Morgunblaðið - 07.11.1992, Síða 28

Morgunblaðið - 07.11.1992, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 Morgunblaðið/Rúnar Þór Barnadeild FSA hefur verið á stigapalli á sjúkrahúsinu síðustu 16 ár. Nú hefur stjórn sjúkrahúss- ins gefið grænt ljós á áframhaldandi hönnunarvinnu vegna stækkunar deildarinnar, sem þykir afar brýn, en síðustu daga hefur mikið verið að gera á deildinni. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Stækkun bamadeildar- innar gæti hafist í vor Deildin hefur verið starfrækt á stigapalli í 16 ár STJÓRN Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri samþykkti á fundi á fimmtudag að haldið skyldi áfram með hönnun nýrrar bama- deildar við sjúkrahúsið, en verkinu var frestað síðastliðið vor þar sem fyrirsjáanlegt var að þær 30 milljónir króna sem fengust til nýframkvæmda myndu ekki duga ekki til verkefnisins. Ingi Bjömsson framkvæmda- stjóri FSA sagði að stjórnin hefði á fundinum samþykkt að haldið skyldi áfram með undirbúning að hönnun barnadeildar af fullum krafti. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár er gert ráð fyrir 20. milljónum króna til nýfram- kvæmda við sjúkrahúsið sem væn- talega fara til þessa verkefnis. Starfsemi bamadeildar FSA hefur verið á stigapalli á sjúkra- húsinu í 16 ár, en þar hófst starf- semin árið 1976 og var húsnæðið eingöngu ætlað til bráðabirgða til nokkurra ára. Ingi sagði að vinnu- aðstaða á deildinni væri engan vegin viðunandi lengur og því mikilvægt að gera þar bragarbót á. Nú eru 10 rúm á deildinni, en fyrirhugað að í framtíðinni, eftir stækkun, verði þar 16 rúm. Hug- myndin er að byggja við núver- andi húsnæði deildarinnar út á þak tengibyggingar til suðurs. Áætlað er að kostnaður við við- bygginguna verði um 80 milljónir króna. Rætt hefur verið við bæjarráð og heilbrigðisráðuneytið vegna þessa máls og sagði Ingi að menn hefðu tekið jákvætt í erindi um stækkun bamadeildarinnar og væri þess því vænst að hægt yrði að hefja framkvæmdir á næsta ári. Gallerí AllraHanda Sýning á málverkum Daða Guðbj ömssonar SÝNING á verkum Daða Guð- björnssonar verður opnuð i Gall- erí AllraHanda í Grófargili á Akureyri í dag, laugardag 7. nóvember kl. 15. Á sýningunni em 20 olíumálverk, sem flest eru unnin á síðastliðnu sumri og í haust. Daði stundaði nám við Myndlista- skólann í Reykjavík og síðan við Myndlista- og handíðaskólann og þá stundaði hann einnig nám í Amsterdam. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Kaffisala hjá KFUM og KFUK á Kristniboðsdegi Kaffisala verður í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð á morgun, sunnudag, en þann dag er Kristniboðsdagurinn. Kaffísalan hefst að loknum guðs- þjónustum í Akureyrar- og Glerár- kirkju, en þær hefjst kl. 14. Ágóði af kaffisölunni rennur til kristni- boðsins. Á sunnudagskvöld, 8. nóvember, verður samkoma í Sunnuhlíð. Ræðumaður er Skúli Svavarsson kristniboði. Einnig verður bóka- markaður og veitingar á boðstólum eftir samkomuna. Morgunblaðið/Rúnar Þór Benedikt Sveinbjörnsson, íslenskri forritaþróun, Rósa Guðmunds- dóttir, framkvæmdastjóri Ásprents, Hallgrímur Jónsson, frá DNG, Þórður Kárason, Ásprenti, Bjarni Ákason, frá ACO, og Kári Þórðar- son, Ásprenti, við nýja tækið sem gerir prentsmiðjunni kleift að lit- greina filmur og bjóða upp á ýmsa þjónustu sem ekki hefur áður verið fyrir hendi norðan heiða. Akureyrarbær auglýsir eftirtaldar skipulagstillögur: íbúðarbyggð við Grenilund: Tillagan gerir ráð fyrir 8 tveggja hæða einbýlishúsum á lóð austan Grenilund- ar, sem afmörkuð var í aðalskipulagi Akureyrar 1990- 2010. Asprent hf. Nýr tækjabúnaður gerir kleift að litgreina filmur Krossaneshagi: Deiliskipulag iðnaðarhverfis/svæðis fyrir almenna atvinnustarfsemi: a) Tillaga að heildarskipulagi svæðis fyrir almenna atvinnustarfsemi, sem afmarkast af Hörgárbraut, Hlíð- arbraut, Krossanesbraut og væntanlegri Síðubraut. b) Tillaga að deiliskipuagi 1. áfanga hverfisins, sem er austan og norðan Hörgárbrautar og Hlíðarbrautar. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir lóðum fyrir hvers kyns atvinnustarfsemi, iðnað, verslun og þjónustu. Breyting á aðalskipulagi Akureyrar 1990-2010: Til- laga að breytingu á legu væntanlegrar Síðubrautar norðan athafnasvæðis í Krossaneshaga og Krossa- nesbrautar austan sama svæðis. Breytingartillagan er unnin í tengslum við heildarskipulag Krossanes- haga. Tillögur þessar, uppdrættir og greinargerðir, liggja frammi almenningi til sýnis á Skipulagsdeild Akur- eyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 4 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 4. desember 1992, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir sbr. grein 4.4. í skipulagsreglugerð. Athugasemda- frestur vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar er 8 vikur eða til 4. janúar 1993. Þeir, sem telja sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna þessara skipulagsbreytinga, er bent á að gera þær athuga- semdnir innan tilgreinds frests ella teljast þeir sam- þykkir breytingunum. Skipulagsstjóri Akureyrar. ÁSPRENT hf. hefur tekið í notkun nýjan tækjabúnað þannig að prent- smiðjan getur nú boðið viðskiptavinum sínum upp á litgreiningar á filmu og ýmsa aðra þjónustu sem ekki hefur áður verið til staðar á Norðurlandi. Þá er Asprent fyrst íslenskra prentsmiðja til að nota annað stig af síðuumbrotsmálinu PostScript. Ný tæknivæðing prent- smiðjunnar er unnin í samstarfi við ACO í Reykavík og DNG á Akureyri. Fulltrúar fyrirtækjanna þriggja kynntu hinn nýja tæknibúnað í gær og kom þá m.a. fram að þessar tækninýjungar gera það að verkum að Ásprent getur nú boðið prent- smiðjum, fyrirtækjum og einstakl- ingum á Norðurlandi sem vinna við grafískan iðnað upp á mikinn sparn- að bæði hvað varðar tíma og kostnað og ætti það að geta orðið prentiðn- aði í fjórðungnum mikil lyftistöng. ACO í Reykjavík lagði til tækin og sá um uppsetningu á mynd- vinnslubúnaði og DNG á Akureyri sá um uppsetningu á netbúnaði og mun auk þess sjá um þjónustu við hann. PC-tölvurnar sem notaðar eru voru framleiddar hjá DNG, en fyrir- tækið hefur verið í slíkri framleiðslu nú um nokkurt skeið. Á netkerfmu verður keyrður Opu- sAllt hugbúnaður fyrir bókhald og afgreiðslu, en með því verður m.a. hægt að leggja skrifstofuhald prent- smiðjunnar í Reykjavík niður og einnig geta viðskiptavinir prent- smiðjunnar hvar sem er á landinu, sem hafa þar til gerðan búnað, sent AKUREYRI - REYKJAVIK - AKUREYRI Allir almennir flutningar ásamt frystivörum. Geri verðtilboð. Upplýsingar í símum 96-21673 og 985-25444. verkefni beint til prentsmiðjunnar á Akureyri í gegnum tölvu. Ásprent er fyrst íslenskra fyrir- tækja til að nota RIP50 og Level 2, sem er annað stig af síðubrots- umbrotsmálinu PostScript, en með því verður á skömmum tíma hægt að keyra út umfangsmikil skjöl upp á hundruð megabæta. Þá gefur hinn nýi tækjabúnaður möguleika á að vinna í blönduðu tölvuumhverfí, Mac- hitosh og PC vinna saman á netkerf- inu og er umbrot og myndvinnsla unnin í báðum kerfum auk þess sem hægt er að færa texta, grafík og myndir milli forrita án vandkvæða. Loks má nefna að við innskönnun eru notaðar tvær gerðir af skönnum, litskanni sem skannar inn lit og svarthvítar myndir og hins vegar 2.000 punkta slidesskanni með mikl- um_ litgæðum. Ásprent var stofnað fyrir ellefu árum og voru starfsmenn í upphafi tveir, en nú starfa 18 manns í prent- smiðjunni, 30 böm sjá um dreifingu á sjónvarpsdagskrá sem þar er gefin út og 15 þýðendur eru í föstu starfi hjá fyrirtækinu, en Ásprent gefur út 4-5 bækur í hveijum mánuði af ýmsum toga. Þá er fyrirhugað að hefja í vor útgáfu á tímariti sem gefið verður út einu sinni í mánuði og íjallar að mestu um unglinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.