Morgunblaðið - 07.11.1992, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.11.1992, Qupperneq 22
8£ 22 f6í H3ÍÍM2VÖM ,T HUOAQHAÓIÍAJ GIGA,IHKUOJÍOK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 II Bozo“ Trúður- innóskaði „nafna“ sínumtil hamingju Hollywood. Reuter. TRÚÐURINN Bozo var meðal þeírra, sem sendu Bill Clinton, verðandi for- seta Bandaríkjanna, heilla- óskir, en eins og marga mun reka minni til upp- nefndi George Bush forseti Clinton „Bozo“ á framboðs- fundi. Þessum stórfætta trúði, sem er ef til vill frægari en nokkur kollega hans í heimin- um, skaut allt í einu upp í kosningabaráttunni, þegar Bush kallaði þá Clinton og A1 Gore „Bozoana tvo“. En Clinton lét hann ekki eiga neitt inni hjá sér: „Hann kallaði okkur Bozoa,“ sagði hann. „Það er ekki nema gott eitt um það að segja, Bozo kemur fólki til að hlæja, en Bush kemur fólki til að gráta. Á þriðjudaginn verður hlegið í Bandaríkjunum." Larry Harmon, hinn upp- runalegi Bozo úr sjónvarpinu og sá sem skapaði persónuna, sendi Clinton eftirfarandi orðsendingu eftir kosning- amar: „Mig langar til óska þér innilega til hamingju með sigurinn og þakka hlý orð í garð Bozos. Mér þykir vænt um þessa viðurkenningu og óska þér alls góðs í framtíð- inni. Þú getur reitt þig á að ég, hinn eini bg sanni Bozo, mun halda áfram að vekja hlátur Bandaríkjamanna og annarra heimsins þegna eins og ég hef gert í 43 ár. Mundu kjörorð Bozos gamla: „Hlát- urinn lengir lífið.““ Það var seint á fimmta áratugnum sem Harmon klæddist fyrst rauðgula hár- inu, gúmmínefínu, hólkvíðu buxunum og risaskónum og kynnti sköpunarverk sitt. Hann er nú hættur að leika Bozo sjálfur, en sem for- stöðumaður Larry Harmon Pictures veitir hann öðmm leyfi til að nota nafn og útlit trúðsins. Bill Clinton, verðandi forseti Bandaríkjanna, er hér hylltur er hann kom í þinghúsið í Little Rock, höfuðborg Arkans, í gær, í fyrsta sinn frá kosningunum. Clinton hyggst til- nefna repúblikana í ráðherraembætti Washington. Daily Telcgraph. BILL Clinton, nýkjörinn Bandaríkjaforseti, hefur skýrt þingmönnum úr röðum Demókrataflokksins frá því, að hann hyggist skipa einn eða tvo repúblikana í ríkisstjórn sína. Jafnframt verði hlutfallslega margar konur settar til hárra embætta og fulltrúar minnihlutahópa sömuleiðis. 1 gær ákvað Clinton að lögfræðingurinn Vemon Jordan og Warren Christopher, sem eitt sinn var aðstoðarutanríkisráðherra, myndu stjóma undirbúningi forsetaskiptanna 20. janúar. Búist er við að repúblikanar sem tíma áður en hann skýrir frá skipan Clinton hyggst skipa í ráðherrastöð- ur komi úr röðum viðskiptajöfra.sem lýstu stuðningi við framboð hans. Tilgangur tilnefningar þeirra er jafn- framt að bijóta upp flokkslegt valda- kerfi sem viðgengist hefur í Was- hington. Haft var eftir nánum samverka- mönnum Clintons í gær að hann myndi á næstu dögum ráðfæra sig við fiölda manna og taka sér góðan ríkisstjómar. Hermt er að Clinton hefjist strax handa við að hrinda stefnumálum sínum í framkvæmd eftir valdatök- una 20. janúar nk. Búist er við að hann taki strax á málum sem efst voru á baugi í kosningabaráttunni. Þannig er búist við að hann nemi úr gildi reglur sem settar vom í tíð George Bush forseta og takmarka ráðgjöf um fóstureyðingar, bindi enda á bann er útilokar samkyn- hneigða úr hemum, herði viðskipta- þvinganir gegn Kínastjóm vegna mannréttindabrota hennar, lögbindi frí fyrir ríkisstarfsmenn vegna veik- inda í fjölskyldu. Einnig er talið að á fyrstu dögum í embætti muni hann beita sér fyrir því að endurflutt verði ýmis lagafrumvörp sem Bush neitaði að undirrita og eiga að örva efna- hagslífið. Sagt er að Clinton hyggist einkum beita í þessu skyni skattfrá- drætti vegna fjárfestinga, einhverri lækkun skatta á fjármagnstekjur og íjárveitingum til þess að örva at- vinnulíf í innstu borgarhverfum. Þá hefur komið fram að Borís Jeltsín forseti Rússlands hringdi í fyrradag í Clinton og ræddi við hann um hugsanlegan leiðtogafund og dagskrá hans. Sig Rogich fyrrum sendiherra Rangar áherslur kost- uðu George Bush sigur SIG Rogich, fyrrum sendiherra Bandaríkjamanna á íslandi og einn af nánustu aðstoðarmönnum George Bush Bandaríkjaforseta í kosningabaráttunni, sagði i samtali við Morgunblaðið í gær að rangar áherslur i baráttunni hefðu átt stærstan þátt í ósigri Bush í forsetakosningunum sl. þriðjudag. „Ég get raunverulega einungis baráttunni. Kosningabarátta Bills metið það sem við gerðum síðasta mánuðinn, þann tíma sem ég var viðriðinn kosningabaráttuna. En ég held samt að heimavinna okkar hafi brugðist. Kosningabaráttan var ekki ígrunduð nægilega vel í upphafi." „Við urðum einfaldlega undir í Clintons var betri, komst mun betur til skila en okkar. Við lifum í heimi skynhrifa sem okkur mis- tókst að virkja rétt.“ „Við minntum þjóðina ekki nægilega vel á þann góða árangur seaa-Bush náði í innanríkisiriálun- um. Þar náði forsetinn miklum árangri. Má þar nefna lög er vemda eiga andrúmsloftið, lög er tryggja réttindi fatlaðra, nýja og réttlátari mannréttindalöggjöf. Á sama tíma og kreppa var í alþjóða efnahagsmálum er ástand banda- rískra efnahagsmála betra en á nokkru öðru byggðu bóli að Japan meðtöldu. Verg þjóðarframleiðsla Japana dróst saman um 4,5% í fyrra en okkar jókst um 1,5%. Þetta veit enginn því allt púðrið fór í að draga upp dökka mynd af efnahagsástandinu.“ Sig Rogich „Við hefðum átt að gera okkur . grein fyrir þessum mistökum, snúa við blaðinu og leggja áhersl- una á það sem vel var gert. Við létum fara fyrir okkur eins og Winston Churchill," sagði Rogich. Andúð á gyðingum minnkar UM þriðjungur Þjóðveija telur, að nasistatíminn hafi átt sínar góðu hliðar og gyðingum sjálfum sé nokkuð um að kenna hve oft þeir hafi verið ofsóttir. Ef þessi niður- staða er hins vegar borin saman við kannanir, sem gerðar voru 1987 og 1982, kemur í ljós, að andúð Þjóðverja á gyðingum hefur minnk- að en ekki aukist. Sem dæmi um það má nefna, að 1987 töldu 60% Þjóðveija undir 25 ára aldri, að gyðingar ættu sína sök á ofsóknun- um en aðeins 31% nú. Könnunin nú var gerð til athuga hvort mikil umsvif hægriöfgamanna og árásir á innflytjendur mætti rekja til vax- andi fylgis meðal þjóðarinnar við hægriöfga en svo virðist alls ekki vera. Vill milligöngu Clintons JONAS Sawimbi, leiðtogi Unita- hreyfingarinnar, skoraði í gær á Bandaríkjastjóm að miðla málum í Angóla og sagði, að átökin undan- farið milli Unita og stjómarflokks- ins, MPLA, hefðu kostað 15.000 manns lífíð. Kemur áskomnin fram í bréfí, sem Sawimbi hefur skrifað George Bush Bandaríkjaforseta og Bill Clinton, væntanlegum eftir- manni hans, en það var lesið upp í útvarpsstöð Unita. Vopnahléið, sem samdist um fyrir nokkrum dög- um, virðist halda enn og fulltrúum Sameinuðu þjóðanna hefur tekist að fá fulltrúa stríðandi aðila til að koma saman til sáttafundar. Fellur markið? ÞÝSKA stjórnin vísaði í gær á bug þeim ummælum Heinz-Giinter Za- velbergs, yfirmanns ríkisendur- skoðunarinnar, að vaxandi skulda- söfnun ríkisins gæti að lokum leitt til gengishruns gjaldmiðilsins, marksins, og breytinga á gjaldeyri- skerfinu. Zavelberg sagði, að geng- ishrunið væri ekki alveg yfirvofandi 'en hélt því fram, að það væri óumf- lýjanlé^t ef ekkert væri að gert. Nefndi hann sem dæmi, að 1995 yrðu alríkisstjómin, fylkisstjómim- ar og sveitarfélögin farin að borga 170 milljarða marka árlega aðeins í vexti. Manfred Carstens, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði, að fullyrðing Zavelbergs væri fáránleg og til marks um stór- kostlegt ábyrgðarleysi. Gull í Græn- landi DANSK-grænlenska olíu- og náma- fyrirtækið Nunaoil hefur fundið gull í Suður-Grænlandi, 35 km norðaustur af syðsta bæ í landinu, Nanortalik. Er til jafnaðar um að ræða 50 grömm af gulli í hverju tonni af gijóti. Jarðfræðingur á vegum fyrirtækisins segir, að hér sé um að ræða mikilvægasta málm- fund í Grænlandi síðan blý- og zinknáman í Marmorilik fannst en henni hefur nú verið lokað. Telur hann, að 3-4 ár muni líða áður en vinnsla geti hafíst en sums staðar hafa fundist allt að 250 gr í tonni. 31 fórst í þyrlu- slysi AÐ minnsta kosti 31 maður, fimm manna áhöfn og 26 farþegar, fórst þegar herþyrla hrapaði til jarðar í Suður-Rússlandi á fimmtudag. Gennadí Dolgatsjev, talsmaður rússneska herstjórnarsvæðisins í Kákasusfjöllum, sagði, að þyrlan hefði verið í flutningum fyrir herinn en skýrði það ekki nánar. Taiið er, að með þyrlunni hafi verið fjölskyld- ur rússneskra hermanna en þeir hafa dregist inn í átök þjóðarbrot- anna á þessum slóðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.