Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 11 Orgelsmíði í Hallgrí mskirkj u eftir Hörð Askelsson Það er ótrúlega spennandi að koma í Hallgrímskirkju þessa dag- ana. Yfir inngöngudyrum í turnrými er að rísa stærsta og voldugasta hljóðfæri íslendinga. Tignarlegir eikarturnar og silfurgljáandi orgel- pípur, þær stærstu 10 metra lang- ar, gnæfa á bak við net af vinnu- pöllum. Frá því í byrjun júlí hafa fjórir þýskir orgelsmiðir unnið kappsamlega við að fella saman tré og tré, tengja pípu og vind, nótu og loftloka, allt eftir kúnstarinnar reglum, sem margra alda orgel- smíði hefur framkallað. Kirkjugest- ir og þúsundir ferðamanna í Hall- grímskirkju hafa lýst hrifningu sinni á stórfengleik þess sem fyrir augu ber. Þeir sem fylgst hafa með smiðunum dást að handbragðinu. Nú á fyrstu dögum september mánaðar er orgelhúsið, sem smíðað er úr gegnheilli eik, nær fullgert og orgelpípur farnar að raðast í, en þær eru 5.275 að tölu af öllum „Ég vil leyfa mér að hvetja fólk til að koma í Hallgrímskirkju og sjá með eigin augum smíð- ina, sem brátt hefur tekið á sig endanlega mynd. Þar er hægt að ganga frá kaupum á orgelpípum.“ stærðum. Samtímis orgeluppsetn- ingunni fara fram aðgerðir til leið- réttingar á hljómburði Hallgríms- kirkju, m.a. með smíði bólstraðra kirkjubekkja. Framkvæmdin hefur kallað á fjölda vinnandi handa í Orgelsmiðir: Giinther Schumac- her við pipur. Hans Kraemer við hljómborð. Myndir/Kristinn langan tíma. Kostnaður er orðinn miklu meiri en Hallgrímssöfnuður einn ræður við. Kallað hefur verið eftir hjálp og margir hafa svarað kalli. í mörg hefur verið safnað fé í orgelsjóð og skipta gefendur þús- undum. Síðustu tvö árin hefur kjör- orð söfnunarinnar verið „gefum orgelpípu“. Fólki og fyrirtækjum hefur verið gefinn kostur á að kaupa einstakar orgeipípur til að gefa kirkjunni og leggja orgelinu til sinn persónulega tón. Með þess- um hætti hafa selst um 1500 pípur að andvirði um 15 milljónir króna. Nöfn gefendanna og þeirra sem gjafírnar eru tileinkaðar verða varð- veitt svo lengi sem pípurnar hljóma um langa framtíð. Við forráðamenn orgelsöfnunarinnar gleðjumst dag- lega með gefendum og þökkum fyrir hveija gjafapípu sem bætist í safnið. Við erum þó ekki áhyggju- lausir vegna þeirra háu upphæða sem Hallgrímssöfnuður á enn eftir að greiða vegna orgeisins og hljóm- burðaraðgerðanna. Hinar mörgu óseldu pípur geta létt byrðina veru- lega, andvirði þeirra nálgast að vera 30 milljónir króna. Við trúum því að enn séu margir á meðal okk- ar, innan og utan Hallgrímssóknar, sem þrátt fyrir ásetning hafa ekki komið því í verk að kaupa pípu. Ég vil leyfa mér að hvetja fólk til að koma í Hallgrímskirkju og sjá með eigin augum smíðina, sem brátt hefur tekið á sig endanlega mynd. Þar er hægt að ganga frá kaupum á orgelpípum. Einnig er hægt að hringja í síma kirkjunnar og panta pípur. Pípurnar eru flokk- aðar eftir stærð og tónhæð, þær ódýrustu á 2.000 krónur og þær dýrustu 25.000. Markmiðið er að selja allar pípurnar fyrir 13. desem- ber nk., en þann dag er fyrirhugað að vígja þetta mesta hljóðfæri ís- lands. Þegar kemur lengra fram á haustið fara fyrstu tónarnir að heyrast í Hallgrímskirkju og þ. 13. desember munu flóðgáttir tónahim- ins opnast og helgidómurinn fyllast af þeim margbreytilegu litum sem drottning hljóðfæranna ein getur framkallað. Þá verður mikil hátíð í kirkju Hallgríms Péturssonar. Höfundur er organisti Hallgrímskirkju. VERÐLÆKKUN Gerðu raunhæfan samanburð á verði og gæðum. Accord er sérlega vandaður og vel heppnaður bíll jafnt að utan sem innan. Verð eftir lækkun: Accord EX með sjálfskiptingu: 1.518.000,- Accord. EXi með sjálfskiþtingu: 1.615.000,- Líttu við í Vatnagörðum 24 og kynntu þér góða bíla og greiðslukjör við allra hæfi. Tökum góða notaða bíla sem greiðslu upp í nýjan. Einkenni Civic eru fegurð og glæsileiki. Þetta er bíll sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Nú býðst Civic á einstaklega hagkvæmum kjörum. Verð eftir lækkun: Civic 3dyra á verði frá: 899.000,- Civic 4dyra á verði frá: 1.178.000,- 0 HONDA ÁRÉTTRI LÍNU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.