Morgunblaðið - 22.11.1992, Side 4

Morgunblaðið - 22.11.1992, Side 4
4 FRETTIR/YFIRUT ’GJT H33M,1VÖM .SK HU0Att?JH3Ua ClKiAJtWUD IQM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR' 22. NÓVEMBER 1992 ERLENT INNLENT ASI samþykk- ir framhald viðræðna í UPPHAFI vikunnar samþykkti fundur miðstjómar og formanna lands- og svæðasambanda ASÍ að halda áfram viðræðum um efna- hagsaðgerðir með VSÍ og atvinnu- málanefnd ríkisstjómarinnar. Fyr- ir fundinum lá tillaga frá forseta ASÍ um að viðræðunum yrði frest- að fram að þingi ASÍ en fundurinn ákvað nær einróma að halda þeim áfram. Rætt við stjórnarandstöðuna Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra áttu á miðvikudags- morgun viðræður við fulltrúa stjómarandstöðunnar um stöðu mála í fyrirhuguðum efnahagsað- gerðum. Engar tillögur vom lagðar fram á þessum fundi en menn skiptust á skoðunum og fóm yfir málin. í lok fundarins sagði Stein- grímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins m.a. að Framsóknarmenn vildu reyna öll önnur úrræði en gengisfellingu. Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins sagði m.a. að hann fagnaði því að tekið hefði verið undir hugmyndir Alþýðu- bandalagsins um hátekju- og fjár- magnsskatt. Eimskip sameinar aðstöðu í borgarráði hefur verið lagt fram samkomulag um að borgar- yfirvöld heimili Eimskip að nýta lóð féíagsjns við Borgartún fyrir íbúðasvæði. Leigulóðarsamningur Eimskips rennur út eftir 10 ár og er áhugi á því að flytja starfsemina frá Borgartúni á nýtt svæði í Sundahöfn. Eimskip stefnir að því að sameina alla flutninga- og geymsluaðstöðu sína á einn stað við Sundahöfn. Hvað varðar lóðina í Borgartúni er gert ráð fyrir að Eimskip láti vinna deiliskipulag og greiði gatnagerðargjöld af ný- byggingum auk opinberra gjalda. Tveir teknir í Flórída Tveir íslendingar sitja nú í fang- elsi í Flórída eftir að þeir voru handteknir þar í kjölfar þess að hafa reynt að selja tálbeitu banda- rísku toilgæslunnar 44.000 skammta af hormónalyfjum eða sterum. Viðskiptin við tálbeituna voru tekin upp á mynddband og eftir yfirheyrslur hjá dómara var ákveðið að íslendingamir gætu ekki sett fram tryggingu gegn lausn sinni úr fangelsi þar til dóm- ur er fallinn í máli þeirra. Kaupa hlut í Þróunarfélaginu Samningur um kaup tólf af stærstu lífeyrissjóðunum á 29% hlut ríkissjóðs í Þróunarfélaginu hafa verið undirritaðir. Kaupverðið er 130 milljónir króna og verður það greitt að fullu fyrir áramót. Þorgeir Eyjólfsson formaður Landssambands lífeyrissjóða segir að þessi kaup sjóðanna séu leið þeirra til að nálgast áhættusamari hluta Qármagnsmarkaðarins og viðleitni til að efla atvinnulífíð við þær aðstæður sem nú eru. Fjórir bátar í erfiðleikum Fjórir bátar lentu í erfiðleikum við sunnanvert Snæfellsnes á föstudag og munaði litlu að illa færi. Þyrla- Landhelgisgæslunnar var kölluð út og tókst henni að hífa tvo menn af tveimur bátanna upp þrátt fyrir mjög erfíðar að- stæður. Hinir bátamir tveir voru lóðsaðir til hafnar á Amarstapa. Þá strandaði hafnsögobáturinn Haki á Lönguskeri í Skeijafirði á föstudagskvöld. Hann var dreginn á flot á flóðinu seinna um kvöldið. ERLENT Gengi sænsku krónunnar fellt um 10% GENGI sænsku krónunnar féll um 10% á fímmtudag en þá hafði seðlabanki Svíþjóðar komist að þeirri niðurstöðu, að útilokað væri að verja það og ákvað að láta það fljóta. Kom ákvörðunin í kjölfar gífurlegs gjaldeyrisflótta úr landi en hann er talinn hafa numið 160 milljörðum SKR. eða sem svarar nær öllum gjald- eyrisforðanum. Kenndi Carl Bildt, forsætis- ráðherra Svíþjóð- ar, spákaup- mönnum um og átaldi einnig stjómarandstöðuna, jafnaðarmenn, fyrir að hafa ekki viljað styðja vamaraðgerðir stjóm- arinnar. Efnahagssérfræðingar í Svíþjóð segja, að aðgerðimar, sem stjóm og stjórnarandstaða stóðu að í september, hafi ekki dugað vegna þess, að innbyggður kerfis- og fjárlagavandi væri of mikill eft- ir tveggja áratuga sóun í sænskum ríkisfjármálum. Gengisfall sænsku krónunnar setti strax mikinn þrýsting á norsku krónuna enda eru Svíar ein helsta viðskiptaþjóð Norðmanna og þeir keppa á sömu útflutningsmörkuðunum. Brást norski seðlabankinn við með því að takmarka skammtímalán til banka en beðið var eftir því hvem- ig norsku krónunni reiddi af á gjaldeyrismörkuðunum. GATT-samningar á næsta ' leiti VEL hefur miðað að sögn í viðræð- unum um nýjan GATT-samning milli fulltrúa Bandaríkjastjómar og Evrópubandalagsins, EB. Það eru landbúnaðarmálin, sem um er deilt, aðallega niðurgreiðslur EB á fræolíu, en Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að setja 200% refsitoll á hvítvín frá EB og þá einkum Frakklandi hafí samningar ekki tekist fyrir 5. desember nk. Var gert hlé á viðræðunum á fimmtu- dag en búist er við, að þær hefjist aftur eftir helgina. Þýsk innflytjendalöggjöf hert ÞÝSKIR jafnaðarmenn, SPD, hafa breytt stefnu sinni í málefnum inn- flytjenda og samþykkt að fallast á strangari löggjöf um þau. Bjöm Engholm, formaður SPD, sagði á aukaþingi flokksins, að yrði ekki komið í veg fyrir gífurlegan fólks- straum til landsins væri hætta á stórauknum stuðningi við hægri- öfgamenn. Um þúsund manns koma nú til Þýskalands daglega en með fyrirhugaðri breytingu á innflytjendalöggjöfínni verður að- eins tekið við þeim, sem orðið hafa fyrir pólitískum ofsóknum í landi sínu. EES samþykkt f Svfþjóð SÆNSKA þingið samþykkti samn- inginn um Evrópska efnahags- svæðið, EES, á miðvikudag með miklum atkvæðamun eða 308 at- kvæðum gegn 13 en sex sátu hjá. Er almennt litið á EES sem fyrsta skref Svía inn í sjálft Evrópu- bandalagið, EB, en samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti sænskra kjósenda þó andvígur EB-aðild. I EES-umræðunum á sænska þinginu komu fram miklar áhyggjur af niðurstöðu þjóðarat- kvæðagreiðslunnar í Sviss í næsta mánuði en flest bendir til, að aðild að EES verði þá hafnað jafnvel þótt meirihluti kjósenda samþykki hana. Það stafar af því, að hana verður að samþykkja í öllum kan- tónunum 26. Fari svo er líklegast talið, að EES-samningurinn verði staðfestur gagnvart öðrum EFTA- ríkjum. Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi skatta- og efnahagsmálaráðherra Danmerkur, á blaða- mannafundi á miðvikudag er hann skýrði frá afsögn sinni. Áhrif ráðherraskipta í dönsku stjórninni Lífslíkur sljómar Schluters ráðast af Tamíla-skýrsluimi NÚ þegar Poul Schliiter, for- sætisráðherra Dana, hefur leyst Anders Fogh Rasmussen frá störfum skatta- og efna- hagsmálaráðherra vakna margar spurningar um hvaða áhrif breytingar á sljórninni hafi, einkum hvað varðar áframhaldandi samstarfs- Endvöll minnihlutastj órnar Ids- og Venstre-flokksins. Á yfirborðinu snýst málið um siðferði, en undir niðri krauma önnur mál. Ráðherra óskaði sjálfur rannsóknar Málið, sem felldi Fogh Ras- mussen úr ráðherrastóli, snýst um ábyrgð hans sem ráðherra á aðgerðum embættismanna sinna og eins um hvort hann hafí gef- ið danska þinginu villandi upp- lýsingar um það. Ríkisendur- skoðunin gerði í árslok 1989 at- hugasemdir sagði Fogh Rasmussen að hún sýndi að hann hefði ekki átt upptökin að bókhaldsbragðinu. í skýrslunni gagnrýndi dómarinn hins vegar ráðherrann fyrir að hafa villt um fyrir þinginu, en Rasmussen sagðist ekki álíta sig hafa brotið svo alvarlega af sér gagnvart þinginu að hann þyrfti að segja af sér. Rasmussen kvaðst því ætla að halda áfram sem ráðherra þegar skýrslan var birt. Siðferði og ábyrgð ráðherra og stjómmálamanna hefur verið eitt af lykilorðunum í dönskum stjómmálum undanfarin misseri, meðal annars vegna þessa máls og Tamíla-málsins. Þegar skýrsl- an og viðbrögð ráðherra lágu fyrir kvað Radikale venstre upp- úr um að ekki væri hægt að líða ráðherranum að halda áfram eins og ekkert hefði í skorist. Skýrsla dómarans gefur tilefni ________________ til að stefna við há útgjöld og halla í skattaráðu- neytinu. Þá var ákveðið í ráðu- neytinu að útgjöldin, sem stöfuðu af fjárfestingum vegna tölvu- væðingar, yrðu færð yfír á næsta bókhaldsár. Að því er virðist kom fmmkvæðið frá embættismönn- um, en með vitorði og vilja ráð- herra. Þessi tilfærsla er ólögleg, en með henni slapp ráðherrann við að leita eftir aukafjárveiting- um til eigin ráðuneytis, meðan hann lagði hart að öðram ráð- herram að draga úr öllum kostn- aði í ríkisbús.kapnum. Þegar fréttir af þessari tilhögun, sem ' hefur verið kölluð „skapandi bók- hald“, láku út gerði Rasmussen þinginu grein fyrir málinu. Þá komu strax upp raddir um að hann hefði ekki gert hreint fyrir sínum dyrum. Til að hreinsa sig af grun um að hann hefði sjálfur átt fram- kvæðið að þessu frjálslega bók- haldi og sagt þinginu rangt frá óskaði hann eftir rannsókn á málinu undir stjóm dómara, sem skilaði skýrslu um niðurstöðuna. Sami háttur hefur verið hafður á við rannsókn Tamfla-málsins, sem snýst að hluta um það sama og bókhaldsmálið, þ.e. hvort ráð- herrar hafí veitt þinginu upplýs- ingar gegn betri vitund. Ábyrgð o g siðferði Þegar skýrsla rannsóknar- dómarans var birt á þriðjudag BAIISVID eftir Sigrúnu Davídsdóttur fímm emb- ættismönnum fyrir embætt- isafglöp. Tals- menn flokks- ins sögðu að úr því embættis- mennimir þyrftu hugsanlega að svara til saka væri ótækt að sá sem bar ábyrgðina væri laus við alla ábyrgð. Formaður flokksins hótaði að lýsa yfir vantrausti á ráðherrann sem hlyti að leiða til kosninga. Þetta fékk forsætis- ráðherrann að vita á miðviku- dagsmorgun. Strax síðdegis sama dag tilkynnti Schluter að hann hefði fallist á afsagnar- beiðni frá Fogh Rasmussen. Áhrifin á Tamíla-málið og framtíð ríkisstj órnarinnar Radikale venstre var ekki einn á ferð. Bæði forystumenn Jafn- aðarmannaflokksins og Sósíal- íska þjóðarflokksins tóku undir með flokknum. Þarna vora aftur hlaupnir saman sömu flokkamir og stóðu að baki málamiðlunar- innar um afstöðu Dana til Ma- astricht-sáttmálans. Þessir þrír flokkar hafa meirihluta á þing- inu. Með því að taka þá afstöðu nú að stjómin gæti ekki setið áfram eins og ekkert hefði í skor- ist álíta margir að þar með sé búið að leggja línumar um hvað gera skuli þegar Tamfla-skýrslan liggur fyrir. Skýrslunnar er að vænta í byijun desember og meðan beðið er eftir henni mið- ast allt við hvað tekur við þegar hún verður birt. Schluter forsætisráðherra var snöggur að ákveða sig þegar viðbrögð Radikale venstre vora ljós. Uffe Ellemann-Jensen, ut- anríkisráðherra og formaður Venstre, fór ekki í launkofa með að hann var ósáttur við að flokksmaður hans þyrfti að víkja vegna málsins. Hann sagðist frekar hafa kosið að láta reyna á hótun Radikale venstre um vantraust og kosningar. Óviðun- andi væri að stjómarandstaðan plokkaði stjómina í sundur með slíkum hótunum. Ráðuneytum Rasmussens hef- ur verið skipt milli tveggja manna. Thor Pedersen innanrík- isráðherra fékk efnahagsráðu- neytið í sinn hlut, en Jens Brixt- ofte bæjarstjóri tekur við emb- ætti skattaráðherra. Það vekur óneitanlega athygli að Brixtofte varð fyrir valinu. Hann viðraði í haust hugmyndir um að alvar- legasta vandamál Dana væri at- vinnuleysi og stjómin væri neydd til að taka á því, jafnvel þótt það kostaði aukin ríkisútgjöld og hærri skatta, sem hvort tveggja hefur verið keppikefli stjórnar- innar að forðast. Ellemann-Jens- en tók engan veginn undir hug- myndir Brixtofte, sem fékk hins vegar hrós frá jafnaðarmönnum fyrir að þora að láta sér þessi orð um munn fara. Ýmsir hafa látið í ljós þá skoð- un að með því að velja Brixtofte sé Schlutér"ið kinka kolli til jafn- aðarmanna. Flestir era þó sam- mála um að það komi fyrir lítið. Óumflýjanlega sé farið að sjá fyrir endapn á stjóm Schliiters og þá væntanlega stjómarsam- starfi íhaldsflokksins og Vens- tre, þó engir í stjómarflokkunum vilji ljá slíkum spádómum nafn sitt. Það er athyglisvert hvers' vegna Schluter leysir Fogh Ras- mussen frá störfum nú en gerði ekkert í svipuðu máli, sem kom upp vegna gjalda sem ríkis- stjómin lagði á, þangað til á daginn kom að þau væra ólög- leg. Það mál snerist um sömu atriði, þ.e. ábyrgð og villandi upplýsingar frá skattaráðherra og fleiri ráðherram. Schluter hefur lengi sýnt að hann er slyngur stjómmálamaður, en nú er spumingin hvort ráðin fari ekki að þijóta úr því meirihluti stjómarandstöðunnar virðist vera að finna sér samstarfsvett- vang.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.