon hefur verið á skotskónum í Þýskalandi. Lokastaðan 2. FLOKKUR KARLA A-DEILD IIBK - Þróttur 2:1 ÍA - Fram.... 3:2 ÍBV - Víkimnir 1:3 ÍBK - KR..... 0:2 ÍA ..14 10 2 2 47:15 32 Víkingur ..14 10 1 3 51:18 31 ÍBV ..14 8 4 2 45:22 28 KR ..14 8 2 4 34:16 26 Fram ..14 6 2 6 46:26 20 UBK ..14 4 1 9 21:42 13 ÍBK ..14 4 0 10 25:42 12 Þróttur ..14 0 0 14 9:97 0 ■UBK bjargaði sér frá falli með sigri á Þrótti i síðuStu umferðinni. ÍBK fellur ásamt Þrótti. B-DEILD Þór-fR KA - Fvlkir. 13:1 FH - Selföss 11:1 KA .14 12 0 2 73:17 36 Valur .14 9 0 5 33:23 27 FH .14 8 2 4 41:22 19 Stjarnan .14 7 2 5 39:21 23 ÍR .14 7 16 35:42 22 Þór .14 5 18 30:37 16 Selfoss .14 2 1 11 17:81 7 Fylkir .14 1 3 10 22:47 6 ■KA og Valur unnu sér rétt til að leika f A-deild á næsta sumari. Sei- foss og Fylkir féllu niður. C-DEILD Fjölnir - Grindavík 3:6 Leiknir - Haukar 1:2 Grótta - Reynir 4:2 Haukar ...12 9 0 3 36:18 27 Grótta ...12 7 2 3 22:13 23 Grindavík... ...12 5 4 3 30:18 19 HK ...12 5 3 4 35:23 18 Reynir S ...12 5 2 5 29:31 17 Leiknir ...12 5 1 6 27:23 16 Fjölnir ...12 0 0 12 11:74 0 ■Haukar og Grótta leika í B-deild næsta sumar. KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Kristinn ísiandsmelstarar Vals i 1. flokki karla. Efri röð frá vinstri: Ólafur Már Sigurðsson stjómarmaður, Jón S. Helga- son, Bergþór Magnússon fyrirliði, Gunnar Gunnarsson, Einar Páll Tómasson, Flosi Helgason, Sævar Gylfason, Baldur Bragason, Gunnlaugur Einarsson, Sævar Hjálmarsson, Hilmar Árnason, Ólafur Magnússon þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Ágúst Gylfason, Kjartan Hjálmarsson, Hörður Már Magnússon, Ólafur Brynjólfsson, Sigurbjöm Hreiðarsson, Arnaldur Loftsson og Tryggvi Valsson. Valur meistari 1. flokks %#alsmenn urðu íslandsmeistarar i 1. flokki sem lauk fyrir skömmu “ en þeir unnu sex leiki á mótinu og gerðu eitt jafntefli, gegn ÍA. Liðið sigraði KR 2:1 í síðasta leik mótsins. „Baráttan var mikil um sæti í meistaraflokki og því gátum við stillt upp sterku liði í fyrsta flokki. Stemmingin var alltaf góð hjá okkur og Ólafur Magnússon á þakkir skildar fyrir að halda vel utan um hóp- inn,“ sagði Bergþór Magnússon, fyrirliði Vals. Haustæfíngar hefjast í öllum flokkum laug- ardaginn 12. september kl. 10.30 á túninu sunnan við Laugardalslaugina. Kynningarfundur í Gerðubergi mánud. 14. sept. kl. 20.30. Þar mæta þjálfararnir (sömu og í fyrra) Gunnar, Pétur, Sigrún og Bjami. Nýir krakkar og unglingar velkomnir. Skíðadeild ÍR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.