Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 8
8 e m DAGBÓK Kug. aiGEAJaVIUDÍIOM R 22. NÖVEMBBR 1992 I'PI A P'er sunnudagur 22. nóvember, 327. dagur -L'-tXvJ’ ársins 1992. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 4.31 og síðdegisflóð kl. 16.50. Fjara kl. 10.44 og kl. 22.59. Sólarupprás í Rvík kl. 10.19 og sólarlag kl. 16.08. Myrkur kl. 17.12. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.14 ogtungliðer í suðri kl. 11.31. (Almanak Háskóla íslands.) Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni. Eða hvað gæti maður látið til endur- gjalds fyrir sálu sína. (Matt. 16,26.) ÁRNAÐ HEILLA O iAára afmæli. í dag, 22. O V/ nóvember, er áttræð- ur Björn Guðmundsson kaupmaður í Brynju, Hverfisgötu 46, Rvík. Hann er að heiman. ^ pT ára afmæli. 1 dag, 22. I þ.m., er 75 ára Inga Jóhannesdóttir, Vesturgötu 7, Rvík. Hún er stödd í Isra- el, Hotel Notre Dame, í Jerú- salem. fT/Aára afmæli. Á morg- I \/ un, mánudaginn 23. nóvember, er sjötug Jóna Kjartansdóttir, Hlíðargötu 5, Akureyri. Hún tekur á móti gestum á heimili sínu afmælisdaginn eftir kl. 18. 24. þ.m., er fimmtugur Sveinn Þórir Jónsson, for- stjóri Radíóstofunnar hf., Leiðhömrum 46, Rvík. Kona hans er Sigríður Stefánsdótt- ir. Þau taka á móti gestum í Áttahagasal Hótels Sögu á afmælisdaginn kl. 17-19. KROSSGATAN LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: - 1 spott, 5 hamla, 8 æmar, 9 klára, 11 gifta, 14 ugg, 15 párað, 16 alæta, 17 aur, 19 nána, 21 maka, 22 augljós, 25 góð, 26 áar, 27 Týs. LOÐRÉTT: - 2 pól, 3 tær, 4 trauða, 5 haggar, 6 Ari, 7 lát, 9 kappnóg, 10 átrúnað, 12 fræðast, 13 Ararats, 18 ugla, 20 au, 21 mó, 23 gá, 24 jr. LÁRÉTT: - 1 öflug, 5 gremjast, 8 ríkis, 9 hug- hreysta, 11 spilið, 14 reyfí, 15 töngum, 16 depil, 17 væta, 19 svelgurinn, 21 starf, 22 versin, 25 megna, 26 tunna, 27 sefí. LÓÐRÉTT: - 2 spils, 3 stirðleika, 4 malla, 5 lista- manni, 6 kærleikur, 7 akstur, 9 tilviljun, 10 ganga í hjóna- band, 12 glataðar, 13 suðaði, 18 hræfugl, 20 handsama, 21 greinir, 23 sjór, 24 tveir eins. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um endurskoðun kvótalaganna: Ágreiningur milli stjórnarf lokkanna , HnhöfTSíinpfhHaHnnar Dabbi segir: Við eigura að fara þangað. Nonni segir: Við eigum að fara þangað. Dabbi segir: Þangað. Nonni segir: Þangað. Dabbi segir: Þangað. FRÉTTIR/MANNAMÓT í DAG er Cecilíumessa, til minningar um Cecilíu, sem talið er að hafi verið uppi í Róm snemma á öldum og lið- ið píslarvættisdauða. Sunnu- dagurinn í dag er hinn 23. eftir Trínitatis. Á morgun, 23. nóv., byijar Ylir. - Annar mánuður vetrar. Nafnskýring er umdeild segir í Stjörnu- fræði/Rímfræði, sem bætir því við að í Snorra-Eddu er þessi mánuður kallaður frer- mánuður. MÁLSTOFA í guðfræði er nk. þriðjudag í Skólabæ, Suð- urgötu 26, kl. 16. Sr. Þor- björn Hlynur Árnason bisk- upsritari flytur erindi um þing Kirknasambands Evrópu (KEK). Það fór fram í Prag í septembermánuði sl. KVENSTÚDENTAFÉL. ís- lands og Fél. ísl. háskóla- kvenna heldur jólafund nk. fimmtudag, 26. þ.m., í veit- ingasalnum Þingholti, Hótel Holti, kl. 20. Gestur fundarins verður frú Afsaneh Wogan sendiherrafrú Breta hér á landi. Hún ætlar að segja frá hátíðahöldum í Persíu og ára- mótum. Fram verður borinn léttur kvöldverður. BARNADEILD Heilsu- vemdarstöðvarinnar við Bar- ónsstíg. Opið hús fyrir for- eldra ungra bama nk. þriðju- dag kl. 15-16. Fjallað um afbrýðisemi barna. KVENFÉL. Neskirkju. Annað kvöld, mánudag, verð- ur haldinn afmælisfundur kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. SPILAKVÖLD starfs- mannafél. Sóknar og Fram- sóknar verður nk. miðviku- dagskvöld í Sóknarsalnum kl. 20.30. Þetta er síðasta spila- kvöldið fyrir jól. Spilaverð- laun og kaffiveitingar. SÖNGSVEITIN Drangey efnir til skemmtunar/kaffí- hlaðborðs í félagsheimilinu Stakkahlíð 17 kl. 15 í dag. KEFLAVÍK. Mánudags- og fímmtudagskvöld fer fram í Kirkjulundi á vegum systra- og bræðrafél. Keflavíkur- kirkju laufabrauðsbakstur kl. 19. LANGHOLTSSÓKN. Bræðrafél. Langholtssafnað- ar efnir til spilakvölds, félags- vist, nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkj- unnar. Ágóðinn gengur til orgelsjóðs. ITC-deildir. Deildin Eik heldur fund mánudagskvöldið kl. 20.30 í Fógetanum, Aðal- stræti. Kynning á glugga- tjaldaefni og áklæði. Fundur- inn er öllum opinn. Uppl. hjá Eddu, s. 26676, ojg Jónínu, s. 687275. Deildin Iris heldur fund í húsi SVFÍ, Hjalla- hrauni 9, Hafnarfirði, kl. 20.15. Kennsla í framsögn. Fundurinn er öllum opinn. Uppl. veita Halla, s. 52531, eða Fjóla, s. 688086. KEFLAVÍKUR/Njarðvík- ursóknir hafa ákveðið að kanna þörfina fyrir vistun barna, einkum atvinnulausra foreldra, til að létta á því álagi sem á heimiiunum er. Toby Sigrún Herman forstöðukona kirkjuskjóls Neskirkju mun kynna málefnið á fundi í Kirkjulundi nk. þriðjudags- kvöld kl. 20.30. KVENFÉL. Hreyfils heldur basar í dag kl. 14 í Hreyfils- húsinu. AFLAGRANDI 40, félags- miðst. 67 ára og eldri. Mánu- dag spiluð félagsvist kl. 14. Þriðjudaginn kl. 14. Umræðu- hópur undir stjórn sr. Guð- laugar Helgu Ásgeirsdóttur. Hann starfar fram í miðjan desember. Skráning þátttak- enda í móttökunni. KVENFÉL. Freyja, Kópa- vogi. í dag verður spiluð fé- lagsvist kl. 15 á Digranesvegi 12. Spilaverðlaun og kaffí. GERÐUBERG, félagsstarf aldraðra. Mánudag kl. 11 leikfimi. Börn frá skólaheimil- inu Hraunkoti koma í heim- sókn. Kynning á jólaföndri kl. 14-15. ÁRBÆJARSÓKN, félags- starf aldraðra. Fótsnyrting í safnaðarheimili Árbæjar- kirkju mánudaga kl. 2-5. Tímapantanir hjá Fjólu Finn- bogadóttur. SAFNAÐARFÉL. Grafar- vogskirkju heldur jólafund- inn mánudagskvöld kl. 20.30 í Hamraskóla. Guðrún Geirs- dóttir leiðbeinir við jólafönd- ur. KIRKJUSTARF ÁSKIRKJA: Fundur í æsku- lýðsfélaginu í kvöld kl. 20. BÚSTAÐAKIRKJA: Fundur 10-12 ára barna í dag kl. 17. Fundur í æskulýðsfélaginu í kvöld kl. 20. H ALLGRÍMSKIRKJ A: Fundur í æskulýðsfélaginu Örk í kvöld kl. 20. HÁTEIGSKIRKJA: Æsku- lýðsstarf fyrir 10-12 ára í dag kl. 17. Æskulýðsstarf fyrir 13 ára og eldri í kvöld kl. 20. Biblíulestur mánu- dagskvöld kl. 21. LAUGARNESKIRKJA: Fundur í æskulýðsféiaginu í kvöld kl. 20. NESKIRKJA: Æskulýðs- fundur fyrir 13 ára og eldri verður haldinn í safnaðar- heimili kirkjunnar á morgun, mánudag, kl. 20. SELTJARNARNES- KIRKJA: Fundur í æskulýðs- félaginu í kvöld kl. 20.30. ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20. Opið hús fyrir eldri borgara mánudaga kl. 13-15.30 og miðvikudaga kl. 13.30- 16.30. Foreldramorgnar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10-12. FELLA- OG HÓLA- KIRKJA: Æskulýðsfundur mánudagskvöld kl. 20.30. Upplestur hjá félagsstarfi aldraðra í Fella- og Hóla- brekkusóknum í Gerðubergi mánudag kl. 14.30. Lesnir verða Davíðs sálmar og Orðs- kviðir Salómons konungs. SELJAKIRKJA: Æskulýðs- fundur mánudagskvöld kl. 20-22. Mömmumorgunn, op- ið hús, þriðjudag kl. 10-12. SKIPIN __________ REYKJAVÍKURHÖm í dag er togarinn Freri vænt- anlegur inn af veiðum. A morgun er Brúarfoss vænt- anlegur að utan og togarinn Engey er væntanlegur inn af veiðum. HAFNARFJARÐAR- HÖFN: Lagarfoss lagði af stað til útlanda i gær. Norski togarinn og sá grænlenski sem komu inn fyrir helgina eru báðir farnir út aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.