Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992 fclk f fréttum Á góðri stund í Lundúnum, f.v. Friðrik Þór Friðriksson , Tolli, Björg- ólfur Guðmundsson, Magnús Kjartansson og Björgúlfur Thor Björg- úlfsson. Páll Stefánsson ljósmyndari. MENNING Hin myrku Norðurlönd VERULEGA umfangsmikil kynning hefur staðið yfir á menningu og framleiðslu Norðurlandaþjóðanna í Lundúnum að undanförnu. Hvers konar menningaruppákomur hafa verið í þekktum húsakynn- um og hátíðin hefur vakið mikla athygli í Bretlandi. í menningar- dálki eins af stærri blöðum Bretlandseyja var t.d. stór pistill um hátíðina undir fyrirsögninni „Jæja, hver hefur heyrt Halldórs Lax- ness getið?“. * Iumræddri grein, sem er eftir Stephen Pile, er þess réttilega getið að Norðurlöndin eru þekkt fyrir fleira heldur en ftjálslegt kynlíf, myrkur og legókubba. Nefnir hann nokkur fræg nöfn sem tengjast Norð- urlöndum eins og Grieg, Síbelíus, Strindberg, Abba, Ibsen og Bergman. Hann segir að það sem slái menn fyrst af öllu sé hversu miklu þessar tiltölulega stijálbýlu þjóðir hafl feng- ið áorkað og nefnir sem dæmi að þótt íslendingar séu aðeins 5.000 hausum fleiri en íbúar Wandsworth státi þeir engu að síður af Nóbels- verðlaunahafa og kvikmyndaiðnaði sem hefur getið af sér afurð sem nýlega hlaut útnefningu til Óskars- verðlauna og er hér auðvitað átt við Halldór Laxness og Böm náttúrunn- ar, mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar. Síðar í greininni er getið um myrkrið sem umlykur Norðurlönd og Pile ritar að af verkum flestra þeirra norrænu rithöfunda og málara sem þekktastir eru mætti ætla að Norður- landabúar væru annaðhvort geðklof- ar eða manísk-depressífir. Utanað- komandi segja við sjálfa sig og hver aðra að það sé ekkert skrýtið og þeir myndu sjálfir vera þannig á sig komnir ef þeir byggju við það viðvar- andi myrkur sem umlykur Norður- löndin stóran hluta ársins. Hins vegar sýni þverskurður sá sem birtist á menningarhátíðinni glöggt að þessi skoðun sé langt því frá að vera ein- hlít, Norðurlandabúar séu ekki bara þungir, þeir hafí ríkulega kímnigáfu og mikla gleði í bland við alvarleik- ann og drungann. Pile kemur víða við í umfjöllun sinni og nefnir að hvergi í víðri ver- öld séu jafnsterk menningarleg tengsl á milli þjóða og á Norðurlöndum. Þau eigi sér djúpar rætur þar sem mann- leg reisn og gagnkvæm virðing eru í öndvegi. „Stærsta lexían sem heim- urinn allur getur lært af Norður- landabúum er umburðarlyndi og víð- sýni,“ segir Pile og ber fyrir sig pró- fessor Gwyn Jones sem veitir forstöðu Norrænu deildinni við Háskólann í Austur-Anglíu. Það er mál þeirra sem til þekkja að þátttaka á þessari menningarhátíð sé hin ágætasta landkynning fyrir ísland. Auk Flugleiða var Viking brugg styrktaraðili íslensku þátttök- unar og sagði Björgúlfur Thor Björg- úlfsson, markaðsfulltrúi hjá Viking brugg, að það hafi verið mikill heiður að fá að styrkja hátíðina. „Við lögðum mikinn kostnað og vinnu í málið, veittum m.a. framleiðslu okkar við ýmsar uppákomur. Móttökurnar voru góðar og við erum að vinna í mark- aðssetningu á bjórtegundum okkar á Bretlandseyjum," sagði Björgólfur. VANDI Heilsubrestur breytir áherslum Bandaríska leikkonan Candice Bergen sem leikur sjónvarps- lögfræðinginn Murphy Brown hef- ur orðið að endurskoða vinnutil- högun sína að undanförnu vegna heilsubrests eiginmanns hennar, hins sextuga franska leikstjóra Louis Malle. Þau Bergen og Malle hafa verið gift í tólf ár, en síðustu árin hefur gengið á ýmsu í hjónabandinu og hefur því verið um kennt, að Malle hefur alfarið haldið áfram að starfa í Frakklandi, en Bergen í Hollywood. Bæði hafa haft í nógu að snúast í vinnunni auk þess sem Bergen hefur sinnt yngsta barni þeirra, en hin eru uppkomin. Malle hefur freistað þess að heimsækja frú sína og barn a.m.k. mánaðar- lega, en álagið hefur verið gífur- legt og umræður um skilnað frá borði og sæng hafa komið upp æ oftar. Nýlega fékk Malle hjarta- áfall og er á batavegi, en læknar við Cedar Sinai sjúkrahúsið í Los Angeles hafa sagt honum að hann verði að hægja ferðina ef ekki eigi illa að fara á ný og ekki sé víst að hann verði jafn heppinn ef hjartveiki hans tekur sig upp aft- ur. Aldrei hefur úlfúð verið ástæð- an fýrir skilnaðartali þeirra hjóna, heldur ásetningur beggja að láta verkefni sín sitja fyrir hjónaband- inu. Nú er komið mýkra hljóð í Bergen sem hefur beðið framleið- endur Murphy Brown að draga dálítið úr vægi persónunnar í þátt- unum en auka vægi annarra þann- ig að Murphy sé annað veifið aukapersóna, en slíkt myndi létta álagið af Bergen og hún myndi þá geta heimsótt karl sinn oftar í Frakklandi. Bergen, Malle og dóttírin Chloe sem er nú sjö ára. Síðasti söludagur er 15. desember .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.