Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 > * Tillaga Utflutningsráðs Islands Sameinuðu þjóðunum boðið að flytja upp- lýsingadeild til Islands ÞORGEIR Pálsson, markaðsathugunarstjóri Útflutningsráðs ís- lands, telur að áhrif íslendinga innan Matvæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafi farið þverrandi undan- farin ár og vill því að reynt verið að koma íslendingi í áhrifastöðu í sjávarútvegsdeild FAO á ný. Þetta kemur fram í skýrslu sem Þorgeir hefur samið fyrir Útflutningsráð um ísland og FAO, eftir þriggja mánaða dvöl í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Róm. Auk þess leggur Þorgeir til að í kjölfar aukinna fjárframlaga til FAO verði Sameinuðu þjóðunum boðið að staðsetja markaðsathug- ana- og upplýsingadeild sjávarút- vegsdeildar FAO, Globefish, á ís- landi. „Þannig verði tekið fyrsta skrefið í þá átt að gera ísland að alþjóðlegri upplýsingamiðstöð fyrir sjávarútveg í heiminum," segir í skýrslu Þorgeirs. Skýnngar Þorgeirs á því að áhrif íslendinga innan þessarar stofnunar Sameinuðu þjóðanna hafa farið þverrandi eru þær að ísland hafí ekki greitt það hlutfall þjóðartekna til þróunaraðstoðar, sem það hafi þó skuldbundið sig til að greiða. „Heildarframlag okk- ar til þróunaraðstoðar átti sam- kvæmt loforði stjómvalda að vera 0,7% til 1% af þjóðartekjum, eða um tveir milljarðar á ári. Við þessi framlög hefur því miður ekki verið staðið og er hlutfall framlags okk- Afkoma 13 rækju- vinnslustöðva Heildartap 167 millj. kr. í NÝRRI afkomuathugun á 13 rækjuvinnslustöðvum árið 1991 sem Rannsóknarstofnun Háskól- ans á Akureyri hefur gert kemur m.a. í (jós að heildartap þeirra á síðasta ári nam 167 milljónum króna eða tæplega 8% af veltu. Mikill munur er á þeim stöðvum sem sýna besta afkomu og verstu afkomuna. Þannig var tap þeirra fimm bestu aðeins 7% af heild- inni en þeirra fímm verstu var 61% af heildinni. Samkvæmt athuguninni liggur munurinn á þessari afkomu einkum í mismunandi verði á hráefni og launakostnaði. Munur á hlutfalli hráefniskostnaðar af framleiðslu- verðmæti liggur á bilinu 59,6% upp í 73,1% og hlutfall launakostnaðar af framleiðsluverðmæti liggur á bil- inu 11,7% upp í 26,5%. I athugun- inni segir: „Þannig er bilið milli mesta og minnsta launakostnaðar 14,8% sem verður að teljast mjög mikið þegar meðal launahlutfall er 15,6%.“ Sjá einnig frétt á miðopnu. ar til þróunarmála aðeins 0,07% af þjóðartekjum," segir í skýrstu Þorgeirs. Hann segir jafnframt að menn í áhrifa- og stjómunarstöð- um innan FAO séu ráðnir í ákveðnu hlutfalli við fjárframlög landa þeirra til þróunaraðstoðar og það segji _sig sjálft að þær upphæðir sem ísland láti af hendi rakna til FAO, um 6 til 6,9 milljónir króna á ári, séu ekki líklegar til að leiða til aukinna áhrifa og valda. Sjá Af innlendum vettvangi á miðopnu. Hákarl með súkkulaðihúð Morgunblaðið/Kristinn Busavígslur fara þessa dagana fram í framhaldsskól- um landsins. Þessar móttökuathafnir nýnema eru með ýmsu móti. í Kvennaskólanum í Reykjavík er busunum gefinn hákarl sem lítur út eins og konfekt vegna þess að hákarlinn hefur verið húðaður með súkkulaði. Tillögur stjórnar Verktakasambands íslands Framkvæmdir aukist um átta milljarða króna á árinu 1993 Stórt mál sem þarf að ræða, segir borgarstjóri í TILLÖGUM stjórnar Verktakasambands íslands sem kynntar hafa verið ríkisstjórninni og forsvarsmönnum borgar og sveitarfé- laga, er gert ráð fyrir að verklegar framkvæmdir á vegum hins opinbera aukist um fimm milljarða á árinu 1993 og heildaraukning verði 8 milljarðar kr. í tillögunum er gert ráð fyrir að flýtt verði fjárfestingum í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er lagt til að gerðar verði breytingar á húsbréfakerfinu. I spá hag- deildar Félags íslenskra iðnrekenda fyrir VÍ kemur fram að lands- framleiðsla ykist um 2,5% á næsta ári yrði tillögunum hrundið í framkvæmd. . í tillögunum er gert ráð fyrir að ríki og sveitarfélög taki fjóra milljarða kr. að láni erlendis til að íjármagna framkvæmdir og einn milljarður verði fenginn með því að fresta fyrirhuguðum fjárfest- ingum ríkisins í tækjum og búnaði. Lagt er til að ríkið vetji tveimur milljörðum kr. til að flýta nýfram- kvæmdum í vegagerð, þar af ein- um milljarði kr. til hringvegarins og sömu fjárhæð til framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Þá er lagt til að ríkið verji einum milljarði kr. í byggingu ríkisfangelsis og til að ljúka framkvæmdum í SS-húsinu. Lagt er til að Reykjavíkurborg taki um 1,5 milljarða kr. erlent lán til að flýta framkvæmdum á næsta ári, þar af færi einn milljarður til byggingar Ósabrautar og tveggja hæða gatnamóta á mótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar. Lagt er til að framkvæmdum við byggingu fímm leikskóla og breyt- ingu á Laugardalshöll verði flýtt auk annarra verkefna. Lagt er til að stærri sveitarfélög- in á höfuðborgarsvæðinu hraði framkvæmdum við sameiginlega fráveitu höfuðborgarsvæðisins og veiji til þess 500 milljónum kr. sem tekið verði að láni erlendis. Þá er lagt til að einkaaðilar taki að sér framkvæmd og fjármögnun tvö- földunar Reykjanesbrautar, en áætlaður kostnaður er 1.550 millj- ónir kr. Verkið yrði fjármagnað á árinu 1993 með erlendu lánsfé, 0,5-1 milljarður kr., og innlendu og erlendu áhættufé, 0,3-0,5 millj- arðar kr. Lagt er til að lánshlutfall í hús- bréfakerfínu til þeirra sem kaupa í fyrsta sinn verði aukið úr 65% í 80% af kaupverði íbúðar. 80% láns- hlutfall getur, að mati VÍ, aukið íbúðabyggingar um 300 á næsta ári. Breytingin hefði í för með sér 2 milljarða aukningu í húsbréfaút- gáfu hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. í mati á áhrifum tillagnanna kemur fram að framkvæmdakostn- aður yrði alls 8 milljarðar kr. Árs- verk yrðu 1.940 og beinar og óbeinar tekjur hins opinbera rúmir 5 milljarðar kr., þar af 1.164 milljónir kr. í sparnaði atvinnuleys- istryggingasjóðs, annað í formi beinna og óbeinna skatta. Þórarinn V. Þórarinsson, sem sæti á í atvinnumálanefnd ríki- stjómar, aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa sveitarfélaga, segir að nefndin sé þeirrar skoðunar að það geti verið skynsamlegt að efna til fjárfestinga í samgöngukerfínu sem miðuðu að því að gera þjóðfé- lagið samkeppnisfærara. „Tillögurnar hafa ekki verið ræddar ennþá, enda nýtilkomnar. Ég geri ráð fyrir að þær verði lagð- ar fyrir í borgarráði til kynningar á þriðjudag. Það er bent á ýmsa framkvæmdaþætti en jafnframt talað um stórfelldar lántökur. Þetta er stórt mál sem þarf að ræða,“ sagði Markús Öm Antons- son borgarstjóri. Hagræðingarsjóður Allt að 567 míllj. kr fyrir kvóta sjóðsins FYRIR 12 þúsund tonna aflaheimildir Hagræðingarsjóðs sjávarút- yegsins í þorskígildum fást 553-567 miHjónir króna, miðað við verð á aflakvóta 17. ágúst sl., samkvæmt fréttabréfi Landssambands ís- lenskra útvegsmanna. Miðað var við að 525 mil(jónir fengjust fyrir kvótasölu úr Hagræðingarsjóði í haust en mikið hefur verið rætt um það að undanförnu að þetta markmið næðist ekki. Aflaheimildir sjóðsins eru 18.300 tonn af fiski upp úr sjó á yfirstandandi fiskveiði- ári. Þar af eru 7.400 tonn af þorski, 2.300 af ýsu, 3.300 af ufsa, 3.700 af karfa, 1.100 af grálúðu og 500 tonn af skarkola. Orgelsmiði Grein eftir Hörð Askelsson organista sem hvetur fólk að koma íHallgríms- kirkju ogsjá með eigin augum orgel- smlðina sem brátt hefur tekið á sig- endanlega mynd 11 Meint símtal Díönu______________ Aldraði hankamaðurinn sem seldi símtalið iðrast að hafa látið græðgina ná tökum á sér 23 Leiðari Sóknarfæri í sjávarútvegi 24 SÖQUMENN wgssaii Viðskipti/Atvinnulíf Á Dagskrn ► íslensku húsgagnaiðnaður í varnarstöðu - Miklir möguleik- ara íslendinga á Kamtsjatka - Breskir ráðgjafar mæla með ráðstefnumiðstöð ► Mútur í bandarískum hafnar- bolta - Morse lögreglufulltrúi aftur á skjáinn - Afmælisrokk Vífilfells - Aströlsk björgunar- sveit - Frumlegar froskalappir „Einungis einn af 546 smábátum á aflamarki hefur forkaupsrétt að aflaheimildum Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins, þar sem skip þurfa að hafa fengið úthlutað a.m.k. 179 tonna aflakvóta í þorskígildum til að eiga þennan forkaupsrétt," segir Örn Pálsson framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hann segir að samkvæmt reglu- gerð um Hagræðingarsjóð frá 2. mars sl. eigi skip forkaupsrétt að aflaheimildum sjóðsins í samræmi við aflahlutdeild hvers skips af hverri tegund en nemi samanlagður aflakvóti, sem útgerð skips eigi for- kaupsrétt að, minna en 7 tonnum í þorskígildum falli forkaupsréttur- inn niður. Skip, sem nái þessu 7 tonna marki, geti þannig fengið samtals 1.369 tonna kvóta í þorsk- ígildum úr Hagræðingarsjóði frá þeim, sem nái markinu ekki, eða 11,4% af heildarkvóta sjóðsins. Örn segir að af þessum 1.369 tonnum færist samtals 630 tonn smábátum en forkaupsréttur aflaheimildum Hagræðingarsji falli einnig niður hjá 127 bátum sérveiðiheimilda vegna ofangreir ákvæðis, svo og hjá 43 af 45 b um, sem hafí leyfí til rækjuveið Isafjarðardjúpi og Húnaflóa. Bá án sérveiðiheimilda verði þannig rétti til að kaupa samtals 400 tc í þorskígildum af kvóta sjóðsins „Kvótinn færist þannig frá sn bátum og bátum til togaranna þeir hafa ekki náð að veiða up sinn kvóta og hafa því fengið b: til að veiða fyrir sig. Þar sem sn bátar veiða aðallega þorsk var kv þeirra skertur nú í haust um : að 28,5% og ef smábátaeigem fá senda peninga til að mæta kvó skerðingunni hef ég ekki heyrí þeim annað en að peningarnir æ að ganga til kvótakaupa. Það eini möguleikinn fyrir þá til að 1 af,“ fullyrðir Örn Pálsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.