Morgunblaðið - 18.11.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1992
31
íslensku keppendurnir, Helgi Sigurðsson og Vignir
Agústsson ásamt danska keppandanum, Patrick
Mortensen.
Sigurvegararnir: Keppandinn frá Danmörku í 2.
sæti, sigurvegarinn sem var frá Svíþjóð og Finninn
í 3. sæti.
Keppendurnir komu m.a. fram á samfellum með hálfsíðum skálmum
og stigu nokkur dansspor.
íklæddir gallabuxum, sýndu
keppendurnir ýmiss konar æf-
ingar.
FEGURÐARSAMKEPPNI
Karlarnir keppa
Fegurðarsamkeppni karla hefur
einhverra hluta vegna ekki
náð sömu vinsældum og keppni
stúlknanna og hefur keppnin um
herra ísland ekki verið haldin um
all nokkurt skeið. Nú hafa íslend-
ingar hins vegar eignast karlkyns
ljósmyndafyrirsætu Norðurlanda
en Vignir Ágústsson hlaut þann
titil í keppninni Herra Norðurlönd,
sem haldin var fyrr í mánuðinum.
Það eru Finnar sem standa að
keppninni, sem var haldin í Hels-
inki og um borð í ferjunni sem sigl-
ir milli Helsinki og Stokkhólms.
Keppnin var nú haldin í fyrsta sinn
og tóku tveir keppendur þátt í
henni frá hvetju Norðurlandanna.
Auk Vignis keppti Helgi Sigurðs-
son fyrir íslands hönd. Báðir hafa
þeir komið nálægt sýningarstörf-
um, en það voru Módel 79 samtök-
in sem völdu keppendur tilþáttöku.
Keppendur sýndu nokkur
skemmtiatriði og komu ævinlega
saman fram og eins klæddir. Fyrst
sýndu þeir nokkrar líkamsæfingar,
íklæddir gallabuxum og með rauða
tóbaksklúta. Þá komu þeir fram í
samfellum með hálfsíðum skálm-
um og tóku nokkur létt dansspor.
Næst mættu þeir í rauðum slopp-
um og í hjólabuxum innanundir,
þá í sundskýlu og að síðustu í
jakkafötum. Auk þess að koma
fram, ræddu strákarnir við meðlimi
dómnefndar
„Við Islendingamir vorum óttalega
ræfilslegir miðað við þá keppendur
sem stæltastir vom,“ segir Vignir.
Fannst honum erfiðast að koma
fram á sundskýlunni einni fata.
„Þá var líka erfítt, þó á annan
hátt væri, að koma fram á galla-
buxunum. Ég gerði um 200 arm-
beygjur á sviðinu og var alveg
dauður á eftir. En þetta gekk
ágætlega, enda hæfileg blanda af
gamni og alvöru og gaman að
kynnast hinum strákunum.“
Vignir segir undirbúning hafa
verið af skomum skammti og
vissulega varð ekki komist hjá
smávægilegum óhöppum. „Vic
vomm í sundskýlum undir hjóla-
buxunum og áttum að fara úr þeirr
síðarnefndu á milli atriða. Þegai
við voram komnir fram á sviðic
uppgötvaði ég hins vegar að ég
var enn á hjólabuxunum og bjarg
aði mér fyrir horn með því að skell;
mér fram á sviðið og fara úr hjóla-
buxunum með stæl. Þarna korr
æfingin úr tískusýningunum ac
góðu gagni,“ segir Vignir en hanr
hefur starfað hjá Módel 79 í fjögui
ár. Segist hann stefna á módel
störf erlendis á næsta ári
Vignir er 21 árs og atvinnulau;
þessa dagana. Hann hefur því tím;
með dóttur sinni, sem hann segi
upprennandi sýningarstúlku. Vign
ir var um það bil í miðri aldursröð
inni í keppninni en elsti keppandim.
var 33 ára og yngsti 18 en þa<
var Helgi, hinn íslenski keppand
inn.
Skídasamfestingar
á hreint ótrúlegu verdi
I
St. XS-XL
kr. 7.990,-
5% staðgreiðsluafsláttur.
Sendum í póstkröfu.
»hummelA
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40, SlMAR 8 1 355 5, 8 1 365 5
St. 120-170
kr. 5.990,-
f--------------------------\
fHfCO REIKNIVÉLAR
ERU ÓDÝRARI OG BETRI
ibico 1232
12 stafa reiknivél
með minni
Frábær vél á
einstöku verði
Strimill og skýrt
Ijósaborð
Svart og rautt letur
Stærð:
210x290x80 mm
IZI
0
0
0
0
Penninn, Hallarmúla, Kringlunni, Austurstræti.
E.TH.MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUN 10 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 651000
GLERAUGNAMIÐSTÖÐIN
LAUGAVEGI 24 • SÍMI 20800