Morgunblaðið - 22.11.1992, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992
Herkúles
Halastjarnan Swift-Tuttle á vesturhimni
Ef horft er með sjónauka sést halastjarnan sem dauf stjörnuþoka fram í desember
Vega .
• •
Swift-Tuttle
22/11 1992
Halastjarnan
Swift-Tuttle
1/11 1992 /
Norðurkórónan
eftir Urói Gunnarsdóttur.
Mynd: Ragnar Axelsson
MAÐURINN óttast það sem hann
þekkir ekki. Halastjarna lengst
úti í himingeimnum hefur hrist
upp í stjarnvísindamönnum um
heim allan vegna mögulegs
árekstrar hennar við jörð eftir
134 ár og hefur einnig verið vatn
á myllu þeirra sem spá vilja
heimsendi. En er ástæða til að
óttast slíkan árekstur? Þorsteinn
Sæmundsson stjörnufræðingur
telur svo ekki vera. Segir að vilji
menn hræðast fyrirbæri himin-
geimsins sé mun meiri ástæða
að hafa áhyggjur af því að stór
loftsteinn eða smástirni skelli á
jörðinni. En réttast sé og skyn-
samlegast að hafa engar áhyggj-
ur, heldur njóta þess að horfa á
himininn á stjörnubjörtu kvöldi.
ýlegar fréttir um
mögulegan árekstur
halastjömu ogjarðar
í ágúst árið 2126
vöktu óneitanlega
spumingar í hugum
manna. Spumingar er varða sjálft
fyrirbærið, halastjömuna, afleið-
ingar þess ef halastjama skellur á
jörð og líkumar á því, svo og spurn-
ingar um gildi slíkra vangaveltna.
„Halastjömur eru geysilega
merkileg fyrirbæri og hafa ætíð
vakið athygli," segir Þorsteinn.
Ástæðan er fyrst og fremst tilkomu-
mikið útlit þeirra. „Þegar þær birt-
ust með geysilangan halann vöktu
þær ótta hjátrúarfullra manna fyrr
á öldum. Þessi ótti var reyndar
ekki alveg ástæðulaus, því að telja
má fullvíst að halastjömur hafi ein-
hvem tíma lent á jörðinni."
í nýjasta hefti vikuritsins
Newsweek segir að vitað sé um 139
gíga á jörðinni af völdum loftsteina
og halastjarna. Þá hefur sú kenning
verið sett fram að árekstur við hala-
stjömu fyrir 65 milljónum ára hafí
útrýmt risaeðlunum. Þessar kenn-
ingar telur Þorsteinn allrar athygli
verðar þótt mörg atriði séu umdeild.
Smæstar og stærstar í senn
Halastjömur eru með smæstu
meðlimum sólkerfísins að efnis-
magni en jafnframt eru þær mestar
að umfangi. Kjami halastjömu er
úr ís og rykögnum sem sveipast
hjúpi úr rokgjömum efnum. Hala-
stjama er á sporbaug umhverfis
Morgunblaðið/RAX
sólu og þegar hún nálgast sólina
streyma rokgjömu efnin út og
mynda stóran hjúp úr gasi og ryki,
svo og halann. Kjaminn er tiltölu-
lega lítill, oft um 10 km í þvermál
en halinn getur orðið geysilangur,
allt að 100 milljónum km. Vegna
geislunar frá sólu vísar halinn ævin-
lega í átt frá henni en fylgir ekki
slóð kjamans, eins og svo margir
ætla. Mörgum halastjömum fylgir
Þorsteinn Sæmundsson stjömufræð-
ingur segir að fólk verði að gera sér
grein fyrir að jörðin er ekki eilíf, frek-
ar en hinar reikistjörnurnar og sólin.
svo þunnur vetnishjúpur sem er
stærri en sólin.
Um 650 halastjömur hafa sést
frá því að sögur hófust, sumar oft-
ar en einu sinni og árlega finnast
um 5 til viðbótar. Halastjörnur
ganga flestar eftir mjög ílöngum
brautum um sólina. Umferðartími
þeirra um sól getur verið þúsundir
eða milljónir ára. Þegar þær eru
langt frá sólu sjást þær ekki en