Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 15
MOKGUNPpADip SUNKUPAWfl £2. .NÓyEMBEIi 19?2 , 15 , Tyrkir eru að gægjast inn í Evrópubandalagið. mennum tyrkneskum lagaákvæð- um en þar segir á einum stað að böm tilheyri foreldrum sínum og eigi að hlýða föður sínum þar sem hann sé leiðtogi fjölskyldunnar. Þjóðarímynd Ósagt er hversu tyrkneska for- ræðismálið hefur skemmt mikið fyrir þjóðarímynd Tyrkja á íslandi og eflaust er þess ekki langt að bíða að málið verði evrópskt ef ekki alþjóðlegt fréttaefni. Ef hægt er að draga fram blóraböggul í þessu sambandi er helst að nefna hóp ofstækisfullra múslima sem hafa fylkt liði til styrktar föðurfjölskyldu bamanna. Fólkið hefur átt þátt í harðri atgöngu að saklausum ís- lenskum ríkisborgurum í fjarlægu landi og vill gera forræðismál að trúarbragðastríði, þvert á vilja meirihluta tyrknesku þjóðarinnar. í allri baráttunni megum við nefni- lega ekki gleyma því að ofstækis- fullir múslimar era ekki dæmigerð- ir Tyrkir heldur undantekning; baggi á elskulegri þjóð. Forrœðisdeila og harmleikur - seqir Mehmef Demir Koyq, blaðamadur „AUÐVITAÐ spilla atburðir eins og uppákoman fyrir framan dóms- húsið 24. september fyrir þjóðar- imynd okkar en svona læti eru ekki óeðlileg í forsjárdeilu. Það er verra þegar verið er að gera einfalt forsjármál að pólitísku þrætuepli," sagði Mehmet Demir Kaya, blaðamaður á tyrkneska dagblaðinu Cumhuriyet, fyrir framan dómshúsið í Istanbúl áður en forræðismál Sophiu Hansen og Halims Als var tekið fyrir fyrr i mánuðinum. Þegar hann var spurður að þvi með hvoru foreldrinu hann héldi að tyrkneskur almenningur stæði svar- aði hann þvi einfaldlega með því að segja að engin formleg könnun hefði farið fram á áliti almennings. „Það skiptist í tvennt. Sumir era mjög hægrisinnaðir og halda með föðum- um. Aðrir segja að böm eigi að vera með móður sinni. Enn aðrir era hlut- lausir,“ segir hann. Mehmet vill ekki gefa upp sína skoðun á málinu en segir að blað sitt líti á málið sem forræðismál og harmleik. Önnur hlið sé ekki á mál- inu. Hann bætir við að ljóst sé að Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdðttir Mehmet Demir Kaya, blaðamaður á tyrkneska dagblaðinu Cum- huriyet. . böm þurfi bæði á föður sínum og móður að halda. Börn verða bitbein EÐLI forræðisdeilna felst í því að tveir foreldrar með sitt hvorn dvalarstaðinn telja börnum sínum best borgið hjá sér. Þannig bera báðir foreldrarnir hag barna sinna fyrir brjósti á meðan sú hræðilega staðreynd blasir við að deilur af þessu tagi koma alltaf verst niður á börnunum sjálfum. Sama gildir þó málið sé jafn flókið og tyrkneska forræðismálið. D agbjört Ves- ile A1 og Rúna Aysegul A1 léku sér eins og hverjar aðrar ís- lenskar stelpur með- an þær áttu heima á íslandi. Þær virðast líka hafa fengið nokkuð eðlilegt upp- eldi fyrst eftir að faðir þeirra settist að með þær í Tyrk- landi, vora klæddar á vestræna vísu og gengu í almennan tyrkneskan grunn- skóla. Smám saman virðist þó hafa farið að síga á ógæfuhlið- ina, að minnsta kosti er erfitt að rengja eldri Stúlkuna þegar _ Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir hun segir fra mis- Dagbjört með Kóraninn og Rúna til hægri. Efri myndimar em teknar af systran- þyrmingum af hendi um áður en faðir þeirra fór með þær til Tyrklands. föður síns og for- eldra hans í vor. Þannig hefur verið haft eftir systranum að þeim hafi verið hegnt fyrir að láta í ljós væntumþykju í garð móður sinnar og í sumar brá faðir þeirra á það ráð að flytja með þær úr borginni á sama tíma og móðir þeirra hafði rétt til að hitta þær. Systumar bjóða af sér góðan þokka. Sú eldri virðist vera foringi þeirra tveggja og hefur orð fyrir þeim en sú yngri er brosmildari og sýnir hinu óþekkta meiri áhuga. Þær segjast mikið hafa verið inni að lesa í sumar en jánka þegar þær eru spurðar hvort þær hafí fengið að fara eitthvað út. Þær virðast lítið skilja þegar spurt er um ísland og yppta öxlum þeg- ar þær era spurðar hvort þær vilji vera hjá mömmu sinni. Herbergið þeirra er eins og hvert annað bamaherbergi, með kojum og tveimur skrifborðum, að því undanskildu að lítið sést af hefðbundnum barnaleikföngum öðram en lúdó og sundbolta efst uppi á skrifborðunum. Hann nota þær eflaust lítið enda bannar trúin þeim að fara í sund. Blaðamaður tók ekki eftir að neinar dúkkur væra í herberginu meðan hann 'reyndi að spjalla við stúlkurnar á einfaldri Islensku og ensku. í hill- unum var hins vegar mikið af bókum. Meðal þeirra voru náms- bækur og skriftarbækur sem syst- urnar sýndu blaðamanni. Dagbjört benti stolt á stjömu sem hún hafði fengið á spássíu einnar bókarinn- ar. Stúlkumar eru kurteisar og ljúfar en virðast vera á varðbergi meðan íslendingamir era í heim- sókn. Þær eru fremur grannar en ekki er hægt að segja að þær líti illa út í andliti ef samanburð vant- ar. Þó virðist Dagbjört fremur lág miðað við hversu háir foreldrar hennar eru. Hún virðist ekki hafa stækkað mikið á síðustu tveimur árum ef marka má myndir. Vilji stúlknanna virtist vera sá sami og fóður þeirra þegar fulltrú- ar nokkurra íslenskra fjölmiðla sóttu feðginin heim. Engum þarf þó að blandast hugur um að sér- fræðinga þarf til að komast að því hver raunveralegur vilji þeirra er eftir allt sem á undan er gengið. Og staðreyndin er, hvar svo sem þær Dagbjört og Rúna eiga eftir að alast upp, að forræðismálið á eftir að hafa varanleg áhrif á þær og framtíð þeirra. Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir Giildane Bauykal og Reyhan Hasarpur frá íran. Á innfelidu myndinni er Saim Karamahmutoplu Stúlkurnar vilja alast upp sem múslimar - segja Giildane Bauykal og Reyhan Hasarpur „VIÐ höldum með föðurnum og stúlkunum. Þær viija alast upp sem múslimar og við viljum styðja J)ær til þess,“ sögðu Guldane Bauykal og Reyhan Hasarpur frá íran sem einnig stóðu fyrir framan dómshúsið. Þær voru með myndbandsupptökutæki og ætluðu að sýna myndband frá dómshúsinu í trúarhópi sínum í Istanbúl. „Ef upptakan verður góð sendum við hana líka til írans,“ sögðu þær. £>þim Karamahmutoplu sagðist ^ líka vera kominn til að sýna kj stuðning sinn í verki og tók fram að samkvæmt íslömskum trúarbrögðum væra stúlkurnar systur hans. „Þær eru múslimar eins og öll böm verða um leið og þau fæðast. Seinna geta þær sjálf- ar ákveðið hvaða trúarbrögð þær aðhyllast," sagði hann. Saim sagðist ekki trúa öðru en úrskurður dómara í undirrétti yrði rétt- ur en bætti við að Tyrkir vildu að málið leystist á þann veg að móðirin giftist föð- umum og tæki ísl- amska trú. NÁMSKEIÐ í MEÐFERÐ KRI ORKUSTEINA verður haldið í sal Nýaldarsamtakanna, Laugavegi 66, fimmtudagskvöldið 26. nóvember frá kl. 20—23. ✓Umfjöllun um orku og eiginleika steina og kristalla. ✓Að skynja orkusvið steina og kristalla. ✓Heilunariaqnir með orkusteinum og kristöllum o.m.fl. Leiðbeinandi Guðrun G. Bergmann, en hun er höfundur bókarinnar „LÁTUM STEINANA TALA“ sem kemur út næstu daga. í bókinni er ýtarleg umfjöllun um orkusteina og kristalla. Skráning og nánari upplýsingar hjá NÝALDARSAMTÖKUNUM, Laugavegi 66, virka daga kl. 9—17 i sfma 627712.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.