Morgunblaðið - 22.11.1992, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.11.1992, Qupperneq 27
27 uðu slíkar kvöldheimsóknir oftast þannig að við gistum í Kópavogin- um. Þau miðluðu okkur af reynslu sinni og aldrei leiddist okkur þá, því bæði voru þau gædd einstökum frásagnarhæfileikum og amma átti auk þess auðvelt með að sjá bros- legu hliðarnar á flestum hlutum. Þegar Ari afi lést skyndilega, þann 20. nóvember 1986 og Asa amma sá á eftir sínum trygga lífs- förunaut, var missir hennar mikill. Það var alltaf eins og ótjúfanlegur strengur lægi á milli þeirra og ein- hvern veginn hafði maður aldrei í.myndað sér þau án hvors annars. Þá sýndi amma best sinn innri styrk. Hún hélt minningu hans hátt á lofti og hélt áfram að hugsa um heimilið sem þau höfðu byggt upp í sameiningu. Hún hélt fjölskyld- unni saman eins og sannur ættar- höfðingi. Við nutum þess þegar hún birtist óvænt hjá okkur í morgunkaffi, akandi á Skódanum sínum. Hana munaði ekki um að keyra til Kefla- víkur, nei, Skódinn hennar var svo viljugur. Þá var búið um ömmurúm og alltaf var gleði og gaman þegar amma gisti. Langömmudrengirnir hændust að henni og nutu þess að vera í návist hennar. Og þá var ekki síður skemmtilegt að heim- sækja hana í Kópavoginn. Hún hafði alltaf tíma til að spjalla og segja þeim sögur. Þar að auki bak- aði hún heimsins bestu pönnukök- ur. Og hvað hún gladdist með okk- ur, þegar litla dóttirin bættist í hópinn. Þær eru ófáar afmælis- og jóla- gjafirnar, sem hún útbjó sjálf handa bamabarnabömunum sínum, að ógleymdum segulbandsspólunum, sem hún las inn á og em nú sem fjársjóður. Hún amma sat ekki auð- um höndum, hekludótið var aldrei langt undan eða önnur handavinna. Amma var mikið náttúrubarn og garðurinn umhverfis „tröðina“ var hennar líf og yndi. Hún hlúði að hverri plöntu, skýldi þeim er þess þurftu með, reytti illgresið jafnóð- um og það óx og naut uppskerunn- ar er hún birtist í formi rifsbeija og rabarbara, svo eitthvað sé nefnt. Á sama hátt lifði hún lífinu. Hún ræktaði mannlífið eins og garðinn sinn. Nú mun hún uppskera, eins og hún sáði. Garðurinn hennar ömmu var ein- staklega fallegur nú í sumar. sem leið. Þegar haustaði og fór að kólna, flutti hún hann bara inn til sín, upp á stigapall til að framlengja sumr- inu. Þar kom hún fyrir garðstólum og blómum. Nú ert tómlegt og hljótt í Neðstu- tröðinni. Við yljum okkur við minn- ingamar, sem munu fylgja okkur um ókomin ár. Við þökkum ömmu fyrir allt það sem hún var okkur, fyrir allt það sem hún kenndi okkur og fyrir árin sem við fengum að njóta hennar, fullviss um það að við munum hittast aftur síðar, þótt annars staðar verði. Guð blessi yndislega konu. Stefán, Eydís og börn. ■ JÓLAKORT Gigtarfélags fs- lands eru komin út. Á kortunum er mynd af listaverkinu Skammdeg- isbirtu eftir Sólveigu Eggerz Pét- ursdóttur sem hún gaf félaginu til birtingar á kortunum. Kortin eru seld til styrktar málefnum gigtar- sjúkra. Gigtarfélagið, sem er til húsa í Ármúla 5, annast dreifingu. 011 aðstoð við sölu kortanna er vel þegin. MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992 Bergþóra Þórðar- dóttir - Minning Fædd 6. ágúst 1915 Dáin 15. nóvember 1992 Ljós lifnar, ljós deyr út. Öll lýsum við en misjafnlega skært. Ljósið hennar Tótu var skært, oftast. Einu sinni eða tvisvar virtist sem það ætlaði að deyja út en það gerðist ekki og skein þá enn skærar en áður. Börnin hænast að ljósi, þar er birtan og hlýjan og í ljósið henn- ar Tótu leituðum við. Það umvafði okkur og veitti okkur öryggi og kærleika. Bergþóra Þórðardóttir eða Tóta eins og við kölluðum hana alltaf fæddist á Patreksfirði, dóttir hjón- anna Guðlaugar Jónsdóttur og Þórð- ar Jónassonar, bæði ættuð frá Breiðafjarðareyjum. Hún var fjórða elst af átta systkinum og eru tvö á lífi, þeir Magnús og Einar. Eftir venjulega skólagöngu á þeirra tíma mælikvarða réðst hún í Anna Ingvarsdóttir frá Ekru - Minning Fædd 9. apríl 1907 Dáin 16. nóvember 1992 Anna, móðursystir mín, Ingvars- dóttir frá Ekru í Norðfirði verður á morgun, mánudag 23. nóvember, jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju og lögð til hinstu hvflu við hlið manns síns, Jóns Lunda Baldurssonar frá Lundarbrekku í Bárðardal. Anna lést sl. mánudag á 86. aldursári. Anna Margijet Ingvarsdóttir fæddist á Ekru í Norðfirði 9. apríl 1907, hin sjötta í röð níu barna hjón- anna Margijetar Finnsdóttur frá Tungu í Fáskrúðsfirði (1870-1951) og Ingvars Pálmasonar útvegsbónda og alþingismanns frá Litla-Búrfelli í Ásum í Austur-Húnavatnssýslu (1873-1947) en þau hjón bjuggu á Norðfirði frá 1896 til æviloka. Anna Ingvarsdóttir stundaði nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri (nú Menntaskólinn á Ákureyri) frá því haustið 1924 til vors 1926. Árið 1930 gekk hún að eiga Jón Lunda Baldursson sparisjóðsstjóra Spari- sjóðs Norðfjarðar og kennara í Nes- kaupstað um áratuga skeið, og eign- uðust þau eina dóttur, Guðrúnu. ■ Anna Ingvarsdóttir var einstök kona. Hún var jafnlynd og góðlynd þótt hvorki væri hún skaplaus né kjarklítil og á heimili hennar áttu margir athvarf og þangað var ávallt gott að koma. Anna Ingvarsdóttir, Anna frænka, eins og systkinabörn hennar kölluðu hana, var listfeng kona og smekkvís og hún var svo velviljuð að af bar. Hún var falleg kona og kvenleg og ég man vel hve gott mér fannst að vera í návist hennar, allt frá því ég var ungur sveinn austur á Norðfirði þar til ég kom til hennar fulltíða maður með börnum mínum og konu. Anna Ingvarsdóttir var fáskiptin þótt ekki væri hún áhugalaus og hún lét ekki mikið á sér bera, frekar en margar konur aðrar af hennar kyn- slóð, en hún ræktaði garðinn sinn í tvöfaldri merkingu þess orðs. Stund- um fannst mér eins og að koma í annað land eða jafnvel annan heim að koma í garðinn hennar Önnu frænku og litla húsið hennar uppi á Ekrunni. Lengi var Anna Ingvars- dóttir í sóknarnefnd Norðfjarðar- kirkju og formaður um árabil og þau verk sín vann hún af hógværð og trúmennsku eins og öll önnur. Móðir mín, Fanny, og Anna voru mjög samrýndar og á vináttu þeirra tveggja bar aldrei neinn skugga enda líkar um flest. Við Gréta minn- umst margra góðra stunda með Önnu og Lindu, bæði fyrr og síðar. Bið biðjum Guð að blessa minningu Önnu Ingvarsdóttur frá Ekru í Norð- firði. Tryggvi Gíslason. ★ Stærbir 21-38 ★ Lebur og leburfóbur Verb kr. S.550-3.990,- Fallegir, vandabir skór á krakkana Póstsendum samdœgurs Skóverslun Kópavogs Skór og sportvörur Hamraborg 3 sími 41754 vist eins og títt var um ungar stúlk- ur í þá daga. Þann 20. nóvember 1943 giftist hún móðurbróður okk- ar, Kristni Guðmundssyni útgerðar- manni. Þetta var systkinabrúðkaup því sama dag gengu foreldrar okkar í hjónaband. Bæði brúðhjónin áttu fyrst heima í sama húsi en síðan fluttu Kristinn og Tóta, en aðeins yfir götuna. Þeim varð ekki barna auðið en tóku þess í stað ástfóstri við okkur frændsystkinin. Og mikið nutum við þess. Við bjuggum reyndar við tvö- falt öryggi, alltaf einhver heima á öðrum hvorum staðnum til að seðja svanga munna eða þerra tár af kinn. Oft um helgar var smalað inn í fína fólksbílinn þeirra og keyrt með okk- ur bprnin eitthvað út í buskann á vit ævintýranna. En það voru ekki eingöngu við sem nutum þess að eiga þau að heldur einnig systkina- börn þeirra að sunnan sem komu þar oft til lengri eða skemmri dvalar. En 1963 dró ský fyrir sólu en þá andaðist Kristinn langt um aldur fram. Fljótlega eftir það áfall ákveð- ur Tóta að flytja til Reykjavíkur og um svipað leyti flytjum við systkinin líka suður og lífsmynstrið heldur áfram, við eigum hjá henni athvarf meðan við erum að fóta okkur í stór- borginni. Tóta aðlagast breyttum aðstæðum furðu vel en það er trú- lega ekki síst að þakka systkinum hennar, Ingibjörgu og Einari, sem létu sér mjög annt um hagi hennar. Milli Einars og Tótu hafa ætíð verið mjög náin tengsl og skal Ein- ari, Jensínu konu hans og börnum þakkað fyrir alla tryggðina og hjál- pina sem þau auðsýndu henni gegn- um árin. Tóta eignaðist íbúð í Reykjavík og starfaði lengst af við matseld í Hafnarbúðum og hjá Slipp- félaginu. Hún undi hag sínum hið besta og eftir að hún kynntist Sig- urði Kr. Sigurðssyni eignaðist hún góðan vin. Vinátta þeirra hefur hald- ist í hartnær tvo áratugi og verið þeim báðum mikils virði. Eftir að Tóta veiktist fyrir u.þ.b. 2 árum hefur Sigurður sýnt og sannað í verki hvern mann hann hefur að geyma. Tóta mat mikils nærveru hans og hjálp á þessum erfiðu stund- um. Útfiir Tótu fer fram frá Patreks- fjarðarkirkju að eigin ósk. Það duld- ist engum að þar lágu hennar ræt- ur. Þar átti hún sín bernsku- og manndómsár og þar eignaðist hún sinn lífsförunaut sem hún ávallt unni heitt. Það kom aldrei annað til greina en að leita aftur til fjarðarins sem fóstraði hana og hvfla hjá sínu fólki í faðmi vestfirsku fjallanna. Hafi kær frænka þökk fyrir alla þá umhyggju, gleði og kærleika sem hún veitti okkur svo ríkulega. Guð varðveiti sálu hennar. Aldís og Leiknir. Vegna mistaka við vinnslu þessar- ar kveðjuorða í föstudagsblaðið birt- ist greinin á ný. Beðist er velvirðing- ar á mistökunum. Kirkju- tónlistkl. 21 í frásögn menningarblaðs Morg- unblaðsins í gær af kirkjutónleikum Ragnars Bjömssonar í Kristkirkju á sunnudag, féll niður að einleiks- tónleikarnir hefjast þar kl. 21. Á tónleikunum flytur Ragnar verk eftir Jón Leifs, Jón Nordal, Lárus H. Grímsson og Báru Grímsdóttur auk þriggja verka eftir sjálfan sig. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN HELGADÓTTIR, Hlíðarvegi 78, Njarðvík, lést aðfaranótt föstudagsins 20. nóvember. Jón Ásgeirsson, Steinunn Helga Jónsdóttir, Hallgri'mur Gunnarsson, Rebekka D. Jónsdóttir, Björgvin Halldórsson, Ásgeir Jónsson, Hrafnhildur H. Ólafsdóttir og barnabörn. Iðnaðarhúsnæði óskast Gott iðnaðarhúsnæði með skrifstofuaðstöðu, hentugt fyrir skjalasafn, óskast ti! leigu sem allra fyrst. Þarf að vera innan borgarmarkanna. Makaskipti koma einnig til greina. Stærð 700-1700 fm. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „K- 10454“. Álfheimar 72 - nýtt Þrjár nýjar íbúðir, fullbúnar til afhendingar nú þegar: 2ja herb. 65 fm 3ja herb. 80 fm 3ja herb. 90 f m 1 herb. í kj. 35 fm Til sýnis kl. 14-16 næstu daga. Söluaðili: Birgir Halldórsson, sími 38859.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.