Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 10
ío
•■MO&gÍMLaðÍÐ SUNNÚDAGUR 22'- NévkMtóBR 1992
37. ÞING ALÞÝÐUSAMBANDS ÍSLANDS
HEFST Á AKUREYRI Á MORGUN
ATOK UM
ARFTAKA
ÁSMUNDAR
eftir Ómar Friðriksson
FORSETAKOSNINGAR og umræða um efnahagsaðgerðir munu setja
mestan svip á 37. þing Alþýðusambands íslands sem hefst á Akur-
eyri á mánudaginn kemur. Einnig er talið víst að mikil umræða
verði um Evrópumálin og hversu ákveðna afstöðu samtökin eigi að
taka til samningsins um EES. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI,
hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér til endurkjörs eftir að
hafa gegnt starfinu í 12 ár eða þrjú kjörtímabil. Ragna Bergmann,
fyrsti varaforseti ASÍ, gefur heldur ekki kost á sér til endurkjörs
og að auki verða miklar breytingar á miðstjórn sambandsins en það
er æðsta valdastofnun milli þinga og sambandsstjómarfunda. Þá er
ljóst að aðsteðjandi efnahagsvandi mun setja mikinn svip á þingið.
Vemlegur ágreiningur er innan forystusveitar ASI um þær hugmynd-
ir um efnahagsaðgerðir sem unnið hefur verið að. Nánast engar lík-
ur em til þess að niðurstaða fáist fyrir þingið og það hlýtur því að
koma til kasta þess og nýrrar forystu að móta afstöðu til þess hvern-
ig á verður tekið. Er talið að mikil óvissa verði ríkjandi um fram-
boðsmál allt fram á þriðjudag.
ing Alþýðusambandsins
eru haldin fjórða hvert
ár og að þessu sinni eiga
seturétt á þinginu nær
500 þingfulltrúar. Um
helgina höfðu um 460 tilkynnt þátt-
töku sína. Langflestir fulltrúar til-
heyra Verkamannasambandinu eða
226 sem er um 45% þingfulltrúa.
Landssamband íslenskra verslunar-
manna er næststærsta landssam-
band ASÍ með tæplega 100 fulltrúa.
Þessi tvö sambönd eru lang stærst
því önnur landssambönd eiga öll inn-
an við 30 fulltrúa hvert, en féiög sem
ekki eiga aðiid að neinu landssam-
bandi heldur eru með beina aðild
eiga samtais 41 fulltrúa.
Af einstökum félögum er Verslun-
armannafélag Reykjavíkur með
langflesta þingfulltrúa eða 58, meira
en helming af öllum fulltrúum LÍV
og um tvöfalt fleiri fulltrúa en það
félag sem næst kemur, verkamanna-
félagið Dagsbrún sem er með tæp-
lega 30 fulltrúa. Svo dæmi séu tekin
af öðrum félögum af handahófi er
Iðja í Reykjavík með 15 fulltrúa,
starfsmannafélagið Sókn með 15,
verkakvennafélagið Framsókn í
Reykjavík með 17 fulltrúa, Eining á
Akureyri með 20 fulltrúa, Verka-
lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur
15 fuljtrúa og verkalýðsfélagið Baid-
ur á ísafirði 5 fulltrúa.
Reynt að tryggja pólitískt
og faglegt jafnvægi
Við kosningu forystu ASI er reynt
að gæta þess að jafnvægi sé á milli
landsvæða, landssambanda, félaga
og stjómmálaflokka og kynferðis.
Viðmælendum innan verkalýðs-
hreyfingarinnar ber saman um að
bein íhlutun flokkanna hafí minnkað
verulega frá því sem áður var þótt
ljóst sé að á síðustu dögum hafi
flokkamir farið að beita sér taisvert
bæði vegna forsetakosninganna og
„stokkað spilin fyrir miðstjórnar-
kjörið“, eins og einn þeirra orðaði
það. „Flokkamir binda þó engan
fyrirfram eins og áður var þótt þeir
geti kannski lagt meginlínurnar,"
sagði annar viðmælandi úr forystu-
sveitinni.
21 aðalmaður á sæti í miðstjóm,
18 auk forseta og tveggja varafor-
seta og að auki eru kjörnir níu vara-
Mikil óvissa
um efnahags-
aðgerðir og
forsetafram-
boð einkennir
upphaf þingsins
menn. Skiptingin í fráfarandi mið-
stjórn er samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins sú að fjórir eru tald-
ir sjálfstæðismenn, þrír framsóknar-
menn, fímm Alþýðuflokksmenn, sex
Alþýðubandalagsmenn og þrír eru
óflokksbundnir. Miklar breytingar
verða á miðstjórninni þar sem Morg-
unblaðið hefur heimildir fyrir að allt
að þriðjungur miðstjórnarmanna
ætli ekki að gefa kost á sér til endur-
kjörs af ýmsum ástæðum.
Meðal þeirra sem nefndir eru sem
nýir miðstjórnarmenn má nefna
Björn Snæbjörnsson, formann Ein-
ingar á Akureyri, Björn Grétar
Sveinsson, formann Verkamanna-
sambandsins og Jökuls á Höfn í
Hornafirði, Ingibjörgu R. Guð-
mundsdóttur, formann Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna,
Sigurð Guðmundsson, formann
Þjónustusambandsins, og fleiri.
Þótt reynt verði að halda pólitisk-
um styrkleikahlutföllum við uppstill-
ingu mun það riðlast þegar út í kosn-
ingar kemur, er álit viðmælenda
blaðsins.
Enginn sjálfkjorinn
„Mér fínnst mjög líklegt að komi
til kosninga um forseta. Ef Ásmund-
ur stendur við sínar yfirlýsingar um
að gefa alls ekki kost á sér sé ég
ekki neinn í sjónmálinu sem víst er
að verði sjálfkjörinn," segir Benedikt
Davíðsson sem var formaður kjör-
nefndar á seinasta ASI-þingi.
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, er sá eini
sem hefur staðfest að hann gefí
kost á sér til forsetakjörs. Aðrir sem
hafa verið orðaðir eru Guðmundur
Þ. Jónsson, formaður Landssam-
bands iðnverkafóiks, Grétar Þor-
steinsson, formaður Trésmiðafélags
Reykjavíkur, og Örn Friðriksson,
varaforseti ASÍ og formaður Málm-
og skipasmiðasambandsins. Nú síð-
ast hefur nafn Kára Arnórs Kára-
sonar, formanns Alþýðusambands
Norðurlands, skotið upp kollinum í
þessu sambandi. Er talið hugsanlegt
að til hans verði leitað á þinginu en
hann mun sjálfur ekki hafa sér-
stakan hug á framboði.
Ekki er reiknað með að aðrir en
Pétur muni svara því endanlega
hvort þeir ákveða að fara í framboð
fyrr en á sjálft þingið er komið.
Flestir segjast vera á því í dag að
Grétar Þorsteinsson muni ekki gefa
kost á sér en Ijóst er að hann hefur
notið mjög víðtæks stuðnings að
undanförnu, m.a. innan Verka-
mannasambandsins og eru bæði
Björn Grétar Sveinsson formaður
sambandsins og Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar
hlynntir framboði Grétars sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins. Einn-
ig mun Magnús L. Sveinsson, for-
maður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur ekki mótfallin því að
Grétar verði kosinn. Grétar segist
þó í samtali við blaðið ekki hafa
tekið endanlega ákvörðun um fram-
boð og segir það ráðast af atburða-
rásinni hvenær hann gefur endan-
legt svar. Flestir telja að eins og
staðan sé í dag séu einna mestar
líkur á að kosið verði á milli Arnar
Friðrikssonar og Péturs Sigurðsson-
ar og eru fleiri á því að þá eigi Örn
sigur vísan úr kosningu á miili
þeirra. Ásmundur Stefánsson hefur
ekki lýst yfir afstöðu sinni til arftak-
ans en ætlar að gera það áður en
til kosninga kemur. Er því haldið
fram að Ásmundur styðji líklegast
Örn.
Enda þótt umræða um efnahags-
aðgerðir móti allt þinghald Alþýðu-
sambandsins er þó bent á að enginn
grundvallarágreiningur sé á milli
þeirra manna sem orðaðir hafa verið
við forsetaframboð um þau mái.
Aðeins Örn Friðriksson hafi þó tengt
mögulegt framboð sitt við þessa
umræðu og hvað út úr henni komi.
Örn hefur þegar sagst ætla að
gera kjörnefnd grein fyrir afstöðu
sinni áður en hann svari því hvort
hann gefur kost á sér. Hann hefur
og’ekki farið dult með að ákvörðun
hans um framboð ráðist af því hvaða
lína verði ofan á á þinginu vegna
fyrirhugaðra efnahagsráðstafana.
Það setur þó strik í reikninginn að
forsetakosningar fara fram á mið-
vikudegi en umræðum um efnahags-
mál lýkur ekki fyrr en á föstudag.
Viðmælendum ber engu að síður
saman um að strax á þriðjudegi
muni línur vera farnar að skýrast
verulega þegar fyrsta umræða um
atvinnu- og efnahagsmál hefst og
þá liggi ljóst fyrir hverjir taki þátt
í kosningaslagnum. Bent er á að
Örn hafi þegar tekið skýra afstöðu
til efnahagsaðgerðanna og hann taki
jafnframt talsverða áhættu að vera
með framsögu við umræður um
Evrópska efnahagssvæðið á þriðju-
degi en 'mikil andstaða mun vera
gegn samningnum, sérstaklega
meðal landsbyggðarfulltrúa. Er jafn-
vei talið að ef fram kemur veruleg
andstaða meðal þingfulltrúa við
áherslur forystunnar í efnahagsvið-
ræðunum muni Örn ákveða að gefa
ekki kost á sér.
37. þing Alþýðusambands Islands
Kosningar á þinginu
Miðstjórn (18 menn)
Forseti
1. vara-
forseti
2. vara-
forseti
Talið er að þriðjungur miðstjórnar
gefi ekki kost á sér til endurkjörs
Skipting þingfulltrúa eftir landssamböndum
Landssamband vörubifreiðastjóra 1,0% 5
Rafiðnaðarsamband íslands 3,4% 17 /
Þjónustusamband (slands 3,6% 18 * '
Landssamb. iðnverkafólks 4,2% 21
Samb. byggingamanna 4,7% 24
Sjómannasamband íslands
4,6% 23
Málm- og skipasmiðasam-
band Islands 5,4% 27
Bein aðild 8,2% 41
Landssamband verslunarmanna
19,5% 97
499 fulltrúar eiga seturétt á þinginu. Um 460 sitja þingið.
tj