Morgunblaðið - 18.11.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1992
5
Morgunblaðið/Sverrir
Töframaðurinn og skólabörnin
Þau kættust mjög, börnin sem Baldur Bijánsson sýndi töfrabrögð í Mjólkursamsölunni við Bitruháls í
gær. Börnin voru þar til að kynna sér starfsemi Mjólkursamsölunnar, en 2000 skólabörn heimsækja hana
í þessari viku.
Hjúkrunarfræðingar á Borgarspítala
Gert ráð fyrir að meiri-
hlutinn vilji segja upp
GERA má ráð fyrir að meirihluti hjúkrunarfræðinga á Borgarspítalan-
um vilji segja upp störfum ef ekkert miðar að kjarabótum. Lilja Stef-
ánsdóttir og Marta Kjartansdóttir, trúnaðarmenn hjúkrunarfræðinga
spítalans, byggja þetta á niðurstöðum athugunar meðal félaga sinna,
en frá þeim var sagt á fundi þjúkrunarfræðinganna í fyrradag. A
Landspítalanum bíða hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp störfum
viðbragða viðsemjenda sinna.
Kannað var fyrir hálfum mánuði
hvort hjúkrunarfræðingar vildu fara
í verkfall eða segja störfum sínum
lausum ef ekkert gengi í kjarabótum
þeirra til móts við sambærilegar
stéttir. Alls starfa 298 hjúkrunar-
fræðingar á Borgarspítalanum en
191 tók afstöðu. Af þeim kváðust
64% vilja segja upp að óbreyttu.
Hjúkrunarfræðingar hafa nú um
68 þúsund krónur á mánuði í bytjun-
arlaun og bera sig saman við stéttir
eins og sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa,
félagsráðgjafa, röntgen- og meina-
tækna.
Lilja Stefánsdóttir segir að fólk í
þessum störfum hafi 20-30 þúsund
krónum hærra mánaðarkaup en
hjúkrunarfræðingar vegna þess að
starfsheiti skipi þeim í hærri launa-
flokka. „Þetta ergir auðvitað hjúkr-
unarfræðinga, námstíminn er sá
sami og ábyrgðin síst minni.“
Raunar var skipulagi hjúkrunar á
Borgarspítalanum breytt í haust og
hjúkrunarfræðingar í fullu starfí,
rúmlega ijörutíu talsins, gerðir að
verkefnastjórum eða hjúkrunardeild-
arstjórum, þannig að laun þeirra
hækkuðu. En kaup um 250 hjúkrun-
arfræðinga er óbreytt.
„En sannleikurinn er sá að við
búum við launakerfi sem þjónar ekki
lengur tilgangi sínum," segir Lilja.
„Það er nær óhreyft frá 1987 og
tekur ekki mið af neinum raunveru-
leika. Alls kyns yfirborganir og auka-
greiðslur til stórra hópa hafa tíðkast
lengi. Úti á landi eru þær réttlættar
með fólksskorti, en í Reykjavík er
líka hörgull á hjúkrunarfræðingum
og mun meira álag.
Sumar hafa einfaldlega ekki efni
á að vinna, kostnaður af barnagæslu
og slíku er meiri en launin þeirra.
Það er næsta víst að hagstæðara
væri að greiða þokkaleg grunnlaun
heldur en að kaupa aukavinnu dýru
verði eins og nú er gert.“
Hjúkrunarfræðingar á Landspítal-
anum bíða að sögn Elínborgar Stef-
ánsdóttur eftir viðbrögðum viðsemj-
enda, um 80% þeirra sögðu upp í
byijun nóvember með þriggja mán-
aða fyrirvara. Elínborg segir að í
raun sé verið að biðja um endurmat
á störfum hjúkrunarfræðinga spítal-
ans líkt og á Borgarspítala og Landa-
koti.
Húsavík
Ekki lent vegiia aurbleytu
ÞAÐ kann að hljóma einkennilega
á þessum tíma árs, þá hiti er við
frostmark, en tvo sl. sunnudaga
hefur ekki verið hægt að lenda á
Húsavíkurflugvelli vegna aur-
bleytu. Hefur verið ekið með far-
þega til Akureyrar í staðinn.
í 30 ár kom aldrei fyrir að Húsavík-
urflugvöllur væri ófær vegna aur-
bleytu þó aðrir vellir hefðu átt við
slíkt að stríða. Fyrir 4 árum, var að
tilhlutan ráðamanna flugstjórnar
keyrt yfir völlinn leirlagi sem heima-
menn töldu fráleitt vegna reynslu af
þeim ofaníburði á Tjörnesvegi. Síðan
hefur völlurinn oft verið ófær. Fyrir
tveim árum átti að bæta ástandið
og keyrt var í völlinn hraungjalli.
Við það batnaði völlurinn en ekki
meira en svo að þegar frostið nær
ákveðnu marki verður hann ófær.
Við þetta ástand geta Þingeyingar
illa unað og vænta þess að úr verði
bætt á komandi ári.
- Fréttaritari
CARDIA
U\3NAAIq
** NÁTTÚRUAFURÐ
SEM ENGINN MÁ LÁTA FRAMHJÁ SÉR FARA
Gott á brauðið, í baksturinn, í sósuna,
í súpuna, í teið eða í flóuðu mjólkina.
CARDIA-hunang stendur alltaf fyrir sínu
CARDIA
" HONNING
a/áttúrua^ /
Áriegt jólablað Morgunblaðsins kemur út þriðjudaginn 1. desember.
Eins og nafnið gefur til kynna verður efni blaðsins þríþætt. Vegleg umfjöllun um
jólamat og bakstur með uppskriftum og viðtölum við mataráhugafólk og
meistarakokka verður á sínum stað. Auk þess verður fjallað með ýmsu móti um
jólagjafir og ekki síst jólaföndur og ( þeim efnum verður af nógu að taka.
Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessu blaði er bent á auglýsingadeild
Morgunblaðsins í síma 691111, en tekið verður við auglýsingapöntunum
til kl. 17.00, mánudaginn 23. nóvember.