Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992 Baldur H. Jónas- son - Mhming Fæddur 8. september 1924 Dáinn 13. nóvember 1992 Á morgun verður til moldar bor- inn Baldur Hallgrímur Jónasson en hann var fæddur 8. september 1924 á Flateyri við Önundarfjörð. For- eldrar hans voru hjónin Jónas Guð- mundsson skipstjóri, sem lést 18. desember 1935, og kona hans Mar- ía Þorbjamardóttir en hún lést 21. apríl 1979. Jónas og María eignuðust 6 böm. Þau voru Marteinn þekktur togara- skipstjóri er lést 1987, Þuríður hús- móðir sem nú býr í Reykjavík, Bald- ur er lést þriggja ára árið 1923, Baldur sem hér er kvaddur og tví- burabróðir hans Bragi húsgagna- smiður er lést 1983 og Þorbjörg sem var símstöðvarstjóri á Flateyri nú búsett í Reykjavík. Baldur var ellefu ára þegar faðir hans dó. Hann byijaði tólf ára gam- all að stunda sjóróðra fyrst á sumr- in en síðan allt árið á smábátum þar vestra. Nítján ára réði hann sig á togara með Marteini bróður sínum en var á togurum þar til hann hætti sjómennsku. Hann var góður sjómaður, laginn, duglegur og ósér- hiífinn til allra verka. Árið 1953 hætti Baldur sjómennsku til að geta annast betur ijölskyldu sína því hann var sérstaklega góður fjöl- skyldufaðir og réðst þá til Áburðar- verksmiðju ríkisins og starfaði þar óslitið til marsmánaðar sl. en hætti þá að ráði læknis síns. 5. nóvember 1949 kvæntist hann systur minni Helgu Sigurbjörgu Ömólfsdóttur en hún var fædd í Súgandafirði 7. október 1924. Þau bjuggu lengst af í Reylq'avík og ^ttu fallegt heimili vom bæði kát og skemmtileg heim að sækja enda gestkvæmt heimili þeirra. Þau vora mjög samtaka um uppeldi bamanna þó það væri eins og oft er að það mæðir meira á móðurinni í dagleg- um störfum hennar heima. Hinn 4. desember 1965 lést Helga af bamsföram en bamið sem var stúlka lifði. Þetta var þungt áfall fyrir Baldur og má segja að þau sár hafi ekki gróið. Það vora erfíð spor sem við Baldur gengum saman þennan dag til að tilkynna börnunum lát móður þeirra. Baldur stóð sig vei í þessum miklu raunum sínum þó hann stæði eftir með sjö börn á viðkvæmum aldri, það elsta fímmtán ára en yngsta tveggja ára auk nýfædda bamsins, sem við hjónin tókum til fósturs og ættleidd- um. Tvö bamanna fóra til sitt hvorrar systra Baldurs sem þá bjuggu á Flateyri, annað í tvö ár, en hitt í sjö ár. Það var mikill létt- ir fyrir hann þá en þau komu aftur til hans síðar. Það var aðdáunar- vert hve vel honum tókst að halda hópnum saman við oft erfíðar að- stæður. Bömin vora líka hjálpsöm og studdu hvort annað. Þau er öll nýtir og góðir þjóðfélagsþegnar. Böm Baldurs og Helgu era: Ragnar húsasmíðameistari fæddur 1950 kvæntur Rósu Einarsdóttur hjúkr- unarfræðingi, þau eiga þijá syni og búa í Reykjavík, María Helga snyrtifræðingur fædd 1951 gift Snæbimi Össurarsyni skipstjóra þau eiga tvö böm og búa í Garðabæ, Hilmar kerfis- og guðfræðingur fæddur 1952 kvæntur Sólveigu Óskarsdóttur bamalækni, þau eiga þijá syni og búa í Svíþjóð, Margrét Ema hjúkranarfræðingur, fædd 1954, gift Siguijóni Gunnarssyni bankamanni þau eiga þijú böm og búa í Reykjavík, Elín skrifstof- ustúlka fsedd 1955 gift Hjörleifí Hringssyni sölustjóra, þau eiga þijár dætur og búá í Kópavogi. Hallgrímur húsasmiður fæddur 1958 kvæntur Ingveldi Einarsdótt- ur fóstra þau ejga tvo syni og búa í Kópavogi, Ásgerður húsmóðir fædd 1963 gift Lárasi Guðmunds- syni framkvæmdastjóra þau eiga tvö böm og búa í Garðabæ og Helga Sigurbjörg (ættleidd) Ámadóttir rekstrarfræðingur í sambúð með Helga Frey Kristinssyni rekstrar- fragðingi búa í Kópavogi. Baldur andaðist að morgni 13. þ.m. þakklátur bömum sínum fyrir góða umönnun í veikindum hans. Við hjónin viljum þakka Baldri Hallgrími Jónassyni góð samskipti á lífsleiðinni og sendum bömum, t Ástkær fósturmóðir mín, FRIÐRIKA SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR, Kríuhólum 2, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 19. nóvember. Marfa Möller, börn og barnabörn. t Minningarathöfn um STEINAR SIGURJÓNSSON rithöfund fer fram þriðjudaginn 24. nóvember kl. 10.30 í Fossvogskapellu. Dætur og systkini. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BALDUR HALLGRÍMUR JÓNASSON vélgæslumaður, Skipasundi 8, Reykjavík, er lést í Landspítalanum að morgni 13. nóvember, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju mánudaginn 23. nóvember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Ragnar Baldursson, Rósa Einarsdóttir, María Helga Baldursdóttir, Snæbjörn Tr. össurarson, Hilmar Baldursson, Sólveig Óskarsdóttir, Margrét Erna Baldursdóttir, Sigurjón Gunnarsson, Elfn Baldursdóttir, Hjörleifur Hringsson, Hallgrfmur Baldursson, Ingveldur Einarsdóttir, Ásgeröur Baldursdóttir, Lárus Guðmundsson, Helga Sigurbjörg Árnadóttir, Helgi Freyr Kristinsson og barnabörn. bamabömum og systram hans inni- legar samúðarkveðjur. Arni Örnólfsson. „Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar er broddur þinn? ... Guði séu þakkir sem gefur oss sigurinn fyrir Drottinn vom Jesúm Kristf I. Kor. 15:55-57. Nú er faðir minn látin. Eftir lang- varandi baráttu við erfíð veikindi varð hann að láta undan. Oft dáð- ist ég að kjarki og krafti pabba í baráttunni í veikindum sínum. Þrátt fyrir að ég mætti búast við fráfalli hans á hverri stundu er alltaf jafn erfítt og sárt að fá fregnina: „pabbi er dáinn“. Á sorgarstund er gott að eiga þá huggun að dauðinn er sigraður. Drottinn vor Jesús Kristur hefur gefið sigurinn. Sjájfur skap- arinn kemur til þeirra sem sorgina hrjáir og veitir líkn. Það er huggun að vita að faðir minn fær að hvíla hjá Honum, sem hefur sigrað sjálf- an dauðann. - Síðastliðnar vikur fékk ég að sitja við sjúkrabeð pabba og fékk að vitna óbilandi traust hans og trú á Guð. Hann hvíldi í þeirri vissu að Drottinn er uppspretta lifsins og hvort sem við lifum eða deyjum, eram vér Drottins. Margar ljúfar og góðar minning- ar koma fram í hugann. Pabbi var almúgamaður, sem lét ekki mikið yfír sér. Hann var einn af þessum hljóðlátu, traustu mönnum í samfé- lagi okkar sem ganga til starfa sinna dag hvem. Allt sem hann gerði var gert með vandvirkni og heiðarleika. Það var hægt að reiða sig á hann. Pabbi var ákaflega traustur maður og vildi vinna verk sitt vel. Sem sjómaður á yngri áram og vélgæslumaður í Áburðarverk- smiðjunni í nær 40 ár, sýndi hann þessa eiginleika sína. Eftir að ég eignaðist heimili og böm og varð sjálfur faðir hef ég stundum reynt að setja mig í spor pabba þegar hann missti móður mína frá 8 bömum. Við nútímafor- eldrar finnum oft hversu vandmeð- farið uppeldi bamanna er við ólíkar aðstæður og þó eram við oftast tvö. En pabbi var einn, í fullri vinnu, með stórt heimili. Ég skil stundum ekki hvemig hann gat þetta. Ein- beittur var hann að gefast aldrei upp. Hann barðist áfram og hélt heimilinu saman. Traustur var hann einnig í þessu starfí og vann verk sitt ákaflega vel. Með sínum óbil- andi kjarki og krafti veitti hann okkur systkinunum fyrirmynd, sem hefur orðið okkur gott veganesti gegnum lífíð. Yndislegt heimili gaf pabbi okkur, sem við eram honum eilíflega þakklát fyrir. Hann sleit sér út fyrir okkur. Ég hef oft hugs- að til þess að faðir minn hefur unn- ið þrekvirki. Kannski fékk heilsa hans að líða fyrir það. Þegar ég lít nú til baka, þá sé ég stóra lífsverki lokið. Þrátt fyrir raunir og erfiðleika gat pabbi verið hrókur alls fagnaðar á góðri stund og naut þess að dansa og gleðjast í góðum hóp. Ég kveð og þakka góðan og ást- kæran föður. Söknuðurinn er mik- ill, en ég fel hann í hendur Guðs. „Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eiiífu, og trúfesti hans frá kyni til kyns.“ (Sáim. 100:5.) Hilmar Baldursson. Á morgun, mánudag, verður vin- ur okkar, Baldur Hallgrímur Jónas- son, Skipasunndi 8, Reykjavík, kvaddur hinstu kveðju frá Foss- vogskirkju, en hann lést eftir erfíða en stutta sjúkdómslegu af völdum hjartabilunar í Landspítalanum 13. nóvember sl. Við ætlum ekki að rekja ættir Baldurs, en honum kynntumst við í gegnum vinskap bama hans í sumarbúðum í Vatna- skógi. Er við tókum að venja komur okkar í Skipasundið hafði sorgin kvatt dyra á þessu barnmarga sómaheimili. Helga Ömólfsdóttir var nýlátin eftir fæðingu áttunda bamsins, stærra skarð var vart hægt að höggva, þessi samhenta t Hjartkær fósturfaðir minn, RAGNAR JÓNSSON, frá Árnanesi, Hvassaleiti 155, Reykjavfk, sem lést 16. nóvember, verður jarðsunginn frá Bústaðarkirkju þriðjudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Hjúkrunar- heimilið Skjól. Bára Brynjólfsdóttir. t Látin er í Busum í Þýskalandi ENKE OLDIGS skólastjórafrú í Lunden-Holstein. Jarðarförin fór fram 19. nóvember í Heide. Fyrir hönd Lunden námsmeyja Dóra Jónsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN BRYNDÍS BJARNADÓTTIR, Hvassaleiti 56, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. nóvember kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á styrktarsjóð Landakotsspitala. Anfta Knútsdóttir, Þór Steinarsson, Helen Knútsdóttir, Guðni Sigurðsson og barnabörn. fjölskylda móðurlaus. Þá kom best í ljós hversu sterkur og heilsteyptur Baldur var. Hann hélt ótrauður áfram uppeldi barnahópsins af ein- stökum dugnaði með hjálp eldri barnanna og vandamanna. Allt frá því að Baldur varð ekkju- maður má segja að skarð hans ást- kæra eiginkonu hafí aldrei verið fyllt, það varð okkur ljósara eftir því sem árin liðu. Viljum við og fjölskyldur okkar þakka fyrir að við fengum tækifæri til að kynnast Baldri og bömum hans og þökkum vináttu þeirra alla tíð. Megi góður Guð blessa ykkur og styrkja í. sorg ykkar. Hörður, Kári og Laufey. Mig langar í fáum orðum að minnast tengdaföður míns Baldurs H. Jónassonar er lést að morgni 13. nóvember í Landspítalanum. Baldur stundaði sjómennsku á yngri áram, en hóf störf hjá Áburð- arverksmiðju ríkisins árið 1953 og starfaði þar til vorsins 1992, er hann varð að láta af störfum sökum heilsubrests. Baldur gekk til allra starfa heima og heiman af áhuga og ósérhlífni, og átti það ekki við hann að hætta við hálfnað verk. Eftir að Baldur hætti störfum var honum ráðlagt að fara sér hægt og taka það ró- lega. En þar var oft við ramann reip að draga, þar sem Baldur var ekki maður kyrrsetu og aðgerðar- leysis. Baldur fékk að reyna margt í lífínu. Aðeins fjöratíu og eins árs missti hann ástkæra konu sína Helgu sem lést við fæðingu áttunda bams þeirra. Baldri tókst að halda íjölskyld- unni sameinaðri og naut þar dyggr- ar aðstoðar ættingja og vina. Yngsta dóttirin Helga fór í fóstur til Áma móðurbróður síns og Rúnu konu hans. Elín og Hallgrímur fóru til skemmri dvalar hjá föðursystram sínum þeim Þorbjörgu og Þuríði á Flateyri. Baldur kom ávallt til dyr- anna eins og hann var klæddur, hreinskiptinn og hjartahlýr en jafn- framt fastur fyrir. Baldur var mik- ill fjöiskyldumaður 'og skipuðu böm hans stærstan sess í lífinu. Undi hann sér jafnan best í þeim glað- væra hópi. Hann hafði mikið dá- læti á bamabömum sínum, og var það gagnkvæmt, því heimsóknir til afa í Skipó, eins og þau kölluðu hann ávallt, vora mikið tilhlökkun- arefni. Að lokum langar mig að þakka hjúkranarfólki hjartadeildar Land- spítalans góða umönnun og þá sér- staklega Magnúsi Karli, sem Baldur bar óskorað traust til. Ég þakka Baldri ánægjuleg kynni. Hann var bömum sínum góður faðir og bamabömum góður afi. Blessuð sé minning hans. Lárus Guðmundsson. ■ ' r Blóm Skreytingar Gjafavara Kransar Krossar Kistuskreytingar Opið alla daga frá kl. 9-22 Fákafeni 11 s. 68 91 20 öuounanasoraui iu 108 Reykjavík. Sími 31099

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.