Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 Morgunblaðið/Þorleifur Frá vinstri: Sr. Bolli Gústavsson vígslubiskup, sr. Sigurpáll Oskarsson, sr. Hjálmar Jónsson prófastur, sr. Vigfús Þór Árnason, sr.Bragi J. Ingibergsson og Katrín Ellertsdóttir meðhjálpari. Á myndinni til hægri er Árgangur 1932 frá Siglufirði. Siglufjarðarkirkja 60 ára vígsluafmæli SEXTÍU ára vígsluafmælis Siglufjarðarkirkju var minnst í kirkjunni sunnudaginn 30. ágúst sl. en hún var vígð 28. ágúst árið 1932. Þá var sr. Bjarni Þorsteinsson sóknarprestur á Siglu- firði og undir hans forystu var lagt í stórt verkefni á kreppuár- unum þegar kirkjan var byggð, því hún tekur 400 manns í sæti. Átta prestar hafa þjónað Siglu- fjarðarkirkju og voru tveir þeirra við hátíðarguðsþjónustuna á af- mælishátíðinni, sr. Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafar- vogi, og sr. Bragi J. Ingibergsson, núverandi sóknarprestur. Auk þeirra þjónuðu fyrir altari sr. Hjálmar Jónsson prófastur, sr. Sigurpáll Óskarsson, Hofsósi, og sr. Bolli Gústavsson vígslubiskup, en hann flutti einnig prédikun. Kirkjukór Siglufjarðarkirkju söng undir stjórn Rögnvaldar Val- bergssonar og Jóhann Már Jó- hannsson söng einsöng. Kirkju- gestum var síðan boðið upp á veitingar í safnaðarheimilinu að hátíðarguðsþjónustu lokinni. Meðal kirkjugesta var hópur skólasystkina frá Siglufirði sem fædd eru á vígsluári kirkjunnar. Þau mættu til guðsþjónustu eins og þau gerðu einnig á 50 ára af- mæli kirkjunnar árið 1982, þegar safnaðarheimilið á kirkjuloftinu var vígt. Kirkjunni bárust margar góðar gjafir og m.a. peningagjafir í org- elsjóð, en nú er unnið að því að safna fyrir nýju pípuorgeli. í til- efni afmælisins og til styrktar orgelkaupunum lét sóknarnefnd gera minjagripi í tölusettum ein- tökum, sem seldir voru á hátíð- inni. Að lokum má til gamans geta þss að eftir nær stanslausar rign- ingar þá stytti upp á meðan á hátíðarguðsþjónustunni stóð og hélst þurrt fram eftir degi, eða þar til hátíðinni var lokið og fólk- ið komið heim eftir eftirminnileg- an dag í kirkjunni sinni, segir í frétt frá sóknarpresti. Skátafélagið Klakkur Fálkafellsveisla og skátaþing um helgina ÞAÐ VERÐUR mikið um að vera hjá skátum á Akureyri um kom- andi helgi, en á föstudagskvöld verður hin árlega Fálkafellsveisla og á laugardag verður haldið skátaþing. Tilefni Fálkafellsveislu er vígsla dróttskáta og opnun á Fálkafelli veturinn 1992-1993. Að þessu sinni er mæting við Pásustein kl. 20.30 annað kvöld, föstudags- kvöldið 11. september, en þaðan verður gengið upp í Fálkafell und- ir kyndlum. Boðið verður upp á veitingar og kvöldvöku og eru allir dróttskátar hvattir til að taka þátt í veislunni og hafa með sér söng- röddina, pláss í maga og skátabún- inginn. Skátaþing verður sett í Verk- menntaskólanum á Akureyri laug- ardaginn 12. september kl. 10, en skátaþing er samkoma þar sem skátaforingjar af öllu landinu hitt- ast og ræða málin. Þingið stendur til kl. 16 á sunnudag. Meginmálefni þessa skátaþings er að fjalla um og marka fram- tíðarstefnu skátahreyfíngarinnar og að kynna næsta landsmót skáta sem haldið verður í Kjarnaskógi við Akureyri dagana 25. júlí til 1. ágúst á næsta ári. Rétt til setu á skátaþingi hafa allir skátar 16 ára og eldri og eru þeir hvattir til að taka þátt í þing- inu. (Fréttatilkynning) MTC peningaskápar með kortalásum, tölvulásum og talnalásum. Kynningarverð frá kr. 22.440,-. LVUTÆKI Furuvöllum 5, Akureyri. Sími 96-26100. ¥I3TÆKNIVAL Skeifunni 17, Reykjnvík. Sími 91-681665. Morgunblaðið/SPB Frá haustmarkaði Héraðssambands Þingeyinga á Laugum. Haustmarkaður HSÞ á Laugum Húsavík. HAUSTMARKAÐUR Héraðssambands Þingeyinga, Laugamarkaður- inn, var haldinn um síðustu helgi og mættu þar margir og mikið var selt. HSÞ gekkst fyrir samskonar markaði síðastliðið vor og þótti hann vel takast svo efnt var til haustmark- aðar og útlit er fyrir að slíkur mark- aður verði fastur liður í starfsemi Gangbrauta- varsla í byrjun skólaárs ÁKVEÐIÐ hefur verið að gera tilraunir með gangbrautavörslu við aðkomuleiðir að grunnskól- unum í haust. Fyrirhugað er að gangbrautaverð- ir verði á nokkrum viðkvæmum stöð- um í bænum, á morgnana, um há- degið og þegar börnin eru á heim- leið síðdegis. Stefnt er að því að þessi þjónusta hefjist í lok þessarar viku og verði í fjórar til sex vikur. Vonast er til að þessi þjónusta tryggi betur öryggi yngstu skóla- barnanna í og úr skóla fyrstu vikur skólaársins, á meðan þau eru að venjast leið sinni frá heimili til skóla Og til baka. (Fréttatilkynning) sambandsins. Forystumenn þess segja að tilgangur markaðarins sé ekki eingöngu sölumarkaður, heldur og að stefna Þingeyingum saman til skrafs og ráðagerða og svo til að sýna, sjá og selja ýmsan heimilisiðn- að en hann er fjölbreyttari en maður skyldi halda. Á markaðinum var hið fjölbreytt- asta vöruúrval, auk heimaunninna hluta var haustuppskeran á boðstól- um, kartöflur, rófur, berjasulta, flat- brauð, heimabakað rúgbrauð og fleira. Eins og á flestum mörkuðum voru einnig gamlir en nýtilegir hlut- ir boðnir falir. Jafnframt fór fram afhending ýmissa verðlauan sem unnið hafði verið til á vegum HSÞ á liðnu sumri og ekki höfðu áður veri afhent. - Fréttaritari Leiðrétting Aðalfundur Kammerhljómsveitar Akureyrar verður haldinn miðviku- dagskvöldið 16. september næst- komandi á sal Tónlistarskólans á Akureyri, en dagsetning fundarins var ekki rétt í frétt blaðsins í gær. Skoðanakönnun DV: Stj órnarflokk- arnir bæta við sig en Alþýðu- bandalag tapar Rúm 35% segjast styðja ríkisstjórnina SAMKVÆMT skoðanakönnun sem DV birti í gær bæta ríkis- stjórnarflokkarnir við sig nokkru fylgi, Kvennalistinn bæt- ir við sig 2,7% fylgi frá síðustu könnun blaðsins sem gerð var í júní en Alþýðubandalagið tapar miklu fylgi frá síðustu könnun. I sömu könnun sögðust 35,3% styðja ríkisstjórnina, sem er álíka fylgi og stjórnin fékk í júnikönnun, 53,2% sögðust and- vígir ríkisstjórninni en 11,5% neituðu að svara eða sögðust óákveðnir. Samkæmt kosningaspá blaðsins er fylgishlutfall Alþýðuflokksins nú 12,3%, sem er 1,2 prósentustig- um meira en í júníkönnuninni en flokkurinn fékk 15,5% fylgi í síð- ustu alþingiskosningum. Fram- sóknarflokkurinn fær nú 27,3% sem er 0,5% meira fylgi en í júní en hann fékk 18,9% í síðustu kosn- ingum. Sjálfstæðisflokkurinn fær 33,3% sem er 2% meira en í júní en flokkurinn fékk 38,6% í kosn- ingunum. Alþýðubandalagið fær 13,6% og fellur úr 20% frá í júní en flokkurinn fékk 14,4% í síðustu kosningum. Kvennalistinn mælist með 13,4% fylgi sem er aukning um 2,7% frá í júní en Kvennalistinn fékk 8,3% í alþingiskosningunum. Úrtakið í könnuninni voru 600 manns. Óákveðnir voru 32,8% og 3,3% svöruðu ekki spurningunni um fylgi flokkanna. ----» ♦ ♦--- Menntaskólinn við Sund -------- —__ » Nýnemar boðn- ir velkomnir SKÓLAFÉLAG Menntaskólans við Sund stendur I dag kl. 12.30 fyrir svokölluðu Busli, en það er hátíð þar sem nýnemar eru boðnir velkomnir í skólann. í bakgarði skólans verður komið fyrir sviði þar sem hljómsveitin Sirkus Babalú treður upp með söngkonuna Ingibjörgu Stefáns- dóttur fremsta í flokki. Einnig verður boðið upp á ýmsar veiting- ar, grillaðar pylsur, kökur og kók. Þess má geta að skólinn hefur fengið á sig nýja og breytta mynd en hann var málaður í sumar. í kvöld leggja flestir nýnemar leið sína í Perluna og borða þar saman góðan mat og síðan á Hótel Island þar sem hljómsveitin Sálin hans Jóns míns skemmtir nemendum fram eftir nóttu. Lögreglan leitar vitna Rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum að árekstri sem varð í Engidal, á mótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar fimmtudag- inn 27.- ágúst síðastliðinn klukkan 18.15. Þar rákust saman Datsun- bíll og Subaru-bíll og greinir ökumenninan á um stöðu um- ferðarljósa á gatnamótunum þegar árekstur varð. Lögreglan óskar því etir að vitni sem kunna að hafa séð áreksturinn hafi við sig samband.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.