Morgunblaðið - 22.11.1992, Page 44
Frá og meö 1. nóvember
1992 tók gildi nýtt
flokkunarkerji fyrir
bréfapóst
til útlanda. wwoertw
1% Reghibundinn
JH • spamaður
M Landsbanki
(sjlands -
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVtK
--------SÍMBRÉF------ -■*---------- —
SÍMl 691100, SÍI
iF 691181, PÓSTHÓLF 15SS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992
VERÐ ILAUSASOLU 110 KR.
Upplýsingar Hagstofu um þróun mannfjölda og búsetu síðastliðinn áratug
Ungmenni og aldraðir
streyma til borgarinnar
Landsbyggðarfólki á aldrinum 15-24 ára fækkaði um 1.300 á fimm árum
UNGT fólk og gamalt streymir af landsbyggðinni til höfuð-
borgarinnar samkvæmt nýjum athugunum Hagstofunnar.
Síðustu fimm ár fækkaði landsbyggðarfólki á aldrinum
15-24 ára um 1.300 manns, en fækkunin hefði átt að vera
um 200 ef miðað er við dreifingu mannfjölda að öðru Ieyti.
Tillaga um
umferðar-
fræðslu fyr-
ir aldraða
TILLÖGU Margrétar Sæmunds-
dóttur, Kvennalista, um að borg-
arstjórn samþykki að veita einni
milljón króna til gerðar mynd-
bands með tilheyrandi leiðbein-
ingarriti um umferðarmál fyrir
eldri borgara í Reykjavík var
vísað til afgreiðslu við gerð fjár-
hagsáætlunar á fundi borgar-
stjómar í vikunni.
Margrét sagði brýnt að veita
öldruðum fræðslu í umferðarmál-
um. Árin 1988 til 1991 hefðu 26
manns látist í umferðinni í Reykja-
vík. Tæplega helmingur, eða 11
manns, hefði verið á aldrinum 65
ára og eldri.
Morgunblaðið/Júlíus
Framkvæmd-
um í miðborg-
inni að ljúka
Framkvæmdum við endur-
byggingu í Aðalstræti sunnan
Ingólfstorgs, Kirkjustræti að
hluta, Thorvaldsensstræti og
Vallarstræti er um það bil að
ijúka. Meðal annars hefur verið
lögð hitalögn í gangstéttir og
akbrautir. Gert hafði verið ráð
fyrir að verkinu lyki um mán-
aðamót september og október
en þeim seinkaði vegna fom-
leifarannsókna í sumar.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra fékk Hagstofuna til
að taka saman upplýsingar um
þróun mannfjölda og búsetu síð-
astliðinn áratug með tilliti til ald-
urs. Hún greindi frá niðurstöðum
á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga
í vikulokin og sagði brottflutning
ungs fólks af landsbyggðinni ógn-
vekjandi. Hún taldi að fjölmargar
stofnanir í Reykjavík væru betur
komnar nær fólkinu í heimabyggð.
Það myndi hjálpa til að snúa við
þeirri þróun að fólkið á lands-
byggðinni missti bömin í burtu
því þeim byðist ekki starf heima
fyrir að námi loknu.
Á árunum 1981-86 fækkaði
fólki á aldrinum 15-24 ára um
1.800 manns á landinu öllu og þar
af voru 1.500 af landsbyggðinni.
Seinni hluta áratugarins versnaði
ástandið enn að mati félagsmála-
ráðherra, ungu fólki á íslandi
fækkaði um 500 manns. Af lands-
byggðinni hurfu 1.300 ungmenni
en á höfuðborgarsvæðinu Qölgaði
þeim um 800, í stað þess að fækka
um 300 eins og eðlilegt væri. Töl-
urnar segja að umfram eðlilega
fækkun í aldurshópnum hafa
1.800-1.900 ungmenni flust utan
af landi til Reykjavíkur.
Eldra fólk sækir einnig til höf-
uðborgarinnar og segir Jóhanna
Sigurðardóttir skort á þjónustu við
það á landsbyggðinni helstu
ástæðuna. Fyrri hluta áratugarins
fyölgaði eldra fólki en 65 ára um
2.400 manns á landinu, þar af
1.600-1.700 í Reykjavík. Frá 1986
til 1991 fyölgaði eldra fólki um
2.500 manns og er hlutur höfuð-
borgarinnar þá rúm 2.000 en ætti
að vera 1.400-1.500. Á tíu árum
hefur því fjölgun aldraðra á lands-
byggðinni verið 900-1.100 manns
minni en búast hefði mátt við.
Eigandi söluturns á Rauðarárstíg staðinn að verki
Tekinn í ann-
að sinn fyrir
sölu áfengis
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók eiganda söluturns á Rauðar-
árstig aðfaranótt laugardagsins
fyrir ólöglega áfengissölu. Það
voru menn frá Breiðholtsstöð
lögreglunnar sem stóðu mann-
inn að verki, en þetta er í annað
sinn á tveimur vikum sem þessi
maður er tekinn fyrir áfengis-
sölu.
Sama fyrirkomulag var notað
við handtökuna og síðast, þ.e.
óeinkennisklæddur lögreglumaður
keypti áfengi af manninum sem
síðan var handtekinn. Við hand-
tökuna var lagt hald á lítilræði af
áfengi í sölutuminum auk peninga
fyrir söluna um kvöldið.
Morgunblaðið/Júlíus.
Lögreglumaður ber úr söluturninum bjór og peninga sem gert
var upptækt við handtökuna.
Grænlandsflug flýg-
ur sjálft semjist ekki
EKKI HEFUR náðst samkomulag um að Flugleiðir annist fyrir
Grænlandsflug áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Kulusuk á
Grænlandi. Forstjóri Grænlandsflugs segir að félagið muni sjálft
annast þetta flug ef samkomulag náist ekki í mánuðinum. Jafn-
framt sé verið að ræða við tvö önnur íslensk fyrirtæki.
íslenska flugfélagið Odin Air
hélt uppi áætlunarflugi til Kulusuk
en síðan félagið hætti starfsemi
hefur flugið legið niðri. Dönsk
flugmálayfírvöld veittu Græn-
landsflugi áætlunarleyfið en í
umsókn félagsins var það tekið
fram að það hygði á samvinnu við
Flugleiðir um flugið.
Ætlunin var að Flugleiðir flygju
á Fokker-vélum sínum til Kulusuk
einu sinni í viku, á þriðjudögum,
í tengslum við flug Grænlands-
flugs milli Kulusuk og Syðri-
Straumfjarðar.
Samkomulag hefur ekki tekist
um skiptingu tekna og gjalda við
flugið til íslands. Einar Sigurðsson
blaðafulltrúi Flugleiða segir að á
fundi flugfélaganna fyrir nokkrum
dögum hafí Flugleiðir lagt fram
tillögu að skiptingunni og sé beðið
svara Grænlandsflugs.
Ole Bjerregárd forstjóri Græn-
landsflugs segir að ef samkomulag
náist ekki í mánuðinum muni fé-
lagið sjálft annast flugið til
Reykjavíkur. Hann segir þó að
jafnframt sé verið að ræða við tvö
önnur íslensk fyrirtæki en vill ekki
segja hver þau eru.