Morgunblaðið - 15.11.1992, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1992
Afmæliskveðja 100 ára
Finnur Jónsson
myndlistarmaður
Kveðja frá Félagi íslenskra
myndlistarmanna
Það þykir enn nokkrum tíðind-
um sæta að einstaklingur nái
hundrað ára aldri. í dag, 15 nóvem-
ber, hefur Finnur Jónsson mynd-
listarmaður lifað heila öld og af
því tilefni vil ég, fyrir hönd Félags
íslenskra myndlistarmanna, senda
honum kveðju. Er honum innilega
ámað heilla á þessum tímamótum,
jafnframt því sem honum eru færð-
ar þakkir fyrir framlag hans til
íslenskrar myndlistar.
Finnur var snemma ákveðinn í
því að leggja myndlist fyrir sig,
en lærði þó gullsmíði áður en hann
hóf myndlistamám fyrir alvöru.
Hann hélt til Kaupmannahafnar
árið 1919 þar sem hann var í einka-
skóla Olafs Rudes í tvö ár, en fór
síðan til Þýskalands til frekara list-
náms. Ekki var algengt á þeim
tíma að íslenskir myndlistarmenn
leituðu framhaldsmenntunar í
þýskum listaskólum, enda kynntist
Finnur þar nýjum og róttækum
straumum í myndlistinni. Hann var
fyrst eitt ár í Berlín þar sem hann
komst í kynni við expressionis-
mann og hreifst mjög af honum.
Hann kynntist verkum þeirra sem
voru í fararbroddi myndlistar-
manna í Evrópu, s.s. Kandinsky,
Chagall, Paul Klee og fleirum. I
ársbyijun 1922 flutti hann sig um
set til Dresden og var þar við nám
í Der-Weg-skólanum, sem var
einkaskóli í nánum tengslum við
Der Sturm-hreyfinguna. Jafnframt
sótti hann tíma í útlendingadeild
listaakademíunnar í Dresden, eink-
um í teikningi. Einn af kennurum
hans þar var expressionistinn Ko-
koschka. I Þýskalandi tók Finnur
þátt í sýningum myndlistarmanna
sem margir hveijir urðu heims-
þekktir.
Heim kom hann árið 1925 og
hélt þá sýningu á verkum sínum
frá Þýskalandsárunum. Var sýn-
ingunni vel tekið af flestum, en
vakti þó nokkrar deilur. Finnur
Jónsson valdi sér það hlutskipti að
búa og starfa að list sinni hér
heima á íslandi, sem óneitanlega
var fjarri hringiðu heimsmenning-
arinnar á þeim tíma.
Finnur lét lengst af mikið að 'sér
kveða í félagsmálum myndlistar-
manna. Árið 1928 varð hann einn
af stofnendum Listvinafélagsins í
Reykjavík og formaður þess til
1931. Hann rak myndfctarskóla í
Reykjavík ásamt Jóhanni Briem,
1934-40. Hann var einn af stofn-
endum Félags íslenskra mynd-
listarmanna og átti lengi sæti í
stjórn þess og sýningarnefndum.
Hann var gerður að heiðursfélaga
í FÍM 1968, og varð hann með
árunum einnig aðnjótandi margs-
konar heiðurs og viðurkenninga
erlendra og alþjóðlegra vísinda- og
listamannasamtaka.
Félag íslenskra myndlistar-
manna sendir listamanninum inni-
legar árnaðaróskir í tilefni dagsins.
Hafsteinn Austmann.
'östud.
rársdagur
Fimmtud.
u
A
og
vinum.
aðfangadagur
nud
Innifalib: Gisting,
morgunverður af
hlaðborði og þríréttaður
kvöldveröur þ.m.t.
sérstakur
hátíðarkvöldverður á
aðfangadagskvöld,
jóladag, gamlárskvöld
og nýársdag.
Ilmandi skata á
Þorláksmessu - kirkjuferð
jólaball barna -
kvöldvökur - kynnisferðir
um nágrennið - leikfimi -
dansleikir - tónleikar -
píanóbar - einsöngur, lög
úr ýmsum áttum -
bjöllukór Bústaðakirkju -
félagsvist - borðtennis -
jólastund - nýársfagnaður
- jóladansleikur - gítar -
opiö hús gestanna -
harmonika - bingó og
,;Happy hour" alla daga. ,
Sunn
Fostud.
jóladagur
* Pr. mann a dag í tvibýli
lágmark 5 nætur samfellt.
Aukagjald fyrir einbýli
kr. 1.500 á dag.
Lúxus á láemarksverbi
tI , . , , . ... Fimmtui
Herbergi með baði, sima, utvarpi, sjonvarpi V* gamlársi
og smábar. Upphituð útisundlaug — vA
jarögufubað — heitir pottar — jAr
nuddstofa — hárgreiðslu og
snyrtistofá — ljósalampar. V1 Mii
Fjölskyldufólk
— einsfaklingar ^
Látið okkur um amstrið w’
oguppvaskið. . «
Njótið samveru ÁV*
meö X&
fjölskyldu .
'ÁV
<ým
annar dagur jóla
Gestgjafi hinn
landskunni
Siguröur
Guömundsson
Upplýsingar og pantanir r
síma 98-34700 - fax 98-34775
HÓTEL ÖDK
HVERAGERÐI
EKKISOFA OF LENGIA ÞVI!
*Tilboð á svefnsófum og dýnum dagana 10-21 nóvember.
♦STAÐGREIÐSSLUAFSLATTUR
LYSTADUN-SNÆLAND hf