Morgunblaðið - 22.11.1992, Page 25
seer hhhmcív
- MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGÁR
rSUNNUDAGUR- 22: 'NÓVEMBER't992 “
25
Sigurður Guðmunds
son - Minning
Fæddur 12. ágúst 1918
Dáinn 15. nóvember 1992
Hann tengdapabbi er dáinn.
Kallið kom snöggt og það kom
óvænt. Við kvöddum hann kátan
og hressan á laugardagskvöldi og
tólf tímum síðar var hann allur.
Fyrir rúmum þremur árum gekk
hann í gegnum miklar raunir. Hann
missti elskulega eiginkonu sína Jó-
hönnu Siguijónsdóttur (f. 1915, d.
1989) eftir stutt veikindastríð.
Stuttu áður höfðu þau ákveðið að
selja húsið sitt að Langagerði 72
og flytja í íbúðarhús fyrir aldraða
í Garðabæ og á sama tíma hætti
hann að vinna þar sem sjötugsaldr-
inum var náð. En hann starfaði sem
slökkviliðsmaður á Reykjavíkur-
flugvelli frá 1963. Það sem átti að
verða að tilhlökkunarefni snerist
upp í andhverfu sína. Á þessum
tíma, á milli húsa, bjó hann í tæpt
ár hjá okkur Siguijóni. Þá eignaðist
hann sitt síðasta barnabam, Bjarka,
sem var honum afar kær og var
það gagnkvæmt.
En öll él styttir upp um síðir.
Heimili hans að Naustahlein 8 var
fallegt og hlýlegt með Jóhönnublæ.
Hann var orðinn virkur í starfí aldr-
aðra í Garðabæ. Yfír vetrartímann
áttu hestamir hug hans allan enda
aðal áhugamál til margra ára. Þar
lágu rætumar.
Sigurður var fæddur að Núpi
undir V.-Eyjafjöllum hinn 12. ágúst
1918. Foreldrar hans voru Sigríður
Sigurðardóttir og Guðmundur
Ámason og var hann elstur tíu
systkina. Hann ólst upp að sið þess
tíma; vinna og aftur vinna. Hann
átti þátt í byggingu gömlu Markar-
fljótsbrúarinnar, vann auðvitað öll
sveitastörf og fór ungur á vértíðir.
í einni vertíðarferð sinni til Eyja
hitti hann Jóhönnu sína. Þau gengu
í hjónaband 7. júní 1941 og stofn-
uðu heimili í Valhöll í Eyjum. Þar
fæddist fyrri sonur þeirra, Sigurður
Óli, 1941 • en fyrir átti Jóhanna
Ingva Rafn (f. 1937). Þau fluttu til
Reykjavíkur 1946. Árið 1949 fædd-
ist svo Siguijón.
í Reykjavík hóf tengdapabbi
störf hjá skipafélaginu Jöklum þar
til hann byijaði í slökkviliðinu.
Þannig þekktum við hann. En við
fengum nú nokkrar sjóarasögur í
gegnum tíðina ásamt sveitasögum.
Jóhanna rak verslun til fjölda ára
með dyggum stuðningi Sigurðar.
Þau hjón vom verðugir fulltrúar
fyrir þessa kynslóð sem óðum er
að hverfa. Heiðarleiki, ábyrgð og
stundvísi í fyrirrúmi. Þau byijuðu
búskap með tvær hendur tómar í
orðsins fyllstu merkingu. Og þau
uppskám eins og til var sáð. Mann-
vænlegir synir, fímm sonarsynir og
þrír sonarsonarsynir. Sigurður Óli
á Þorbjöm (f. 1965) og Sigurð Óla
(f. 1967). Þorbjöm á þijá syni Hörð
Inga, Eyþór Smára og Jóhann Óla.
Siguijón á Styrmi (f. 1974), Egil
(f. 1978) og Bjarka (f. 1989). Við
nöfnumar eram nú reyndar stoltar
að eiga þátt í öllum þessum karl-
mönnum. Við eram jafnframt þakk-
látar fyrir að synir okkar hafí feng-
ið að kynnast þeim eins vel og raun
ber vitni. Þau vora af gamla skólan-
um, samt ólík. Hún að mörgu leyti
framúrstefnukona og hann heldur
íhaldssamur. Þau kenndu þeim
dyggðir og gamlar hefðir; sögðu
þeim sögur; höfðu tíma.
Fyrir tæpum níu áram komu þau
hjónin sér upp yndislegum sumar-%
bústað í Þrastarskógi. Þar áttu fjöl-
skyldumar ógleymanlegar stundir.
Það var erfítt að koma þangað eft-
ir að Jóhanna var öll og nú er kom-
ið annað skarð. Tengdapabba leið
þar vel. Arinofninn var hans. Hann
sagaði eldivið og staflaði upp eins
og honum var einum lagið, kveikti
upp því hann vildi hafa hlýtt, hellti
uppá á morgnana, þannig að kaffí-
ilmurinn dró okkur fram úr. Hann
var sjálfur hlýr, þéttur á velli og
þéttur í lund en mikil tilfínninga-
vera þegar svo bar undir, bam síns
tíma.
Við söknum hans, hann kom svo
oft við, fylgdist vel með sínum. En
hann hefur öragglega fengið góðar
móttökur hinum megin.
Blessuð sé minning hans.
Guðrún Gunnarsdóttir,
Guðrún Þórbjarnardóttir.
Lífsbók afa okkar Sigurðar Guð-
mundssonar lauk sunnudaginn 15.
nóvember. Svo sannarlega áttum
við ekki von á því. Einn af okkur
ók honum heim kvöldið áður, þá
var hann kátur og hress. Morguninn
eftir var hann allur.
Kallið kom fyrirvaralaust. Við
teljum okkur vera lánsama að hafa
fengið að alast upp með afa okkar
og hafa hann hjá okkur þetta lengi.
Afí var mjög traustur maður, stund-
vís og heiðarlegur í alla staði og
miðlaði hann því til okkar. Áhuga-
mál hafði hann ekki mörg en hann
hafði yndi af hestum, spilamennsku
og hafði góða söngrödd. Höfðum
við gaman af að hlusta á hann segja
sögur af hestum og sögur úr sveit-
inni sem hann unni svo mjög. Þeir
ungu mennimir í þá daga unnu við
gerð Markarfljótsbrúarinnar frá því
eldsnemma á morgnana til kvölds
og flugust svo á frá kvöldmat til
miðnættis. Svona sögur kunnum við
strákamir vel að meta.
Þú reiðst um fagran fjalladal,
á fáki vökrum götu slétta,
þar sem við búann brattra kletta
æðandi fossar eiga tal,
þar sem að una hátt í hlíðum
hjarðir á beit með lagði síðum;
þótti þér ekki ísland þá
íbúum sínum skemmtan Ijá?
(Jónas Hallgrimsson)
Ökkur fínnst þetta ljóð Jónasar
eiga vel við afa okkar. Við sjáum
hann fyrir okkur hnarreistan í
hnakknum á fallegum gæðingi
þeysandi guðs um geim.
Við þökkum afa okkar samfylgd-
ina og allt það góða sem hann gerði
fyrir okkur og felum hann góðum
guði.
Sonarsynir.
Morgunblaðið/Friinann Ólafsson
Samveruhópur unglinga sem hitdst á fimmtudagskvöldum í Grindavíkurkirkju tók vel undir þegar
Faðir Abraham var sunginn.
Grindavík
Unglmgastarf í kirkjunni
Grindavík.
UNGLINGAR eru sjálfsagt
ekki kirkjusæknasti hópurinn í
þjóðfélaginu og kirkjan virðist
ekki hafa höfðað til þess hóps.
I Grindavík hefur sóknarprest-
urinn þar, sr. Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir, reynt að snúa því við
að það sé „lummó“ að fara í kirkju
með því að hafa sérstaka dagskrá
í kirkjunni á fimmtudagskvöldum
þar sem boðið er upp á fyrirlestra
fyrir 14-16 ára unglinga þar sem
fjallað er um unglingsárin og þær
breytingar sem tengjast þeim.
Jóna sagði í samtali við Morg-
unblaðið að markmiðið með þessum
samverastundum væri að ungling-
unum liði vel í húsi Guðs og þar
væri hægt að eiga uppbyggilega
og skemmtilega samveru. Samveru-
stundimar hafa verið fjölsóttar og
þar er bæði sungið og farið í leiki
auk þess að eitthvað efni er til
umíjöllunar hveiju sinni.
„Við byijum með þvf að fara með
ritningartexta og signum okkur. í
lokin er síðan rifjáður upp texti
kvöldsins og sunginn trúarlegur
söngur. Með þessu er reynt að
koma til móts við félagsþarfir
unglinga og einnig að sýna þeim
að í kirkjunni er hægt að láta sér
líða vel. Smám saman verður
kirkjan einn af þessum sjálfsögðu
stöðum sem þarf að sækja reglu-
lega,“ sagði Jóna.
í ráði er að setja upp leikrit
með unglingahópnum sem sækir
samverastundimar og verður Guð-
rún Ásmundsdóttir leikari hópnum
til aðstoðar. Jóna sagði að sýning
sé fyrirhuguð í mars á næsta ári.
+ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON (áður Langagerði 72), Naustahlein 8, Garðabæ, sem lést 15. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. nóvember kl. 13.30. Sigurjón Sigurðsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Sigurður Óti Sigurðsson, Guðrún Þorbjarnardóttir, Ingvi Rafn Jónsson, barnábörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju ilSSB þriðjudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Ps&á&i Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim jwEþSl
Krabbameinsfélagið. Júlínus G. Jóhannesson, Jóhanna R. Jóhannesdóttir, Erling Jóhannesson, Alfhild Nilsen, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSGERÐUR EINARSDÓTTIR, Neöstutröð 2, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 23. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Hjarta- vernd. Einar Arason, Karl Arason, Jóhannes Arason, Sigrún Sigurðardóttir, Arnfriður Aradóttir, Haukur Matthfasson, barnabörn og barnabarnabörn. ,
+ Útför ÖNNU M. INGVARSDÓTTUR, Mýrargötu 18, Neskaupstað, sem lést 16. þessa mánaðar, fer fram mánudaginn 23. nóvem- ber kl. 14.00. Guðrún Jónsdóttir og fjölskylda.
+ Frænka mín, MARÍA THORSTEINSSON, Lönguhlíð 3, lést í Borgarspítalanum þann 13. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 24. nóvember kl. 15.00. Kristfn Jónsdóttir. r
+~ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐLAUGS VALDIM ARSSONAR, Bergþórugötu 8. Ingibjörg Helgadóttir, Ester Guðlaugsdóttir, Sæmundur Karl Jóhannesson, Stefán Guðlaugsson, Anna Ringsted, Kolbrún Guðlaugsdóttir, José Antonio Ramos, Þröstur Óskar Kolbeins, Svala Stefánsdóttir, barnabörn og langafabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar, sonar og bróður,
PÉTURS ÁGÚSTSSONAR
múrarameistara,
Torfufelli 10.
Rannveig L. Pétursdóttir, Magnús Pétursson,
Ágúst Bjarnason, Guðjón Ágústsson,
Bjarni Ágústsson, Hrönn Ágústsdóttir,
og tengdafólk.