Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAÖUR 1. DESEMBÉR I9ð2
Víkingasveitin kölluð út á sunnudagskvöld
Tveir menn ógnuðu
fólki með haglabyssu
VÍKINGASVEIT lögreglunnar í Reylsjavík var kölluð út seint á sunnu-
dagskvöld vegna tveggja manna, sem ógnað höfðu fólki með hagla-
byssu víða um borgina. Haglabyssan var með afsöguðu hlaupi. Fyrst
var tiikynnt um ferðir mannanna í nýbyggingu í Grafarvogi. Annar
þeirra taldi sig eiga skuld inni hjá verktaka byggingarinnar og vildi
innheimta hana. Þar var haglabyssan hlaðin skotum í augsýn þeirra
manna sem voru við vinnu i nýbyggingunni. Mennirnir báru ekki
kennsl á verktakann á staðnum og héldu þá á heimili hans, þar sem
þeir ógnuðu eiginkonu hans og þremur ungum börnum með byssunni.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar var sérsveit lögreglunnar, vík-
ingasveitin, kölluð út um leið og til-
kynningar fóru að berast lögreglu
um athæfí mannanna upp úr klukk-
an níu um kvöldið. Skömmu eftir
miðnættið tókst síðan víkingasveit-
inni að handtaka mennina á Rauð-
arárstíg, þar sem annar þeirra er
skráður til heimilis. Víkingasveitar-
menn vöktuðu húsið og handtóku
annan manninn er hann kom út úr
því um klukkan hálf eitt. Síðan var
ráðist til inngöngu í húsið og hinn
gripinn þar sem hann var að tala í
síma. Báðir mennimir eru grunaðir
um að hafa verið undir áhrifum
fíkniefna þetta kvöld.
Mennimir tveir, annar 32 ára og
hinn 22 ára, hafa áður komið við
sögu lögreglunnar, einkum sá eldri.
Er þeir komu í nýbygginguna í Graf-
arvogi, þar sem verið er að reisa
bamaheimili, var verktakinn á
staðnum en þeir munu ekki hafa
borið kennsl á hann. Þaðan héldu
þeir svo í Seiðakvísl þar sem verk-
takinn býr og ógnuðu þar eiginkonu
hans og þremur bömum. Lögreglan
kom skömmu síðar á staðinn og flutti
konuna og bömin á brott meðan
verið var að ná mönnunum.
Klukkan rúmlega 11 um kvöldið
barst lögreglunni svo tilkynning um
ferðir mannanna í Fellunum. Lög-
reglan hafði þá fengið lýsingu á bfl
þeirra og þeim sjálfum og vissi að
þeir höfðu farið úr Fellunum að íbúð
annars þeirra við Rauðarárstíg. Eft-
ir handtöku þeirra var leitað í íbúð-
inni og fannst þá haglabyssan ásamt
18 skotum í hana auk þess sem
skothylki fundust í bíl mannanna.
Sem fyrr segir hafa báðir menn-
irnir komið við sögu lögreglu áður
og annar þeirra hafði raunar verið
handtekinn nóttina áður með hnífa
og önnur vopn í fómm sínum og
hafði gist fangageymslur þá nótt.
Þeim var sleppt úr haldi í gær þar
sem málið var fullrannsakað.
Víkingasveitin handtekur annan mannanna fyrir utan íbúðina á Rauðarárstíg.
Morgunblaðið/Ingvar
Sjúkraliðar leggja niður störf á
meðan á kj aramálafundi stendur
Dregið úr aðgerðum og fólk fært til á Borgarspítala
Trúnaðarmannaráð Sjúkraliðafélags íslands hefur boðað til al-
menns fundar með starfandi sjúkraliðum í Reykjavík í dag kl. 7.30
árdegis. Rætt verður um stöðu kjaramála á fundinum, sem stendur
þar til sameiginleg niðurstaða fæst. Aðgerðir sjúkraliðanna koma
í dag og á morgun hvað verst niður á Borgarspítala sem sinnir
bráðavakt þessa daga. Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri
spítalans, segir að þegar hafí verið gripið til ráðstafana, s.s. að
fækka aðgerðum og færa fólk á milli deilda, en farið verði að
nýju yfir stöðuna í dag.
Trúnaðarráð Sjúkraliðafélags
íslands hefur sent forstöðumönn-
um og hjúkrunarstjómum ríkis-
spítala, Borgarspítala, Landakots-
spítala og annarra þjónustudeilda
á vegum sömu rekstraraðila, bréf
þar sem sagt er frá fundinum og
því að á meðan á honum standi
Auglýsti eftir smiðum í Morgunblaðinu
Þrír sóttu um, þar
af einn frá Adelaide
HAFSTEINN Filippusson, eigandi húsgagnaverksmiðju í Brisbane í
Ástralíu, segir að Ula hafi gengið að fá íslenska húsgagnasmiði til starfa
í fyrirtæki sínu. Hann auglýsti eftir smiðum í Morgunblaðinu í byijun
nóvember og sagði að hann hefði fengið eitt svar við auglýsingunni
frá íslenskum húsgagnasmið búsettum í Adelaide.
„Það sóttu um þrír trésmiðir, en
málið er ekki komið það Iangt að
hægt sé að segja til um hvort þeir
komi hingað til starfa. Ég hafði
hreinlega ekki hugmynd um hvort
ísiendingar hefðu áhuga á því að
koma hingað eða ekki,“ sagði Haf-
steinn. Hann sagðist hafa séð það í
Morgunblaðinu að atvinnuástand
meðal smiða væri slæmt á íslandi,
en hann fær blaðið sent til Brisbane.
„Ég reikna með því að menn setji
fyrir sig þessa miklu fjarlægð. Það
fer mikið eftir viðbrögðum stjóm-
valda héma hve marga ég get ráðið.
Innflytjendaskrifstofan setur þau
skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis í
landinu að umsækjendur hafí mennt-
un á einhveiju sviði sem stjómvöld
viðurkenna og séu ekki að komast á
eftirlaunaaldur."
verði sjúkraliðar fjarri vinnu.
„Trúnaðarráð væntir þess að
forstöðumenn sjúkrahúsanna taki
þessari ákvörðun af skilningi og
geri þær ráðstafanir sem þurfa
þykir svo að kjaramálafundur
sjúkraliða leiði til sem minnstrar
röskunar á starfsemi sjúkrahús-
anna og forði sjúklingum þess frá
óþægindum,“ segir m.a. í bréfínu.
Jóhannes Pálmason sagði að
auðvelt væri að sjá að vinnustöðv-
un 166 sjúkraliða á spítalanum
hefði mikil áhrif á reksturinn. „Það
þýðir auðvitað að við höfum þegar
gripið til þess að reyna að draga
úr öllum aðgerðum og lögð verður
áhersla á að sinna bráðaþjónustu.
Og búast má við að í einhveijum
tilfellum geti umönnun dregist eitt-
hvað saman en það verður reynt
að færa til fólk þannig að engin
hætta verði á ferðum og ég tel
ekki ástæðu til að svo fari. Ef
deilan aftur á móti dregst á lang-
inn, hlýtur að koma til ýmissa
annarra ráðstafana, s.s. að kanna
hvort aðstandendur geti á einhvern
hátt veitt hjálp, eða útskrifta og
annarra aðgerða sem hægt yrði
að grípa til. Um það er ótímabært
að tjá sig frekar þar sem við vonum
auðvitað að deilan leysist," sagði
Jóhannes.
Hann sagði að sér fyndist ein-
kennilegt að aðgerðum sjúkraliða
væri beint að sjúkrahúsunum í
Reykjavík að ósekju þar sem hann
vissi ekki annað en að 1,7% launa-
hækkun hefði alltaf staðið til boða
hjá Reykjavíkurborg. „Og þó að
samningur sé ekki gerður er ljóst
að fyrri samningur er í gildi þar
til nýr samningur tekur gildi.
Þannig að það er ekki aðeins við
samningsaðila að sakast, líka við
félagið. Það þarf alltaf tvo til að
semja,“ sagði hann.
Heilsugæslan í Reykjavík hefur
sent frá sér tilkynningu þar sem
segir að vegna aðgerða Sjúkraliða-
félags Islands, sem hefjist l.des-
ember, sé viðbúið að þjónusta
heimahjúkrunar heilsugæslunnar
(Heilsuvemdarstöðvar Reykjavík-
ur og heilsugæslustöðvanna í
Reykjavík) raskist verulega meðan
á aðgerðunum standi. Þannig sé
viðbúið að víða verði aðeins hægt
að veita bráðnauðsynlegustu þjón-
ustu.
Meirihluti utanríkismálanefndar um EES
Samþykki Alþingis
brýtur ekki í bága
við slj órnar skrána
MEIRIHLUTI utanríkismálanefndar Alþingis kemst að þeirri niður-
stöðu, að það sé íslenskum hagsmunum ótvírætt til framdráttar
að ísland gerist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur
fram í áliti meiríhluta nefndarinnar sem lagt var fram á Alþingi
í gær. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu, að samþykki Alþingis
á EES-samningnum brjóti ekki í bága við stjórnarskrá íslands.
„Posarnir“ nýtast handhöfum
debetkorta_______________________
Beinlínutengingin okkuríhag, því
að á síðasta ári fyrirfórust a.m.k.
100 milljónir í fölsuðum og inni-
stæðulausum ávísunum — segir
framvæmdastjóri kaupmannasam-
takanna. 26
Bretland
Háværar kröfur um að fjármála-
ráðherrann segi afsér. 28
Fjármál__________________________
Lánsfé eródýrast íBretlandi. 35
Leiðari
Endi bundinn á fískveiðideilur. 30
Blr íslandi 1094 BggjgS gps §§§§ HpSKS Hi/Æ wÆSA UndOftíötfl 1 r H*wd»*tinM7
Wm Birgir líklega ekki
USil'M' SSsfse wm
íþróttir
► Keflvíkingar enn á sigur-
braut í körfuknattleiknum.
Norðurlandamótið í keilu á ís-
landi 1994. Stefnumótun á árs-
þingi KSÍ.
Jólamatur
► Hátíðamatseðill. Kalkún í
jólamatinn. Púðar í krakka-
pakka. Smákökur. Hlaðborð.
Hangikjöt. Leirskraut. Laufa-
brauð. Villibráð
í áliti meirihlutans kemur meðal
annars fram, að vald íslenskra
stjórnvalda í utanríkismálum og
Hæstaréttar sé í engu skert með
aðild að EES. Með vísan til ýmissa
lögfræðilegra sjónarmiða kemst
meirihlutinn að þeirri niðurstöðu,
að EES-samningurinn bijóti ekki
í bága við stjórnarskrána. Að auki
hafí aðild íslands að EES almennt
gildi fyrir þróun íslensks þjóðfélags
og stöðu ísiands á alþjóðavett-
vangi.
í álitinu kemur fram, að sam-
kvæmt upplýsingum frá Þjóðhags-
stofnun aukist landsframleiðsla
Islendinga um 1,6%, eða alit að
sex milljarða króna árlega, fyrir
bein áhrif af EES-samningnum.
Fram kemur, að utanríkismála-
nefnd hafí sent samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið til um-
sagnar 66 aðila. Nefndinni bárust
35 umsagnir og aðeins einn um-
sagnaraðili, BHMR, treysti sér
ekki til að mæla með aðild íslands
að EES. Greinilegur stuðningur
hafi komið fram við samninginn
frá mörgum aðilum, svo sem Fé-
lagi íslenskra iðnrekenda, Sam-
bandi íslenskra kaupskipaútgerða,
Verslunarráði og Vinnuveitenda-
sambandi íslands. Þá iýsi aðilar
eins og Félag rækju- og hörpudisk-
framleiðenda, Rannsóknaráð ríkis-
ins og Flugráð yfír stuðningi við
þá þætti samningsins sem þá
varða. Nokkrir aðilar, eins og Al-
þýðusamband íslands, Farmanna-
og fískimannásambandið og
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja vísa til þess að samtök þeirra
hafi enn ekki tekið afstöðu til
samningsins.
i álitinu er það sérstaklega tek-
ið fram, að Neytendasamtökin telji,
að, „hvað varðar íslenska neytend-
ur og þá sérstaklega neytenda-
löggjöf er samningurinn í öllum
meginatriðum til bóta.“ Samtökin
ísiensk verslun tóku í sama streng.
Meirihluta utanríkismálanefnd-
ar í þessu máli skipa Björn Bjama-
son, Ami R. Ámason, Geir H.
Haarde og Tómas Ingi Olrich, allir
frá Sjálfstæðisflokki, og Rannveig
Guðmundsdóttir Alþýðuflokki. 1
áliti meirihlutans kemur fram að
Evrópska efnahagssvæðið hefur
verið til umfjöllunar á 83 fundum
nefndarinnar frá apríl 1989, þegar
könnunarviðræður hófust. Er þess
getið til samanburðar, að aðild ís-
lands að Fríverslunarsamtökum
Evrópu, EFTA, árið 1970, hafi
aðeins verið rædd á tveimur fund-
um nefndarinnar.
Sjá einnig á þingsiðu bls. 36.