Morgunblaðið - 07.11.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
7j
Þuríður Sigurðardóttir, Óli H. Þórðarson og Sigurður Helgason að
störfum í Utvarpi Umferðarráðs.
Umferðarráð með
útvarpssendingar
UMFERÐARRÁÐ hefur fest kaup
sendir út úr eigin stúdíói innskot
tvisvar á dag.
Að sögn Óla H. Þórðarsonar
framkvæmdastjóra Umferðarráðs
er þarna komið á framfæri upplýs-
ingum um færð á vegum og um
helstu framkvæmdir og hindranir
sem vitað er um í vegakerfinu veg-
farendum til upplýsingar og glöggv-
unar. Annars vegar er skotist inn
í dagskrána milli hjá Ríkisútvarp-
á búnaði til útvarpssendinga og
í dagskrár helstu útvarpsstöðva
inu, Bylgjunni, FM og Aðalstöðinni
á milli klukkan 8.20 og 9 og hins
vegar milli 5. og 5.30 með stutt
innskot af þessu tagi. Auk Óla H.
Þórðarsonar annast Sigurður H.
Helgason upplýsingafulltrúi Um-
ferðarráðs og Þuríður Sigurðardótt-
ir þessar útsendingar.
Svínabúum fækkað um fimmtung á þremur árum
Framleiðsla svína-
kjöts eykst um 1,5%
FRAMLEIÐSLA svínakjöts jókst um lVi% fyrstu níu mánuði ársins.
Spáð hefur verið allt að 7% aukningu framleiðslunnar á árinu en
Valur Þorvaldsson framkvæmdastjóri Svínaræktarfélags Islands tel-
ur ekki líkur á að þær spár rætist. Svínabúum í landinu hefur fækk-
að um meira en fimmtung á þremur árum en framleiðslan haldist
svipuð á sama tíma.
Eftir mikla aukningu svínakjöts-
framleiðslu á árunum 1983 til 1988
hefur framleiðslan haldist svipuð
undanfarin ár, eða í 2.500 til 2.600
tonnum á ári, samkvæmt upplýs-
ingum sem fram koma í skýrslu
Pétur Sigtryggssonar svínaræktar-
ráðunauts um slátrun og fram-
leiðsluspár, sem nýlega kom út.
Pétur spáir því að framleiðslan í
ár verði 2.780 tonn á móti 2.594
tonnum sem framleidd voru í fyrra.
Mismunurinn er 186 tonn eða um
7% aukning.
Svínaræktarfélag íslands hefur
einnig átt von á aukningu, en þó
mun minni en Pétur spáir, í ljósi
þess að gyltum hefur fjölgað um
2-4% milli ára, að sögn Vals Þor-
valdssonar. Fyrstu níu mánuði árs-
ins var framleiðslan 1.883 tonn á
móti 1.855 tonnum sömu mánuði á
síðasta ári. Er það aukning fram-
leiðslu um 28 tonn eða 1 ‘/2%. Þó
hefur heldur vantað svínakjöt á
markaðinn.
Svínabúum hefur fækkað um
meira en fimmtung á þremur árum.
Árið 1989 voru 127 svínabú á land-
inu en nú er áætlað að þau séu 98
og hefur þeim því fækkað um 29.
Á sama tíma hafa sum þeirra búa
sem eftir eru stækkað þannig að
framleiðslan er svipuð. Valur telur
að ný reglugerð um aðbúnað og
heilbrigðishætti á svínabúum og
virtna dýralæknis við -isvínasjúk-
dóma eigi þátt í fækkuninni. Dýra-
læknirinn hefur tekið út öll svínabú
á landinu með tilliti til reglugerðar-
innar. Það hefur orðið til þess að
bændur með laka aðstöðu hafa
hætt framleiðslu. Samkvæmt reglu-
gerðinni á héraðsdýralæknir að
gefa út starfsleyfi fyrir öll svínabú
og þeim búum sem ekki fá starfs-
leyfi verður að loka.
Verð á svínakjöti hefur verið í
jafnvægi í nokkuð langan tíma og
segir Valur að nú um stundir hafi
svínabændur viðunandi afkomu.
Hann segir þó að framtíðin sé
ótrygg og ekki ráðlegt fyrir nýja
framleiðendur að reyna fýrir sér í
þessari grein nema að mjög vel
athuguðu máli. Bendir hann á yfír-
vofandi samkeppni við innflutning
í unnum svínaafurðum og harðar
heilbrigðisreglur.
------» ♦ ♦-------
Eldur í potti
ELDUR kom upp í potti í eld-
húsi húss við Kvisthaga skömmu
eftir miðnætti í fyrrinótt.
Ibúi í húsinu slökkti eldinn sjálf-
ur, en hann fékk hins vegar snert
af reykeitrun og varð að leita sér
aðhlynningar á slysadeild.
Borgarstjórn
Tillaga um könnun á
nýtingn jarðvarma
TILLAGA Sigurjóns Péturssonar, borgarfulltrúa Alþýðubandalags,
um að borgarstjórn samþykki að nota 2% af tekjum Hitaveitunnar
á hverju ári til rannsókna á nýtingarmöguleikum jarðhitans, var
vísað til stjórnar veitustofnana á fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld.
í tillögunni segir að kanna skuli möguleika á nýtingu jarðhita til
lækninga og heilsubótar sem og til iðnaðarnota.
Þá segir í tillögunni að leita skuli og einnig skuli leitað samvinnu við
samvinnu við stofnanir á vegum Háskóla íslands. Samþykkt var
atvinnuvega, félög og stofnanir, samhljóða að vísa tillögunni til
sem vinna að heilsuvernd og/eða stjórnar veitustofnana þar sem hún
lækningu, sem hugsanlega gætu verður rædd nánar.
nýtt jarðvarma við starfsemi sína
1 dag er
langur
laugardagur
á Laugavegi
OPIÐ TIL KL. 17.00
Fyrsti laugardagur hvers mánaðar er langur laugardagur á Laugavegi.
Þá eru verslanir við Laugaveg og Bankastræti opnar til kl. 17.00.
VERSLUM HEIMA
Kjörorð dagsins er „Verslum heima!"
Styðjum íslenska verslun og íslenskt atvinnulíf.
TILBOÐ — AFSLÁTTUR
Afsláttur eða tilboð í ýmsu formi. Sumar verslanir bjóða afslátt af öllum sínum vörum,
10%, 15%, 20% afslátt, eða jafnvel enn meiri. Aðrar verslanir eru með tilboð á
aðgreindum vörum. Það er þess virði að líta á Laugaveginn.
lilllfíílM'Jísl
I dag verður þessi myndarlegi
Laugavegsbangsi staddur í
sýningarglugga einnar verslunar við
Laugaveg eða Bankastræti.
Finnið bangsann og skráið nafn
verslunarinnar á þar til gerð eyðublöð.
Þau fást afhent í öllum verslunum við
Laugaveg og Bankastræti. Þær taka
allar við svörum.
Viiiiiingar í Laugavegsleík
3 vöruúttektir kr. 10.000 hver:
Jón og Oskar, Hagkaup og Liverpool.
Aukavinningar 20 konfektkassar frá
mrn
FRITTI ALLASTÖfíUMÆIA ,
ÖLL BÍLAGEYMSIIJHÚS |
ALLA LAUGARDAGA ALLT ÁRIÐ
Við Laugaveg og Bankastræti eru Um 200 verslanir,
veitinga- og kaffihús í tugatali.
Veríð velk<Hiiin
;í liui^m^iiin
- vinalega og langa íslenska verslunargötu
M1092