Morgunblaðið - 07.11.1992, Page 33

Morgunblaðið - 07.11.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 33 Minning Sveinn BenediktAuð- bergsson frá Eskifirði Fæddur 1. júní 1914 Dáinn 31. október 1992 Sveinn Benedikt Auðbergsson var fæddur 1. júní 1914 á Eski- firði. Hann var elstur þriggja systk- ina og eins fósturbróðurs. Þau eru: Sveinn, elstur, Lína, húsmóðir á Eskifirði, sem látin er fyrir nokkr- um árum, Gunnar,' smiður á Eski- firði og Kjartan, sjómaður á Eski- firði. Foreldrar þeirra voru þau hjónin Auðbergur Benediktsson smiður og Guðrún Sigríður Sveinsdóttir hús- móðir á Eskifirði. Sveinn afí giftist eftirlifandi konu sinni, Rannveigu Karolínu frá Skálafelli í Suðursveit. Sveinn afí átti tvö börn og eina sjúpdóttur og heita þau Herdís, Guðrún Sigríður og Benedikt. Sveinn afí vann alla sína ævi við smíðamennsku sem hann lærði hjá föður sínum. Og eru ófáir gluggar og hurðir sem eftir hann liggja í húsum á Eskifirði. Sveinn afi var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér alveg frá því ég var lítill krakki, og var heimili þeirra afa og ömmu mitt annað heimili, bæði ég og systkini mín eiga þeim mikið að þakka. Það var alltaf gaman að vera á verkstæðinu hjá afa, það var alltaf svo mikið að gera og mikið líf í kringum hann, það er gaman að hugsa til baka þegar ég var krakki og unglingur á Eskifírði, allar þær yndislegu stundir sem maður átti með afa og ömmu, hvort sem það var á verkstæðinu eða heima hjá afa og ömmu. Afi var alltaf að segja okkur systkinunum einhveijar sög- ur sem hann bjó til og skáldaði jafn- óðum og hann sagði þær. Sveinn afi var mjög trúaður maður og var meðal annars hringj- ari í kirkjunni á Eskifirði og sinnti því starfí þar til heilsan brast. Það er erfitt að sætta sig við það að jafn góður maður og afi var skuli vera tekinn frá manni. En svona er víst tilgangur lífsins. Afí minn veiktist fyrir einu og hálfu ári og varð aldrei samur maður eftir það. Það bjó mikill viljakraftur og lífs- vilji í honum. Ég heimsótti hann í sumar sem leið og gerði ég mér grein fyrri því að sennilegast yrði þetta í síðasta sinn sem við sæumst í þessu lífi. En það er gaman að eiga jafn góðar minningar og ég á um afa minn. Eins og ég man afa best var hann alltaf tilbúinn að rétta næsta manni hjálparhönd. Afí var ósérhlífinn og dugnaðar- maður til vinnu, og allt sem hann gerði var vel gert og fallega unnið, eitt það skemmtilegasta sem afa fannst var það þegar böm komu í heimsókn, hvort sem það vom barnabörn eða einhver önnur börn. Frá því ég fluttist til Reykjavíkur hélst alltaf það góða samband sem var á milli okkar og leið varla sú vika að ekki töluðumst við í síma. Það var alltaf mikil tilhlökkun þegar ég fór austur á sumrin, sú góða tilfínning að amma og afí biðu eftir okkur útá hlaði með útrétta arma. Það verður óneitanlega skrít- in tilfinning að fara austur á æsku- slóðimar þegar afí er ekki lengur að taka á móti manni þegar austur er komið. Ég vil bera fram sérsatkar þakk- ir til móður minnar og starfsfólks dvalarheimilisins Hulduhlíðar á Eskifirði þar sem hann dvaldi. Ég vil þakka afa mínum fyrir allt sem hann gerði fyrir mig, því minningin um hann er það ljós sem ég sé. Megi Guð og gæfan fylgja afa á þann stað sem hann fer á. Megi Guð styrkja þig amma mín við fráfall góðs eiginmanns. Ég vil fyrir hönd systkina minna og fjölskyldu minnar enn og aftur þakka afa samfylgdina í lífinu. Það er ósk mín að við fáum að hittast siðar. Megi hann hvíla í friði, sáttur við Guð og menn. Blessuð sé minn- ing afa. Þórir Karl Jónasson. Aðalbjörg Bjöms- dóttir - Minning Fædd 19. desember 1912 Dáin 7. mars 1992 Þessi grein átti að birtast í vor eins og Iesa má í texta greinarinnar en vegna mis- taka við vinnslu blaðsins varð svo ekki. Er hún því birt núna og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar. Látin er fyrir nokkru á Sjúkra- húsi Húsavíkur Aðalbjörg Björns- dóttir. Bogga í Steintúni, eins og hún var ætíð kölluð og kennd við húsið þar sem hún bjó lengst af ævinnar, var mikill Húsvíkingur, og ef til vill aldrei meiri en eftir að hún settist að, á seinni hluta ævinnar, sunnan heiða. Lífshlaup Aðalbjargar á yngri árum þekkti ég lítið til, vissi þó alltaf af henni í fjarlægð. Hún gift- ist tvisvar og eignaðist böm og bamabörn, eins og gengur, og ævin leið. Báða sína ágætu menn missti hún og var hún ekkja þegar hún fluttist suður yfír heiðar, til Reykja- víkur. Hún hafði mætt skólabróður og sveitunga frá yngri árum, Karli Jakobssyni, sem þá var orðinn ekk- ill. Þau ákváðu að taka saman og veita hvort öðm þann styrk og þá Minningar- og afmælisgreinar Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. hamingju sem þau megnuðu og njóta þann tíma, sem þeim entist á efri árum. Á meðan heilsa entist nutu þau samvistanna, með fjöl- skyldum, bæði sunnan og norðan heiða. Samband Karls og Boggu var innilegt, fórnfúst og gefandi. Þau tóku mikinn þátt í félagsstarfi eldri borgara og geisluðu af gleði þegar þau komu frá því að spila eða dansa. Handavinna Boggu var afskap- lega falleg og mikil. Oft sagði hún að samveran í Bústöðum væri þeirra hálfa líf, þau væru alltaf að hlakka til. Það var notalegt og gott að heimsækja þau í Hjallalandið. Þessi alþekkta rómaða gestrisni var þeim svo eðlileg, að manni fannst allt heimilið bjóða mann velkominn. Þegar ég heimsótti þau á Húsavík var eftirtektarvert hvað þau voru samhent að búa í haginn fyrir sig fyrir veturinn. Hjá þeim var svo sannarlega fyrirhyggja frá fyrri tíð í hávegum höfð. Yfirfullar hillur af berjasultu og saft. Frystikistan full af fiskmeti. Bogga steikti bollur og bjó út í pakka og velti físki uppúr raspi og setti í pakkningar, allt til- búið og sem handhægast að grípa til. Karl hengdi upp fisk í hjall til að hafa siginn. Og þegar haustaði var haldið suður til Reykjavíkur — og ekki alveg tómhent. Ég naut oft góðs af á margan hátt. Krukka af aðal- blábeijasultu eða ferna með fersk- um beijum. Þetta var munaður sem stóð ekki öllum til boða. Að fá aðal- bláber að norðan og ijóma með, þvílíkt lostæti. Ifyrir nokkrum árum fór heilsa Boggu að gefa sig. Lífsgleðin breyttist í baráttu, til að komast til heilsu á ný, í lengstu lög var haldið í vonina um betri tíð og stundum verður aðeins vonin eina veganest- ið. Þegar svo er komið, verður að lokum þreyttum hvíldin kær. Ég er stödd á Húsavík, sumarið er að koma, gróandi í laut og lofti. Mörgum okkar sem erum búsett sunnan heiða fer á vorin eins og farfuglunum, við leitum á gamlar æskustöðvar, þar sem okkur fínnst að hvergi skíni sólin skærar eða sunnanblærinn stijúki blíðlegar við vanga. Eins var Boggu farið. Þegar leið á vetur, fór hún að búa sig til vorferðar norður með Karli, þar sem þau dvöldu sumarlangt. Nú er vor- ferð Boggu hafin, á aðrar slóðir að vísu að þessu sinni. Með þessum fáu minningarbrotum þakka ég góða, en stutta samleið sem við áttum. Samúðarkveðjur til aðstandenda. Guðrún Jóhannsdóttir frá Hjarðarholti. ÞESSAR ungu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn 3.100 krónur. Þær heita Álfheiður Anna Pétursdóttir og Signý Helga Jóhannesdóttir. ÞESSAR ungu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar sjóði Sophiu Hansen og varð ágóðinn 8.240 krónur. Þær heita Sigrún, Sunna, Lovísa, Kolla og Petra. ÞESSAR ungu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn 1.521 krónur. Þær heita Katy Þóra Winter og Sólrún María Reginsdóttir. ÞESSAR ungu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn 1.675 krónur. Þær heita Þórdís Karlsdóttir, Anna María Ingibergsdóttir og Þorbjörg Bergmann. SJÁLFSTIEDISFLOKKURINN r l': I. A (, S S T A R Y Aðalfundur Félags sjálf- stæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi verður haldinn i Val- höll laugardaginn 14. nóvember kl. 11.00 árdegis. Dagsskrá: Venjuleg aðalfund- arstörf. Gestír fundarins verða Magnús L. Sveinsson og Júlíus Hafstein. ------------- Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.