Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 9
FALLEG NÝ SNIÐ í ÖLLUM SIÆRÐUM og KArUlt PELSINN Kirkjuhvoli ■ simi 20160 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 Aldraðir flýja landsbyggðina Jóhanna Signrðardótt- ir, félagsmálaráðherra, sagði á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga: „Hagstofan hefur að beiðni minni tekið saman upplýsingar um maim- fjöldaþróun og búsetu með tilliti til aldurs síðast- liðinn áratug, eða árin 1981-1991. Samkvæmt þessum upplýsingum nam fjölgun aldraðra, 65 ára og eldri, í landinu öllu fyrstu fimm ár þessa tímabils tæplega 2.400 manns. Af þeirri aukningu var hlutur höf- uðborgarsvæðisins á milli 1.600-1.700 manns en hefði einungis átt að vera á miili 1.300-1.400, ef tek- ið er mið af dreifingu mannfjöldans að öðru leyti. Á seinni hluta tímabils- ins, 1986-1991, er þróunin enn ískyggilegri. Þá nem- ur fjölgunin alls rúmum 2.500 manns. Hlutur höf- uðborgarsvæðisins er þá rúmlega 2.000 en ætti ekki að vera nema 1.400- 1.500. Hlutur landsbyggð- arinnar í aukningunni nemur 500 manns en ætti hins vegar að vera 1.000- 1.100. Á þessu tiu ára tíma- bili hefur þvi fjölgun 65 ára og eldri á lands- byggðinni verið alls 900-1000 manns minni en búast hefði mátt við væri allt með felldu." Aldurshópur- inn 15-25 ára flýr lands- byggðina Félagsmálaráðherra sagði og: „í fyrrnefndri athugun Hagstofunnar kemur í jjós að brottflutningur ungs fólks af landsbyggð- inni er ógnvekjandi. Á árunum 1981-1986 varð fækkun fólks á aldr- Vinnuvernd , í verki I ...ÞÍN VEGNA! I I Tryggðu vel það sem þér er dýrmætt! Skeifan 3h - Slmi 81 26 70 - FAX 68 04 70 vandamál margra byggð- arlaga. í raun er um vita- hring að ræða. Smæð margra sveitarfélaga hindrar að þau geti veitt ibúum sinum ýmsa þjón- ustu sem talin er sjálfsögð í nútima þjóðfélagi. Skortur á þjónustu felur hins vegar í sér að ekki eru störf í þjónustugrein- um sem gætu laðað fólk til búsetu í hinum dreifðu byggðum. Þannig hníga rök að þvi að einhæfni atvinnulífsins megi í verulegum mæli rekja til þess að sveitarfélögin eru of smá til að geta myndað sterkar þjónustuheildir. Þetta kemur viða fram ekki sizt á sviði félags- legrar þjónustu þar sem smæð sveitarfélaga kem- ur í veg fyrir að grund- völlur sé fyrir rekstri hennar. Víða um land er því ekki að finna fuilnægj- andi félagsþjónustu, sem fókið hefur þörf fyrir og veldxu- því, að það hefur leitað til höfuðborgar- svæðisins til þess að fá þörfum sinum mætt. Þetta má lesa úr Árbók Sambands íslenzkra sveit- arfélaga 1992 þar sem fram kemur að útgjöld félagsþjónustu eni að meðaltali ekki nema 3,6% rekstrargjalda minni hreppa, 7% hjá stærri hreppum, um 15% hjá kaupstöðum en yfir 24% í Reykjavík. Þetta hefur þau áhrif að einstakir þjóðfélagshópar, t.d. aldr- aðir, sem eru háðir þjón- ustu, verða að taka sig upp og flytja suður.“ Staðreynd er að Reykjavik hefur veitt öldruðum hlutfallslega meiri þjónustu en önnur sveitarfélög. í þessum efnum standa sveitarfé- lögin þeim mun verr að vigi, sem þau eru smærri. Staðreynd er og að ungt fólk af landsbyggðinni, sem hefur sérhæft sig i langskólanámi ýmiss kon- ar, fær í mjög takmörkuð- um mæli störf við hæfi í heimahögum, þ.e. í minni sveitarfélögum. Dönsku ELFA háfarnir eru glæsilegir, stílhreinir og sönn eldhúsprýði. Við bjóðum nú nýjar gerðir af þessum vinsælu háfum í 16 mismunandi litum, stáli eða kopar. /V' Eínar Farestveit & Cohf Borgartúni 28 3 622901 og 622900 Ungt fólk á aldrinum 15 til 24 ára hefur flykkzt af landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins á 9. áratugnum. Sama máli gegn- ir um fólk, sem er að komast á eftirlaunaald- ur. Það hefur í stórum stíl flúið smærri sveit- arfélög, sem ekki bjóða upp á félagslega þjónustu á borð við höfuðborgarsvæðið. inum 15-24 ára á landinu öllu sem nam rúmlega 1.800 manns. Þar af voru um 1.500 af landsbyggð- inni en ekki nema rúm- lega 300 af höfuðborgar- svæðinu. Á seinni helmingi tíma- bilsins versnaði ástandið enn: fækkun aldurshóps- ins í landinu öllu nam þá rúmlega 500 manns en fækkun þessa aldurshóps á landsbyggðinni var rúmlega 1.300 manns í stað 200, _ef allt væri með felldu. Á höfuðborgar- svæðinu var hins vegar fjölgun í þessum aldurs- hópi um rúmlega 800 en hefði átt að vera fækkun miðað við eðlilegt hlutfall af fækkun einstaklinga í þessum árgöngum sem nemur tæplega 300. Þessar tölur segja okk- ur, að landsbyggðin hefur misst 1.800-1.900 ung- menni til höfuðborgar- svæðisins umfram þá eðli- legu fækktm, sem orðið hefur í þessum aldurs- hópi, 15-24 ára.“ Stærri sveitar- félög Skýring ráðherrans var m.a. þessi: „Það er ólijákvæmilegt að stækka sveitarfélögin til þess að treysta byggð í landinu. Með þvi skapast skilyrði fyrir markvissari íjárfestingu, aukinni sér- hæflngu fyrirtækja, hag- stæðari rekstraraðstæð- um, öflugri vinnumarkaði og sterkari íjárhagsleg- um baklyarli byggðanna. Einhæfni atvinnulífs er eins og kunnugt er aðal Ungir og aldnir streyma til Reykjavíkur Franskar buxur ogpeysur frd stœrð 3fr. TESS Opið virka daga frá 9-18 DUNHAGA, og laugardag 10-16 S. 622230. V NEt Fnejkslufuodiir Jónas Kristjánsson sýnir hrossatölvubanka áfræðslufundi Fáksfimmtudaginn 3. des. kl. 20.30 ífélagsheimili Fáks íVíðidal. Á fundinum varpar hann myndum af tölvu- skjá á sýningartjald. Öllum hestamönnum heimill aðgangur. Ókeypisfyrirfélagsmenn Fáks. Fræðslunefnd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.