Morgunblaðið - 07.11.1992, Side 29
MÓrÓÚNBLAÐIÐ LAtJGARDAGUR 7. bíóVEMBER 1992
29
Snjórall á laugardag
BÍKR heldur sína fjórðu og síðustu rallkeppni á árinu nk. laugardag
7. nóvember sem nefnist Eikaborgararall og gefur keppnin stig til
íslandsmeistara.
Startað verður frá Eikaborgur-
um, Höfðabakka 1, kl. 8.30 um
morguninn og er fyrsta sérleið
Grafningur, 11 km krókótt sérleið
sem ekin er til suðurs meðfram
Þingvallavatni. Sérleiðin endar
skammt frá Nesjavallavegi. Tilvalin
leið fyrir áhorfendur til að fylgjast
með hvemig og hvort áhöfnum rall-
bílanna tekst að halda þeim á flug-
hálum veginum.
Næsta sérleið er Lyngdalsheiðin,
14 km mjög hröð rallleið, en ekki
er víst að allir komist klakklaust
alla leið því töluvert hefur snjóað á
þessu svæði að undanförnu og hafa
■ DRENGJAKÓR Laugames-
kirkju verður nú um helgina í æf-
ingabúðum í Skálholti undir leiðsögn
stjómandans Rons Turners. Þetta
er í fjórða sinn sem kórinn dvelur
þar við æfingar og hefur reynslan
sýnt að drengirnir njóta góðs af og
taka miklum framförum í kórbúðun-
um. Á síðasta starfsári var aðalá-
herslan lögð á æfingar fyrir ferð
þeirra á alþjóðlegt drengjakóramót
á Flórída í mars sl. Nú em þeir að
æfa fyrir jólatónleika sem haldnir
verða milli jóla og nýárs en auk
þeirra mun Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngja á tónleikunum. Drengjakór-
inn syngur við messu kl. 11 í Skál-
holtskirkju á sunnudag og heldur
síðan heim á leið.
(Fréttatilkynning)
myndast stórir skaflar víða.
Tröllhálsinn verður ekinn sem
sérleið eins langt og-komist verður
vegna snjóa. Endamark er áætlað
kl. 15.30 við Eíkaborgara, Höfða-
bakka 1.
Búast má við mikilli baráttu, sér-
staklega í gengi óbreyttra bifreiða
en þar hafa Óskar og Jóhannes á
framdrifnum Suzuki GTI 10 stiga
forskot á þá Baldur og Guðmund á
fjórhjóladrifnum Mazda 323 bíl sem
hlýtur að skila sér vel áfram í snjón-
um.
13 bílar era skráðir til keppni og
er eftir því tekið að Rúnar Jónsson
verður ekki með vegna veikinda og
mun’því faðir hans, Jón Ragnars-
son, taka við stýrinu á Mazda 323
4x4 Turbo en nokkur ár era síðan
Jón qk síðast í ralli.
--------» ♦ «--------
■ SKÁKSKÓLI íslands hóf starf-
semi sína á þessu skólaári með sex
vikna námskeiðum sem hófust í lok
september. Ný námskeið hefjast
mánudaginn 9. nóvember nk. og
verður kennt í húsnæði Skáskólans
í Faxafeni 12. Kennt verður í fímm
flokkum og era fjórir stórmeistarar
og tveir alþjóðlegir meistarar meðal
kennara. Upplýsingar era gefnar og
skráning fer fram hjá Skáksam-
bandi Islands kl. 10-13 virka daga
og kl. 14-16 nk. laugardag og
sunnudag.
Kvikmyndasýning
í Norræna húsinu
NORSKA myndin „Skraphandl-
erne“, gerð eftir sögu Bo Her-
mansen, verður sýnd í Norræna
húsinu sunnudaginn 8. nóvember
kl. 14.
Aðalsöguhetjumar era feðgar
sem búa í bakhúsi og hafa atvinnu
Borgarafund-
ur haldinn í
af því að safna skrani og aelja það.
Þetta er kvikmynd á léttari nótun-
um og tekur á málum sem snerta
okkur öll, þ.e. að geta hlegið og
grátið saman, mynd um mikilvægi
þess að eiga eitthvað sameiginiegt
með öðram.
Myndin er ætluð eldri börnum
og er hún um 85 mínútna löng með
norsku tali. Allir eru velkomnir og
er aðgangur ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Rangárþingi
FJÖLNIR, FUS Rangárvalla-
sýslu, mun halda borgarafund
næstkomandi sunnudag, 8. nóv-
ember, kl. 17 í Hellubíói. Á fund-
inum verður fjallað um sveitar-
stjórnarmál. Yfirskrift fundarins
er: Getur Rangárvallasýsla orðið
reynslusveitarfélag?
Frummælandi á fundinum verður
Sigfús Jónsson, formaður sveitarfé-
lagsnefndar. Framsögumenn verða
m.a. Óli Már Aronson, oddviti
Rangárvallahrepps, Guðmundur
Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri
Rangárvallahrepps, og ísóifur Gylfi
Pálmason, sveitarstjóri Hvolhrepps.
Þetta er einn funda í fundaröð
Fjölnis er varðar Rangæinga og er
efni fundarins valið með tilliti til
þess að skapa umræður í sýslunni,
umræðu sem er ofarlega á baugi á
íslandi.
(Úr fréttatilkynningu.)
------» ♦ «-----
iVERÐIÆKKUN
Einkenni Civic eru fegurð og glæsileiki.
Þetta er bíll sem þú mátt ekki láta framhjá
þér fara. Nú býðst Civic á einstaklega
hagkvæmum kjörum. Verð eftir lækkun:
Civic 3dyra á verði frá;~899.000
Civic 4dyra á verði frá: 1.178.000,-
Húnvetningafélagið
Kaffisala á
sunnudaginn
KAFFISALA Húnvetningafé-
lagsins með hlaðborði verður
sunnudaginn 8. nóvember í
Húnabúð, Skeifunni 17, og hefst
kl. 15.
Þetta er árlegur viðburður hjá
félaginu og er ágóðanum varið til
að bjóða eldri Húnvetningum til
kaffisamsætis sem haldið er í maí
á hverju vori.
WARNER'S
undirfatnaður
Gæði og glæsileiki
C/3
Guilbrá-Nóatúni, Sautján-Laugavegi og Kringlunni,
Evita-Seltjamarnesi, Regnhlífabúðin-Laugavegi,
Spes-Háaleitisbraut, Ársól-Grimsbæ,
Libia-Laugavegi.
Mensý-Selfossi, Smart-Keflavík, Móna
Lísa-Akranesi, Amaró-Akureyri, Apótek Ólafsvíkur,
Hársnyrtistofa Huldu-Húsavík, Herta-Reyöarfirði.
Ísold-Sauðárkróki, Heba-Siglufirði, Krisma-lsafirði,
Hársnyrtistofa Guðlaugar-Vopnafirði, Hársnyrtistofa
Olgu-Höfn, Við lækinn-Neskaupstað.
JfjUÍcL t/ei-ð á{.
Povl Dissing ásamt félögum sínum John von Daler fiðluleikara og
Christian Sögaard harmónikuleikara en þeir munu leika á Púlsinum
og í Norræna húsinu.
Povl Dissing á Púlsinum
og í Norræna húsinu
DANSK-islenska félagið hefur fengið hinn góðkunna danska söngv-
ara Povl Dissing til að koma hingað til landsins til tónleikahalds.
Kemur hann um miðjan nóvember og mun halda tónleika ásamt
þeim John von Daler fiðluleikara og Christian Sögaard harmóniku-
leikara. Povl Dissing hóf feril sinn árið 1966 og hefur unnið með
ýmsum listamönnum. Þekktast er samstarf hans við skáldið og
lagasmiðinn Benny Andersen. Povl Dissing mun koma fram á Púls-
inum, í Norræna húsinu og á Hótel Sögu.
Tríóið sem nú heimsækir ísland, Sunnudaginn 15. nóvember verða
hefur leikið saman frá 1989 og
flytur einkum lög Povl Dissings
sjálfs. John von Daler fiðluleikari
hefur áður unnið með ýmsum tón-
listarmönnum svo sem Palle Mik-
kelborg, Nils Henning Örsted Ped-
ersen og Ole Koch Hansen. Christ-
ian Sögaard harmónikuleikari er
menntaður tónlistarkennari frá
Tónlistarháskólanum í Kaup-
mannahöfn og hefur starfað lengi
á Grænlandi með þarlendum tón-
listarmönnum en auk þess leikur
hann karabíská tónlist með hljóm-
sveitinni Los Orginales.
Povl Dissing og félagar munu
leika fyrir gesti á árshátíð Dansk-
íslenska félagsins þann 14. nóvem-
ber á Hótel Sögu, Ársal. Aðrir tón-
leikar verða á Púlsinum þann 13.
nóvember kl. 21 og verða miðar
seldir við innganginn. í beinu fram-
haldi af tónleikum Dissings, verður
blúshátíð á Púlsinum og gildir að-
göngumiðinn á báða tónleikana.
tónleikar í Norræna húsinu, kl. 16
og 20.30. Miðasala á árshátíð
Dansk-íslenska félagsins og tón-
leikana í Norræna húsinu fara
fram í Norræna húsinu 10. og 11.
nóvember, milli kl. 17 og 19.
■ MEISTARAMÓT Taflfélags-
ins Hellis verður haldið í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi og hefst
mánudaginn 9. nóvember og verður
fram haldið mánudaginn 16. nóvem-
ber. Taflið hefst kl. 20 báða dag-
ana. Tefld verður atskák (hálftíma-
skákir) og verða sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi. Meistari félagsins fær
til varðveislu í eitt ár Flugleiðabik-
arinn en jafnframt fær sigurvegar-
inn boð á næsta Helgarskákmót
tímaritsins Skákar. Einnig mun
einn heppinn keppandi fá boð á
Helgarskákmót tímaritsins Skákar í
aukaverðlaun (dregin út).
(Fréttatilkynning)
Gerðu raunhæfan samanburð á verði og
gæðum. Accord er sérlega vandaður og vel
heppnaður bíll jafnt að utan sem innan.
Verð eftir lækkun:
Accord EX me'ð sjálfskiþtingu: l .518.000,-
Accord EXi með sjálfskiptingu: 1.615.000,-
Líttu við í Vatnagörðum 24 og kynntu þér
góða bíla og greiðslukjör við allra hæfi.
Tökum góða notaða bfla sem greiðslu upp f
nýjan.
(H)
HONDA
ÁRÉTTRI LÍNU
Sandra-Haínarfirði, Bylgjan-Kópavogi,
Miðbasr-Vestmannaeyjum, Nana-Lóuhólum,
Júllubúð-Eskifirði, Líf-Mjódd, Hjá Sollu-
Hveragerði, Bnar Guöfinns-Bolungarvík.
W
Þö
c