Morgunblaðið - 29.11.1992, Qupperneq 15
samankomnir í kjallaranum og ein-
mitt þetta kvöld, á sjötta hundrað
manns. í vikunni á eftir stóðu
skemmtinefnd og tónlistardeild
Listafélagsins fyrir tónleikum með
hljómsveitinni Ham sem voru liður
í röð félaganna um mismunandi tón-
listarstrauma. Tollering var 17. sept-
ember og var Busaball haldið sama
kvöld að Hótel Borg. Þar með varð
Menntaskólinn síðasti skólinn til að
halda skólaball á Borginni, í bili.
Síðustu helgina í september var svo
félagsaðstaðan endurbætt til muna
og því fagnað á miðvikudeginum 30.
september. Þar kom m.a. Þórarinn
Eldjám fram og Vinir Dóra, þó hvor-
ir í sínu lagi.
Októbermánuður hófst á glæsileg-
um sigri MR-inga á Verslunarskóla-
nemum enn eitt árið í röð. Þar
reyndu skólamir með sér í ýmsum
þrautum og bar þær ræðukeppni
hæst. Verslunarskólinn reyndi en
allt kom fyrir ekki. Næst stóðu
skemmtinefnd og tónlistardeild fyrir
jazztónleikum síðar í mánuðinum í
tengslum við áðurnefnda röð. Svo-
kallað Pressuball var haldið á Tungl-
inu 15. október og lék Todmobile
fyrir dansi. Var fullt út að dyrum.
Hátlðartónleikar Listafélagsjns vom
svo haldnir viku síðar í íslensku
Óperunni. Fóru þeir friðsamlega
fram. Mánuðurinn endaði svo á svip-
aðan hátt og hann hófst. MR sigr-
aði MS í Morfís eftir frækilega
keppni. Nóvember var nær allur
helgaður Árshátíð. í þessum stutta
annál var aðeins stiklað á stóm í
félagslífi skólans það sem af er vetri.
Alltof langt mál hefði verið að rekja
hvem einasta atburð sem litið hefur
dagsins ljós síðustu mánuði.
Það er því ekki að ósekju að marg-
ur menntskælingurinn hefur gleymt
bókum eitt andartak og horfið á vit
félagslífsins. Oftast endar þetta þó
vel og menn minnast Menntaskóla-
áranna með söknuðu í brjósi því eins
og skáldið kvað:
Og sumir sóuðu æsku
sinni í nám á meðan
aðrir vörðu henni í vin.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992
__—,;. ..... . | i.—,—j
Árshátíð
Djúptí
hugarneimi
Hápunktur fyrra misseris í Menntaskólanum hlýtur, í flestra augum
að vera árshátíð skólafélagsins. „Akkúrat" þegar skammdegið er að
hellast yfir og grámygla hversdagsins að gera útaf við mann, þá kem-
ur árshátið og hressir nemendur við, allavega um stund.
atriða á árshátið.
Afar mikill undirbúningur ligg-
ur að baki góðrar árshátíðar.
Æfíngar á skemmtiatriðunum hófust
tæpum mánuði fyrir árshátíðardag-
inn sjálfan og hópur stúlkna unnu
að því hörðum höndum að gera aug-
lýsingamar (fyrir árshátíðina) sem
bestar. Og þeim brást svo sannarlega
ekki bogalistin. Ég minnist þess varla
að hafa séð jafn glæsilegar auglýs-
ingar á veggjum Menntaskólans. Hin
stórkostlega félagsmiðstöð mennta-
skólanema, kjallari Casa Nova, var
skreytt í hólf og gólf. Allir veggir
kjallarans voru þaktir myndum í fjöl-
breytilegum litum. Þema árshátíðar-
innar að þessu sinni var „árshátíð,
djúpt í hugarheimi“ og báru bæði
auglýsingar og fleira í undirbúningn-
um þess vitni að beita skyldi hug-
myndafluginu. En þess má geta, að
gefin var sérstaklega út plata í
tengslum við árshátíðina sem hafði
að geyma fjögur frumsamin lög eftir
nemendur í skólanum.
Spenningurinn hafði farið stigvax-
andi alla vikuna, og þann 12. nóvem-
ber rann hinn langþráði dagur upp.
Klukkan 16 hófst tæplega tveggja
tíma skemmtidagskrá. Hún var að
þessu sinni afar góð, og einstaklega
vel æfð og útfærð. Enda engir við-
vaningar að verki með Magnús Geir
inspector og Gamanleikhúsmann
fremstan í flokki dugmikilla nema.
Mér virtust allir skemmta sér hið
besta.
Eftir skemmtiatriðin hélt fólk
heim og í sitt fínasta púss, því næst
er venjan að bekkimir fara saman
út að borða og svo í bekkjarpartý
svokölluð. Þetta eru oft hin skemmti-
legustu hóf, enda er það einn kostur
bekkjarkerfis að þar blandast saman
fólk með mismunandi skoðanir og
sjónarmið, sem hefði líklega aldrei
kynnst nema vera saman í bekk.
Einnig er oft ótrúlegt að fylgjast
með þeim stakkaskiptum sem verður
á fólki utan skólastofunnar. Há-
punktur kvöldsins er svo dansleikur-
inn sjálfur, sem að þessu sinni var
haldinn á Hótel Sögu.
Þar eru flestir piltana vel klæddir
í kjól og hvítt, eins og lög gera ráð
fyrir og stúlkurnar penar í síðum
kjólum (og með uppsett hár (þ.e. þær
sem það geta)). A árshátíð sést sú
sjón sem ekki er algeng á skólaböll-
um almennt, þ.e. þama dansa saman
kynin tvö og þó oft gangi brösulega
rejmir fólk þó að fóta sig í valsi, ræl
og tjatjatja. Jafnvel mátti sjá bregða
fyrir tangótöktum hjá þeim allra
færustu þó gólfplássið væri ekki
mikið.
Dansað var langt frameftir nóttu
við undirleik bæði skólahljómsveitar-
innar og Milljónamæringana og var
góður rómur gerður að. Ég held að
allir hafí farið ánægðir heim og varð-
veiti minninguna um skemmtilegan
dag og góða árshátíð.
S.A.
bregða fyrir sig betri fætinum.
iiciiiciiuuiu um ci nciiuuui oam-
kvæmisdans í síðustu leikfimi-
timum fyrir árshátiðina.
SJÁ NÆSTU SfÐU
MINNINGAR 2 er önnur í röSinni af pessum hugljúfu
plötum þar sem margir af okkar bestu söngvurum
syngja joekkt lög í rómantíska kanntinum.
Tilgangurinn med útgáfu plötunnar er söfnun í
hjálparsjóð RauSakross íslands.
Söngvarar á pessari hugljúfu plötu eru:
Erna Gunnarsdóttir,
María Björk Sverrisdóttir,
Sigríöur Beinteinsdóttir,
Bergþór Pálsson og
Eyjólfur Kristjánsson.
MINNINGAR 2 er fáanleg á geislaplötu,
kassettu og einnig gömlu góöu vínylplötunni.
SMIÐJAN
KRINGIUNNISIMI: 600930
STÓRVERSLUN LAUGAVEd 26 SÍMI: 600926
1AUGAVEGI96 SÍMI: 600934
EIÐISTORGISÍMI: 612160
PÓSTKRÖFUSÍMI: 680685 (SÍMSVARI)