Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10, SEPTEMBER 1992 34 Minning Míirgrét G. Guðmunds■ dóttir frá Siglufirði Fædd 11. desember 1917 Dáin 2. september 1992 Hún Magga amma er dáin. Amma og afi bjuggu lengst af á Siglufirði, en í árslok 1984 fluttu þau til Reykjavíkur. Sökum ungs aldurs kynntumst við ekki ömmu og afa að ráði fyrr en eftir að þau voru flutt að Eyjabakka 6 í Reykja- vík. Amma hafði verið á sjúkrahúsi síðan í febrúar sl. vetur. Fyrir síð- ustu hvítasunnu fékk amma að koma heim til afa af sjúkrahúsinu. Við vonuðum svo heitt og innilega að amma héldi áfram að hressast líkt og í júlíbyijun þegar við heim- sóttum þau og vorum hjá henni meðan afi var á sjúkrahúsi. Amma var meira að segja farin að fara með okkur í heimsóknir, hún sem kunni alltaf best við sig heima. En heilsu ömmu hrakaði aftur en alltaf bar hún sig jafn vel. Hún var flutt á Vífilsstaði þar sem hún kvaddi þennan heim 2. september sl. eftir þriggja vikna legu. Þrátt fyrir veikindi ömmu var fregnin af andláti hennar okkur mikið áfall. Það er erfítt fyrir bams- hjartað að horfast í augu við slíka fregn. Nú er enginn amma hjá afa í Eyjabakkanum tii að faðma- okk- ur, engin amma til að hlæja með okkur, engin amma sem skildi svo vel hvað litlar fálmandi bamshend- ur eiga til að gera. Það var ekki hávaðanum fyrir að fara hjá ömmu. Hún hafði einstakt lag á að laða hið besta fram í hveiju bami. Hóg- værð, trúmennska, hjartahlýja, ein- lægni og hlédrægni vom aðalsmerki hennar. Nú er hún amma farin þangað sem hún fínnur ekki lengur til, þangað sem hún fínnur Tínó, hundinn sinn sem henni þótti svo vænt um, þaðan sem hún getur áfram fylgst með okkur. Við viljum þakka henni ömmu fyrir alla hjartahlýjuna, sem hún veitti okkur í vegamesti fyrir lífíð. Við munum alltaf minnast hennar með söknuði í hjarta. Megi góður Guð styrkja Jósa afa, nú þegar amma er ekki lengur hjá honum. Helga Elísa, Margrét Silja og Ingvi Aron. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (P. Foersom. - Sveinbjöm Egilsson) Ég var staddur á Kýpur ásamt fjölskyldu minni er mér bárust tíð- indin um lát tengdamóður minnar. Mig setti hljóðan. Þó að ég hafí vitað að hún hafí ekki gengið heil til skógar um nokkum tíma þá bar ég ávallt þá einlægu von í bijósti að hún kæmist til heilsu aftur og ég fengi að njóta samvistar við þessa mætu konu, miklu, miklu lengur. A andartökum sem þessum þjóta í gegnum kollinn bollaleggingar um tilgang lífsins og hversu maður er í rauninni vanmáttugur gagnvart almættinu. Fyrstu viðbrögð barn- anna vom hins vegar þau að segja að núna ættu þau enga ömmu leng- ur. Mér verður hugsað til baka til þess tíma þegar ég kom inn á heim- ili þeirra hjóna, Möggu og Jósa á Suðurgötu 53 á Siglufírði í fyrsta skipti á jólum, þá aðeins 19 ára gamall, með dóttur þeirra, Elenóm. Eg var dálítið kvíðinn þar sem ég var að hitta þau í fyrsta skipti. En sá kvíði reyndist ástæðulaus og mér var tekið með mikilli ástúð, hlýju og virðingu. Samband mitt við tengdamóður mína hefur ávallt ein- kennst af þessum þáttum þannig að aldrei hefur borið skugga á og fyrir það vil ég þakka. Ég minnist mörgu skemmtilegu umræðnanna er við áttum við eld- húsborðið á Suðurgötunni. Þar kom glögglega í ljós að hún var vel að sér í öllu og hafði sínar ákveðnu skoðanir á mönnum og málefnum. Tengdamóðir mín reyndist mér og fjölskyldu minni alla tíð mikil hjálparhella. Sérstaklega vil ég geta stuðnings hennar við okkur er við eignuðumst okkar fyrsta barn, ung að árum. Á sumrum var ávallt mannmargt á Suðurgötunni því fjölskyldan var stór. Hafði hún því í nógu að snú- ast en aldrei heyrðist hún kvarta yfír því að mikið væri að gera. Þetta fannst mér vera einkennandi fyrir tengdamóður mína. Ýmsar aðrar sögur heyrði maður um dugnað hennar og elju sem all- ar hnigu að sama brunni. Kannski heldur ekkert undarlegt þar sem hún missti móður sína aðeins 10 ára gömul og varð að standa meira og minna á eigin fótum frá 15 ára aldri er hún hélt til Siglufjarðar og hóf að vinna við síldarsöltun og önnur þau störf sem til féllu. Hún vissi því gjörla hvað var að hafa fyrir lífínu þó hún hefði fá orð um þennan tíma. Tengdamóðir mín var myndarleg kona. Hún hafði góðan smekk fyrir klæðaburði enda virtist saumaskap- urinn vera henni leikur einn og lagði hún sig fram um að vera ávailt sjálf vel til fara. Árið 1946 hóf tengdamóðir mín sambúð með eftirlifandi maka sín- um, Jósafat Sigurðssyni. Þau gengu í hjónaband 21. júní 1947, sem er sami brúðkaupsdagur og okkar hjóna. Þau áttu því 45 ára brúð- kaupsafmæli nú í sumar. Heimili stofnuðu þau síðan á Siglufírði og bjuggu þar allt til ársins 1984 er þau fluttu til Reykjavíkur. Þau eign- uðust 4 böm. Þau eru: Þóranna Sigríður, fædd 23. desember 1947, gift Jónsteini Jónssyni, búsett í Reykjavík; Sigurður Gunnar, fædd- ur 20. ágúst 1949, kvæntur Ingi- t Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, JÓHANN KRiSTJÁNSSON, Garðshorni, Þelamörk, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. september. Jarðarförin fer fram frá Svalbarðsstrandarkirkju laugardaginn 12. september kl. 11.00 fyrir hádegi. Trausti Jóhannsson, Aðalheiður Inga Mikaelsdóttir, Sóley Jóhannsdóttir, Guðmundur Vikingsson, Jón Kristjánsson, Guðfinna Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Tengdamóðir mín og amma okkar, SIGRÍÐUR ODDSDÓTTIR frá Brimilsvöllum, verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi föstudaginn 11. september kl. 15.00. Sigríður S. Jónsdóttir, Sigurður Jón Ragnarsson, Ólöf Þ. Ragnarsdóttir, Berglind Osk Ragnarsdóttir. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HERDÍSAR ÞÓRU SIGURÐARDÓTTUR, Gnoðarvogi 42, Reykjavík, sem lést í Landakotsspítala þann 3. september sl., fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. september kl. 13.30. Guðlaug E. Guðbergsdóttir, Þórir S. Guðbergsson, Jón K. Guðbergsson, Sævar B. Guðbergsson, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ELÍSABET BJÖRNSDÓTTIR, andaðist í Borgarspítalanum 31. ágúst sl. Útförin hefur farið fram. Gunnar Hjálmarsson, Gunnar H. Gunnarsson, Svandís Matthíasdóttir, María H. Gunnarsdóttir, Arnþór Blöndal, Inga Birna Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR ÁGÚSTSSON frá Hróarsholti, Kaplaskjólsvegi 63, v Reykjavik, sem lést í Landakotsspítala 3. september sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. september kl. 15.00. Ásthildur Þorsteinsdóttir, Ágúst Halldórsson, Rannveig Halldórsdóttir, Páll H. Hannesson, Ólöf Halldórsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Guðmundur Halldórsson, Ragnheiður Tómasdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Faðir okkar, tengdafaðir, sonur, afi og bróðir, REYNIR BJARNASON, Hraunteigi 26, sem lést 5. september sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. september kl. 10.30. Ásta Fanney Reynisdóttir, Július Brjánsson, Þorgeir Már Reynisson, Guðrún Bjarnadóttir, Sigurður Björn Reynisson, Ásta Björg Guðjónsdóttir, Gyða Guðmundsdóttir, Bjarni Guðmundsson, barnabörn og systkini hins látna. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HERDÍSAR 1. STURLUDÓTTUR frá Miðhópi. Elínborg Ólafsdóttir, Benedikt Axelsson, Sigrún Olafsdóttir, Sigurbjartur Frímannsson, Hannes K. Ólafsson, Laufey Einarsdóttir, Elín Ása Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginkonu minnar og móður bkkar, GUÐNÝJAR KRISTÍNAR ÞORLEIFSDÓTTUR, Lundarbrekkur 14, Kópavogi. Katarínus Jónsson og dætur. gerði Baldursdóttur, búsettur í Hafnarfirði; Elenóra Margrét, fædd 3. júní 1955, gift Sigurði Ingimars- syni, búsett í Reykjavík; og Þor- finna Lydía, fædd 26. apríl 1959, gift Þorkeli Þorsteinssyni, búsett á Sauðárkróki. Fyrir átti Margrét þijú böm. Þau eru: Örn, fæddur 22. mars 1938, giftur Steinþóru Sumarliðadóttur, búsettur á Akur- eyri; Stella, fædd 22. maí 1939, búsett í Reykjavík; og Hjördís, fædd 20. nóvember 1943, gift Hans Þor- valdssyni, búsett á Olafsfírði. Að leiðarlokum langar mig og fjölskyldunni að þakka fyrir allt og allt. Tengdamóðir mín skilur eftir sig í þessu jarðríki eftirminnileg spor sem aldrei fymast. Ég hefði ekki viljað' fara á mis við það að kynnast þessari mætu konu. Líf mitt er litríkara eftir. Ömmubörnin sakna ömmu sinnar mikið en skilja að nú er hún komin til Guðs þar sem henni líður vel. Elsku Jósi! Ég sendi þér mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið Guð almættisins að gefa þér styrk í sorg þinni. Öðrum ástvinum bið ég Guðs blessunar í þeirra miklu sorg. Ég fél í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (Matt. Jochumsson) Sigurður H. Ingimarsson. Þegar minningamar fara í gegn- um hugann frá æskuárunum, skipar amma á Sigló þar ákveðinn sess. Alltaf fómm við systkinin með móður okkar sunnan úr Sandgerði á hveiju vori norður, já, norður á Sigló. Þá var takmarkinu náð, eftir mikla tilhlökkun vomm við komin til afa og ömmu. Þegar norður var komið var alltaf-mikið um að vera, þar var allt heimilisfólkið og svo við krakkamir. Alltaf var nóg pláss fyrir alla og hafði amma þar sitt að segja, allt var skipúlagt og allir velkomnir. Amrna og afí vom á þessum ámm með kindur og þurfti auðvitað að sjá fyrir nægum hey- feng. Alltaf þegar viðraði var verið í heyskap og við krakkarnir ef til vil ekki alltaf til mikils gagns. Margar góðar .endurminningar eig- um við frá þessum ámm „uppi á túni“ með ömmu, en þar var hún með hrífuna þegar því var við kom- ið. Amma hafði ekki mörg orð um hlutina, en gat þó alltaf án hávaða og láta gert okkur grein fyrir hlut- unum svo mark var tekið á. Elsku ömmu emm við þakklát fyrir stundir sem við fengum að njóta með henni. Við biðjum góðan Guð að styrkja afa og aðra ástvini á þessari stundu. Magga, Pálmar og Hrönn. 'SCÓWI, 1<Z. Opið alla daga fra kl. 9 22. H MUNIfl! Minningarkort Styrktartélags krabbameinssjúkra barna Seld í Garðsapóteki, SÍmi 680990. Upplýsingar einnig veittar í síma 676020.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.